Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
15
urnesja, Iðntæknistofnunarinnar og
Raunvísindastofnunarinnar. Nefna
má að Nýsjálendingar hafa nýverið
komist upp með nýtingu þessa efn-
is með svipuðum eða sömu aðferð-
um og hafa m.a. sótt um einkaleyfi
hér á landi á slíkri úrvinnslu. Það
liggur fyrir að útflutningur á efni
þessu gæti gefið þjóðinni 200-300
milljónir ísl. kr. í gjaldeyristekjur á
ári. Þar að auki er líklegt að bæta
mætti nýtingu jarðhitakerfisins
með niðurdælingu jarðsjávarins eft-
ir slíka úrvinnslu kísilsins. Stofn-
kostnaður fyrirtækis af þessu tagi
mun vera um 100 milljónir króna
og er það ofvaxið einstaklingi því
fæstir hafa fjárhagslegt bolmagn
til þess. Stjórnvöld eru haldin þeim
doða er áður getur og hafa ekki
sýnt frekari áhuga á málinu. Slíkur
doði er því miður óðum að verða
þjóðarlöstur.
Talandi tákn um þessa óheilla-
þróun er að á sl. ári fjölgaði um
900 stöður í þjónustu þess opinbera
og mun talsvert af þeirri stöðuaukn-
ingu vera pólitísk embætti, sem eru
án efa algjörlega óþörf og mætti
nefna dæmi um.
í okkar harðbýla og rýra -landi
er meiri nauðsyn á að einstaklings-
framtakið fái notið sín, en með
flestum öðrum þjóðum og verði
ekki hugarfarsbreyting í þessu efni
er hætt við að dugmesta og hæf-
asta fólkið flýi land og þess er vert
að minnast við þessi áramót að á
síðastliðnu ári fluttist fleira fólk af
landi brott en nokkurn tíma áður.
Höfundur er
hæstaréttarlögmaður.
um alvara með tali um yfirburði
hins frjálsa markaðar ættu þeir að
taka höndum saman og hafna öllum
hugmyndum ríkisstjórnarinnar um
miðstýrða fjárfestingu í stóriðju.
Höfundurer
skógræktarfræðingur og hefur
m.a. fengist við skóghagfræði.
Honda ’91
Civic
Sedan
16 ventla
Verð 1.045 þús. sjálfsk.,
miðað við staógreiðslu
GREIÐSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA.
H)
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900
Hvað er
Armaflex
Það er heimsviðurkennd
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
(Ajrnstrong
Ávallt tllálager.
Þ. ÞORGRÍMSSON & CQ
Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640
Aðalfundur Utflutningsráðs:
Rætt um íslensk
útflutningsmál
Aðalfundur Útflutningsráðs íslands verður haldinn þann 19. febrú-
ar nk. Á fundinum flytur utanríkisráðherra, Jón Baldvin Hannibals-
son, ávarp. Skýrsla stjórifar verður flutt og ársreikningar kynntir.
Jafnframt verður tilkynnt um skipan nýrrar stjórnar ráðsins í sam-
ræmi við ný lög um Útflutningsráð íslands.
Á fundinum verður rætt um ís- lífskjör og Björn Friðfinnsson, ráðu-
lensk útflutningsmál og framtíðar-
þróun Útflutningsráðs Islands.
Marten Linkstahl frá sænska út-
flutningsráðinu mun flalla um sam-
starf Útflutningsráðs Svía og ut-
anríkisráðuneytis þeirra bæði í Sví-
þjóð og erlendis.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmd-
astjóri Verslunarráðs Islands, fj'allar
um þjóðhagslegt mikilvægi útflutn-
ings og tengsl gjaldeyristekna við
neytisstjóri í viðskipta- og iðnaðar-
ráðuneyti, um evrópskt gæðaeftirlit-
skerfi. Friðrik Pálsson, forstjóri Söl-
umiðstöðvar hraðfrystihúsanna,
ræðir þróun í íslenskum sjávarútvegi
á komandi árum og þá þjónustu sem
Útflutningsráð _íslands_ getur veitt
þeirri grein en Olafur Olafsson, for-
stjóri Álafoss hf., um þróun iðnaðar
og þörf hans fyrir þjónustu Útflutn-
ingsráðs.
PEMN6M
ETann
ÖROSENGRENS
Enskir og
sænskir
peningaskápar
ELDTRAUSTIR • ÞJÓFHELDIR ■ HEIMSÞEKKT FRAMLEIÐSLA
E.TH.MATHIESEN H.F.
BÆJARHRAUN 10 - HAFNARFIRÐI - SÍIVII 651000
ÖRUGGUR VINNUSTAÐUR
- GOTT STARFSUMHVERFI ^
Mikilvægir þættir sem sífellt
þarf aö vaka yfir.
Við eiguni'jnikið í húfi íslendingar, hvernig þessi mál þróast. Gott
starfsumhverfi er einn meginþáttur umh'verfisverndar, og engum
blandast hugur um að hrein og tœr náttúra landsins ásamt fyrirtækj-
um, sem búin eru samkvæmt ýtrustu hreinlætis- og mengunarvarna-
kröfum, eru bestu vopnin þegar att er kappi við aðra framleiðendur
á heimsmörkuðum.
Öryggi á vinnustað og góður aðbúnaður starfsfólks eru eftirsóknar-
verð markmið jafnt launþega og vinnuveitenda.
Á þessu sviði eru mörg verkefni og stór sem bíða úrlausnar,
en efalaust hafa fáir gert sér grein fyrir því, að unnt er að leysa þau
með langtíma fjármögnun.
í lögum Iðnlánasjóðs eru ákvæði, er heimila honum að lána í þessa
mikilvægu uppbyggingu.
GÆTUM LANDSINS - GERUM HREINT.
IÐNLÁNASJÓÐUR
ÁRMÚLA 13a, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 68 04 00