Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 18
18'
MORGÍINÖLAÐIÖ 'ÞRIÉJJÚDAGÚR Í2/ FEBRÚÁR 1991 :;
Söngvakeppni Sjónvarpsins:
Draumur um Nínu
framlag Islands í Róm
LAG Eyjólfs Krisljánssonar, Draumur um Nínu, verður framlag Is-
lands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sem fram fer í Róm
á Ítalíu í maí. Lagið sigraði í undankeppni söngvakeppninnar sem
fram fór í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu á laugardagskvöld.
Það voru þeir Eyjólfur og Stefán Hilmarsson sem fluttu lagið.
Keppni tveggja efstu laga var eftir Friðrik Karlsson, varð í þriðja
mjög jöfn og spennandi og réðust
úrslit ekki fyrr en stig níundu dóm-
nefndar, sem sat í sjónvarpssal,
voru birt í lokin. En hún gaf lagi
Eyjólfs öll 16 stigin sem hún hafði
til ráðstöfunnar. Lagið Draumur
um Nínu fékk samtals 97 stig. Lag
Harðar G. Ólafssonar, í dag, kom
næst með 76 stig og Lengi lifi lífíð,
sæti með 62 stig. I töflunni hér
fyrir neðan sést stigaíjöldi hvers
lags.
Eyjóifur hefur áður komið við
sögu í söngvakeppni Sjónvarpsins
og einnig tók hann þátt í Landslag-
skeppninni á Stöð 2 í fyrra þar sem
hann söng sigurlagið, Álfheiði
Björk.
Frá verðlaunaafhendingu í lok söngvakeppninnar á laugardags-
kvöld. Frá vinstri: Sigmundur Örn Amgrímsson, varadagskrárstjóri
Sjónvarpsins, Valgeir Guðjónsson, kynnir keppninnar, Eyjólfur
Kristjánsson, höfundur sigurlagsins og loks Stefán Hilmarsson, sem
flutti sigurlagið, Drauminn um Nínu, ásamt Eyjólfi.
Sæti: Lag
1. Draumur um Nínu
Lagogtexti:
Utsetning:
Flytjendur:
2. í dag
Lag:
Texti:
Útsetning:
Flytjendur:
Stig:
97
3. Lengi lifi lífið
Lag:
Texti:
Flytjendur:
4. í fyrsta sinn
Lag:
Texti:
Útsetning:
Flytjendur'
5. í leit að þér
Lagogtexti:
Útsetning:
Flytjandi:
6. Stjarna
Texti:
Lag:
Útsetning:
7.
8.
Flytjandi:
í einlægni
Lag:
Texti:
Útsetning:
Flytjandi:
Á fullri ferð
Lag:
Texti:
Útsetning:
Flytjendur:
Eyjólfur Kristjánsson
Eyjólfur Kristjánsson
Jón Ólafsson
Eyjólfur Kristjánsson
Stefán Hilmarsson
Hörður G. Ólafsson
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Jón Kjell Seljeseth
Helga Möller
Erna Þórarinsdóttir
Kristján Gíslason
Amar Freyr Gunnarsson
Friðrik Karlsson
Jóhannes Eiðsson
Eiríkur Hauksson
Jóhannes Eiðsson
Sigrún Eva Ármannsdóttir
Magnús Kjartansson
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Magnús Kjartansson
Rut Reginalds
Ingvar Grétarsson
ívar J. Halldórsson og
Hákon Möller
Magnús Kjartansson
Rut Reginalds
Sigurður Sævarsson
Baldur Þ. Guðmundsson og
Sigurður Sævarsson
Þórir Baldursson
Jóhanna Linnet
ívar J. Halldórsson
Halldór Lárusson
Magnús Kjartansson
ívar J. Halldórsson
76
62
47
45
39
33
32
Geirmundur Valtýsson
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
Magnús Kjartansson
Áslaug Fjóla Magnúsdóttir
Sigríður Guðnadóttir
Mér þykir rétt að þú fáir að vita það
10.
Lag:
Texti:
Útsetning:
Flytjandi:
Stefnumót
Lag:
Útsetning:
Flytjandi:
Ingvi Þór Kormáksson
Pétur Eggerz
Vilhjálmur Guðjónsson
Sigríður Guðnadóttir
Guðmundur Ámason
Jón Ólafsson
Eyjólfur Kristjánsson
Kristján Gíslason
30
19
Morgunblaðið/Þorkell
Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, afhenti Fríðu Á. Sigurðardóttur og Herði Ágústssyni
íslensku bókmenntaverðlaunin. Verðlaunagripina gerði Jens Guðjónsson gullsmiður.
íslensku bókmenntaverðlaunin:
Fríða og Hörður verðlaunuð
FRÍÐA Áslaug Sigurðardóttir
og Hörður Ágústsson hlutu ís-
lensku bókmenntaverðlaunin
fyrir árið 1990. Forseti íslands,
frú Vigdís Finnbogadóttir, af-
henti verðlaunin við hátíðlega
athöfn í Listasafni Islands í
gær.
Fríða hlaut verðlaunin fyr*r
skáldsögu sfna Meðan nóttin líður
og Hörður fyrir bók sína Skálholt
— Kirkjur. Alls vora fimmtán
þækur útnefndar til verðlauna,
átta úr flokki fargurbókmennta,
og hlaut Fríða verðlaunin í þeim
flokki, og sjö úr flokki handbóka,
fræðirita og frásagna, og Hörður
fékk þau verðlaun. Þegar verð-
launin voru veitt í fyrsta sinn í
fyrra var aðeins um einn flokk
að ræða. Það er Forlagið sem
gefur út bók Fríðu en Hið íslenska
bókmenntafélga gefur út bók
Harðar.
Þegar úrslitin vora kunn þökk-
uðu verðlaunahafar fyrir sig og
sagði Hörður þá meðal annars.
„Auðvitað er ég ánægður og glað-
ur en ef þessi bók mín, og sú við-
urkenning sem hún hefur fengið
hér, yrði til þess að vekja áhuga
og efla virðingu fyrir íslenskri
byggingarlistararfleifð, yrði ég
ennþá ánægðari."
í dómnefnd sátu þau Sigríður
Dúna Kristmundsdóttir, Helga
Kress, Snorri Jónsson, Dóra Thor-
oddsen og Pálmi Gíslason. Verð-
launafé nam alls einni milljón.
Við verðlaunaafhendinguna í
gær flutti Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur ræðu og Hamrahlíðar-
kórinn söng nokkur lög undir
stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Sjómannafélag Reykjavíkur:
Reglum um tollfrjáls-
an farangur mótmælt
FARMENN á kaupskipaflotanum
eru mjög óánægðir vegna breyt-
ingar sem gerð hefur verið á
reglugerð um tollfijálsan far-
angur ferðamanna við komu frá
útlöndum en samkvæmt henni
er farmönnum nú einungis heim-
ilt að koma með 3 kíló matvæla
í stað 10 kg. áður. Hefur Guð-
mundar Hallvarðssonar, formað-
ur Sjómannafélags Reykjavíkur,
ritað fjármálaráðherra bréf þar
sem breytingunni er harðlega
mótmælt og þess krafist að sjó-
menn fái aftur að koma með 10
kjló af tollfijálsum farangri úr
siglingum.
Þann 20. desember sl. var gefin
út ný reglugerð um tollfijálsan far-
angur ferðamanna. Að sögn Guð-
mundar era farmenn reiðir vegna
þeirrar breytingar sem gerð var á
2. málsgrein, 1. greinar reglugerð-
arinnar um að lækka þyngd mat-.
væla sem farmönnum er heimilt að
koma með. Auk þess er vakin at-
hygli á því í bréfinu til ráðherra að
í heiti hinnar nýju reglugerðar eru
farmenn ekki sérstaklega tilgreind-
ir, heldur eingöngu ferðamenn. „Er
það kannski álit fjármálaráðuneyt-
isins að íslenskir farmenn séu ferða-
menn?“ spyr Guðmundur í bréfi sínu
til ráðherra.
Grindavík:
Fyrsta loðnan á þessu ári
Grindavik
GRINDVÍKINGUR GK 606 landaði fyrstu loðnunni á þessu ári í
Grindavík aðfaranótt sunnudags. Hann var með um 1.000 tonn af
hrygningarloðnu og fóru um 140 tonn í beitu og frystingu en afgang-
ur í bræðslu.
„Það var góð tilfínning að kom-
ast í loðnu,“ sagði Willard Ólason,
skipstjóri á Grindvíkingi, „loðnan
er á sínum venjulega stað miðað
við árstíma og fer mjög hratt í vest-
ur.“ Willard sagði að erfítt væri að
svara spumingunni um hegðun
loðnunnar því þar væra margir
þættir sem spila inn í. Loðnan haldi
sig í meiri hita en áður og svo virð-
ist sem hún hafí haldið sig fyrir
utan Austurland í - staðinn fyrir
Norður- og Norðausturland.
Loðnan er á leið til hrygningar
og verður ekki veiðanleg nema til
næstu mánaðamóta.
„Mér fínnst mjög jákvætt að
vinna með Hafrannsóknarstofnun
eins og hefur verið gert nú í þess-
ari loðnuleit og vona að þar verði
framhald á,“ sagði Willard að lok-
um.
FÓ
Ómar Sharif
Ómar Shar-
if keppir
hér í brids
HINN þekkti kvikmyndaleikari
Ómar Sharif verður meðal kepp-
enda á 9. Flugleiðamótinu í brids,
sem fram fer á Hótel Loftleiðum
um næstu helgi.
Sharif, sem er tæplega sextugur
að aldri, hefur snúið sér að brids-
spilamennsku í æ ríkara mæli hin
síðari ár. Hann keppir víða um heim
en hefur ekki áður keppt hér á landi.
í mótinu taka þátt 14 þekktir
erlendir bridsspilarar. Með Ómari
Sharif í sveit verða mjög þekktir
bridsrnenn, þeir Zia Mahmood frá
Pakistan, Lev Schmul frá ísrael og
Paul Chemla frá Frakklandi.
Alls hafa um 200 spilarar skráð
sig til leiks, þar á meðal allir beztu
bridsspilarar íslands. Keppt er um
650 þúsund króna verðlaun.