Morgunblaðið - 15.02.1991, Side 9
teej HAúaaai .tir auðÁciUTaöí ciiciAjavíuojiOM 8
MÖRGUNBLAÐIÐ' PÖSTUDAGUR Í5. FEBRUAK 1991 ...... B
Fáksíelagar
Munið árshátíðina þann 16. febrúar n.k.
Miðar seldir á skrifstofunni og versluninni Ástund og
versluninni Hestamanninum.
Hestamannafélagið Fákur.
FRÁSÖGN AF JEVINTÝRAFERÐUM
Sovéski eðlis- og stærðfræðingurinn Dmitry Shporo, sem þátt tók í ferð
hóps Kanadamanna og Sovétmanna á skíðum til norðurpólsins á árinu
1988, verður gestur MIR í húsakynnum félagsins ó Vatnsstíg 10 í kvöld,
föstudaginn 15. febrúar, kl. 20.30. Spjallar hann um ferðina og sitthvað
annað sem á daga hans hefur drifið og sýnir myndir.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
MÍR.
MMC Pajero langur, órg. 1986, turbo diesel,
5 gíra, 5 dyra, silfur, ekinn 85.000.
Verð kr. 1.350.000,-
MMC L-300 Mini Bus 4x4, árg. 1988, vél-
arst. 2000, 5 gíra, 5 dyra, blár, ekinn á 1.000.
Verð kr. 1.300.000,-
mm fí/i/w
LAUGAVEGI 174 — SlMI 695660
A ATH!
Þrlggj* Ari ibyrgðar-
tklrltlnl lyrlr MlUublthi
blluiðlr glldit fri
lyut* skránlngardegi
Langbylgjumastrið hrunið á Vatnsendahæð.
Möstur og milljarður
í veðuráhlaupinu mikla á dögunum hrundi
annað langbylgjumastrið á Vatnsenda-
hæð. Þar með datt langbylgjusambandið
út og útvarpssendingar víða um land og
miðin. Talið er að það kosti allt að þús-
und milljónir króna, milljarð, að reisa
nýja langbylgjustöð með tilheyrandi bún-
aði. Um langt árabil hefur verið varað við
því að möstrin væru að hruni komin.
Ráðamenn
Forráðamenn Ríkisút-
varpsins leggja mikla
áherzlu á það, að lang-
bylgjustöðin verði endur-
reist og heyrst hefur að
fundinn verði nýr staður
fyrir hana í stað Vatns-
enda. Ábendingar hafa
þó komið fram frá sér-
fræðingum um, að lang-
bylgjuútsendingar séu
orðnar úreltar og unnt
sé að leysa þá þjónustu,
sem langbylgjustöðin
hefur veitt, með miklu
ódýrari hætti. Niður-
staða í því máli er ekki
fengin ennþá.
Það er hinsvegar full
ástæða að staldra við og
reyna að átta sig á því,
hvers vegna ekkért var
gert til að koma í veg
fyrir hrun langbylgju-
mastranna, þar sem vitað
var að þau voru að hruni
komin. Hveijir bera
ábyrgðina á því að ekk-
ert var gert? Vissu ráða-
menn þjóðarinnar ekkert
um málið — þingmenn
og ráðherrar? Höfðu þeir
ekki verið varaðir við?
Spádómurinn
Ráðamenn þjóðarinn-
ar geta ekki skotið sér á
bak við slíkar afsakanir,
þvi i umræðum um láns-
fjárlög ríkisstjómar
Steingríms Hermanns-
sonar 22. desember 1989
tók Mattliías Bjamason,
þingmaður Sjálfstæðis-
flokks, upp málið og
spáði reyndar i ræðu
sinni því sem nú hefur
fram komið. Hér á eftir
verðiu- gripið niður í
ræðu Matthíasar:
„Meðal þeirra sem
komu fyrir nefndina á
þessum stutta tíma sem
formaður nefndarimiar
sat svona að mestu leyti,
en ekki alveg, vom full-
trúar frá útvarpinu og
skv. 26. gr. segir að þrátt
fyrir ákvæði 22. og 23.
gr. laga nr. 68/1985, út-
varpslaga, skuli tekjur á
árinu 1990 vegna að-
flutningsgjalda af hljóð-
varps- og sjónvarpstæRj-
um ásamt fylgildutum
renna í ríkissjóð. Með
öðnnn orðum, Alþingi
hefur áður samþykkt lög,
útvarpslög. Þar er sam-
þykkt um framkvæmda-
sjóð sem á að standa
undir framkvæmdum út-
varpsins, standa undir
því húsi serti byggt hefur
verið, Ijúka því, undir
dreiíikerfi sjónvarps og
öllu því sem lýtur að út-
varps- og sjónvarps-
rekstri ríkisins. Síðan er
ákveðið af Alþingi að
gera þessa fyrri sam-
þykkt að engu ár eftir
ár og stela öllum þessum
aðflutningsgjöldum ríkis-
sjóðs sem áður var búið
að ákveða að fæm í þetta
tiltekna verkefni. Með
öðrum orðum, það á að
stela því núna rétt fyrir
jólin einu sinni enn þá.
Full meðvit-
und
Nú ætla ég einu sinni
enn að kalla þingmenn
almennt og þá ekki sist
þingmemi stjórnarliðsins
til meðvitundar og biðja
þá nú þegar atkvæða-
greiðsla fer fram um
þetta atriði, að vera þá
með nokkura veginn
fullri meðvitmid og vita
hvað þeir em að gera.
Ég held að kjósendur al-
meimt ætlist til þess að
þingmenn séu með fullri
meðvitund þegar þeir
em að taka afdrifaríkar
ákvarðanir. Hér er verið
að svipta þessa menning-
arstofnun öllum tekjum
— ekki fyrsta árið eða
eina, heldur mörg ár í
röð — án þess að tala
eitt orð við forráðamenn
Rikisútvarpsins eða sjón-
varpsins. Það em skatta-
mennimir, það er Hag-
sýslan og fjármálaráðu-
neytið sem tekur ákvörð-
unina ein án þess að tala
við neinn. Er hægt að
skera allt þetta niður?
Getum við komist af með
því að skera niður helm-
inginn?
Abyrgðin
Langlinusimstöðin á
Vatnsenda er orðin göm-
ul. Möstrin á Vatnsenda-
hæð em orðin 60 ára
gömul. Póstur og sími,
sem hefur eftirlit með
þessu, hefur á undan-
fömum ámm varað við
þvi að þessi möstur þyldu
ekki ofviðri og gæti svo
farið að þau liryndu. Ég
spyr þingmenn: Ætlið þið
að tak;i ábyrgðina á því
ef þessi 60 ára möstur
liér á Vatnsendahæð
hryi\ja í næsta stórviðri
sem geisar og það geti
valdið stórslysi? Þá emð
það þið sem hafið tekið
ábyrgðina á því en ekki
þessi stofnun. Það er
kominn tími til að menn
standi ábyrgir gerða
sinna.
Ég skal taka fullt tillit
til þess sem er að gerast
í kringum okkur. Við vit-
um að ríkissjóður á við
vandamál að striða.
Rikissjóður á fáa vini,
sagði formaður fjárhags-
og viðskiptanefndar. Eg
segi aftur. Það getur ver-
ið rétt, en haim á æði-
mörg handbendi. Og það
hefur dugað ríkissjóði þó
að vináttuna vanti við
hami. (Gripið framí.)
Hann á handbendi en
ekki að sama skapi vini.
Það er rétt hjá formanni
fjárhags- og viðskipta-
nefndar þessarar hæst-
virtu deildar. Við viljum
því sýna fyllstu ábyrgð i
2. minnihluta nefndar-
iimar, við sjálfstæðis-
menn, háttvirtur þing-
maður Friðrik Sophus-
son og ég. Við viljum þvi
leggja til og sú breyting-
artillaga er að koma hér
fram að aðflutnings-
gjöldin verði að hálfu lát-
in renna í ríkissjóð en að
hálfu tíl þeirra stofnana
sem alltaf fá þau öll lög-
um samkvæmt. Og nú
viljum við lofa ykkur
hæstvirtu þingmenn og
stjórnarliðar, að standa
frammi fyrir þessu: Ætl-
ið þið að forsmá með öllu
endurbyggingu dreifi-
kerfisins? Ætíið þið að
forsmá með öllu end-
uraýjun mastranna á
Vatnsenda og þar með
að eiga á hættu að lang-
bylgjusambandið verði
að engu? Það næst þá
ekki tíl skipa og annað
slikt. Ætlið þið að taka
þessa ábyrgð á ykkur?
Ætlið þið að axla þessa
byrði? Og nú þýðir ekk-
ert að fara undir pilsfald-
inn hjá þeim í fjármála-
ráðuneytinu. Þið emð
háttvirtir þmgmemi
sjálfstæðir einstaklingar
sem hafið heitið því að
láta ykkar skoðanir ráða
ykkar gerðum hér á Al-
þingi en ekki vera hand-
bendi einhverra ákveð-
inna kerfiskarla sem
leggja þetta eða hitt til.“
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FOSTUDAGUR TIL FJAR
STURTUSETT
I DAG
A KOSTNAÐARVERÐI
I KRINGLUNN