Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991 Baker styður för fulltrúa Gorbat- sjovs til Bagdad Saudi-arabískur sendiherra spáir í framtíð Mið-Austurlanda; Arafat sagður hafa skaðað málstað Palestínumanna Bahrain. Reuter. VÍÐTÆK samstaða, sem náðst hefur um að reka Saddam Hussein með her sinn frá Kúveit, getur gert mögulegt að finna lausn á vanda Palest- ínumanna, að sögn sendiherra Saudi-Arabíu í Persaflóaríkinu Bahrain. Hann segir jafnframt að Yasser Arafat, leiðtogi Frelsissamtaka Palest- ínu (PLO), hafi glatað öllu trausti fólks í arabaríkjunum við Persaflóa. Hann hafi gert reginmistök með því að styðja eindregið Saddam og Palestínumenn geti neyðst til að velta Arafat úr sessi til að hægt verði að ná heildarsamkomulagi um nýja skipan mála í Mið-Austurlöndum, þ. á m. Palestínumálinu. New York, Moskvu. Reuter. JAMES Baker, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, fagnaði á sunnudag þeirri ákvörðun Míkhaíls Gorbatsjovs Sovét- forseta að senda fulltrúa sinn til Bagdad til að freista þess að koma á friði við Persaflóa. Gorbatsjov hafði lýst því yfir að hann styddi enn samþykkt- ir Sameinuðu þjóðanna um að Irakar kölluðu hersveitir sín- ar I Kúveit heim en sagði hættu á því að fjölþjóðaherinn gengi lengra í aðgerðum sín- um en samþykktir Sameinuðu þjóðanna kveða á um. Gorbatsjov gaf út yfirlýsingu á laugardag þar sem hann hvatti til þess að endi yrði bundinn sem fyrst á stríðið fyrir botni Persaflóa. Hann tilkynnti einnig að hann hefði ákveðið að senda sérlegan sendimann sinn, Jevgeníj Prím- akov, til Bagdad til að fínna frið- samlega lausn á deilunni. Prím- akov hélt áleiðis til Bagdad í gær. „Ástandið við Persaflóa gerist æ alvarlegra og hætta er á því að heilu löndin - fyrst Kúveit, núna írak og siðan ef til vill fleiri - verði lögð í rúst með hörmulegum afleiðingum," sagði Gorbatsjov. Hann bætti við að hann hefði áhyggjur af því að mannfallið í stríðinu kynni að verða óskaplegt. sein frá völdum en hins vegar myndu Bandaríkjamenn ekki harma fall hans. „Ef þeir ríghalda í þennan mann ... held ég að þeir skaði mjög mál- stað sinn,“ sagði Ghazi al-Gosaibi sendiherra fréttamanni Reuters á sunnudag. Sendiherrann hefur gegnt ráðherrastöðu í landi sínu og verið háskólarektor. Hann sagði að Arafat hefði lagt allt sitt traust á Saddam Hussein og varið innrásina í Kúveit. Þar hefði hann gert slæma skyssu því að írakar væru að tapa stríðinu. I staðinn fyrir að efla málstað Palest- ínumanna hefði hann beint athygli umheimsins frá honum. Intifada, uppreisn Palestínumanna á hem- umdu svæðunum sem ísraelar ráða, hefði verið gagnleg og dregið úr ásök- unum á hendur Palestínumanna um að þeir væru ótíndir hryðjuverk- amenn. Nú væri Arafat búinn að eyðileggja þennan ávinning á áróð- urssyiðinu og yrði Yasser Arafat. ag gja]^a mistaka sinna. Valdatóm væri að myndast í forystu PLO og það yrði að fylla. Ál-Gosaibi sagði að þegar örygg- isráð Sameinuðu þjóðanna tæki að fjalla um málefni Palestínurnanna myndi koma i ljós hvert væri gildi hinnar nýju skipanar heimsmála sem George Bush Bandaríkjaforseti hefði boðað. Beita yrði jafn áhrifaríkum, alþjóðlegum þrýstingi og notaður hefði verið gegn Saddam til að tala um fyrir ísraelum og fá þá til að viðurkenna a.m.k. að Palestínumenn ættu við vanda að stríða. Þvinga yrði ísraelsstjóm að samningaborð- inu. „Við munum snúa okkur að hinu hemámsveldinu í Mið-Austurlönd- um. Þau eru aðeins tvö núna, írak og ísrael." Mistök Saddams Sendiherrann sagði að Saddam Hussein hefði gert óteljandi mistök. Hann hefði m.a. ekki áttað sig á því hve heimsmálin hefðu breyst eftir valdatöku Míkhaíls Gorbatsjovs í Sovétríkjunum heldur gert ráð fyrir að deilan um Kúveit yrði dæmigerð kaldastríðs-deila þar sem Irakar nytu stuðnings frá Sovétríkjunum. Sadd- am hefði veikt málstað Palestínu- manna með árásunum á ísrael, vald- ið því að umheiminum fyndist nú að landið væri veikburða og varnarlítið og umkringt hættulegum arabaríkj- um. Líkumar á að hinn hemumdi vesturbakki Jórdan yrði endurheimt- ur hefðu minnkað. „Vegna heimsku Saddams, Scud-flaugaárásanna og öllu sem þeim fylgir, er samband Israela við Vesturlandaþjóðir orðið ástúðlegt á ný.“ Eftirlit með vopnakaupum Al-Gosaibi sagði að ríkin við Pers- aflóa myndu í vaxandi mæli annast öryggis- og vamarmál sín sjálf og myndu ekki hafa þörf fyrir erlendar herstöðvar sem væru auk þess meira í ætt við kalda stríðið. Nýskipan heimsmála myndi hafa í för með sér að betra eftirlit yrði haft með því hvernig vopn ísrael og arabaríkin fengju að kaupa. Hann sagðist telja að stórveldin myndu að miklu leyti taka slíkar ákvarðanir með samning- um sín í milli. Framvegis myndi eng- inn geta keypt hvað sem hann vildi af vopnabúnaði að því einu tilskildu að hann ætti nægilegt fé. Colin Powell, forseti bandaríska herráðsins, (lengst til vinstri) Dick Cheney, varnarmálaráðherra Banda- rikjanna, og Norman Schwarzkopf, yfirmaður fjölþjóðahersins í Saudi-Árabíu, áttu langar viðræður um helgina um vígstöðuna í stríðinu við íraka. Ferð bandaríska varnarmálaráðherrans til Saudi-Arabíu: James Baker sagði að ekki bæri að túlka yfírlýsingu Gorbatsjovs þannig að flölþjóðaherinn nyti ekki lengur stuðnings sovéskra stjóm- valda. • „Ef sendimanni Gorbatsjovs tekst að tryggja að írakar hverfí frá Kúveit fögnum við því,“ sagði utanríkisráðherrann. „Það er þrátt fyrir allt það sem við höfum stefnt að undanfama fímm mánuði," bætti hann við. Sovésk stjómvöld stöðvuðu vopnasendingar til íraka eftir inn- rásina í Kúveit 2. ágúst. Þau hafa stutt bandamenn gegn Saddam Hussein íraksforseta en ekki sent hersveitir til Persaflóa. Baker sagði að stuðningur Sov- étstjómarinnar við bandamenn hefði sætt harðri gagnrýni mú- slima í Sovétríkjunum og hluta sovéska hersins. Hins vegar væri ljóst að afstaða Gorbatsjovs hefði ekki breyst. Aðspurður sagði utanríkisráð- herrann að bandamenn stefndu ekki að því að koma Saddam Hus- ■ ■I ' ERLENT Cheney talinn hlynntur því að landhemaði verði frestað Riyadh. The Daily Telegraph. LÍKURNAR á því að landhernaður hæfist á næstimni við Persaflóa virtust minnka á sunnudag er Dick Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór frá Saudi-Arabíu og lét þau orð falla að hann væri „furðu lostinn" yfir því hversu öflug stríðsvél íraka væri. Che- ney sagði eftir að hafa rætt við yfirmenn fjölþjóðahersins í höfuð- stöðvum þeirra í Riyadh í tæpar tólf klukkustundir um helgina að bandamenn mættu alls ekki vanmeta stærð og hernaðarmátt íraska hersins. Tveir helstu hemaðarráðgjafar George Bush Bandaríkjaforseta, Cheney og Colin Powell, forseti bandaríska herráðsins, voruj Saudi- Arabíu um helgina til aá meta ár- angurinn af hemaðaraðgerðum fjöl- þjóðahersins. Fundur þeirra með Norman Schwarzkopf, yfírmanni herafla bandamanna við Persaflóa, stóð svo lengi að þeir urðu að hætta við að skoða Patriot-gagnflaugam- ar sem grandað hafa nokkram Scud-eldflaugum er skotið hefur verið á höfuðborg Saudi-Arabíu. Cheney sagði að þótt ioftárásir bandamanna hefðu borið góðan ár- angur væri enn hætta á því að ír- aska hemum, sem var sá fjórði stærsti í heiminum fyrir stríðið, tækist á einhvern hátt að koma fjöl- þjóðahemum í opna skjöldu. Dougl- as Hurd, utanríkisráðherra Bret- lands, sem einnig heimsótti Riyadh um helgina, tók í sama streng og sagði að fjölþjóðaherinn myndi ekki ráðast inn í Kúveit á næstunni. „Ég hef ekki orðið var við neinn þiýst- ing á meðal bandamanna um að landhernaður hefjist áður en fjöl- þjóðaherinn er undir hann búinn,“ sagði utanríkisráðherrann. „Allir skilja þörfína á því að mannfallið verði sem minnst. Um þetta er mikil samstaða." Ágreiningur sagður á meðal yfirmanna fjölþjóðahersins Á sama tíma og ráðherrarnir heimsóttu Saudi-Árabíu bárust fregnir af því að ágreiningur ríkti á meðal yfírmanna fjölþjóðahersins um hvenær landherinn ætti að ráð- ast inn í Kúveit. Nokkrir yfírmenn flughersins héldu því fram að kom- ast mætti hjá landhernaði ef flug- herinn fengi að halda áfram loft- árásum sínum í um hálft ár til við- bótar. Cheney hafnaði þessari til- lögu. „Ég tel að takmörk séu fyrir því hversu lengi loftárásimar koma að gagni,“ sagði hann. Talið er að fjölþjóðaherinn hafi eyðilagt 20-25% af herbúnaði íraka. Yfírmenn flölþjóðahersins greinir aðallega á um hversu marga skrið- dreka og brynvagna herinn þarf að eyðileggja áður landorrustumar hefjast. Nokkrir þeirra varfæmustu vilja að um helmingi skriðdreka ír- aka verði eytt og telja að nýta beri frekar yfirburði fjöiþjóðahersins I lofti til að veikja landher íraka. Aðrir telja að bandamenn eigi að notfæra sér yfirburði sína til að hefja þunga ieiftursókn sem fyrst. Cheney virtist hlynntur því að loft- árásirnar yrðu látnar nægja um sinn. Þingmenn vilja fara hægt í sakimar Leiðtogar demókrata og repú- blikana í öldungadeild Bandaríkja- þings hvöttu Bush til að fresta land- hemaði í nokkrar vikur. Robert Dole, sem yfírleitt er helsti stuðn- ingsmaður Bush í deildinni, sagði að halda bæri loftárásunum áfram í tvær til fjórar vikur áður en ákvörðun yrði tekin um „takmark- aðan iandhernað". Þar á hann við að landherinn neyði hersveitir íraka til að fara úr byrgjum sínum til að flugherinn geti gert árásir á þær. George Mitchell, leiðtogi demó- krata í öldungadeildinni, sagði að engin þörf væri á landhernaði á meðan loftárásirnar bæru árangur. Báðir þingmennimir höfnuðu hug- myndum um tafarlausan landhern- að. Þeir sögðu að það gæti orðið til þess að ijúfa samstöðu banda- manna og auka andúð á Bandaríkj- unum í arabaheiminum. Þá bentu þeir á að Ramadan, föstumánuður múslima, hefst 17. mars. Þeir sögðu að Bush þyrfti að taka tillit tii þess- ara þátta en leggja þó meginá- herslu á að mannfall bandamanna yrði sem minnst þegar iandhernað- urinn hefst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.