Morgunblaðið - 12.02.1991, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991
39
barnaskólanum vildu heimsækja í
frímínútum í von um að fá sæt-
indi. Ég fékk líka að heyra um
langömmu mína, Lucindu Hansen,
sem alltaf var að elda og baka og
halda kaffíboð. Einnig sagði amma
mér frá ömmu sinni, Maríu Bern-
höft, og mörgu öðru góðu fólki, og
. skemmtilegum atvikum sem hún
minntist frá Reykjavík og Stokks-
eyri, en þar var fjölskyldan oft á
sumrin.
Þegar amma sagði mér frá liðn-
um tíma einkenndist frásögn henn-
ar af því sem gott var, til dæmis
fannst henni að börnin hefðu aldrei
verið óþekk og veðrið alltaf gott.
Ég hef nú grun um að þannig hafi
það nú ekki verið þá frekar en nú,
en einmitt þetta viðhorf var svo
einkennandi fyrir ömmu. Hún leit
alltaf á björtu hliðarnar.
Góður guð blessi minningu ömmu
og veiti elsku afa styrk og blessun.
Dagný Heiðdal
Með fáeinum orðum langar mig
að kveðja elsku ömmu mína, Maríu
Heiðdal, þar sem ég er fjarstödd
og get ekki verið við jarðarför henn-
ar.
Helst vil ég minnast ömmu fyrir
hlýju og það skjól sem ég ávallt
naut hjá henni. Eg vil þakka fyrir
þær mörgu skemmtilegu samveru-
stundir sem við áttum í einrúmi
jafnt sem fjölmenni. Hún var ein-
staklega félagslynd og alltaf var
stutt í hláturinn hjá henni.
Ég vil votta afa mínum samúð
mína. Megi Guð blessa minningu
hennar.
Hildur
Góð, glæsileg og göfug kona, ein
af máttarstólpum Kvenfélags Nes-
kirkju, er látin. Við félagssystur
hennar viljum með þakklátum og
hrærðum huga fylgja henni úr hlaði
með nokkrum fátæklegum orðum
og hjartans þökk fyrir samveruna
þau ár, sem við áttum samleið.
Manni vefst tunga um tönn, þegar
góð og göfug kona hverfur úr hópn-
um. Hún var hvorki orðmörg né
hávær — en hún var — hún brosti
og það var hlustað á það sem hún
hafði að segja.
Hún var ein af þessum hljóðlátu
konum, sem vilja hjálpa, en láta
ekki bera mikið á sér.
Hún var í mörg ár ritari félags-
ins og fórst það ákaflega vel úr
hendi, eins og allt annað sem hún
gerði. Henni þótti vænt um kirkjuna
sína, og hún og eiginmaður henn-
ar, Vilhjálmur Heiðdal, létu sig ekki
vanta, þau voru alltaf á sínum stað,
bæði við guðsþjónustur í kirkjunni
og í safnaðarheimilinu við margs-
konar tækifæri. Það verður eyðilegt
að sjá autt sætið hennar, en ein-
hvern veginn finnst méreins og hún
sé þar, sem ósýnilegur engill við
hlið hans.
Ég veit að hann og bömin eiga
dýrmætustu minningarnar, eins og
líka eðlilegt er — en við kvenfélags-
konur eigum líka um hana góðar
og hugljúfar minningar, sem enginn
skuggi fellur á, þær eru sveipaðar
hlýju og sólfagurri birtu.
Það er dýrmætt að eiga fagrar
minningar, þær ylja örugglega, ekki
hvað síst, þegar fer að halla undan
fæti. Það er auðlegð sem enginn
getur tekið frá manni. Manni þykir
vænt um samferðafólk, sem vinnur
með manni að góðu og göfgandi
BLÓNI
SEGJA ALLT
Mikið úrval
blómaskreytinga
fyrir öll tækifæri.
OpiÖ alla daga frá kl. 9-22.
Sími689070.
starfi. Fólk almennt ætti að leggja
rækt við slíka væntumþykju, það
er ekki of mikið af henni í heimin-
um. í hvert sinn er við sjáum á bak
einhveijum, sem okkur þykir vænt
um, eykst skilningur okkar á nauð-
syn elskunnar. „Elskið hvert annað,
eins og ég hef elskað yður“. Ef
gefín er elska, hlýja af heilum hug,
og einskis krafist, þá kemur hún
aftur í einhverri mynd, einhvers
staðar frá.
María Heiðdal gaf frá sér hlýju,
hún ljómaði beinlínis frá henni til
allra hennar vina og samferða-
manna.
Blessun Drottins fylgi henni með
þökk fyrir samfylgdina. Við vottum
eiginmanni hennar og öllum ástvin-
um dýpstu samúð, og biðjum um
blessun og styrk þeim til handa.
Hjartans kveðjur frá Kvenfélagi
Neskirkju,
Hrefna Tynes
Föstudaginn 1. febrúar lést á
heimili sínu í Reykjavík María
Hjálmtýsdóttir Heiðdal. María var
fædd í Reykjavík, elst í stórum
barnahópi hjónanna Lucinde Han-
sen og Hjálmtýs Sigurðssonar, sem
lengst af bjuggu á Sólvallagötu 33
hér í borg. I fjölskyldufagnaði að-
eins viku áður en hún lést sat hún
með sitt milda bros og hæga fas á
meðal okkar. En stutt er milli hlát-
urs og gráts, gleði og sorgar, lífs
og dauða. Okkur duldist ekki þetta
ánægjulega kvöld að kveðjustundin
væri nærri og okkur býður í grun
að hún hafi sjálf verið meðvituð um
það. María var falleg kona, hæglát,
stillt og brosmild, sannkölluð dama.
Hún giftist glæsilegum ungum
manni, Vilhjálmi Heiðdal, og höfum
við heyrt að fallegra par var vart
fundið á götum Reykjavíkur í þá
daga. Þau eignuðust fimm börn,
Jóhönnu, Maríu, Hilmar, Önnu og
Hjálmtý. Þegar börnin voru flogin
úr hreiðrinu og um hægðist á þeirra
stóra heimili fór hún að taka þátt
í hinum ýmsu félagsstörfum, aðal-
lega í Kvenfélagi Neskirkju þar sem
hún starfaði af lífi og sál um langa
hríð, enda var hún mikil félagsvera,
kát og hress og hafði áhuga á
mannlífinu.
Hún var frændrækin mjög og
kunni að segja skemmtilegar sögur
af ættingjum og vinum fjölskyld-
unnar sem okkur frænkunum þótti
gaman að heyra. Fyrir nokkrum
árum var stofnað innan fjölskyldu
okkar frænkufélag, sem hefur það
hlutverk að styrkja samkennd allra
kynslóða innan hennar með því að
hittast við hin ýmsu tækifæri, og
varðveita þau fjölskyldubönd sem
bundin voru á heimili afa og ömmu.
María var aldursforseti félags okkar
og hún átti hugmyndina að nafni
þess sem er frænkufélagið Túlla
Hansen en það var gælunafn ömmu
okkar Lucinde þegar hún var ung.
Við vitum að henni þótti vænt
um þetta félag og að tilgangur þess
er mjög í hennar anda, þ.e. að láta
sig varða meðbræður sína á tímum
hraða og streitu.
Ekki þarf að fjölyrða um það,
hvað hún var eiginmanni sínum og
börnum, og síðar tengda- og barna-
börnum, kona með svo ljúfa og fai-
lega sál hlýtur alltaf að vera góð
og blíð eiginkona og móðir. Söknuð-
urinn er sár, og skarðið stórt sem
hún Iætur eftir sig.
Kæri Villi, böm og fjölskyldan
öll, megi minningin um brosið henn-
ar milda og fasið hennar hæga lýsa
ykkur fram á veginn og gefa ykkur
styrk á sorgarstund. Jarðvíst elsku-
legrar frænku okkar er lokið, við
kveðjum hana með virðingu og
þökk.
F.h. frænkufél. Túllu Hansen,
Erna María Ludvigsdóttir.
+ Faðir okkar,
ÓLAFUR DANÍELSSON,
Sólbakka,
Víðidal,
lést í sjúkrahúsinu á Hvammstanga laugardaginn 9. febrúar.
Börnin.
+
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
KARL BJARNASON,
Blómvallagötu 12,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. febrúar
kl. 15.00.
Bjarnveig Karlsdóttir, Sigurbjörn Eldon Logason,
Karl Rúnar Sigurbjörnsson,
Eybjörg Einarsdóttir, Tryggvi Jakobsson,
Telma og Teresa Tryggvadætur.
t
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ERLA JÓNSDÓTTIR,
Smáraflöt 37,
Garöabæ,
verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfiröi þriðjudaginn
12. febrúar kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfé-
lagið.
Þorvaldur Ó. Karlsson,
Karl Þorvaldsson, Elín Inga Garöarsdóttir,
Ólöf Þorvaldsdóttir, Unnar Örn Stefánsson,
Þorvaldur Ó. Karlsson,
Valgerður R. Karlsdóttir,
Heiðrún R. Unnarsdóttir.
+
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN H. GÍSLADÓTTIR,
Bústaðavegi 67,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 12. febrúar
kl. 13.30.
Stefán Sigurdórsson,
Finnbogi Sævar Guðmundsson, Sigríður Sigurþórsdóttir,
Svavar Stefánsson, Dagrún Sigurðardóttir,
Sigurdór Stefánsson, Guðný Steinþórsdóttir,
Jón Á. Stefánsson, Sigrún Högnadóttir,
Helga Stefánsdóttir, Sveinn Kjartansson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Útför
HAUKS MATTHÍASSONAR
verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. febrúar 1991
kl. 10.30.
Vandamenn.
+
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR MAGNÚSSON,
Laufskógum 32,
síðast til heimilis í Ási, Hveragerði,
lést í Sjúkarhúsi Suðurlands föstudaginn 8. febrúar.
Fyrir hönd vandamanna,
Brynhildur Baldvins.
+
Kær systir og vinkona,
SIGRÍÐUR JÖRGENSDÓTTIR KJERÚLF
sjúkraliði,
lést á heimili sínu, Samtúni 18, Reykjavík, föstudaginn 8. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Eiríkur J. Kjerúlf,
Jóhanna Kjerúlf,
Droplaug Kjerúlf,
Una Kjerúlf,
Hrönn Jónsdóttir.
Jón Kjerúlf,
Herdís Kjerúlf,
Hulda Johansen,
Regina Kjerúlf,
+
Jarðarför mannsins míns og föður okkar,
VIGGÓS K. Ó. JÓHANNESSONAR
frá Jófríðarstöðum,
Hlíðardal I,
Kópavogi,
fer fram frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 13. febrúar kl. 13.30.
Jarðsett verður í Görðum, Garðahverfi.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minn-
ast hans, láti líknarstofnanir njóta þess.
Rebekka ísaksdóttir,
Bjarney K. Viggósdóttir, ísak Þ. Viggósson,
Jóhannes Viggósson, Málfríður O. Viggósdóttir.
+
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og stjúpfaðir,
PÉTUR J. JÓHANNSSON
frá Skógarkoti, Þingvallasveit,
Nýbýlavegi 104, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 14. febrúar
kl. 13.30.
Blóm og kransar eru vinsamlega afbeðnir, en þeir, sem vilja minn-
ast hins látna, eru beðnir um að láta Landgraeðslusjóð ríkisins
njóta þess.
Guðrún M. Sæmundsdóttir,
Þröstur Pétursson, Drífa Björg Marinósdóttir,
Ægir Pétursson, Brynhildur Pétursdóttir,
barnabörn og stjúpdætur.
+
Astkæreiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG JÓNSDÓTTIR
frá Bíldudal,
Háengi 4,
Selfossi,
sem lést aðfaranótt 5. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju miðvikudaginn 13. febrúar 15.00.
Kristján Ásgeirsson,
Guðrún Kristjánsdóttir, Guðmundur Þ. Ásgeirsson,
Ríkharður Kristjánsson,
Björk Kristjánsdóttir,
Víðir Kristjánsson,
Sigurleifur Kristjánsson,
ída Sveinsdóttir,
Diðrik Ólafsson,
Aðalbjörg Helgadóttir,
Þórunn Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
+
Innilegar þakkir sendum við öllum, sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar móður, ömmu, langömmu
okkar og systur,
ÞÓRUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Glérárgötu 1,
Akureyri.
Guð blessi ykkur öll.
Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Vilberg Alexandersson,
Jónína Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Matthíasson,
Axel Guðmundsson, Guðbjörg Tómasdóttir,
Jón Oddgeir Guðmundsson,
barnabörn, barnabarnabarn
og Karólfna Jónsdóttir.