Morgunblaðið - 12.02.1991, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRÚAR 1991
MORÖUÍÍBÍiÁÖIÍ)'^ÉjJUÐÁÉÚIÍ FEÖR&AÉ-'fg&f'iO’i
45 1
Ast er...
tao *'2+
.. .að þrengja hópinn.
TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1991 Los Angeles Times Syndtcate
Því notaraðu ætíð hattinn
tnínn?
— og þetta er erfðagripur
i fjölskyldunni minni í
marga ættliði ...
HOGNI HREKKVÍSI
„ BNN AÐANGÆA FUcSLANA ?■< "
J'0 -x5
Hínn sanni boðskapur
Til Velvakanda.
Spámönnum Guðs til forna,
Adam, Abraham og Móses, var veitt
prestdæmisvald, vald til að starfa
í nafni Guðs. Jesús valdi 12 postula
og veitti þeim nauðsynlegt prest-
dæmi til að framkvæma skylduverk
sín.
Pétur, Jakob og Jóhannes, sem
fengið höfðu lykla ríkisins, urðu
eftirmenn kirkju Krists. En. eftir
dauða postulanna varð fráhvarf.
Prestdæmisvaldið glataðist og and-
legt myrkur og glundroði varð um
allan heim. Margar kirkjur spruttu
upp og túlkuðu þær ritningar og
framkvæmdu helgiathafnir sam-
kvæmt eigin skilning og án guðlegs
valds. I margar aldir grúfði myrkur
yfír jörðinni. Þær kirkjur, sem
stofnaðar voru á tímum hins mikla
fráhvarfs, höfðu ekki prestdæmið.
Afleiðingin varð sú, að þær gátu
ekki tekið á móti leiðbeiningum frá
Guði eða framkvæmt fyrirmæli
sáluhjálpar. Eins og Jesaja sagði,
þá höfðu þeir brotið lögin, bijálað
boðorðunum og rofíð sáttmálann
eilífa (Jesaja 24:5). Páll postuli sá
fráhvarfið fyrir (II. Þessalonikubréf
2:1-3): „En að því er snertir komu
drottins vors Jesú Krists og það,
að vér söfnumst til hans, biðjum
vér yður, bræður, að þér séuð ekki
fljótir til að komast í uppnám eða
láta hræða yður, hvorki af nokkrum
anda né við orð eða bréf, sem væri
það frá oss, eins og dagur drottins
væri þegar fyrir höndum. Látið
engan villa yður á nokkurn hátt.
Því að ekki kemur dagurinn nema
fráhvarfíð komi fyrst . . .“
Þegar Marteinn Luther var að
stofnsetja lúthersku kirkjuna sagði
hann eftirfarandi: „Fyrir mér vakir
eigi annað en að siðbæta kirkjuna
í samræmi við heilagar ritningar.
Hin andlegu máttaröfl hafa ekki
einungis orðið syndum spillt heldur
algerlega eyðilögð. Hjá þeim er því
eigi,annað að fínna en rangsnúna
hugsun og vilja, sem er óvinur
Guðs og andstæðingur. Ég segi í
einföldum orðum að kristin trú er
ekki lengur til meðal þeirra sem
hefðu átt að varðveita hana.“ (Til-
vitnun úr In Galat (1535) Weins IX,
Luther and his times bls. 509).
En Marteinn Luther hafði engin
völd frá Guði til að stofnsetja kirkju
hér á jörðu. Það var ekkert prest-
dæmi Guðs starfandi á jörðinni á
þeim tíma. Eru þá sumar kirkjur
byggðar á fölskum forsendum? I I.
Pétursbréfi (5:2-3) segir: „Verið
hirðar þeirrar hjarðar, sem Guð
hefur falið yður. Gætið hennar ekki
af nauðung, heldur af fúsu geði,
að Guðs vilja, ekki sakir vansæmi-
legs ávinnings, heldur af áhuga.“
Vansæmilegs ávinnings? Hvað get-
ur falist í þeirri merkingu. Flestir
prestar fá borgað fyrir þjónustu þá
er þeir veita, ekki aðeins það, held-
ur verður fólk að borga persónulega
fyrir skírnir, fermingu og fleira.
Ég hef hvergi fundið í Biblíunni
ritningargrein sem segir að það
kosti peninga að komast inn í ríki
Guðs. Sannir prestdæmishafar taka
ekki greiðslur fyrir þjónustu sína.
Það vekur furðu mína að menn
séu sendir í háskóla til að læra fagn-
aðarerindi Jesú Krists. Fagnaðarer-
indið er ekki svo torskilið að fólk
þurfi í háskóla til að læra það.
Fagnaðarerindi Jesú Krists á að
vera hveijum manni auðskilið, bæði
bömum og fullorðnum.
Kirkja Krists hlýtur að bera nafn
hans en ekki þeirra manna sem
stofnsetja tilteknar kirkjur. Hann
er homsteinn kirkjunnar, kenndar
em kenningar hans og sáttmálar.
Páll postuli skrifaði til Kólossu-
manna (1:16-19): „Enda var allt
skapað í honum í himnunum og á
jörðinni, hið sýnilega og hið ósýni-
lega, hásæti og herradómur, tignir
og völd. Allt er skapað fyrir hann
og til hans. Hann er fyrri en allt,
og allt á tilveru sína í honum. Og
hann er höfuð líkamans, kirkjunn-
ar, hann sem er upphafíð, frum-
burðurinn frá hinum dauðu. Þannig
skyldi hann vera fremstur í öllu.“
Mig langar til að fá svar við einni
spurningu. Af hveiju hefur þjóð-
kirkjan og aðrar kirkjur fellt ur eitt
boðorð af boðorðunum 10? Ég var
að lesa boðorðin 10 í bók einni, sem
kennd er í skólanum hér á landi.
Ég rak upp stór augu þegar ég sá
að þriðja boðorðið hefur verið fellt
úr og tíunda boðorðinu skipt í
tvennt. Boðorðið sem vantar er svo
hljóðandi: Þú skalt engar líkneskjur
gjöra þér, engar myndir eftir því,
sem er á himnum uppi o.s.frv.
(Fimmta Mósebók 5:8-11).
Þetta er eftir allt saman boð frá
Guði, og ég er hissa á því að kirkja
sem á að kenna fagnaðarerindið
hefur fellt úr lög frá Guði. Hver
prestur túlkar ritningarnar á sinn
eigin hátt, í staðinn fyrir að kirkjan
á að vera með einu og sömu kenn-
ingarnar. Eru þá sumar kirkjur að
leiða fólk afvega?
Ég hef kynnt mér kirkjur og j
fundið eina sem að kennir sömu
kenningar, hvort heldur er á Is-
landi, í Russlandi, Ameríku, Evrópu
eða hvar sem er í heiminum. Það
er Kirkja Jesú Krists hinna síðari
daga heilögu. Með þeirri kirkju hef-
ur prestdæmið verið endurreist á
jörðinni, til þess að fólk á okkar
tímum geti fengið leiðbeiningar frá
Guði, eins og til forna. Við erum
ekki síður mikilvæg en fólkið á tím-
um Abrahams og Móses. Við eing-
um rétt á og höfum leiðbeiningar
frá Guði nú á okkar tímum. Hún
er með hinn sanna boðskap Jesús
Krists. Roger Williams, sem var
prestur hjá ensku baptistakirkjunni
á 17. öld, sagði: Engin kirkja á jarð-
ríki er stofnsett á réttum grunni
og enginn er sá maður, sem vald
hefur til að framfylgja lögum kirkj-
unnar. Á því mun engin breyting
verða fyrr en hið æðsta höfuð kirkj-
unnar sendir frá sér nýja postula,
og ég vænti komu þeirra. (Pictures-
que America bls. 502).
Ég er þakklát að drottinn hefur
sent okkur spámann og 12 postula
til að leiða okkur á hinum síðari
dögum.
Margrét Annie
Guðbergsdóttir,
Stykkishólmi.
Víkverji skrifar
Fréttir og fréttaskýringar fjöl-
miðla, sem byggjast einvörð
ungu á heimildarmönnum, sem ekki
koma fram undir fullu nafni eru
vandmeðfamar. Sú aðferð við skrif
eða gerð frétta og fréttaskýringa
veitir óvönduðúm blaðamönnum
tækifæri til að koma sínum eigin
sjónarmiðum á framfæri undir því
yfirskini, að um einhveijar ótil-
greinar heimnildir sé að ræða. Vík-
veiji minnist þess ekki, að dæmi
um slíkt hafi komið upp hér á landi
en slík tilvik hafa komið upp erlend-
is.
Hins vegar, og það er kjarni
málsins í okkar fjölmiðlaumhverfí,
skapar þessi aðferð hættu á, að fjöl-
miðlar og einstakir blaðamenn eða
frétfamenn séu notaðir til þess að
koma á framfæri upplýsingum um
eitthvað, sem sagt er að sé að ger-
ast en er ekki að gerast. En fréttin
eða fréttaskýringin getur haft þau
áhrif, að það gerist!
Allir fjölmiðlar hér nota þá að-
ferð í fréttum og fréttaskýringum
að byggja í sumum tilvikum á heim-
ildarmönnum, sem ekki koma fram
undir fullu nafni. Blaðamenn Morg-
unblaðsins hafa kynnzt því, að sum-
um heimildarmönnum er hægt að
treysta og öðrum ekki. í nokkrum
tilvikum hefur blaðinu orðið á að
birta fréttir eða fréttaskýringar,
sem taldar voru byggðar á traustum
• heimildum en svo reyndist ekki
. vera^ Eftir-slíka.reyndu..er.öUum.
upplýsingum frá heimildarmönnum,
sem blaðið hefur þá reynslu af, tek-
ið með mikilli varúð.
Þessar hugleiðingar eru settar á
blað vegna fréttaskýringar,
sem fréttastofa Stöðvar 2 flutti sl.
föstudagskvöld um forystumál
Sjálfstæðisflokksins. Þar var því
haldið fram, án þess að geta nok-
kurra heimilda, að svonefndir fram-
ámenn í Sjálfstæðisflokknum legðu
nú að Davíð Oddssyni að gefa kost
á sér við formannskjör, hvað sem
liði óskum Þorsteins Pálssonar um
endurkjör. Nú er það auðvitað
teygjanlegt hugtak, hveijir eru
framámenn í flokki. Væntanlega
eru það þó menn, sem gegna trún-
aðarstöðum í fremstu forystusveit,
svo sem þingmenn, fulltrúar í mið-
stjórn eða aðrir, sem gegna ein-
hveijum æðstu trúnaðarstöðum
flokks.
Með fyrirvara um, hversu teygj-
anlegt þetta hugtak er, ætlar Vík-
verji þó að leyfa sér að fullyrða,
að innan Sjálfstæðisflokksins er
engin skipulögð hreyfing fyrir því
á þessari stundu, að breyting verði
á forystu Sjálfstæðisflokksins á
næsta landsfundi, sem haldinn
verður í marzmánuði. Alvöru könn-
. JUl á.. viðborfnm. æðst.n tri'mf ðpr-
manna flokksins mundi áreiðanlega
leiða í ljós ýmis konar gagnrýni á
formennsku Þorsteins Pálssonar en
jafnframt, að engin hreyfing væri
fyrir því í þessum hópum að skipta
beri um formann og jafnvel, að
formaður Sjálfstæðisflokksins hafí
fremur styrkt sig í sessi síðustu
vikur og mánuði.
Hitt er svo annað mál, að frétta-
skýring af þessu tagi getur
kallað fram einhver skoðanaskipti
um málið, en þá er varla hsegt að
halda því fram með nokkrum rök-
um, að um fréttaskýringu hafí ver-
ið að ræða, heidur miklu fremur,
að hér hafi verið á ferðinni áróður
fyrir breytingum á forystu Sjálf-
stæðisflokksins. Er það hlutverk
fréttastofu Stöðvar 2 að flytja slík-
an áróður?
Líklegasta skýringin á þessari
fréttaskýringu er sú, að hér hafí
verið á ferðinni óvandaðir heimild-
armenn, sem vilji koma slíkri hreyf-
ingu af stað, en hafí ekki fundið
hljómgrunn innan flokksins fyrir
því og að fréttastofan hafi dottið í
þann pytt að taka þá heimildarmenn
trúanlega. Að því leyti hefur Vík-
veiji fyllstu samúð með fréttastof-
unni.
Traustari frágangur
Takkfyr-
ir okkur
Til Velvakanda.
Ég vildi fyrir hönd okkár hjóna
koma á framfæri þakklæti til
starfsfólks Hótels Arkar í Hvera-
gerði fyrir þjónustulipurð og eftir-
minnilega dvöl sem við hjónin átt-
um á hótelinu eina helgi nú í janú-
ar. Við höfðum ákveðið að bregða
út af vananum og skreppa eina
helgi eitthvað okkur til hressingar
og ætluðum fyrst til útlanda, en
duttum svo niður á helgartilboð
frá Hótel Örk, og ákváðum að
skella okkur. í einu orði sagt var
þjónustan frábær og aðstaða öll
hin besta. Það er ánægjulegt að
þurfa ekki að fara lengra en til
Hveragerðis til að njóta góðrar
helgar. Enn og aftur, hafið hjart-
ans þakkir fyrir.
Sigurður Þórðarson
6. leikvika - 9. feb. 1991
Röðin : XX1-111-212-21X
HVER VANN ?
827.369- kr.
12 réttir: 0 raðir komu fram og fær hver: 0 - kr.
11 réttir: 14 raðir komu fram og fær hver: 14.771 - kr.
10 réttir: 144 raðir komu fram og fær hver: 1.436 - kr.
Tvöfaldur pottur - um næstu helgi!!
Til Velvakanda.
Mér datt það í hug þegar sjón-
varpsstöðvamar sýndu frá atburð-
um í óveðrinu á dögunum og þak-
plötur sáust fjúka af þökum eins
og spil, hvort ekki mætti ganga
betur frá þökum og festa plöturn-
ar betur. Eftir óveðrið kom í ljós
að lang flest þök hafa staðið sig
vel og ekki gefið eftir hið minnsta.
Til sveita hefur víða orðið mikið
tjón og kemur þá upp hliðstæð
spurning. Voru þau hús sem fuku
nógu traustlega byggð? Ljóst er
að gera verður miklar kröfur til
bygginga hér á landi. Mikið tjón
hefur orðið vegna þess að járnplöt-
ur hafa fokið á glugga annarra
húsa og bíla. Reyndar er það mik-
ið lán að enginn mannskaði varð
í þessu veðri eins mikið og gekk
á þegar hvassast var.
Sigurður
Látið úti-
ljósin loga
Blaðburðarfólk fer þess á leit við
áskrifendur að þeir láti útljósin’loga
á morgnana núna í skammdeginu.
Sérstaklega er þetta brýnt þar sem
götulýsingar nýtur lítið eða ekki við
tröppur og útidyr.
LONDON
KR. 14.700
ÍVIKAKR. 14.700
2 VIKURKR. 15.800
3 VIKUR KR. 16.900
KALPMANNAHOFN
KR. 15.800
Kostnaðarsom aukakilo I
ÍVIKAKR. 15800
2VIKUR KR. 16.900
3 VIKUR KR. 17.700
'::i;i:::::::i^'i:::i:i;i:::;':';:i:::i:i:i:i:i:i:i^:i:i:;:i:::ií<$:^i:ÍN:i:ií::i:c:c:i:i<<íi^ii:i:SÍ:SÍíSÍ<í;i:A$;í:<íi<í:í<í:^íiiÝ;:AÍí::ÍÍ^SÍSjsí:^;ÍS>:<Í:^í:$i^:ÍSí:i^:;í::^^
Til Velvakanda.
í þættinum „Hollusta og heil-
brigt líferni" í umsjá Steinunnar
Harðardóttur, var m.a. rætt við
yfirlækninn á heilsuhælinu í
Hveragerði, en þangað fer fólk nú
í vaxandi mæli til þess að ná af
sér aukakílóunum.
í ljós kom í samtali við yfírlækn-
inn, að meðferð megrunarsjúkl-
inga er fólgin í fræðslu og fólk
hvatt til þess að hreyfa sig sem
mest, fara í sundlaugina, langar
gönguferðir, þrekæfingar o.fl.
Þegar fólk kemur að matarborði
er því fijálst að borða það sem
það vill, en matarbakki (megrun-
arfæði) er til sýnis, til þess að
minna á hvað borða skal ef árang-
ur á að nást.
Það kom hinsvegar ekki í ljós
í þættinum hver árangurinn er
þegar til lengri tíma er litið, hvað
snertir þennan hóp.
í matreiðslubók NLFÍ segir svo:
„En hitt er staðreynd, að þegar
hælisgestur, sem hefur náð af sér
5-10 kg, kemur aftur einu eða
tveimur árum síðar, hefur hann
oftast náð fyrri þyngd sinni og
iðulega nokkrum kílógrömmum
betur. Þetta er reglan. Og þetta
er reynsla allra lækna, hérlendis
og erlendis."
Þegar litið er á þann kostnað
sem þessi dvöl á heilsuKæli NLFI
hefur í för með sér fyrir skatt-
greiðendur, (ca. 95 þúsund krónur
á mánuði fyrir hvern einstakling)
vaknar sú spuming hvort þetta
fólk geti ekki greitt fyrir dvöl sína
að fullu sjálft, eða stundað sund,
göngur og líkamsrækt á sínum
heimaslóðum og lagt það á sig að
borða ögn minna.
Málið horfir a.m.k. þannig við
hjá þeim sem þurfa að spara við
sig í mat til þess að ná endum
saman og geta ekki leyft sér þann
munað að taka sér frí frá störfum
til þess að dvelja vikum og mánuð-
um saman á þessu lúxushæli sem
heilsuhæli NLFÍ er, þar sem dvöl-
in er að mestu leyti kostuð af al-
menningi. Það er mikið af lasburða
eldra fólki sem óskar eftir að kom-
ast þar að, en megrunarsjúkling-
arnir sitja gjarnan fyrir.
Skattgreiðandi
BROTTFARARDAGAR
maí 1.8.15.22.29.
júní 5. 12. 19. 26.
JÚIÍ3. 10.17.24.31.
ágúst 7. 14. 21. 28.
sept. 4. 11. 18. 25.
LON KL. 1600
CPH KL. 800
Ofangreind ver6 eru afmælisveröin
II maí 1. 8. 15. 22. 20. II á fíugkostna&i, fram og til baka.
Sfðan bætast vi6 fjölbreyttir
gistimögulcikar a& eigin vali,
bílaleiga og margt fleira. íslenskt
starfsfólk okkar f Kaupmannahöfn
og London annast fyrirgreiöslu
farþega í flugvöllum.
Þeir sem missa af afmælissætunum geta bókað slg f Iciguflug á
12-16 % hærra gjaldi og samt komist miklu ódýrara yflr
Atiandshaflð en almennt gerist. Lelguflug okkar, sem opið er
öllum Islendingum, er sannkölluð kjarabót f anda þjóðarsáttar.
Sætaframboð er takmarkað, svo nú gildir að nota þetta einstaka
tækifæri strax, þvf afmælissætin okkar til útlanda eru ódýrari en
flugfar til Egilsstaða.
— PIMCFERÐIR
w SOLRRFLUG
Vesturgötu 12 - Sími 620066 og 15331
IVICTRON varaaflgjafinn tryggir að þú
tapir ekki mikilvægum gögnum úr tölvunni
þinni við rafmagnstruflanir. Við algjört raf-
magnsleysi veitir VICTRON varaaflgjafinn
svigrúm til að gera viðeigandi ráðstafanirj
áður en skaðinn er skeður.
• •
AÐVORUN!!
Rafmagnstruflanir
geta valdið gagnatapi
úr tölvum!
Við eigum VICTRON varaaflgjafana á
lager í stærðum frá 400 VA til 2000 VA og
getum útvegað með skömmum fyrirvara
aðrar stærðir upp í 45 KW.
Fullkomin viðhalds- og varahlutaþjónusta.
Hafið samband við sölumenn okkar, sem
veita fúslega allar nánari upplýsingar.
Umboðsmenn um land allt.
MTCKNIVAL