Morgunblaðið - 12.02.1991, Side 31

Morgunblaðið - 12.02.1991, Side 31
MORGUNBLÁÐIEX ÞRIÐ.IUDAGUR a2.'FEB«ÚASR9^1' 0!í 31(tf Ríkið jafni framlög til menningar Á „MÁLÞINGI um menningu" sem menningarmálanefnd Akureyrar- bæjar stóð fyrir á laugardag var samþykkt áskorun til mennta- málaráðherra og ríkisstjórnar að jafna mun á ríkisframlögum tii menningarmála. í áskoruninni segir m.a. að al- mennur fundur um lista- og menn- ingarmál skori á menntamálaráð- herra og ríkisstjórn að gera nú þegar ráðstafanir til að jafna .þann mikla mun sem er á framlögum ríkissjóðs til menningarmála á höfuðborgar- svæðinu annars vegar og öðrum landshlutum hins vegar. „Fundarmenn telja, að ekki verði lengur við það unað, að nánast allt fjármagn til þessa málaflokks fari til starfsemi sem staðsett er á höfuð- borgarsvæðinu," segir í áskoruninni. Nemar í VMA frum- sýna Böm mánans LEIKKLÚBBUR Verkmennta- skólans á Akureyri frumsýnir ann- að kvöld, miðvikudagskvöld, leik- ritið Börn mánans eftir Michael Weller. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð og er verkið sýnt í Dynheimum. Leikrit- ið fjallar um fáeina hippa sem búa saman í kommúnu og vilja stöðva stríð. Verkið gerist á árunum 1968-70 þegar frjálsar ástir voru í hávegum hafðar. (Frcttatilkynning) Fnjóskadals grænu tún Morgunblaðið/Rúnar Þór Gróður hefur tekið vel við sér í góðyiðriskaflanum sem Norðlendingar hafa orðið aðnjótandi síðustu vikur. Eins og sjá má á myndinni eru tún farin að grænka í Fnjóskadal þar sem þessi mynd var tekin í fögru veðri í síðustu viku. Morgunblaðið/Rúnar Þór Á skyndihjálparnámskeiði Vélsleðamenn á Akureyri sóttu á dögunum námskeið í skyndihjálp, sem sérstaklega er sniðið fyrir vélsleðamenn og er áhersla lögð á þá áhættu sem fylgir fjallaferðum á slíkum farartækjum. Þátttakendur voru 12, en samskonar námskeið var einnig haldið fyrir áramót. Hanna Kjartans- dóttir skyndihjálparkennari annaðist kennsluna, en Hjálparsveit skáta á Akureyri lánaði húsnæði sitt að Lundi auk þess sem meðlimir léku slasaða. Fyrirhugað er að halda fleiri námskeið fyrir vélsleðamenn í vetur, m.a. um meðferð áttavita og einnig fleiri skyndihjálpamám- skeið. Myndin var tekin á námskeiðinu kvöld eitt fyrir skömmu. Sameinast Eyfirðing arum gervigrasvöll? Á FUNDI um gerð gervigrasvallar sem haldinn var á Akureyri á sunnu- dag kom fram vilji forráðamanna knattspyrnufélaga í Eyjafirði að standa sameiginlega að kostnaði við gerð slíks vallar. Skipuð var nefnd fimm manna til að hefja viðræður við Héraðsnefnd Eyjafjarðar um málið. Líklegast. þykir að völlurinn yrði gerður á Akureyri, en á fundin- um var einnig varpað fram hugmyndum um fleiri siaði, eins og Hrafna- gil og Laugaland við Þelamörk. Stefán Gunnlaugsson sem sæti á í stjóm KSf sagði að á fundinum hefði náðst full samstaða um að stefna beri að því að gera í Eyjafirði völl af fullri stærð, en áður hafa komið fram hugmyndir um að gera gervigrasvöll þar sem nú er svokall- aður moldarvöllur við Sana. Kostnað- ur er áætlaður á bilinu 65-70 milljón- ir króna og er þá ekki gert ráð fyrir búningsaðstöðu. Á fundinum voru forráðamenn knattspyrnufélaga á svæðinu, frá Akureyri, Ólafsfirði, Grenivík, Dalvík, Eyjafjarðarsveit og hreppun- um utan Ákureyrar. Vora menn sam- mála um að kanna hug sveitarstjórn- armanna til hugmyndarinnar um sameiginlegan gervigrasvöll fyrir svæðið. Skipuð var nefnd fimm manna sem falið verður að ræða við Héraðsnefnd Eyjafjarðar, en óskað verður eftir viðræðum við nefndina um þetta mál. Stefán sagði orðið mjög brýnt að koma upp slíkum velli, mikill munur væri á aðstöðu knattspymumanna nyðra miðað við það sem til boða stæði á höfuðborgarsvæðinu. Hlyti umrædd leið samþykki gæti það flýtt því mjög að gervigrasvöllur yrði gerður í Eyjafirði. Líklegast er að völlurinn verður gerður á Akureyri þar sem markað- urinn er stærstur og hafa þar verið nefndir til sögunnar þrír staðir, á Sólborgarsvæðinu, við Verkmennta- skólann og inn við Leirur. Á fundin- um var einnig varpað fram hugmvnd- um um að völlurinn yrði við Hrafna- gil og sagði Stefán að þar væri að- staða mjög góð, fyrir hendi væri sundlaug, íþróttahús og ónýtt heima- vist þannig að þar væri risin vísir að íþróttamiðstöð. Einnig kom fram hugmynd um að gervigrasvöllurinn yrði við Laugaland í Þelamörk. Litla leikhúsið í smjörlíkisgerðinni LITLA leikhúsið mun hefja starf- semi í húsi gömlu smjörlíkisgerð- ar KEA í Kaupvangsstræti innan skamms. Það er Örn Ingi sem stendur að Litla leikhúsinu, en hann hefur að undanföm haldið leiklistamámskeið fyrir börn og unglinga. Hann sagði að húsnæðið, sem er efst í Gilinu svokallaða, hentaði afar vel til leik- listarstarfsemi. Nokkrar lagfæring- ar verða gerðar, en Örn Ingi sagði að starfsemi gæti hafist fljótlega. „Það er mjög góður andi í húsinu og umhverfið skapar mikla stemmn- ingu,“ sagði Öm Ingi, en hann verð- ur á ferðinni í miðbæ Akureyrar á morgun, öskudag, og þar býðst öll- um þeim sem áhuga hafa og eru á aldrinum 7-67 ára að innrita sig á námskeið Litla leikhússins. Söngvarakeppni í mið- bænum á öskudaginn EFNT verður til söngvarakeppni í miðbæ Akureyrar á öskudaginn, sem er á morgun, miðvikudag. Komið verður upp palli við norður- glugga Amaro og þangað skulu þau lið koma sem taka ætla þátt. Það lið sem best þykir standa sig í söngnum fær að launum ævintýra- ferð til Grímseyjar. Örn Ingi myndlistarmaður stend- ur að keppninni og sagði hann hún væri opin öllum öskudagsliðum bæjarins. Það skilyrði er sett að fimm séu hið minnsta í hverju liði og fímmtán hið mesta. Lið mega hafa undirleikara komi hann úr þeirra hópi. Fimm bestu liðin fi verðlaun og besta liðið fer í ævin Tekið verður tillit til söngsins sviðsframkomu og búninga. Form aður dómnefndar er Ingvi Rafi Jóhannsson formaður Karlakór Akureyrar- Geysis. íf- BEINT FLUGi HUSAVIK - REYKJAVIK - HUSAVIK mióvikudaga • laugardaga • sunnudaga Farpantanir: Húsavík 41140 Reykjavík 690200 <Æ fluqfélaq nordurlands hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.