Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 9

Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR' 1991 9 ORYGGI FYRIR OLLU Skeifan 3h - Sími 82670 Tvöfaldi sólinn í öryggisskónum frá JALLATTE gerir skóna mjúka, létta og gripgóða, auk þess þolir hann vel olíur og sýrur. Stálþynna í sólanum er naglheld og þolir högg. Stálhetta hlífir tánum fyrir höggum og hnjaski og hefur nægilegt rými fyrir tærnar. í hælbótinni ér hlíf til varnar hásin og öklabeini. JALLATTE öryggisskórnir öruggt val. EFTIRMENNTUN BÍLGREINA NÁMSKEIÐ Rafkerfi IV Námskeiðinu erskipt í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um rafeindakveikjuna og er markmið þess hluta að gera þátttakendur hæfa til að greina bilanir I Ijós- stýrðum, spanstýrðum og segulstýrðum rafeinda- kveikjum. í seinni hlutanum er fjallað á bóklegan og verklegan hátt um rafeinda- og tölvutækni í farar- tækjum. Fjallað verður um skynjara, ,,anolog“ rásir, rökrásírog örtölvuna. í lokin eru þessirþættirtengd- ir saman í heildarkerfi. Þátttakendur: Skilyrði fyrir þátttöku er að viðkomandi hafi sótt námskeið i Rafkerfi III, þar sem fjallað er um nokkur grundvallaratriði í rafeindatækni. Lengd námskeiðs: 20 tímar. Rafkerfi IV verður haldið fimmtudaginn 21. febrúar, föstudaginn 22. febrúar frá kl 9-18 og laugardaginn 23. febrúar frá kl. 9-13. Þeir, sem koma utan af landi, fá ferða- og dvalarstyrk. Þátttaka tilkynnist í síma 91-83011 eða 91-681551. Þátttökugjald fyrir félags- menn er 6.500 kr., utanfélagsmenn 26.000 kr. Ekkier Aö gefnu tilefni sopiðáið Að halda þvt fram aðhœkkun bTQfingarkastnaðarins 1 þrim sjaldmiðU sem lekjumar verða reíknoðor i si aðeins bókJialdsurknilegl vandamál er aflur á móii óscemileg amgengni við sannleikann. Bardagi A-flokkanna Fyrir tveimur árum fóru þeir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokks- ins, og Ólafur Ragnar Grímsson, formað- ur Alþýðubandalagsins, um landið og boðuðu þáttaskil í stjórnmálunum á rauðu Ijósi. Þeir væru að leggja grunn að eilífu samstarfi eða samruna flokka sinna. „Endirinn á fortíðinni“ var þá haft eftir Jóni Baldvini á forsíðu Alþýðublaðs- ins. Nú dregur að kosningum og þá kem- ur í Ijós, að fortíðinni virðist ætla að Ijúka með því að Alþýðuflokkurinn nær í nokkra fyrrverandi frammámenn Alþýðubanda- lagsins til stuðnings við sig eða til setu á framboðslistum sínum. Við það herðist aðeins bardaginn milli A-flokkanna um atkvæðin. „Pólitískur refskapur“ I Reykjaneskj ördæini betjast þeir um fylgi kjósenda A-flokkanna Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra og Ólafur Ragnar Grimsson fjár- málaráðherra, formaður Alþýðubandalagsins. í Þjóðviljanmn á laugar- dag gaf Helgi Guð- mundsson ritstjóri mönn- um tóninn í baráttunni gegrx Jóni. Hann segir: „Eins og marga rekur sjálfsagt miimi til boðaði Jón Sigurðsson iðnaðar- ráðherra nokkra menn til sérkennilegrar undir- ritunar í haust er leið. Mikið lá á að koma undir- ritun þessari af sem skjótast. Áttu að taka þátt í henni ráðamenn fyrirtækjanna þriggja sem lýst hafa áhuga á að byggja hér álver í sameiningu, fulltrúi Landsvirigunar og svo auðvitað iðnaðarráðherr- ann sjálfur. Sjónvarpið og Ijóðviljiim greindu frá því að hinir erlendu gestir teldu undirritun þessa ekki tímabæra, og var eftir einhveijum þeirra haft að þeir vildu með þessu aðstoða ráð- herrann við að koma málinu áfram hér á landi. Þeir voru með öðrum orðum farnir að skipta sér af pólitík á íslandi. Siðan undirskriftar- daginn góða hefur margt skringilegt komið í Jjós, og mun mönnum þykja þeim mun minni skenimt- un af því öllu sem þeir eru nátengdari ráðherr- anum í pólitík. Æðibunu- gangurinn var slíkur að Jóhannesi Nordal, sljóm- arformanni Landsvirkj- unar, hafði láðst að tryggja sér umboð stjórnarirmar til að und- irrita hin mikilsverðu skjöl. Þegar til átti að taka var stjómin ekki á þeim buxunum að veita stjómarformanni það umboð sem hann þurfti af þeirri einföldu ástæðu að verðið sem til stóð að senvja um fyrir rafork- una var of lágt, trygging- ar í drögunum of rýrar, auk fleiri atriða sem stjómarmenn töldu óhagstæð Landsvirkjun. Ekki setti ráðherrann þetta fyrir sig, menn skyldu undirrita hvað sem tautaði og raulaði, þó enginn hefði í raun og vem áhuga á þessum undirskriftum nema hann. Oftast er iðnaðarráð- herrann talinn gæta vel að samræminu milli kapps og forsjár þegar hann vill koma einhveiju í verk, enda þótt kappið sé vissulega mikið. Und- irskriftin er hins vegar til marks um ofurkapp og pólitískur refskapur getur komið mönnum í vanda ef þeir sjást ekki fyrir í ákafanum að ná settu marki. Undirskrift- in varð vissulega verð- mætt innlegg ráðherrans á framboðsreikningiim á Reykjanesi. Grónum þingmönnum og ný- krýndum sigurvegurum var í einu vetfangi vikið neðar á A-listanum í kjör- dæminu, öllum hug- myndum um prófkjör ýtt til hliðar, og ráðherra ótimabærra undirskrifta settur í fyrsta sæti.“ Andar köldu Þjóðviljinn og alþýðu- bandalagsmenn hafa ekki úr háum söðli að detta í áhnálinu. Þeir hafa vijjað spilla fyrir viðræðunum við Atlants- ál og leitað allra Ieiða til að gera þær sem tor- tryggilegastar. Hin til- vitnuðu orð úr Þjóðviþ'- aiium snúast hins vegar ekki um efni málsins heldur hitt hvemig iðn- aðarráðherra Jón Sig- urðsson hefur haldið á því. Þjóðvijjinn grípur nú feginshendi tækifæri til að koma pólitísku höggi á samstarfsmami í ríkis- stjóm. Þjóðarhagur hafi ekki vakað fyrir iðnaðar- ráðherra heldur þráin eftir að komast í ömggt þingsæti. Helgi Guð- mundsson, ritsljóri Þjóð- viljans, segir í grein sinni: „Ymsir vildu svo vera láta að undirskriftin [sem iðnaðarráðherra var kappsmál] hefði verið markaust plagg, en það var mikill misskilningur, þvi á þeim efnisatriðum sem álfyrirtækjunum em hagstæðust hafa þau hangið eins og hundar á roði með þeim afleiðing- um að samningamenn um orkuverð hafa litið sem ekkert komist áfram. Enginn dregur í efa að iðnaðarráðherra ætli sér að ná því marki að láta reisa álver á ís- landi svo fljótt sem við verður komið. Þetta markmið er langt undan, en hitt að komast í fram- boð á Reykjanesi og leysa þannig aðsteðjandi próf- kjörsvanda í Reylqavík náðist." Ritstjóri Þjóðvi[jans lýkur grein sinni með þessum orðum: „Þegar undirskriftaat- gangurinn stóð sem hæst varð mikil pólitisk ókyrrð vegna þess að AJþýðubandalagið, og raunar heldur ekki Framsókn, vildi ekki bera ábyrgð á gerðum Jóns Sigurðssonar. Sum- ir töldu ríkisstjómina i andarslitrunuin, og ef mig misminnir ekki um of var meirihluti þjóðar- innar ákafur í að fá nýtt álver. Þá hafði staðið, svo mánuðum skipti, heilmik- iU sjónleikur gagnvart Austfírðingum og Norð- lendingum þar sem þeim var talin trú um að Eyja- fjörður og Reyðarfjörður væm líklegir staðir fyrir álver. Keilisnes varð fyr- ir valinu. Að svo stöddu skal engu spáð um hvort fyrir Reyknesingum fer eins og austanmönnum og norðanmönnum, en hitt er víst að: seint verð- ur álið sopið úr því það kemst ekki einusinni í ausu iðnaðarráðherr- ans.“ SJÓÐSBRÉF 5 Öryggi, eignarskattsfrelsi og ágæt ávöxtun Sjóðsbréf 5 eru góður kostur fyrir þá sem greiða háan eignarskatt því að eign í sjóðnum er eignarskattsfrjáls án skilyrða. Sjóður 5 fjárfestir eingöngu í verðbréfum með ábyrgð Ríkissjóðs Islands; spariskírteinum, ríkisvíxlum og húsbréfum, þannig nýtur þú öruggra raunvaxta auk þess hagræðis og sveigjanleika sem fylg- ir íjárfestingu í verðbréfasjóðum. Verið velkomin í VIB. VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 108 Reykjavík. Simi 68 15 30. Póstfax 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.