Morgunblaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.02.1991, Blaðsíða 4
4 3 MORGUNBLAÐJP FÖSTUDAGUR Í5. FBBRÚAR 1991 Hótel Borg færð í upprunalegt horf: Eitt tonn af diskó- ljósum úr loftinu MIKLAR breytingar hafa verið gerðar á salarkynnum HÓtel Borgar undanfarnar vikur og miða þær að því að færa dans- og veitingasalinn í sem næst upprunalegt horf. Hótelið var vígt 1930. Opnað verður fyrir gesti annað kvöld með skemmti- dagskránni Bláir hattar og hljómsveit hússins mun leika fyrir dansi. Helga Stefánsdóttir leikmynda- hönnuður, sem hefur haft veg og vanda af breytingunum, sagði að mikil vinna hefði verið lögð í breyt- ingamar, en þó væru þær aðeins fyrsti áfangi af nokkrum. Staður- inn hefur gengið í gegnum margar tískusveiflur og margar kynslóðir íslendinga eiga þaðan minningar. Eitt tonn af diskóljósum yngri kyn- slóðanna var fjarlægt úr lofti húss- ins og mörg lög af plastmálningu tætt af veggjum. Settar hafa verið upp ljósastikur úr messing sem settu svip á salina á fjórða ára- tugnum, en þær leyndust í kjallara hússins ásamt öðrum gömlum munum. Þaðan kemur líka dýrind- is borðbúnaður úr silfri, sem mat- argestir munu matast með. Sviðið hefur verið fært að vest- urvegg danssalarins og með því gefst gestum jafnt í danssal og veitingasal kostur á að njóta skemmtiatriða. Til að endurvekja stemninguna frá fjórða áratugnum annað kvöld mun hljómsveit Aage Lorange leika danstónlist þess tíma, en hún var einmitt húss- hljómsveit á þeim tíma og eru meðlimimir flestir komnir á átt- ræðisaldurinn. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Svona var umhorfs á Hótel Borg í gærkvöldi en ráðgert var að öll- um framkvæmdum verði lokið í dag. í kvöld munu boðsgestir mæta í endurnýjuð húsakynnin og annað kvöld verður húsið opnað aimenn- ingi. Tálknafj örður; Kveikt í sinu á þorra Tálknafirði. TÁLKNFIRÐINGAR hafa ekki farið varhluta að góða veðrinu sem verið hefur undanfarið. Snjór er að mestu horfinn, aðeins smá- skaflar til fjalla. Kveikt var í sinu um síðustu helgi skammt fyrir utan þorpið, eða við hlið sundlaugarinn- ar. Menn muna varla eftir ann- arri eins veðurblíðu, hvað þá að hægt sé að kveikja í sinu á miðjum þorra. Þann 9. febrú- ar sást fyrsti farfuglinn á Tálknafirði, stelkurinn. Er hann fremur snemma á ferð- inni, því venjulega kemur hann í marsmánuði og verpir um miðjan maí. Þá hefur sést til stelks á Bíldudal og víða í fjör- um í Amarfírði. - R.Schmidt VEÐURHORFUR í DAG, 15. FEBRÚAR YFIRLIT í GÆR: Yfir Grænland: er 1.020 mb hæð en lægðardrag austur við Noreg þokast austur. 1.000 mb lægð um 400 km suður af Hornafirði þokast suðaustur. Vaxandi lægðardrag á sunnanverðu Grænlandshafi. SPÁ: Austlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst syðst á landinu en mun hægari norðantil. Skýjað um landið sunnan- og austanvert og sums staðar súld. Nokkuð bjart verður norðvestantil. Hiti víðast á bilinu 0-5 stig, hlýjast syðst. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg suðvestanátt og skúrir eða slyddu- él og 1-4 stiga hiti suðvestanlands en hægviðri, þurrt og vægt frost norðaustantil. HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi suðaustan- og sunnanátt og hlýnandi veður. Rigning á Suður- og Vesturlandi en úrkomulítið norðaustanlands. TAKN: K Heiðskirt x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius \/ Skúrir * V H = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hltl veður Akureyri 2 þokuruðningur Reykjavík 7 skýjað Bergen ■i4 snjókoma Helsinki +7 snjókoma Kaupmannahöfn +5 snjóél Narssarssuaq 6 skýjað Nuuk 4 rigning Osló +6 lóttskýjað Stokkhólmur +5 snjókoma Þórshöfn 7 alskýjað Algarve 14 heiðskfrt Amsterdam 0 snjóél Barcelona 8 mistur Berlín +4 snjókoma Chlcago +2 snjókoma Feneyjar 3 þokumóða Frankfurt +2 skýjað Glasgow 3 reykur Hamborg +4 léttskýjað Las Palmas vantar London 1 mlstur LosAngeles 14 mistur Lúxemborg +2 snjókoma Madrfd 6 léttskýjað Malaga 13 heiðskírt Mallorca 11 úrk. fgrennd Montreal +8 snjókoma NewYork 8 rigning Orlando vantar París 1 léttskýjað Róm 7 þokumóða Vín 0 skýjað Washington 9 þokumóða Winnipeg +24 þokumóða Flugleiðir: Síðustu Boeing-þoturnar afhentar í apríl og maí SMÍÐI tveggja síðustu vélanna sem Flugleiðir eiga pantaðar lyá Boeing-verksmiðjunum í Bandaríkjunum er nú langt á veg komin. Að sögn Leifs Magnússonar, framkvæmdastjóra flugrekstrarsviðs Flugleiða, er starfsmaður félagsins kominn til Seattle til að fylgjast með smíðinni ög taka hana út. Áætla verksmiðjurnar að 737-400 véhn verði afhent í kringum 22. 22. maí. Þegar hún hefur verið al ar vélar frá verksmiðjunni. Leifur sagði að 737-vélinnni verði flogið beint til íslands að lokinni .afhendingu og verði hún tekin í notkun strax af félaginu. 757-véIina sé hins vegar búið að leigja breska flugfélaginu Brittannia Airways í tvö ár. Verður hún máluð í litum þess félags hjá Boeing áður en hún verður afhent Flugleiðum formlega og strax að viðtöku lokinni tekur breska flugfélagið við þotunni og flýgur henni til Bretlands. Þar verð- ur hún fram á vorið 1993. Leifur sagði aðspurður að Flug- leiðir hefðu ekkert heyrt frá Britt- annia Airways sem benti til að flug- félagið myndi hugsanlega hætta við leigusamninginn vegna ástandsins í heimsmálum. „Þetta er samningur sem er í gildi milli félaganna og við höfum ekki heyrt neitt um að þeir ætli að breyta honum eða stefna að öðru. Breska flugfélagið er reyndar að minnka flota sinn þessa stundina. Það hefur verið með 767-vélar í rekstri en eru nú að leigja þær út og taka 757-vélar í notkun í staðinn," sagði Leifur. Hann sagði Flugleiðir hins vegar þurfa á 737-vélinni að halda og gerðu áætlanir félagsins jafnframt ráð fyrir að taka eina vél til viðbót- apríl en 757-200 vélin í kringum hent hafa Flugleiðir fengið 7 nýj- ar á leigu yfir sumarið . Væri enn stefnt að því að gera það. Smíði stendur nú einnig yfir á nýjum Fokker-vélum sem leysa eiga af hólmi þær vélar sem nú eru not- aðar í innanlandsflugi Flugleiða. Fyrstu tvær nýju Fokker-vélarnar koma til landsins í febrúar á næsta ári og síðari vélamar í maí og verð- ur þá endurnýjun innanlands, jafnt sem millilandaflota félagsins, lokið. Þess má geta að fyrsta Boeing 737-400 þotan var afhent Flugleið- um í maí 1989 og mun því endumýj- un flugflotans hafa tekið alls þijú ár. Þyrla sótti móður og barn ÞYRLA Landhelgisgæslunnar sótti móður og nýfætt barn sem þurfti að komast undir læknis- hendur til Vestmannaeyja í niða- þoku í fyrrakvöld. Lenda þurfti eftir'ratsjá á Eiðinu þar sem ekki sást handa skil við flugvöllinn og var komið með móður og barn til Reykjavíkur um klukkan 21. MTV vinnur þátt um íslenska tónlistarmenn Tónlistarsjónvarpsstöðin MTV Europe tekur í kvöld upp þátt á skemmtistaðnum Lídó í Lækjargötu, þar sem fram koma íslenskir tónhstarmenn. Þátturinn verður s ar frá upptöku. Meðal annarra k Bubbi Morthens. Dóra Einarsdóttir, búningahönn- uður, hefur skipulagt komu MTV- manna hingað til lands. Hún sagði að tveir fulltrúar stöðvarinnar kæmu, dagskrárgerðarmaður og stjórnandi upptöku, en íslenskt kvikmyndagerðarfólk sæi um tæknivinnuna. „Ég hef unnið fyrir MTV, bæði í Bandaríkjunum og á meginlandi Evrópu og stakk upp á þvf að gerður yrði þáttur um íslenskt tónlistarlíf. MTV Europe ákvað að slá til og það hafa verið valdir til þátttöku þeir sem ég tel helstu gleðilauka íslenskrar tónlist- idur á MTV Europe innan mánað- aa fram Risaeðlan, Todmobile og ar. Risaeðlan, Todmobile, Bubbi, Nýdönsk og Point Black, ásamt fleirum, koma fram á sviði Lídó. Þá verða einnig tekin viðtöl við hljómlistarmennina og gesti skemmtistaðarins. Við höfum feng- ið hljóm- og Ijósakerfi Reykjavíkur- borgar lánað." Dóra sagði að MTV Europe væri útbreiddasta tónlistarstöð Evrópu og hundruðir milljóna hefðu aðgang að stöðinni. „Þessi þáttur verður án efa einhver besta landkynning sem völ er á,“ sagði hún.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.