Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
41,tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Maður sem varð fyrir alvarlegum meiðslum í sprengjutilræðinu í Victoria-stöðinni í Lundúnum fluttur
í sjúkrabifreið. Einn maður beið bana og um 40 urðu fyrir meiðslum í tilræðinu, þar á meðal þrjú
börn. Nokkrir eru í lífshættu.
Sprengjutilræði í tveimur af helstu
járnbrautarstöðvum Lundúna:
Ringrilreið skapast
í samgöngukerfinu
Talið að IRA hafi verið að verki
Lundúnum. Reuter.
SPRENGJUR sprungu í tveimur af helstu járnbrautarstöðvum Lund-
úna í gærmorgun með þeim afleiðingum að einn maður beið bana
og um 40 urðu fyrir meiðslum. Kenneth Baker, innanríkisráðherra
Bretlands, sagði að írski Iýðveldisherinn (IRA) hefði að öllum líkind-
um staðið fyrir tilræðunum. Lestasamgöngur stöðvuðust og mikið
umferðaröngþveiti skapaðist í borginni vegna tilræðanna.
Fyrri sprengjan sprakk í Padd-
ington-stöðinni fyrir dögun en hún
var því sem næst mannlaus og eng-
an sakaði. Sú síðari sprakk í Vict-
oria-stöðinni klukkan 7:46, eða er
mesti annatíminn var að hefjast.
George Churchill-Coleman, yfir-
maður sérsveita Scotland Yard
gegn hryðjuverkum, sagði að mað-
ur, sem kvaðst fulltrúi IRA, hefði
hringt í yfirmenn lestakerfisins um
40 mínú'tum áður en síðari sþreng-
Stríðið fyrir botni Persaflóa:
Gorbatsjov reynir að afstýra
landhemaði á síðustu stundu
Moskvu, Nikosíu, Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
MÍKHAÍL Gorbatsjov Sovétforseti lagði í gær fram friðaráætlun
í þeirri von að geta afstýrt yfirvofandi landbardögum í stríðinu
fyrir botni Persaflóa á síðustu stundu. Margir fréttaskýrendur
telja að innrás bandamanna í Kúveit geti hafist hvenær sem er á
næstu dögum. Gorbatsjov afhenti Tareq Aziz, utanríkisráðherra
Iraks, tillögur sínar á fundi þeirra í Moskvu í gærmorgun. Þá
hafði hann ekki skýrt George Bush Bandaríkjaforseta frá þeim.
Viðbrögð talsmanns Bush voru varfærnisleg og hann sagði að tillög-
urnar hefðu að svo stöddu engin áhrif á hernaðaraðgerðir banda-
manna.
„Við búumst við tafarlausu svari
við þessum tillögum,“ sagði Vítalíj
ígnatenko, talsmaður Gorbatsjovs,
á blaðamannafundi í Moskvu eftir
fund Sovétforsetans og Aziz.
„Þetta er pólitísk lausn og ólíklegt
er að hún henti öllum,“ bætti hann
við. Talsmaðurinn vildi ekki ræða
tillögur Gorbatsjovs í smáatriðum
en sagði þó að í þeim væri „tekið
á ýmsum vandamálum við Persa-
flóa“. Þær væru einnig í fullu sam-
ræmi við þá afstöðu Sovétstjórnar-
innar að írökum bæri að kalla
hersveitir sínar í Kúveit heim og
fara í öllu að samþykktum Samein-
uðu þjóðanna.
Tareq Aziz fór til Teheran í
gærkvöldi og í ráði er að hann
ræði í dag við Ali Akbar Hashemi
Rafsanjani, forseta landsins, sem
hefur einnig beitt sér fyrir friðsam-
legri lausn deilunnar um Kúveit.
Rafsanjani lét svo ummælt í gær
Reuter
Tareq Aziz, utanríkisráðherra íraks (t.v.), ræðir við Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétforseta í Moskvu í gær.
að miklar líkur væru á því að deil-
an yrði leyst með friðsamlegum
hætti. „írakar hafa léð máls á því
að kalla hersveitir sínar í Kúveit
heim og halda ber áfram friðarum-
leitunum í samvinnu við aðra leið-
toga múslima þar til ríkin, sem
hafa sameinast gegn írökum, sýna
einnig sáttfýsi,“ hafði útvarpið í
Teheran eftir Rafsanjani.
ígnatenko sagði að Aziz myndi
afhenda Saddam Hussein íraksfor-
seta og æðstu valdastofnun lands-
ins, byltingarráðinu, tillögur Gorb-
atsjovs. Saddam væri ekki kunnugt
um tillögurnar og Aziz hefði þurft
að leggja strax af stað vegna óör-
uggs fjarskiptasambands við
Bagdad. Utanríkisráðherrann
hefði sýnt tillögunum mikinn
áhuga.
Marlin Fitzwater, talsmaður
Bandaríkjaforseta, sagði að Bush
hefði ekki fengið upplýsingar um
tillögur Gorbatsjovs fyrr en um
miðnætti í gærkvöldi. „Að svo
stöddu getum við aðeins bundið
vonir við að loftárásir og landhern-
aður verði til þess að koma írökum
frá Kúveit," sagði talsmaðurinn.
Helmut Kohl, kanslari Þýska-
lands, hringdi í Gorbatsjov í gær
til að ræða við hann um friðaráætl-
unina. Þýska dagblaðið Bild birti
frétt þess efnis að í tillögum Gorb-
atsjovs væri gert ráð fyrir að Sov-
étmenn skuldbyndu sig til að
tryggja að engar breytingar yrðu
gerðar á landamærum íraks eða á
stjórnskipulagi landsins. Sovét-
stjórnin myndi einnig leggjast
gegn því að írakar yrðu beittir
refsiaðgerðum og að Saddam
Hussein yrði hegnt. Þá væri því
lofað að deila araba og ísraela
yrði tekin til umfjöllunar. Talsmað-
ur Sovétstjórnarinnar sagði í við-
tali við breska sjónvarpið BBC að
frétt Bildværi rétt í höfuðdráttum.
Fahd, konungur Saudi-Arabíu,
sagði að stríðið héldi áfram þar til
írakar létu Kúveit af hendi og
flyttu hersveitir sínar frá landa-
mærunum að Saudi-Arabíu.
Bandamenn héldu uppi loftárás-
um á úthverfi Bagdad í fyrrinótt
og í gærmorgun, að sögn erlendra
fréttamanna í borginni. Iraskir
fjölmiðlar sögðu að íraksher myndi
koma á óvart og gjörsigra banda-
menn ef þeir hæfu landhernað.
Sjá bls. 26-27.
ingin varð til að vara við því að
sprengjum hefði verið komið fyrir
í brautarstöðvum borgarinnar. „Til-
ræðismennirnir vissu vel að okkur
gæfist ekki tími til að finna og af-
tengja sprengjurnar," sagði
Churchill-Coleman.
Lögreglan var við sprengjuleit í
Victoria-stöðinni þegar sprenging
varð við miðasölu hennar. Ekki
hafði verið talið nauðsynlegt að
tæma hana af fólki. Á þeim þremur
tímum sem liðu milli sprengjutil-
ræðanna höfðu lögreglunni borist
sex sprengjuhótanir en í öllum til-
vikum reyndist um gabb áð ræða.
Bresk lestayfirvöld gripu til þess
ráðs eftir sprengjutilræðin að loka
öllum fjórtán brautarstöðvum borg-
arinnar til að lögreglan gæti gengið
úr skugga um að fleiri sprengjur
leyndust þar ekki. Talsmaður lesta-
yfirvalda sagði að slíkt hefði aldrei
verið gert áður, ekki einu 'sinni þeg-
ar loftárásir Þjóðveija stóðu sem
hæst í síðari heimsstyijöldinni.
Áætlað er að um hálf milljón
manna hafi ætlað til vinnu með lest-
um er járnbrautarstöðvunum var
lokað. Mikið umferðaröngþveiti
skapaðist víðs vegar um borgina
er þetta fólk reyndi að komast til
vinnu í einkabifreiðum og troðfull-
um strætisvögnum.
Vangaveltur voru um að stuðn-
ingsmenn Saddams Husseins íraks-
forseta kynnu að hafa staðið fyrir
tilræðunum en Churchill-Coleman
sagði ólíklegt að þau tengdust
Persaflóastríðinu.
Sovétstjórnin boðar
60% verðhækkanir
Moskvu. Reuter.
VALENTÍN Pavlov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, tilkynnti í
gær að stjórn hans hygðist
hækka vöruverð um 60 af hundr-
aði að meðaltali er dregið verður
úr gífurlegum niðurgreiðslum
ríkisins. Hann sagði að laun yrðu
hækkuð og bætur greiddar til
að vega á móti vérðhækkunun-
um.
Pavlov sagði á sovéska þinginu,
Æðsta ráðinu, að verðþak yrði sett
á helstu nauðsynjavörur, svo sem
kjöt, mjólk og sykur, en einstök
lýðveldi gætu lækkað verðið frekar.
Dregið yrði úr niðurgreiðslum ríkis-
ins um tvo þriðju. Um þriðjungur
alls varnings yrði seldur á fijálsu
markaðsverði eða samkvæmt sam-
komulagi framleiðenda og verslana.
Lyf, bensín, rafmagn, gas, kol og
vodka myndu ekki hækka í verði.
Ekki var ljóst hvenær hækkan-
irnar taka gildi. Stjórn Níkolajs
Ryzhkovs, fyn-verandi forsætisráð-
herra, hafði boðað svipaðar aðgerð-
Valentín Pavlov
ir en varð að hætta við þær vegna
gífurlegs hamsturs á matvælum.
Pavlov sagði að í ráði væri að
bæta almenningi upp um 85% verð-
hækkananna. Hagfræðingar vara
við því að slíkar bætur verði til
þess að auka enn á öngþveitið í
sovéskum efnahagsmálum.