Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
35
Áunnin villimennska
Æá
spurt og svarað
Kvikmyndir
Arnaldurlndriðason
Flugnahöfðinginn („Lord of the
FIies“). Sýnd í Stjörnubíói. Leik-
stjóri: Harry Hook. Helstu hlut-
verk: Balthazar Getty, Chris
Furrh, Daniel Pipoly, Badgett
Dale.
Skáldsaga breska rithöfundarins
Williams Goldmans, Flugnahöfðing-
inn, um hóp drengja sem verða
strandaglópar á afskekktri eyju og
breytast í villimenn, var sett á filmu
árið 1963. Þessi nýja útgáfa, sem
Harry Hook („The Kitchen Toto“)
leikstýrir, er ekki endilega endurgerð
þeirrar myndar heldur ný útgáfa af
sögu Goldmans færð til nútímans.
Og ólíkt fyrri myndinni er þessi í lit.
Söguna þekkja sjálfsagt margir.
Flugvél full af drengjum úr að því
er virðist breskum herskóla hrapar
í sjóinn utan alfaraleiðar og allir
komast þeir af en flugstjórinn deyr
skömmu eftir að þeir ná landi. í
fyrstu halda drengirnir hópinn, velja
sér foringja og setja sér reglur til
að fara eftir en fljótlega koma brest-
Álfur út úr hól
Löggan og dvergurinn („Up-
world“). Sýnd í Regnboganum.
Leikstjóri: Stan Winston. Aðal-
hlutverk: Anthony Michael Hall,
Jerry Orbach og Claudia Christ-
ian.
Félagarnir í löggumyndunum
verða ekki öllu langsóttari en í
spennumyndinni Löggan og dvergur-
inn. Löggan er nógu ótrúlega sniðug
eins og hún er leikin af unglingaleik-
aranum Anthony Michael Hall en það
er ekkert á móts við félaga hans sem
er, ég segi það og skrifa, álfur langt
neðan úr iðrum jarðar.
Saman leysa þeir glæpamálið í
myndinni sem hvorki er athyglisvert
né spennandi og full fyrirsjáanlegt í
þokkabót. Michael Hall er ríkulega
búinn óþolandi gæjalegum töktum
sem eru með öllu ófyndnir þótt þeir
eigi að vera það samkvæmt handrit-
inu. Hann leikur súperlöggu sem lítur
út fyrir að vera um eða undir tvítugt.
Ef hann væri ekki svona ungur væri
hann örugglega fráskilinn og
drykkjusjúkur eins og hinar klisjurn-
ar í löggumyndunum en verður að
láta sér nægja að vera uppá kant
við yfirboðara sína. Þeir geta hins
vegar ekki án hans verið því hann
er svo afburðagóð lögga.
Alfurinn kemur í myndina á besta
tíma fyrir Michael Hall því hann
bráðvantar vitni að morði og hver
nema álfurinn sá allt og heyrði og
getur vísað á bófann. Þannig er öllum
sama þótt hann sé álfur enda engir
fordómar í þessari mynd af því hann
er aðalvitnið og allir virðast vera
meira hissa á honum sem vitni en
álfi eins og þeir séu auðfundnari í
stórborgunum vestra.
Álfurinn er að sjálfsögðu enn eitt
afbrigði af sögunni um ET, svona
sætur og indæll og spaugilegur kom-
inn uppá yfirborðið til að drýgja
hetjudáðir svo hann komist í álfaher-
inn oní jörðinni. í öðru samhengi
mætti sjálfsagt tala um frumlegheit
en allt er þetta fjarska ómerkilegt í
samhengi löggurriyndaklisjunnar. Sá
eini sem sýnir leikræn tilþrif er Jerry
Orbach í hlutverki yfirmanns Micha-
el Halls, enda skapgerðarleikari hinn
besti og lyftir myndinni upp í hvert
sinn sem hann birtist og er reyndar
sjálfur dulítið eins og álfur út úr hól
innanum B-leikarana.
| Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS |
SKATTAMÁL
MORGUNBLAÐIÐ hefur að venju aðstoðað lesendur sína við gerð
skattframtala með þeim hætti að leita svara við spurningum þeirra
um það efni.
Nú er frestur til að skila skattskýrslum útrunninn og í dag birt-
ast því svör við síðustu spurningunum.
ir í hópinn og sá herskáasti dregur
sig útúr ásamt nokkrum fylgismönn-
um og þeir stofna veiðimannaflokk,
sem gerist æ villimannslegri með
tímanum.
Ágreiningurinn á milli hópanna
stigmagnast þar til veiðimannahóp-
urinn undir forystu hins herskáa
drýgir morð og hleypur í lokin á eft-
ir þeim eina sem eftir er af hinum
siðmenntuðu til að drepa hann, bún-
ir að týna niður öllu því sem kallast
siðmenning.
Eins og í „The Kitchen Toto“, sem
leikstjórinn gerði áður og íjallaði um
dreng sem kynntist illilega sjálfstæð-
isbaráttunni í Kenýu, er frásögnin
hér mjög blátt áfram og án allrar
tilfinningasemi, vægðarlaus og
grimmileg. Sagan lýsir því á mjög
áhrifaríkan hátt hvernig drengirnir
breytast úr siðmenntuðum afsprengj-
um menningarsamfélagsins í örgustu
Tekjuskattslaust síðasta
starfsárið?
Reynir Einarsson spyr:
Er sú regla enn í gildi að menn
séu tekjuskattslausir síðasta starfs-
ár sitt? Ef svo er getur þá kona sem
varð ekkja á árinu farið fram á að
fá endurgreiddan álagðan tekju-
skatt fráfallins eiginmanns síns?
Svar:
Heimild til frádráttar í skatt-
viðurkenndan kostnað á móti öku-
tækjastyrk þarf hann að gera full-
nægjandi grein fyrir rekstrarkostn-
aði bifreiðarinnar og sundurliðun á
akstri eins og eyðublaðið RSK 3.04
gefur tilefni til. Jafnframt þarf
hann að leggja fram frá vinnuveit-
enda ítarlega greinargerð um
ástæður fyrir greiðslu ökutækja-
styrks og hvernig greiðslan hefur
veirð ákvörðuð.
Þrjár sameínaðar í einní
1. Handtrilla
2. Handtrilla
villimenn og Harry Hook, sem einnig
skrifar handritið, nær giska vel að
sýna hina stigmagnandi breytingu
sprottna uppúr eðli mannsins til að
komast af og drottna og heyja stríð.
„Við gerðum allt eins og foreldrar
okkar mundu hafa gert. Hvað fór
úrskeiðis?" spyr Svínki, feiti strákur-
inn með gleraugun sem verður fyrir
mestum árásum drengjanna. Það
sem hann skilur ekki er að þeir eru
bara smækkuð útgáfa af fullorðna
fólkinu.
Eins og áður sagði er sagan færð
til nútímans en hún getur í rauninni
átt við hvenær sem er. Drengirnir
hans Goldmans sakna nú sjónvarps-
ins mest úr siðmenningunni og
minnst er á Rarrtbó á einum stað.
Hook nær engum afburðaleik úr
drengjahópnum þótt einstaka strák-
ur geri góða hluti og fer þar fremst-
ur Balthazar Getty, sem loks verður
einn eftir gegn árásarlýðnum. En
sagan á jafnmikið erindi á tjaldið í'
dag og fyrir hartnær þrjátíu árum.
framtali vegna starfsloka er ekki
lengur fyrir hendi í skattalögum.
Svarið er því neikvætt. Kona sem
varð ekkja á árinu getur ekki feng-
ið endurgreiddan tekjuskatt fráfall-
ins eiginmanns á þeim forsendum.
Þarf að færa akstursdagbók?
B.G. spyr:
Ég fær greiddan ökutækjastyrk
vegna notkunar á eigin bifreið í
þágu launagreiðanda. Greiðslan _er
miðuð við 600 km. á mánuði. Ég
greiði staðgreiðslu af þessum styrk.
Ég þarf að gera gein fyrir kostnaði
af rekstri bifreiðarinnar á eyðublaði
RSK 3.04 til að fá viðurkenningu
á ökutækjastyrknum. Þarf ég líka
að færa akstursdagbók til að eiga
rétt á frádrættinum? .
Svar:
Fyrirspyijandi þarf ekki að halda
sérstaka aksturdagsbók enda er -•
þessi ökutækjastyrkur ekki undan-
þeginn staðgreiðslu. Til þess að fá
KENNSLA
Vélritunarkennsla
Ný námskeið eru að hefjast.
Vélritunarskólinn, s. 28040.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 8 = 1722138Vz =
I.O.O.F. Rb. 1 = 1402128 - Bi.
□ EDDA 59911227 = 7
□ HELGAFELL 59912127 VI 2
Framtíð íslands
Norræni Heilunarskólinn verður
með fyrirlestur um framtíð
islands í kvöld kl. 20.00 á Lauga-
vegi 163, 3. hæð.
Fyrirlesari Jytta Eiríksson.
Ljósheimar.
FERÐAFÉLAG
ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 & 11798 19533
Myndakvöld
Mlðvikudaginn 13. febrúar verð-
ur næsta myndakvöld Ferðafé-
lagsins í Sóknarsalnum, Skipholti
50a, og hefst kl. 20.30 stund-
víslega.
Efni: 1) Fróðleg myndasýning
sem lýsir ferð um landið i fylgd
Grétars Eirikssonar.
2) Myndir frá Heklugosinu (Gér-
ard Delavault), nokkrar myndir
úr siðustu áramótaferð F.í. til
Þórsmerkur og úr bakpokaferö
frá Siglufirði í Héðinsfjörð á
siðastliönu sumri. Kaffiveitingar
í hléi. Aðgangur kr. 500,- (kaffi
og meðlæti innifalið). Ferðafé-
lagsspilin verða að venju til sölu
(kr. 500 stokkurinn).
Komið á myndakvöldið og kynn-
ist starfi Ferðafélagsins.
Ferðafélag Islands.
Munið fundinn í kvöld kl. 20.30
í féiagsheimilinu. Fjölmennum.
Stjórnin.
AD-KFUK
Fundur í kvöld kl. 20.30 í Langa-
gerði 1. Heilagur andi II. Biblíu-
lestur í umsjá dr. Einars Sigur-
björnssonar. Ath.: Munið kvöld-
verðarfundinn 19. febrúar.
Miðar seldir á aðalskrifstofunni,
Holtavegi, simi 678899.
Allar konur velkomnar.
Hútivist
'ÓFINNI 1 • REYKJAVÍK • SÍMIAÍMSVAKI 14601
Myndakvöld 14/2
Loksins er komið að myndasýn-
ingunni, sem margir hafa beöið
eftir með óþreyju! Nepalför Úti-
vistar í október 1990. Hákon J.
Hákonarson sýnir myndir og
segirfrá gönguferðfrá Lukla upp
að búðum 1 á Mt. Everest, en
þetta er fögur gönguleið, sem
býður upp á stórbrotið landslag,
spennandi bátsferð niður eftir
Trisulí-fljóti og frumskógarferð á
fílum. Komið og heyrið Nepal-
fara segja feröasöguna og sjáið
frábærar myndir af óviðjafnan-
legu landslagi og mannlífi sem
er ólíkt öllu þvi sem við eigum
að venjast. ATH.: Ef áhugi er
fyrir hendi er félagið að hugsa
um að skipuleggja aðra ferð til
Nepal í október ’91.
Myndakvöldið verður í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholtsvegi
109. Sýningin hefst kl. 20.30.
Sjáumstl
Útivist.
Eignaskattur landeigenda
Birgir spyr:
Greiða landeigendur, til dæmis
bændur, eignaskatt af veiðihlunn-
indum, hvort heldur landi ellegar
laxveiðiám og silungsvötnum?
Svar:
Hlunnindi sem fylgja jörðum eru
metin sérstaklega til fasteignamats
og ber að telja fram til eignar á
því.mati.
m/stuðningshjóli
3. Lagervagn
H
LITTITÆKi HR
Bíldshöfða 18 S. 67 69 55
Elektra kæli- og frystiskáparnir eru fáanlegir í nokkrum
mismunandi stærðum og útfærslum. Á myndinni er tví-
skiptur MRF 288 sem kostar kr. 39.500,- stgr.
Ótrúlega ódýru
ilektra kæli- og frystiskáparnir
fást hjá okkur...
Komið og kynnið ykkur hina vönduðu og
fallegu Elektra kæli- og frystiskápa frá Noregi.
Verð frá kr. 23.600,- <*,.
Tökum vel með farna notaða kæli- og frystiskápa upp í nýja
Sendum hvert á land sem er. 12 mánaða greiðslukjör.
Éiekiwti,
Verslunin sem vantaði
Heímílígmarkaður
Laugavegi 178, v/Bolholt, sími 679067