Morgunblaðið - 15.02.1991, Síða 18
18"
iser írAuaasrí .3i auoAauTgoa aiaAjaviuoaoií
*IdÖRGUNBLAÐÍÐ- FOSTUDÁGURr 157 FÉBRÚAR 1991'
Reuter
Tsjúrkín sagði að ummæli sendi-
mannsins, Jevgeníjs Prímakovs, eftir
fund hans með Saddam væru „afar
varfæmisleg". „Prímakov ræddi við
Saddam Hussein og skýrði sjónar-
mið okkar án þess að draga nokkuð
undan og við vonum að Tareq Aziz
færi okkur jákvæð viðbrögð," sagði
talsmaðurinn. Hann bætti við
Prímakov hefði reynt að sannfæra
Saddam um að hann ætti einskis
annars úrkosti en að kalla hersveitir
sínar í Kúveit heim. „Við emm hæfí-
lega bjartsýnir, sjáum ekkert sem
gefur okkur vonir um að málið leys-
ist í bráð,“ sagði hann.
Míkahíl Gorbatsjov ræddi við
Sahah al-Ahmed al-Sahah, utanrík-
isráðherra Kúveits, í gærmorgun og
tjáði honum að sovésk stjórnvöld
styddu enn samþykktir Sameinuðu
þjóðanna, sem kveða á um heim-
kvaðningu íraskra hermanna úr
Kúveit. TASS-fréttastofan hafði
einnig eftir Gorbatsjov að Prímakov
hefði sagt Saddam að tilgangslaust
væri að reyna að ijúfa samstöðuna,
sem náðst hefur á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna vegna Kúveitmálsins.
Þa_ð voru einkum Sovétmenn sem
sáu írökum fyrir vopnum áður en
stríðið hófst og talið er að þeir séu
í betri aðstöðu en flestir aðrir til að
hafa áhrif á Saddam Hussein. Þeir
studdu samþykkt Sameinuðu þjóð-
anna um að heimila valdbeitingu til
að koma írökum frá Kúveit en hafa
ekki sent hersveitir til Persaflóa.
Ali Akbar Velayati, utanríkisráð-
herra írans, ræðir við sovéska valda-
menn um stríðið í Moskvu í dag.
Arásin á loftvarnabyrgið í Bagdad:
Merki um að Iraks-
her hafi notað byrg-
ið sem fjarskiptastöð
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti ræðir við Sahah al-Ahmed al-Sahah,
utanríkisráðherra Kúveits i Kreml í gær.
Sovétmenn „hæfí-
lega bjartsýnir“ á
friðsamleg-a lausn
Moskvu. Reuter.
VÍTALÍJ Tsjúrkín, talsmaður sovéska utanrikisráðuneytisins, sagði
í gær að sovésk stjórnvöld væru „hæfilega bjartsýn“ á að ferð sendi-
manns Míkhails Gorbatsjovs Sovétforseta til Bagdad yrði til þess að
binda enda á stríðið fyrir botni Persaflóa. Hann sagði ekkert benda
til þess að Saddam Hussein íraksforseti væri reiðubúinn að kalla
hersveitir sínar í Kúveit heim og það myndi ekki skýrast fyrr en
Tareq Aziz, utanríkisráðherra íraks, heimsækti Moskvu í næstu viku.
Flugmenn bandamanna sagðir vilja ítar-
legri upplýsingar um skotmörk framvegis
London, París. Reuter, Daily Telegraph.
STJÓRNVÖLD í írak sögðu í gærkvöldi að 288 lík hefðu fundist í loft-
varnabyrgi í Bagdad, sem flugvélar bandamanna gerðu loftárás á í
fyrradag. Bandamenn fullyrða að fjarskiptamiðstöð hafi verið falin í
byrginu. Ónefndur bandarískur flugliðsforingi sagði að meðal flug-
manna bandamanna væri mikil reiði í garð Saddams Husseins fyrir
að koma óbreyttum borgurum fyrir á hernaðarlega mikilvægum stað.
Jafnframt myndu flugmennirnir krefjast þess að fá framvegis fullkomn-
ari upplýsingar um skotmörkin sem þeim væri sagt að reyna að hæfa.
„Enginn vill drepa hundruð kvenna og barna,“ sagði maðurinn.
Heimildarmenn segja að umrætt um sést að margir og digrir kaplar
byrgi, al Amariya, hafí upprunalega hafa legið út úr því og styður þetta
verið mjög neðarlega á leynilegum
lista yfir um 150 mikilvæg skot-
mörk í Bagdad. Listi þessi var gerð-
ur fyrir nokkrum mánuðum, honum
er breytt reglulega eftir því sem
upplýsingar berast m.a. um árangur
loftárásanna og er hann í strangri
vörslu Normans Schwarzkopfs,
yfirmanns bandamannaherjanna.
Fyrir tveim vikum fór að sögn
tæknimanna bandamanna að berast
stöðugur straumur boða frá byrginu
til framlínusveita íraka og færðist
byrgið þá ofar á listann. Ennfremur
var það nýlega málað í felulitum
sem benti enn frekar til þess að um
hemaðarlega mikilvæga starfsemi
væri að ræða á staðnum.
Óbreyttir borgarar til að
hindra árásir?
Sky-sjónvarpsstöðin sýndi mynd-
ir af staðnum í gær og sást að öflug-
ar gaddvírsgirðingar voru umhverf-
is byrgið. Schwarzkopf hershöfð-
ingi sagði að Saddam Hussein hefði
margoft sýnt að mannslíf væru
einskis virði í hans augum. Allt
benti til þess að íraksstjórn hefði
látið óbreytta borgara vera í byrg-
inu til að nota mannfall í röðum
þeirra í áróðursstríðinu gegn banda-
mönnum og reyna þannig að hindra
flugmenn í að ráðast á fjarskipta-
stöðina. Hershöfðinginn benti á að
írakar hefðu flutt loftvamabyssu-
stæði upp á þök íbúðarblokka; her-
stjómendur þeirra vissu greinilega
að bandamenn reyndu að forðast
árásir a óbreytta borgara eftir
mætti, írakar hefðu áður varið sig
með „mannlegum skjöldum“. Sjón-
varpsstöðin sagði að írösk yfírvöld
virtust hafa flutt lík bama, sem
farist hefðu í annarri árás fyrir
nokkrum dögum, í byrgisrústimar
svo að sjónvarpsmyndir bæmst af
þeim um allan heim.
Þak byrgisins var um fimm metr-
ar að þykkt og styrkt miklum járna-
bindingum; venjuleg loftvamabyrgi
fyrir almenning eru afar sjaldan svo
rammbyggileg. Á sjónvarpsmynd-
fullyrðingar um að fjarskiptamið-
stöð hafí verið einhvers staðar í
byggingunni. Heimildarmenn í
bandaríska varnarmálaráðuneyt-
inu, Pentagon, segja að nær öruggt
sé að beitt hafi verið torséðum
F-117A flugvélum, er ekki sjást í
ratsjá, enda hafí ekkert loftvarna-
merki verið gefið í Bagdad. Skotið
hafí verið tveim leysistýrðum
Paveway-sprengjum á byrgið. Önn-
ur hafi hæft dyrnar en hin lent á
fyrirfram ákveðnum stað, sem var
inntaksop fyrir loft, og sprungið
inni í byrginu.
Reuter
Reykjarbólstrar stlga út úr loftvarnabyrgi í Bagdad sem bandamenn
réðust á í fyrradag. Tugir óbreyttra borgara, sem voru í byrginu, fór-
ust að sögn íraskra stjórnvalda. Bandamenn segja að fjarskiptamiðsöð
íraska hersins hafi verið falin í byrginu en samkvæmt Genfarsáttmála
um stríðsrekstur er bannað að láta óbreytta borgara hafast við á hern-
aðarlega mikilvægum stöðum.
Langmestur hluti vopnasölu heimsins undanfarin ór
hefur verift til Miðausturlanda. Vopnasalan i milljöröum
Bandaríkjadala var órin 1983-87 sem hér segir:
Miðousturlönd I
Afríka |
Austur-Asía
Varsjórbandalagið
Rómanska Ameríka
Atlantshafsbandalagið
Suður-Asía
Hlutlaus Evrópuríki
Tímaritið Newsweek:
Stríðsfréttaæði á íslandi
I NYJASTA hefti bandaríska
vikuritsins Newsweek er grein
um áhrif stríðsins fyrir botni
Persaflóa á Islandi.
Ritið segir frá því að einungis
einn íslendingur sé í fjöiþjóða-
hemum í Saudi-Arabíu, Hilmar
Þór Amarson, sem gekk í frönsku
útlendingahersveitina árið 1989.
Um 70 ungir Islendingar hafí vilj-
að fara að dæmi hans og óskað
eftir inngöngu í sveitina í franska
sendiráðinu, sem sinni hins vegar
ekki slíkum málaleitunum.
f greininni segir einnig að
víkingasveit lögregiunnar hafí
aukið viðbúnað sinn vegna
stríðsins. Þessi sérsveit sé á varð-
bergi gagnvart hugsánlegum
hermdarverkum - „að því er virð-
ist með góðum árangri. Hryðju-
verkamenn hafa aldrei ógnað ís-
landi.“ Ritið hefur eftir talSmanni
lögreglunnar að helsta verkefni
víkingasveitarinnar sé að tryggja
að hennar verði ekki þörf.
Ritið segir að íslendingum stafi
ekki hætta af Scud-eldflaugum
íraka en hins vegar hafi beinar
útsendingar Stöðvar 21 á
stríðsfréttum CNN valdið nokkr-
um áhyggjum. Sumir telji að CNN
sé helsta áhyggjuefnið. Greint er
frá þeirri ákvörðun menntamála-
ráðherra að afnema bann við út-
sendingum á óþýddu sjónvarps-
efni. Vitnað er í „hreintungumenn
á Morgunblaðinu", stærsta blaði
landsins, sem vari við hættunni á
því að íslendingar muni tala
„bjagaða íslensku“ verði ekkert
gert til að stemma stigu við
óþýddum sjónvarpsútsendingum.
Flestir íslendingar eru hins
vegar sagðir fagna því að einangr-
un landsins skuli hafa verið rofín.
Stríðsfréttir ómi hvarvetna.
„Þetta land er fullt af fólki sem
hefur ekki talað um annað en
veðrið í fjörutíu ár,“ er haft eftir
skáldinu Degi Sigurðarsyni.
„Loksins hefur það eitthvað að
tala um, enda grípa allir gæsina
meðan hún gefst“.
Vo
Mi
S
nasalca til
austurlanda
Samtals nam vopnasalan
í heiminum ó bessum tíma
237,7 milliöröum dala eða
13.325 milljöröum íslenskra
króna. MeS i þeirri tölu
eru svæði, sem ekki eru
talin upp ó þessari töfiu.
..-1.-:......1 L
$40 $60 $80 $100
Hverjir keyptu ffrá hverjum?
Land Alls Aöalsöluland
] írak 29,9 Sovétríkin 14,1
1 Saudi-Arabía J8,3 Bandarikin 7,2
] Sýrland 10,5 Sovétríkin 8,9
] íran 8,9 Kína 1,8
] Egyptaland 7,8. i .. • , Bandaríkin 3,4
3 ísrael 4,3 Bandaríkin 4,3
] Jórdania 2,5 Sovétríkin 0,8
1 Jemen 1,5 Sovétríkin 1,3
1 Kúveit 1,3 Frakkland 0,5
Hverjir seldu Saddam áhriffa
ríkusftu vopn hans?
" Um 2.200 Scud- ■■■■
flougar fró Sovét-
esílTSÍZi Jalia cr a5 fyrirlæki hofi selt
Bööraaat'"
^00155 mm fallbyssur
fró Suaur-Aftiku Jarðsprengjur frá Sovétríkjunum, og FrokklondiJ
Joiwa
ítuliu
fleirum.
AthjAllar tölur eru i milíjöröum Bandarikjadala.
Heitniléh: KnqjhMk fibuiw Urn, U.S^ Antis Contml and
and Arms Tmnsfm," flo/te Mamíng Uem og JIMC Mogazine.
Um 1.000T-72skrið-‘
113 Mirage F-1
orrustuvélur frá
Frakklamji,
64 MiG-29 orrustu-
vélar og 60 Su-24 órásarvélar fró
Sovétríkjunum
Ratsjár fró Bi
iliu, Bretlandi
icy, “ Wodd Militaiy [>