Morgunblaðið - 15.02.1991, Page 1
64 SIÐUR B/C/D
38. tbl. 79. árg.
FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Fjölmennur brúðarvals
Reuter
Víða var haldið upp á Valentínsdag í gær en þá
bindast elskendur gjarnan trúnaðarböndum. Sjötíu
pör notuðu tækifærið til þess að láta gefa sig saman
í einu lagi í borginni Buffalo í Bandaríkjunum í
gær. Það var útvarpsstöð í bænum sem stóð fyrir
athöfninni.
Bandaríkjamenn sökuðu íraka í
gær um að hafa komið hernaðar-
stjórnstöð fyrir undir Rashid-hótel-
inu í Bagdad þar sem flestir erlendu
blaðamennirnir í borginni búa. Þeim
var boðið að skoða kjallara hússins
í gær og sögðust ekkert hafa séð
grunsamlegt.
íraskir borgarar fylgdu í gær þeim
fórnarlömbum árásarinnar á mið-
vikudag til grafar sem búið var að
grafa úr rústunum og kennsl höfðu
verið borin á. Líkfylgdin breyttist
skjótt í mótmælaaðgerðir gegn
Bandaríkjamönnum og var gtjóti
kastað í nærstadda vestræna frétta-
menn. Mótmæli voru einnig mikil í
Jórdaníu, Túnis-og Alsír vegna árás-
arinnar á loftvarnabyrgið.
Sovétmenn beita sér nú mjög fyr-
ir vopnahléi við Persaflóa. Vítalíj
Tsjúrkín, talsmaður sovéska ut-
anríkisráðuneytisins, lét í ljósi
nokkra bjartsýni í gær eftir viðræður
Sergejs Prímakövs, sendimanns Sov-
étstjórnarinnar, og Saddams Huss-
eins íraksforseta í Bagdad. Tareq
Aziz, utanríkisráðherra Iraks, kemur
til Moskvu á laugardag til viðræðna
um leiðir til að binda enda á stríðið.
Margaret Tutwiler, talsmaður ut-
anríkisráðuneytis Bandaríkjanna,
sagði í gær að of snemmt væri að
segja til um hvort friðarviðleitpi
Sovétmanna væri líkleg til að bera
árangur.
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra írans, sagði í gær að árásir
bandamanna væru komnar út fyrir
þann ramma sem samþykktir Sam-
einuðu þjóðanna hefðu sett aðgerð-
um gegn Irökum.
Talsmaður ríkisstjórnar Spánar
hvatti til þess í gær að loftárásum
yrði hætt á Bagdad og aðrar íraskar
borgir. Bandamenn ættu að ein-
skorða aðgerðir sínar við Kúveit og
nágrenni. Spánverjar hafa sent þrjú
herskip til Persaflóa og leyft Banda-
ríkjamönnum að nota herflúgvéiii á
Sjálfstætt Litháen:
Skoskirþjóð-
emissinnar
styðja stefnu
Islendinga
St. Andrews. Frá Guðmundi H.
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
SKOSKI þjóðernissinnaflokk-
urinn hefur lýst stuðningi við
ályktun Alþingis íslendinga
um sjálfstæði Litháens.
Forysta flokksins hefur ritað
breska utanríkisráðherranum og
formanni ráðherranefndar Evr-
ópubandalagsins bréf og hvatt
þessa aðila til að feta í fótspor
Islendinga og viðurkenna Lithá-
en sem sjálfstætt ríki.
Haft er eftir Dr. Allan Mac-
Cartney, varaformanni flokks-
ins, í frétt dagblaðsins Glasgow
Herald, að slík viðurkenning
væri skilaboð til Kremlveija um,
að frekari þvinganir gagnvart
lýðræðislega kjörnum stjórn-
völdum í Litháen yrðu ekki þol-
aðar. Hann bætti við: „Elsta þing
Evrópu hefur viðurkennt það
yngsta og sett öðrum vestrænum
lýðræðisríkjum fordæmi, sem
þau ættu að fylgja.“
Reuter
Jórdönsk kona varpar steini að sendiráði Bandarikjanna í Amman
og jórdanskur lögreglumaður reynir að stöðva hana. Mikil mótmæli
hafa verið í nokkrum arabalöndum vegna árásar á loftvarnabyrgi-
í Bagdad.
Glasnost:
Jeltsín vændur um
tengsl við „mafíu“
„Ljótasti rógburður af þessum toga,“
segir talsmaður Rússlandsforseta
Moskvu. Reuter.
ENN meiri harka færðist í gær í baráttu Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétforseta og Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, er
Glasnost, vikurit sovéska kommúnistaflokksins, birti grein
þar sem Jeltsín er sakaður um að vera viðriðinn „glæpa-
mafíu“ í Moskvu. Bandaríkjastjórn mótmælti í gær þeim ásök-
unum innanríkisráðherra Sovétríkjanna að vestrænir aðilar
ætluðu sér að steypa Gorbatsjov með efnahagsaðgerðum.
Pavel Voshtsjanov, talsmaður
Jeltsíns, lýsti greininni sem „ljót-
asta rógburði af þessum toga sem
nokkurn tíma hefur birst á prenti“.
„Það er stórfurðulegt að leiðtogar
Sovétríkjanna skuli beita svona
ankannalegum aðferðum til að
rægja rússneska ráðamenn,“ sagði
hann.
Glasnost kvaðst hafa fengið þær
upplýsingar frá háttsettum manni *'
innan lögreglunnar að Jeltsín og
forsætisráðherra hans, ívan
Sílajev, hefðu ráðið félaga í
Loftárásir bandamanna á borgir í írak gagnrýndar:
Höldum áfranj árásum á
stjómstöðvar Irakshers
- segir Marlin Fitzwater, talsmaður Bandaríkj astj órnar
Nikósíu. Washington. Bagdad. Reuter.
MIKIL reiði hefur gripið um sig í nokkrum arabalöndum vegna loftár-
ásar bandarískra herþotna á loftvarnabyrgi í Bagdad á miðvikudag.
Spánveijar og ítalir hafa einnig hvatt til þess að loftárásum á íraskar
borgir verði hætt. Um miðjan dag í gær sögðu Irakar að 64 hefðu
farist í árásinni á byrgið en í gærkvöld hækkaði sú tala í 288. Banda-
ríkjamenn segja að byrgið hafi verið fjarskipta- og stjórnstöð. Banda-
rískir embættismenn gáfu til kynna í gær að manntjónið kynni að
hafa þau áhrif að skotmörk handamanna yrðu endurskoðuð. Marlin
Fitzwater, talsmaður Bandaríkjastjórnar, sagði síðar að ekki kæmi
til greina að hvika frá þeirri stefnu bandamanna að gera loftárásir
á stjórnstöðvar írakshers.
Spáni fyrir B-52-sprengjuflugvélar.
Claudio Lenoci, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Ítalíu, hvatti einnig til þess
í gær að hætt yrði loftárásum á
borgir í írak.
Irakar skutu í gær tveimur Scud-
eldflaugum á bæinn Hafr al-Baten
í Saudi-Arabíu sem er um 100 km
frá írösku landamærunum. Fjórir
slösuðust af þessum sökum. Mikil
umferð herflutningabifreiða er um
bæinn.
Haft var eftir kúveiskum andófs-
mönnum í gær að írakar hefðu tek-
ið tvö hundruð manns af lífi í Kúv-
eit frá því hernaður fjölþjóðahersins
hófst 17. janúar. Hefðu sumir verið
krossfestir og aðrir grafnir lifandi.
Sjá fréttir á bls. 18.
„Tsjetsjen-
mafíunni“
sem lífverði
sína. Vitað
er að mafían
er valdamikil
í undirheim-
um Moskvu-
borgar. „Það
er alkunna
að margir
þeirra tengj-
ast beint
glæpasam-
tökum,“
hafði blaðið
eftir emb-
ættismann-
inum. Það sagði að ekki væri
hægt að nafngreina manninn „af
augljósum ástæðum“.
Sovíetskaja Rossíja, málgagn
harðlínumanna í rússneska komm-
únistaflokknum, veittist einnig að
Jeltsin og sagði hann svifast einsk-
is til að auka völd sín.
Margaret Tutwiler, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytis-
ins, fór í gær hörðum orðum um
ásakanir Valentíns Pavlovs, for-
sætisráðherra Sovétríkjanna, þess
efnis að vestrænir bankamenn
hefðu reynt að koma Gorbatsjov
frá völdum með því að stórauka
skyndilega peningamagn í umferð
í Sovétríkjunum. Hún sagði ásak-
anirnar „hneykslanlegar og fárán-
legar". Augljóst væri að Sovét-
stjórnin vildi kenna Vestur-
landabúum um eigin mistök í efna-
hagsmálum.