Morgunblaðið - 15.02.1991, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. FEBRÚAR 1991
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Tvær milljónir kr. sendar
til hungursvæða í Afríku
HJÁLPARSTOFNUN kirkjunnar sendi í síðustu viku rúmlega 36
þúsund bandaríkjadali, eða sem svarar tveimur miHjónum íslenskra
króna, til hungursvæða í Eþíópíu og Líberíu. Ráðgert er að senda
frekara fjármagn á næstu vikum. Hungursneyð vofir nú yfir um 20
milljónum íbúa í fimm Afríkuríkjum, og óttast fulltrúar hjálparstofn-
ana, sem starfa í þessum löndum, að neyð þessa fólks muni gleym-
ast þar sem athygli heimsins beinist nú aðallega að atburðunum við
Persafióa.
Afríkuríkin fimm sem um ræðir
eru Eþíópía, Angóla, Mósambík og
Líbería. Hungursneyðin stafar
ýmist af uppskerubresti af völdum
þurrka eða erfiðleikum vegna styij-
aldarástands í sumum löndunum.
íbúar á þessum erffiðleikasvæðum
geta ekki bjargað sér án utanað-
komandi hjálpar. Árin 1984 og
Sýnir í
Amsterdam
SÝNING á verkum Þorvaldar
Þorsteinssonar myndlistar-'
manns verður opnað sunnudag-
inn 17. febrúar í Lumen Travo-
listhúsinu í Amsterdam.
Á sýningunni verða kynntar
nýjar teikningar eftir Þorvald og
ber sýningin yfirskriftina „ Scene-
shifter" eða Sviðsmaður. Sýningin
í Amsterdam er ljórða einkasýn-
ingin sem Þorvaldi býðst í viður-
kenndu listhúsi ytra á tiltölulega
stuttum tíma, en hann lauk fram-
haldsnámi frá Jan van Eyck-aka-
demíunni vorið 1989. Honum hefur
að auki verið boðin þátttaka í al-
þjóðlegum stórsýningum á borð við
„For real now“, eins og sagt var
frá í Morgunblaðinu í júlí sl. og í
haust sýndi hann ásamt Guillaume
Bijl, einum þekktasta myndlistar-
manni Belga, í boði Zeno-X-list-
hússins í Antverpen. Nú þegar
hefur verið gengið frá þátttöku
Þorvaldar í nokkrum sýningum á
þessu ári, m.a. mun hann eiga stórt
útiverk á sýningu í bænum Goes
í Hollandi þar sem átta listamenn
frá fimm löndum hafa verið fengn-
ir til að byggja verk úti í breiðum
síkjum sem umlykja miðbæinn.
Sýningin heitir „ Byggt á vatni“
og verður opnuð í byijun júlí.
„Þau tækifæri sem ég hef feng-
1985 þegar hungursneyð ríkti í
Eþíópíu barst hjálp mjög seint, og
er talið að allt að ein milljón manna
hafi þá látist af völdum hungurs.
Nú er lagt kapp á að þetta endur-
taki sig ekki, og því er allt hjálpar-
starf nú skipulagt mun fyrr en þá.
(Úr fréttatilkynningu)
Morgunblaðið/Lárus Karl Ingason
Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistarmaður.
ið eru svo fjölbreytt að ég hef get-
að glímt við flest þau form sem
ég vil vinna með og þeð er auðvit-
að ómetanlegur skóli. Svo lærir
maður líka að meta mikilvægi þess
að láta þetta umstang ekki rugla
sig í ríminu, heldur vinna eins og
manni er eiginlegt hverju sinni og
vera óhræddur við að játa allan
barnaskapinn sem blundar í manni.
Öðruvísi er þetta ekki hægt,“ sagði-
Þorvaldur í stuttu spjalli við blaða-
mann Morgunblaðsins.
Sjóður til að hvetja
vísindamenn til dáða
TIL minningar um Katrínu
Friðjónsdóttur hefur verið
ákveðið að koma á fót sjóði er
Alþjóðlegri
kvennaráð-
stefnu frestað
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
um eitt ár fyrirhugaðri alþjóð-
legri ráðstefnu kvenna hér á
landi, en ráðgert hafði verið að
halda ráðstefnuna í júní næstkom-
andi.
Hugmyndin að ráðstefnunni
kviknaði þegar bandaríska kvenfrels-
iskonan Betty Friedan kom til ís-
lands í júní síðastliðnum ásamt hópi
bandarískra kvenna sem lengi hafa
unnið í kvennabaráttu, en undirbún-
ingur ráðstefnunnar verður sam-
1 vinnuverkefni íslenskra og banda-
rískra kvenna. Á nýlegum fundi
íslensku undirbúningsnefndarinnar
með undirbúningsnefnd bandarískra
kvenna í Washington var frestun
ákveðin þar sem það var samdóma
áiit beggja undirbúningsnefndanna
að of naumur tími gæfist til undir-
búnings ráðstefnunnar.
ber nafnið Katrínarsjóður.
Hlutverk sjóðsins er að hvetja
norræna vísindamenn, einkum
af yngri kynslóðinni, til dáða i
rannsóknum félgagsfræði þekk-
ingar.
Katrín Friðjónsdóttir félags-
fræðingur lést 2. desember 1990,
45 ára að aldri. Hún hlaut mennt-
un sína við Háskólann í Lundi.
Hún lagði einkum stund á rann-
sóknir félagsfræði þekkingar og
vísinda með megináherslu á fé-
lagsvísindi. Eftirlifandi eiginmað-
ur Katrínar, Bo Gustafsson, er
prófessor í hagsögu við Háskólann
í Uppsölum.
í fréttatilkynningu segir að
stærð sjóðsins og afl ráðist ein-
vörðungu af þeim framlögum sem
honum berast. Framlög ber að
senda á sænskan póstgíróreikning
nr. 310409-7336 og merkja fylgi-
seðil með „Fonden“.
Úr fréttatilkynningu
JNNLEN-T
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Hópurinn frá Polarisklúbbnum sem fór að leita snjóalaga um sl. helgi og endaði í skála við Veiðivötn.
I leit að snjó á hálendinu
JEPPA- og vélsleðamenn á höf-
uðborgarsvæðinu kvarta sáran
yfir tíðarfarinu þessa dagana,
þeim finnst skorta snjó. Hlýindi
að undanförnu hafa valdið því
að erfitt er að finna snjóalög á
hálendinu og menn komast því
ekki í hefðbundnar vetrarferð-
ir á tækjum sínum.
En nokkrir fílefldir vélsleða-
menn fóru að leita að snjó sl.
helgi á vegum Polarisvélsleða-
klúbbsins. Fundu þeir vélsleða-
hæfan snjó við Sigöldu og óku
yfir frosna Tungná upp í Veiði-
vötn og síðar að rótum Vatnajök-
uls. Fögnuðu þeir skafrenningi
sem gerði vart við sig á leiðinni,
töldu hann merki um betra færi
á næstu vikum. Yfir fimm hundr-
uð nýir vélsleðar hafa verið seldir
á árinu og eru því margir kappar
orðnir óþreyjufullir að nota tæki
sín. Sömu sögu má segja um
Jafnvígur í snjó og vatni. Vélsleðum má aka á vatni eins lengi
og ferðinni er haldið hæfilegri. Hér þeysir einn kappana fyrir
framan skálann í Veiðivötnum.
hundruð jeppamanna, sem hafa
breytt sínu ökutækjum og gert
þau klár fyrir veðravíti vetrar á
Q'öllum. Allir bíða þeir eftir snjó-
komu, á meðan aðrir landsmenn
prísa sig sæla með blíðviðrið.
Krakkarnir sem fengu viðurkenningu á barnalistsýningunni í Hyvinkaa: Talið frá vinstri eru á mynd-
inni Reynir Sigurðsson, Hafþór Helgi Helgason, Salka Guðmundsdóttir og Erla Dögg Ólafsdóttir.
Alþjóðleg listsýning barna í Finnlandi:
Fjórir íslenskir krakk-
ar hlutu viðurkenningu
FJÓRIR íslenskir krakkar hlutu viðurkenningu á alþjóðlegri listsýn-
ingu barna sem haldin var í Hyvinkaa í Finnlandi fyrir skömmu.
Það var Gagn og gaman, listsmiðja barna sem starfrækt hefur verið
í Gerðubergi undanfarin þrjú ár, sem fékk boð í gegnum finnska
sendiráðið að taka þátt í listsýningunni. Bar hún yfirskriftina „Gluggi
að veröldinni" og var nú haldin í áttunda sinn.
A sýninguna voru send frá Is-
landi tíu myndlistarverk sem unnin
voru á Gagn og gaman-námskeið-
um 19á8 og 1989 og áttu mynd-
verkin að tengjast nánasta um-
hverfi barnanna eða ijölskyldu
þeirra.
Alls bárust á sýninguna 6148
verk frá 62 þjóðlöndum og voru 268
verk valin út sérstaklega á sýning-
unni. Hlutu höfundar þeirra verka
viðurkenningarskjal og skjöld.
Tvær íslenskar stúlkur voru í þess-
um hópi, þær Salka Guðmundsdótt-
ir (fædd 1981) og Erla Dögg Ólafs-
dóttir (fædd 1982). Þær hlutu viður-
kenningu fyrir verk sín „Hættu-
foss“ og „Lús í hári“ en bæði voru
verkin unnin úr myndfæribandi á
fyrsta námskeiði sumarsins 1989.
Dómnefndin sá auk þess ástæðu
til að veita 500 öðrum verkum sér-
staka viðurkenningu. í þeim hóp
voru þeir Reynir Sigurðsson (fædd-
ur 1979) með sjálfsmynd og Hafþór
Helgi Ilelgason (fæddur 1979) með
þemaverk.