Morgunblaðið - 12.02.1991, Page 47
■ HJÁ NÁMSGAGNASTOFN-
UN eru komnar út bækurnar
Brauðstrit og Hlýddu og verður
góð(ur). Bækur þessar eru þær síð-
ustu sem koma út í flokki svokall-
aðra lesarka. Brauðstrit fjallar um
brauðstrit karla og kvenna, ygnri
og eldri, fyrr og nú. Bókin hentar
einkum til umfjöllunar með nem-
endum í 7.-10. bekk grunnskóla.
Sigurborg Hilmarsdóttir safnaði
efni bókarinnar en Anna Cynthia
Leplar er höfundur myndefnis.
Bókin er 134 blaðsíður. í Hlýddu
og vertu góð(ur) er fjallað um
samskipti kynslóða á ólíkum tímum.
Lesörkin hentar einkum í 8.-10.
bekk. Hjálmar Árnason og Magn-
ús Jón Árnason völdu efnið.
Margrét Friðbergsdóttir gerði
myndir. Bókin er samtals 80 síður.
Námsgagnastofnun hefur einnig
gefið út bækurnar Mál til komið
Grunnbók 1 ásamt Verkefnabók
1A sem ætluð er til notkunar með
grunnbólýnni. Höfundar beggja
bókanna eru Kolbrún Sigurðar-
dóttir og Þóra Kristinsdóttir. Mál
til komið, Grunnbók 1 er sú fyrsta
af þremur nýjum í flokki námsbóka
sem ætlaðar eru 5.-7. bekk. Mál
til komið, Grunnbók 1 er 104 bls.
en Verkefnabók 1A 65 bls. Báðar
bækumar eru í brotinu 1724. Höf-
undar myndefnis í bókunumm eru
Anna Cynthia Leplar og Kol-
beinn Amason.
■ GERÐUBERG heldur barna-
ball í tilefni öskudagsins miðviku-
daginn 13. febrúar kl. 15.30-17.00.
Hljómsveitin Fjörkarlar skemmtir.
Ljúfi Guð, þig lofum vér,
lútum, játum, viðurkennum.
Alda faðir, einum þér
ástarfóm til dýrðar brennum.
Hátt þér syngur helgiljóð
heimur vor og englaþjóð.
(Stefán frá Hvítadal.)
Samúðarkveðjur til fjölskyldu
hennar.
Sæunn
Nú er tengdamóðir mín, hún
Erla, dáin, blessuð sé minning
hennar. Hvílíkt ranglæti, hugsar
maður í sorg og eftirsjá. En eftir
lifa góðar og hlýlegar minningar
um þessa góðhjörtuðu konu sem
ég hafði þó aðeins þekkt í nokkur
ár. Samt finnst mér eins og ég
hafi þekkt Erlu allt mitt líf. Alltaf
tók hún manni opnum örmum með
góðlátlegt bros, hlýlegt viðmót,
bjóðandi hitt og gefandi þetta.
Ekkert mátti okkur skorta. Og
umhyggjan var ávallt fyrir hendi
þar sem hún á síðustu dögum sín-
um hér á jörð og við endalok hinn-
ar löngu og ströngu sjúkralegu
spurði sífellt um litlu bamabömin
sín og hvemig við hin hefðum
það, en hugsaði lítt um eigin líðan.
En Guð ákvað að lina þrautir
Erlu og taka hana til sín, og ég
er viss um að nú líður henni vel,
^sem hún á sannarlega skilið.
Drottinn varðveiti elsku Erlu,
blessi hana og veiti henni náðuga
hvíld.
Unnar Orn Stefánsson
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vöm í nótt.
Æ, virzt mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
•(S. Egilsson)
Nú er hún elsku amma dáin.
Ég var búinn að þekkja hana í níu
ár, en hefði viljað hafa hana hjá
mér svo miklu lengur. Mer þótti
svo gaman að heimsækja ömmu
Deddu og afa Þorvald á Smáraflöt-
ina. Þar leið mér vel og þar lærði
ég margt.
Amma og afí vom alltaf tilbúin
að gera allt fyrir mig sem þau
gátu og fyrir það verð ég þeim
alltaf þakklátur. Ég bið algóðan
Guð að passa hana ömmu mína
og styrkja hann afa minn sem ég
veit að saknar hennar ömmu svo
mikið.
Þorvaldur Ó. Karlsson
ieei si suoAtnjiciHó iLtLíúfiHDdhom
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991
4f
Verð kr. 200. Allir eru velkomnir
meðan húsrúm leyfir og foreldrar
eru hvattir til að mæta með börnum
sínum. Veitingabúð Gerðubergs
verður opin frá kl. 10-22.
(FréttatiLkynnirig)
■ STJÓRN SÍB gengst fyrir opnu
húsi þriðjudaginn 12. febrúar í hús-
næði Bankamannaskólans, Lauga-
vegi 101, og hefst fundurinn kl.
20.30. Að þessu sinni verður tekið
fyrir efni sem mikið hefur verið til
umfjöllunar undanfarið, vaxtamál-
in. Framsögumaður er Steingrím-
ur Hermannsson forsætisráð-
herra. Að framsögu lokinni verða
fyrirspurnir og umræður. Allir
bankastarfsmenn eru hvattir til að
mæta vel og stundvíslega.
Nýtt skrifstofBtækiinám
Tölvuskóli Reykjavíkur gerir þér kleift að auka við
þekkingu þína og atvinnumöguleika á skjótan og
hagkvæman hátt.
Þú lærir bæði á Macintosh- og PC-tölvur, auk al-
mennrar skcifstofutækni, bókfærslu, tölvubókhalds,
verslunarreiknings og toll- og verðútreikninga.
Innritun stendur yfir.
Hringið og fáið sendan ókeypis bækling.
Erum við til kl. 22
Töívtisfcðli Reykíavfkor
Borgartúni 28, sími 91-687590
MERKJASOLUDAGUR
RAUÐA KROSS
OSKUDAGUR er hefðbundinn merkjasöludagur
Rauða krossins. Árvisst hafa skólabörn um allt land
aðstoðað Rauðakrossdeildirnar við LANDSSÖFNUN
þennan dag. Við hvetjum alla landsmenn til að
taka vel á móti sölubörnunum þegar þau bjóða
merki dagsins og styrkjfi þannig hjálparstarf Rauða
krossins.
Rauði kross
íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími: 91-26722
w
ISLANDS
ARGUS/SlA