Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 4
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 12. FEBRÚAR
YFIRLIT í GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er 1.005 mb minnk-
andi lægð sem þokast norðaustur en vaxandi hæðarhryggur fyrir
sunnan land.
SPÁ: Hæg vestlæg eða breytileg átt. Stöku él vestanlands en
annars þurrt og víða léttskýjað. Frost sums staðar, talsvert í inn-
sveitum norðanlands og austan en 0-4 stiga hiti vestanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Þykknar upp með vaxandi suðaustan-
átt og fer síðan að rigna suðvestanlands en hægviðri og nokkuð
bjart veður norðaustanlands fram eftir degi. Hiti 3-6 stig, hlýjast
vestanlands.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðaustanátt og rigning með köflum
norðanlands og austan en suðvestanátt með skúrum á Vestur- og
Suðvesturlandi. Hiti 3-8 stig, hlýjast austanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
x Norðan, 4 vindstig:
Vindörín sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heii fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* # *
■JQ Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j- Skafrenningur
Þrumuveður
Ríkið kaupir Útvegsbankahúsið:
Héraðsdómur fær
húsið til umráða
Kaupverð tæpaf 200 milljónir króna.
Breytingar kosta um 120 milljónir
RÍKIÐ keypti í gær Útvegsbankahúsið svonefnda við Lækjartorg
í Reykjavík af Islandsbanka hf. og var kaupverðið tæpar 200
milljónir króna, sem greiðast með verðtryggðu skuldabréfi til níu
ára og eru ársvextir 6,7%. Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráð-
herra undirritaði kaupsamninginn fyrir hönd ríkissjóðs og af-
henti síðan Óla Þ. Guðbjartssyni dómsmálaráðherra húsið til af-
nota fyrir Héraðsdóm Reylg'avíkur, sem stofnaður verður á næsta
ári. Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið til notkunar sem Dóm-
hús Reykjavíkur að loknum breytingum 1. júní á næsta ári.
Samningur um kaupin var und- dómaraembætta á héraðsdóms-
irritaður í Útvegsbankahúsinu
klukkan 17 í gær. Fram kom í
ávarpi fjármálaráðherra að samn-
ingurinn á rætur að rekjatil stofn-
unar íslandsbanka hf. árið 1989,
en þá var ríkinu áskilinn forkaups-
réttur að húseigninni um leið og
Útvegsbankinn hf. var seldur.
Ákvörðun um kaupin var tekin
eftir samráð fjármálaráðuneytis,
dómsmálaráðuneytis og fulltrúa
stigi í Reykjavík.
Aætlað er að breytingar á hús-
inu kosti 115 til 120 milljónir
króna, þannig að tilbúið á húsið
að kosta um 315 til 320 milljónir.
í tengslum við stjórnkerfís-
breytingar sem verða við gildis-
töku laga um aðskilnað dómsvalds
og umboðsvalds í héraði verða
Borgardómur, Sakadómur
Reykjavíkur, Sakadómur í ávana-
2 menn kærðir fyrir
nauðgnn og barsmíðar
KONA um fertugt kærði tvo
menn á þrítugsaldri fyrir nauðg-
un til lögreglu á sunnudagsmorg-
un. Mennirnir eru sagðir hafa
barið eiginmann konunnar og
neytt hana svo til samræðis við
sig.
Samkvæmt kæru konurinar hitti
hún mennina á skemmtistað í
Reykjavík og bauð þeim heim til
sín. Þau sátu að drykkju þegar
maður konunnar kom heim. Til
átaka kom milli hans og gestanna
og var maðurinn rænulaus og bar
merki um barsmíðar þegar lögregl-
an kom á vettvang. Eftir að hafa
gengið í skrokk á manninum
þröngvuðu þeir konunni til samræð-
is við sig.
Skattframtöl:
Svipaðar
heimtur og
síðustu ár
„MÉR sýnist að heimtur á skatt-
framtölum nú séu mjög svipáðar
og undanfarin ár,“ sagði Gestur
Steinþórsson, skattsljóri
Reykjavíkur, í samtali við Morg-
unblaðið. Frestur til að skila
skattframtölum einstaklinga
rann út á sunnudagskvöld.
Gestur sagði að mikið hafí verið
að gera á skattstofunni í lok
síðustu viku og eins í gær. „Marg-
ir komu í dag (mánudag) þar sem
þeir gátu ekki skilað á réttum tíma,
vantaði upplýsingar og fleira þess
háttar. Veðrið fyrri part vikunnar
gerði það að verkum að fólk kom
síður svo það lenti mikið saman í
vikulokin."
Hann sagði að nokkuð hafí ver-
ið um það að fólk hafi skilað inn
framtölum í gær og væri það látið
óátalið, þar sem 10. febrúar bar
upp á sunnudag.
Málið er til rannsóknar hjá RLR.
Síðdegis í gær hafði enginn verið
handtekinn og ekki þótti fullljóst
um hvaða menn var að ræða.
Nýr langbylgjusendir:
Skoðum alla
mög'uleika
- segir Svavar Gestsson
Menntamálaráðherra segir
lítið hægt að segja um ummæli
Jóns Þórodds Jónssonar, yfir-
verkfræðings Pósts og síma. Jón
Þóroddur sagði við Morgunblað-
ið á sunnudaginn að langbylgju-
sendingar væru orðnar úreltar.
„Það er lítið um þetta að segja
á þessu stigi. Við munum skoða
alla möguleika gaumgæfílega áður
en nokkur ákvörðun verður tekin,“
sagði Svavar Gestsson.
Bygging nýs langbylgjusendis
kostar um einn milljarð, þar með
talin kaup á landi þar sem mastrið
mun rísa.
Oboðinn gest-
ur við rúmið
HJÓN í Reykjavík vöknuðu
snemma á sunnudagsmorgun við
það að bláókunnugur maður sat
á rúmstokk þeirra og strauk
konunni. Eiginmaðurinn hljóp
þegar til og handsamaði manninn
meðan beðið var lögreglu. Hún
kom og færði gest þennan, sem
talinn var hafa skriðið inn um
glugga, í fangageymslur.
Við yfírheyrslur síðar um daginn
bar gesturinn fyrir sig algjört minn-
isleysi. Hann hafði verið að halda
upp á afmælið sitt heima hjá sér
og mundi það síðast að hann hafði
innbyrt heila flösku af sterku áfengi
og hálfan kassa af bjór. Svo kvaðst
hann hafa ætlað út að skemmta sér.
og fíkniefnamálum og að hluta
embætti borgarfógeta Reykjavík-
ur sameinuð í einn dómstól, Hér-
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Frá samningsgerðinni. Björn Björnsson
bankasljóri Islandsbanka, Brynjólfur
Bjarnason formaður bankaráðs íslands-
banka, ÓIi Þ. Guðbjartsson dómsmálaráð-
herra, Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra, Steingrímur Gautur Krisljánsson
borgardómari, Jón Skaftason yfirborgar-
fógeti, Gunnlaugur Briem yfirsakadómari
og Ásgeir Friðjónsson sakadómari í ávana-
og fíkniefnamálum.
aðsdóm Reykjavíkur.
Fram kom í ávarpi __ Björns
Björnssonar bankastjóra íslands-
banka, að sala hússins er liður í
hagræðingarátaki bankans. Hann
sagði að á um ári hefði íslands-
banki selt um sjö þúsund fermetra
húsnæðis að þessu meðtöldu fyrir
alls um 300 milljónir króna.
íslandsbanki hinn fyrri lét reisa
elsta hluta hússins á árunum 1904
til 1906 og var arkitekt Daninn
Christian Thuren, en hann teikn-
aði einnig Landsbankahúsið. Við-
bygging var reist árið 1935 norðan
við elsta bankahúsið og tengd því
tveimur árum síðar. Árin 1950 og
1953 voru byggingamar norðan
aðalhússins hækkaðar og árið
1962 voru byggðar fjórar hæðir
ofan á gamla Islandsbankahúsið
um leið og byggt var vestan við
húsið og norðan við það og hafa
þessi hús staðið síðan að mestu
óbreytt. Alls eru þessar byggingar
liðlega 4.200 fermetrar að gólf-
fleti og er fermetraverð um 47.200
krónur.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að fsl. tíma hltí veður Akureyri +2 léttskýjað Reykjavík 3 skúr
Bergen +21 hálfskýjað
Helsinki +11 léttskýjað
Kaupmannahöfn 0 snjókoma
Narssarssuaq +9 léttskýjað
Nuuk +7 snjókoma
Ósló +5 snjókoma
Stokkhólmur •í4 snjókoma
Þórshöfn 2 léttskýjað
Algarve 13 léttskýjað
Amsterdam +3 snjókoma
Barcelona 9 mlstur
Beríln +2 snjókoma
Chicago +7 skýjað
Feneyjar 3 þoka
Frankfurt *r3 skafrenningur
Gtasgow 2 reykur
Hamborg +3 snjókoma
Las Palmas vantar
London 1 léttskýjað
LosAngeles 12 léttokýjað
Lúxemborg +3 snjókoma
Madríd S hálfskýjað
Malaga 16 - skýjað
Mallorea 10 skýjað
Montreal +11 snjókoma
NewVork vantar
Orlando vantar
París 1 skýjað
Róm 12 rígnlng
Vln 0 alskýjað
Washington vantar
Winnipeg +19 skýjað