Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 28
:
28
MÓRGÚÚBLAÐH) WÍIÐJUDAGL'R:’l2‘ FEÖRÚAR 1991
Peningamál
Reuter.
Sijórnendur seðlabanka
veija vaxtabreytingar
STJÓRNENDUR seðlabanka Bandaríkjanna og Þýskalands notuðu
tækifærið á alþjóðlegri efnahagsráðstefnu í Sviss í liðinni viku að
verja óvæntar vaxtabreytingar í liðinni viku. Þeir vísuðu á bug
ásökunum um að vaxtabreytingarnar væru ekki í anda alþjóðlegr-
ar samvmnu.
Á fundi, í New York í janúar,
samþykktu fulltrúar sjö helstu iðn-
ríkja heims að unnið skyldi að
lækkun vaxta með traustri stjóm
ríkisfjármála og peningamála.
Þegar þýski seðlabankinn hækkaði
skömmu síðar forvexti, úr 6,0 pró-
sentum í 6,5 prósent, efuðust sum-
ir hagfræðingar um að samþykktin
héldi. En Yasush Mieno, banka-
stjóri japanska seðlabankans, full-
vissaði strax japanska þingið um
að samstaðan hefði ekki rofnað. Á
ráðstefnunni í Sviss sagði Karl
Otto Poehl, bankastjóri þýska
seðlabankans að vaxtahækkuninni
væri ætlað að stuðla að jafnvægi
í peningamálum við mjög erfiðar
aðstæður innanlands. Hallinn á
jpýsku fjárlögunum er mikill og
verkalýðsfélög hafa sett fram kröf-
ur um 10 prósenta launahækkun.
Daginn eftir vaxtahækkunina í
Þýskalandi lækkaði bandaríski
seðlabankinn forvexti úr 6,5 pró-
sentum í 6,0 prósent, í þeim til-
gangi að auka lánsfé og peninga-
magn í umferð. Aukning peninga-
magns í Bandaríkjunum hefur ver-
ið afar hæg undanfarin fjögur ár.
Af þeim sökum hafa eignir fallið
í verði og staða Bandaríkjadollars
hefur styrkst gagnvart gulli og
annarri hrávöru. Wayne Angell,
einn af bankastjórum bandaríska
seðlabankans sagði á ráðstefnunni
í Sviss að vaxtabreytingarnar í
Þýskalandi og Bandaríkjunum
miðuðu í báðum tilvikum að því
að gera verðlag stöðugra. Angell
sagði að stöðugt verðlag væri
meginmarkmið bandaríska seðla-
bankans.
Á fjármálamörkuðum komu
vaxtabreytingarnar á óvart og
ÚTFUJTNINGSRAÐ fSIANDS
Aðalfundur
Útflutningsráðs
íslands
verður haldinn
á Hótel Sögu, sal A,
þriðjudaginn 19. febrúar 1991
kl. 13.00-17.00.
Þátttaka tiikynnist til skrifstofu
Útflutningsráðs f sfma 688777.
þýska markið hækkaði verulega
gagnvart Bandaríkjadollar. Nor-
bert Walter, hagfræðingur stærsta
viðskiptabanka Þýskalands,
Deutsche Bank AG, sagði að geng-
isbreyting, upp að vissu marki,
kæmi sér vel fyrir bæði löndin.
En Wayne Angell tók fram að
bandarískur iðnaður hefði ekki
þurft á vaxtalækkun að halda til
þess að styrkja stöðu sína á erlend-
um mörkuðum. Hann sagði að
bandarísk fyrirtæki hefðu verið
fyllilega samkeppnishæf áður en
gengi Bandaríkjadollara féll í kjöl-
far vaxtalækkunarinnar.
INTERNATIONAL
FILM&TV FESTIVAL
O F NEW YORK
F I N A L I S T AWA R D
PRESENTED TO
Hvíta Husíd
for
"'Éerlín"
RNAXIONAL
M 43 NATIONS. ThI* CEimHCATI |S AWAJLDSD IN HSCOGNmON O
D VIDfO. O* TELEVISION rWKIRAMS ANt
7)
)N ■ EIOADCAST Fl
VIÐURKENIMIIMG íslensk sjónvarpsauglýsing hlaut viður-
kenningu á hinu árlega „International Film & Television Festival of
New York“ sem var haldið í 33. skipti þann 11. janúar sl. Að þessu
sinni var dæmt á milli 4.136 auglýsinga víða af úr heiminum. íslenska
auglýsingin sem komst í úrslit og hlaut viðurkenningu var gerð af
Hvíta húsinu og Hugsjón fyrir Kreditkort hf. og nefnist Berlín.
Fjármál
Stríðið fyrir botni Persa-
flóa hefur lítil áhrif
Reuter.
ÞEGAR stríðið fyrir botni Persaflóa hafði staðið í 19 daga voru
fulltrúar á alþjóðlegri efnahagsráðstefnu, í bænum Davos í Sviss,
almennt sammála um að stríðið muni aðeins hafa takmörkuð alþjóð-
leg efnahagsáhrif. Búist er við minnkandi hagvexti á árinu en lítil
. hætta er talin á að stríðið geti orsakað alvarlegan samdrátt nema
átökin breiðist út eða dragist verulega á langinn.
„Þetta stríð hefur ekki mikla
efnahagslega þýðingu. Þetta er
birgðastríð, „sagði Lester Thurow
prófessor við Massachussets Instit-
ute of Technology (MIT). Hann
sagði að kostnaðurinn kæmi fyrst
fram þegar Bandaríkin og banda-
menn þeirra ákveði hversu mikið
skuli endurnýja af þeim hergögn-
um, sem eyðileggjast í stríðinu.
Ákvarðanir um endurnýjun munu
síðan að verulegu leyti ráðast af
framvindu mála í Sovétríkjunum.
Eftir samfelldan hagvöxt í átta
ár bjuggust flestir ræðumenn við
áframhaldandi hagvexti þótt hann
yrði minni en 1990. Skoðanir
breyttust lítið þótt síðastliðinn
föstudag hafi verið birtar tölur sem
sýna mestu aukningu atvinnuleysis
í Bandaríkjunum frá því á samdrátt-
arskeiðinu 1981-1982. Menn bentu
á að enn væri mikill hagvöxtur í
Þýskalandi, Japan og öðrum lönd-
um Asíu.
Haldinn var tveggja daga lokaður
fundur háttsettra manna meðan á
ráðstefnunni stóð. Að loknum þeim
fundi sagði forsætisráðherra Frakk-
iands, Raymond Barre: „Atvinnu-
leysistölurnar frá Bandaríkjunum
virtust valda mönnum áhyggjum
en aðalbankastjóri bandaríska
seðlabankans Alan Greenspan sagði
nokkrum dögum áður að það versta
væri þegar afstaðið." Barre sagði
að eina raunverulega efnahagsógn-
in af stríðinu fyrir botni Persaflóa
virtist vera hin sálrænu áhrif sem
stríðið hefði á neytendur og stjórn-
endur fyrirtækja. Sumir hlutar hag-
kerfisins eru haldnir einhvers konar
lömun, sagði franski forsætisráð-
herrann.
Stríðið tók reyndar sinn toll af
ráðstefnunni f Davos. Margir, eink-
um Bandaríkjamenn, hættu ekki á
að sækja ráðstefnuna af ótta við
árásir hryðjuverkamanna.
Fræðsla
Námskeið um
NLP samn-
ingatækni
Ráðstefna fjármálaráðuneytisins þriðjudaginn 12. febrúar 1991
Opinber útgjöld: ísland í norrænu ljósi
«on'*°a
!»*% á
í tilefni af þýöingu og útkomu skýrslunnar Norræna
velferðarsamfélagiö á aðhafdstímum, sem fjármálaráðherrar
Noröurlanda létu semja, efnir fjármálaráöuneytiö til ráðstefnu
aö Borgartúni 6, þriðjudaginn 12.febrúar. Ráðstefnan hefst kl.
13: 00 með ávarpi Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráðherra.
Tvö erindi verða flutt á ráöstefnunni. Henning Gorholt,
skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu norska fjármálaráðuneytisins,
fjallar um norrænu skýrsluna og Magnús Pétursson,
ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, reifar þróun og horfur á
íslandi.
Eftirtaldir lýsa skoðunum sínum varöandi útgjaldaþróun hins
opinbera á íslandi: Friðrik Sophusson alþingismaður, Hörður
Bergmann upplýsingafulltrúi, Markús Möller hagfræðingur, Már
Guðmundsson efnahagsráðgjafi fjármálaráðherra, Ólafur
Davíðsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra iðnrekenda, Páll
Skúlason prófessor, Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs íslands og Ögmundur Jónasson formaður
Bandalags starfsmanna ríkis og bæja.
Eftir fyrirspurnir og almennar umræður verða niðurstöður
dregnar saman af Davíð Scheving Thorsteinssyni forstjóra,
og Kristínu Á. Ólafsdóttur borgarfulltrúa.
Fundarstjóri á ráðstefnunni er Sigmundur Guðbjarnason
háskólarektor.
Uppstokkun, nýjar aöferöir og endurmat á verkefnum
STJÓRNUNARFÉLAG íslands
hefur fengið til sín þijá sérfræð-
inga á sviði NLP (Neuro Lingu-
isting Programming), sem er ný
samskiptatækni og vakið hefur
athygli í Bandaríkjunum.
Námið er byggt á verklegum
æfingum, könnunum og fyrirlestr-
um og hefst námskeiðið 18. febrú-
ar nk. Erþað ætlað fólki í viðskipta-
lífnu, sem starfar við samninga-
gerð, sölumennsku og stjórnun.
Markmið námsins er gefa nemend-
um færi á að ná sem bestum ár-
angri í samskiptum, og að auka
meðvitund þeirra á lykilatriðum
mannlegrar hegðunar, sem styrkja
samningastöðu þáttakenda.
Þeir sérfræðingar sem sjá um
kennsluna eru: J.Drue Isacks þjálf-
ari og yfirleiðbeinndi hjá NLP, rit-
höfundur, kennari og kennslusér-
fræðingur. Judy Durbin, yfirléið-
beinandi hjá NLP, ræðusérfræðing-
ur og ráðgjafi í viðskiptum og
stjórnun og Garðar Garðarsson,
sem útskrifaðist sem leiðbeinandi
frá NLP. Hann starfar nú sem
stjórnunarráðgjafi og leiðbeinandi.
Flugrekstur
Tafla Flug-
fax varí
dollurum
í síðasta Viðskiptablaði var grein
um fraktflug á íslandi þar sem birt-
ar voru töflur frá Flugleiðum og
Flugfax. Vegna misskilnings var
því haldið fram að útreikningar í
töflu Flugfax væru í pundum, en
hið rétta er að þeir eru í dollurum
• á 'gengi' frá nóvember "1989. •
+