Morgunblaðið - 15.02.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÖ' FÖSTUDÁGUtt 15. FEBRÚAK Í99Í >
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
"Hnífur og skæri -
ekki barna meðfæri"
Samstillt
áhrif og
framliðnir
Til Velvakanda.
Menn velta gjarnan fyrir sér ráð:
gátunni um lífið eftir dauðann. í
Markúsarguðspjalli má lesa eftir-
farandi: Þar ummyndaðist hann
fyrir augum þeirra og klæði hans
urðu fannhvít og skínandi og fær
enginn bleikir á jörðu svo hvítt
gjört. Og þeim biitist Elía ásamt
Móses, og voru þeir á tali við Jesú.
(Mark. 9:2). Nokkru síðar segir:
Þá kom ský og skyggði yfir þá og
rödd kom úr skýinu: Þessi er minn
elskaði sonur, hlýðið á hann.
Þessi kafli tekur af öll tvímæli
um að líf sé eftir dauðann. Elía og
Móses hafa einhvers staðar verið á
lífi í heiminum fyrst þeir gátu birst
þarna. Færa má rök fyrir því að
þeir hafi lifað og lifi enn á annarri
jarðstjörnu og má finna þær rök-
semdir í Nýal. Þegar áðurnefndur
atburður átti sér stað hafa náðst
mjög samstillt áhrif og þess vegna
hafa þeir Elía og Móses getað birst
þarna. Þessi frásögn er mjög at-
hyglisverð því hún staðfestir ekki
aðeins að fólk lifir eftir dauðann
heldur einnig að framliðnir geta
birst hér á þessari jörð séu sam-
stillt áhrif fyrir hendi.
Fæðingarárið gildi
Jón Trausti Halldórsson
ZANCASTER
T
Til Velvakanda.
Loksins hefur verið dregið fram
í dagsljósið mál sem mikil þörf hef-
ur verið á að ræða. Það er varð-
andi aðgang ungmenna að vínveit-
ingastöðum þar sem sett er 18 ára
aldurstakmark. í mínum heimabæ
hefur einatt verið miðað við fæðing-
ardag sem er fáránlegt miðað við
það að við sem fædd erum sama
ár þurfum að öllu leyti að standast
sömu kröfur. í skólunum eru gerðar
til okkar sömu kröfur en svo þegar
kemur að því að skemmta sér er
okkur (sem fædd erum á síðustu
mánuðum ársins) ekki hleypt inn á
staði sem ,jafnaldrar“ okkar sækja
óáreittir. Er þetta réttlátt?
Ég vil þó láta það koma fram
að þetta er ekki persónulegt hags-
munamál fyrir mig, þar eð ég hef
löngu náð tilteknum aldri. En þar
sem ég er jólabarn get ég alla vega
talað af reynslu. Það er nauðsynlegt
að lögum verði breytt þannig að
það verði árið en ekki dagurinn sem
verði látið gilda. Ég get ekki betur
séð en það séu félagsleg réttindi
hvers manns sem fylgt hefur þess-
um árgangaflokkaða kerfi frá barn-
æsku.
Sigríður
Hvimleitt stagl
Til Velvakanda.
Mér fínnst dálítið hvimleitt að
heyra og lesa þetta eilífa stagl um
einstaklinga, þegar átt er við menn.
Sagt er, að svo og svo margir ein-
staklingar séu þátttakendur í
ákveðnum íþróttamótum og öllu
mögulegu öðru, í stað þess að nota
orðið menn. Þetta er hvimleitt og
er ég hissa á því að málfarspostular
hafi ekki gert athugasemdir við
þetta.
Það eina sem réttlætt gæti þetta
orðalag væri ef taka ætti af allan
vafa um að ekki sé um síamstv-
íbura að ræða. Ef svo væri mætti
mæla þessu bót, annars ekki.
Mig langar einnig að gera annað
málfarslegt atriði að umræðuefni,
en það eru þeir sem sífellt eru að
staglast á orðunum semsagt, þegar
þeir eru að gera grein fyrir máli
sínu. Þetta gera margir hvað eftir
annað, þótt þeir hafi alls ekki sagt
áður það sem þeir ætla að segja.
Þetta er bara leiðinlegur málfars-
legur kækur, sem leggja þarf niður.
Eggert E. Laxdal
LÖGMENN
'AUSTURSTRÆTI
Gunnar Jóhann Birgisson hdl.
Sigurbjörn Magnússon hdl.
Höfum opnað skrlfstofu í Austurstræti 18
(í húsl bókaverslunar Eymundsson).
Skrlfstofan er opin alla virka daga
fráki. 9-12 og 13-17.
Málflutningur • Innheimtur • Ráðgjöf • Eignaumsýsla
Austurstræti 18 . Slmi 91-626969. Pósthólf 707 . Myndsendir 91 -622426
HINN EINI OG SANNI
BÍLDSHÖFÐA 10
; Opnunartími \
l l
l -_________ i
| Föstudaga \
I kl. 13-19 ;
! Laugardaga \
: kl-10~16 '
! Aðra daga !
: ki. 13-18 :
FRÍTT KAFFI — VÍDEÓHORN FYRIR BÖRNIN - ÓTRÚLEGT VERÐ
STEINAR
Hljómplötur — kasettur
KARNABÆR
Tískufatnaður herra og
dömu
HUMMEL
Sportvörur allskonar
VINNUFATABUÐIN
Fatnaður
PARTY
Tískuvörur
BOMBEY
Barnafatnaður
MIKLIGARÐUR
Fatnaður og skór á alla
fjölskylduna
KJALLARINN/KOKO
Alhliða tískufatnaður
STUDIO
Fatnaður
SAUMALIST
Allskonar efni
VERSLUNIN CARA
Kventískufatnaður
OG MARGIR FLEIRI
Fjöldi fyrirtækja — gífurlegt vöruúrval
Með lágu verði, miklu vöruúrvali og þátttöku fjölda fyrirtœkja
hefur stórútsölumarkaðurinn svo sannarlega slegið ígegn
__________________og stendur undir nafni.
NYTT GREIÐSLUKORTATIMABIL HEFST I DAG