Morgunblaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR FOSTUDAGUR 15. FEBRUAR 1991 — KNATTSPYRNA Landsliðið til Wales, Englands og Möltu í sömu ferðinni Islenska landsliðið í knattspymu hefur ákveðið að þiggja heim- boð þriggja þjóða og leika þrjá landsleiki á tæpum tveimur vik- um. Fyrsti leikurinn verður gegn b-liði Englands laugardaginn 27. apríl og síðan verður leikið gegn Wales, miðvikudaginn 1. maí. Þaðan verður farið til Möltu og leikið þar þriðjudaginn 7. maí. Þetta er vissulega nokkuð löng ferð en ekki mjög kostnaðarsöm og á án efa eftir að nýtast okkur vel í undirbúning fyrir leikina gegn Albaníu og Tékkóslóvakíu," sagði Ejggert Magnússon, formað- ur KSI. íslendingar leika gegn Aibaníu í Tirana 26. maí og taka á móti Tékkum á Laugardaisvell- inum 5. júní. Þýskaland, England og Sviss eiga landsleiki um svipaðar mund- ir og því ekkert leikið í deildinni. Því eru líkur á að allir atvinnu- mennirnir verði með. „Ég á von á því að við skiptum eitthvað um leikmenn milli leikja og geri ekki ráð fyrir að við notum sama hóp- inn allan tímann,“ sagði Eggert. Landsliðið kemur heim 8. maí og íslandsmótið hefst rúmum tveimur vikum síðar. „Þetta er nálægt mótinu en það er góður fyrirvari á þessu og ég held að það verði ekki vandamái." ÍÞR&mR FOLK ■ A USTURRIKISMENN unnu gullverðlaun í sveitakeppni í norrænni tvíkeppni á heimsmeist- aramótinu í Val di Fiemme á Ítalíu. Keppt var í stökki og 3x10 km boðgöngu. Frakkar urðu í öðru sæti og Japanar í því þriðja. ■ ELENA Viíilbe tryggði sér sín þriðju guliverðlaun þegar Sovét- menn urðu sigurvegarar í 4x5 km boðgöngu. Italir urðu í öðru sæti og Norðmenn í þriðja. Trude Dy- bendahl fékk því bronsverðlaun, en hún hafði áður unnið til gull- og silfurveðlauna á HM. ■ BANDARÍKJAMENN eru farnir að undirbúa Heimsmeistara- keppnina í knattspyrnu 1994. M.a. verður mót á Flórída í júlí í sumar og hefur fjórum breskum liðum verið boðið; Nottingham Forest, Everton, Celtic og Sheffield Wednesday. H DAVID Rocastle, miðvallar- spilari Arsenal, sem tábrotnaði í desember, verður með gegn Leeds Frá Bob Hennessy ÍEnglandi í fjórða leik liðanna í bikarkeppn- inni á laugardaginn. Andreas Limpar, sem meiddist á ökkla gegn Leeds í vikunni, eftir tvær tækling- ar Gordon Stracham, og Perry Groves, sem brákaðist á rifi, leika ekki með Arsenal. ■ SC UNTHORPE, sem Ieikur í 4. deild, er komið á beinu brautina fjárhagslega. Liðið seldi Richard Hall, 18 ára miðvörð, til Sout- hampton fyrir 250.000 pund og hinn 19 ára bakvörð, Neil Cox, til Aston Villa fyrir 400.000 pund, sem er met fyrir leikmann í 4. deild. ■ NEIL Cox fór með Aston Villa til Hong Kong í gær, en lið verður þar í átta daga keppnisferð. Ikvöld Handknattleikur: Einn ieikur verður í 1. deildarkeppni karla í kvöid. Víking- ur - ÍBV leika í Laugardalshöil kl. 20.30. í 2. deild leika Þór - ÍS á Akur- eyri kl. 20.30 og ÍBV - Fram leika í 1. deild kvenna ki. 20 í Eyjum. BORÐTENNIS Milan Orlowski og Liang Geliang verða hér með sýningu og taka þátt í móti. Heimsmeistari í sviðsljósinu OHowski og Geliang sýna i TBR-húsinu TVEIR af fremstu borðtennismönnum heims undanfarin ár - Tékkinn Milan Orolowski og Kínveijinn Liang Geliang verða með borð- tennissýningu í TBR-húsinu kl. 20 í kvöld. Þeir muna leika listir sínar með borðtennis- kúluna, sem vegur aðeins um þijú grömm. Aðgangur er ókeypis. FIMM erlendir borðtenn- iskappar verða gestirá ís- landsbankamótinu íborðtenn- is, sem fer fram í Reykjavík á laugardaginn. Tveir þeirra eru kunnir borðtennisspilarar - Milan Orlowski frá Tékkósló- vakíu og Kínverjinn Liang Gel- iang. Auk þeirra keppa Danirn- ir Claus Junge og Morten Christensen og Þjóðverjinn Daniel Suchanec. Orlowski var einn af fremstu borðtennismönnum Evrópu um tímabil og varð Evrópumeistari í einliðaleik 1974. Hann hefur oft verið á verðlaunapalli á stórmótum og hlaut hann silfurverðlaun í tvíliðaleik á HM í Svíþjóð 1985. Geliang var í átta ár í hinu sigur- HANDKNATTLEIKUR / SPANN Sigurður tók því rólega Sigurður Sveinsson átti rólegan dag þegar Atletico Madrid vann Alicante, 19:15, í úrslitakeppninni á Spáni. Atletico hafði mikla yfírburði í Ieiknum og leikmenn leifðu sér þann munað að slaka á þar sem þelr eiga leik í Evrópukeppninni um helgina. Sigurður skor- aði tvö mörk. Atletico skaust upp á toppinn - er með fimm stig, en Barcelona, Caja Madrid og Bidasoa, sem á leik til góða, eru með fjög- ur stig. Bracelona vann Caja Madrid 25:23 í Madrid. Vujovic skoraði átta mörk og Portner sjö fyrir Barcelona. VIÐHALD SKIPA Landssamband ísl. útvegsmanna, Samband ísl. kaupskipaútgerða og Vélstjórafélag íslands standa fyrir námskeiði dagana 21.-723. febrúar 1991 f Tæknigarði á lóð Háskóla íslands. Námskeiðið er ætlað þeim, sem tengjast viðhaldi skipa, þ.e. eftirlitsmenn í landi, vélstjóra, skipstjóra, tæknilega stjórnendur útgerða og starfsmenn þjónustufyrirtækja útgerða. Skráning fer fram hjá Iðntæknistofnun íslands í síma 91-68 7000. n Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og lýkur skráningu á hádegi '19. febrúar. IÐNTÆKNISTOFNUN ISLANDS Keldnaholt. 112 Reykjavik Sími (91) 68 7000 sæla liði Kínveija. Hann er talinn einn besti alhliða borðtennismaður heims og hefur hann hlotið sex heimsmeistaratitla, auk þess að hann hefur oft staðið á verðlaunar- palli á stórmótum í Asíu og Evrópu. Geliang er nú búsettur í Þýskalandi. íslensku borðtennismennirnir sem taka þátt í mótinu, eru: Kjart- an Briem, íslandsmeistari, Tómas Guðjónsson, Hjálmtýr Hafsteins- son, Jóhannes Hauksson, Kristján Jónasson, Kristján Viðar Haralds- son, Pétur Stephensen, Vignir Kristmundssón og Bjarni Bjarna- son. Mótið fer fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans og hefst það kl. 14. Urslitaleikurinn verður leikinn kl. 17. Aðgangur að móinu er ókeypis. FRJALSAR IÞROTIR Fríða Rún og Mar- grét hlaupa vel í Bandaríkjunum Fríða Rún Þórðardóttir UMFA og Margrét Brynjólfsdóttir UMSB hafa náð sæmilegum árangri á innan- hússmótum í Bandaríkjunum að und- anfömu en þær hófu báðar nám við háskólann í Aþenu í Georgíuríki síðastliðið haust. Um miðjan janúar kepptu þær á háskólamóti í Gainsville í Flórída og voru í sveit skóla síns sem varð í þriðja sæti í 4x800 metra boðhlaupi. Tími Fríðu Rúnar var 2:18,2 og Margr- étar 2:18,9. Tæpum tveimur tímum síðar hljóp Fríða Rún á 2:21 í opnu . 800 metra hlaupi og Margrét 3.000 metra á 10:27 mín. Þá kepptu þær í míluhlaupi á móti í Johnson City í Tennessee helgina 25.-26. janúar. Fríða Rún hafði litla keppni í sínum riðli og hljóp á 4:59 en Margrét fékk mun meiri keppni þótt í lakari riðli væri og hljóp á 4:56 mín. Síðar sama daginn kepptu þær í 4x800 metra boðhlaupi og hlaut Fríða Rún 2:22 mínútur og Margrét 2:29. Loks kepptu stöllurnar á boðsmóti í borginni Indiana um síðustu helgi og þar hljóp Fríða Rún mílu á 4:52 og Margrét á 4:57 mínútum. Millitími var tekinn á Fríðu 4:32 eftir 1.500 metra og 4:36 hjá Margréti en það er nánast sama og þær eiga best í 1.500 metra hlaupum utanhúss. Lofar árangur þeirra á þessum fyrstu innan- hússmótum því góðu. Finnbogi nálægt meti í 800 m hlaupi Finnbogi Gylfason úr FH hjó nærri íslandsmeti Þorsteins Þorsteinssonar í 800 m hlaupi innanhúss (1:53,3 mín.). á móti í Arkanses, þar sem hann fékk tímann 1:53,49 mín. Met Þorsteins er frá 1972. Finnbogi hljóp mínuhlaup á 4:31,00 mín. Frímann Hreinsson, FH, hljóp míluhlaup á 4:23,4 mín. Á mótinu stökk Einar Kristjánsson úr FH 2.08 í hástökki, Árni Jensson, ÍR, varpaði kúlunni 17,06 m, sem er hans besti árangur og Súsanna Helgadóttir, FH, hljóp 55 m á 7,30 sek. og 800 m á 2:27,3 mín. Þrír fijálsíþróttamenn tóku þátt í móti í Oklahoma á dögunum. Frímann Hreinsson, FH, hljóp 3000 m á 8:45,6 mín., Steinn Jóhannsson, FH, hljóp míluhlaup á 4:25,9 mín. mín. og Bragi Sigurðsson, Ármanni, hljóp 3000 m hlaup á 8:35,0 mín.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.