Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 35
íMQrqunbia^ið, VIÐSKIPnÆIVINNUlÍF: muðjuda(;ur.i9. febrúar 1991
35
TÖLVIIKERFI —Hugbúnaðardeild Tæknivals hf., Hugtak,
annaðist gerð nýtta tölvukerfa fyrir blikksmiðjur. Á myndinni eru f.v.
Kjartan Sigurðsson og Jónas Injji Ketilsson, fulltrúar Tæknivals ásamt
Kristjáni P. Ingimundarsyni, fulltrúa Félags blikksmiðjueiganda sem
veitti fyrsta hluta kerfisins viðtöku.
Málmiðnaður
Samræmt tölvukerfi
í blikksmiðjum
NÝLEGA lauk fyrsta áfanga í hönnun tölvukerfis fyrir blikksmiðj-
ur á vegum Félags blikksmiðjueiganda. Kerfinu er ætlað að auð-
velda og bæta vinnu við tilboðsgerð og framleiðsluferil í blikksmiðj-
um til að auka framleiðni og styrkja samkeppnisstöðu þeirra.
í frétt frá Félagi málmiðnaðar-
fyrirtækja kemur fram að kerfið
heldur utan um öll verk blikk-
smiðja frá því þau hefjast þar til
uppsetningu lýkur hjá viðskipta-
mönnum. Með því móti fæst gott
yfirlit yfir allt efni og tíma sem
auðveldar kostnaðarútreikninga og
skapar möguleika á hagræðingu.
í þessum fyrsta áfanga hafa
verið hönnuð tvö kerfi sem nefnd
eru Máni og Smári. Fyrmefnda
kerfið var upphaflega hannað fyrir
Blikk og stál hf. þar sem fyrsta
útgáfa þess hefur verið í notkun í
þrjú ár. Það kerfi sem nefnt er
Smári er ætlað fyrir minni verkefni
í greininni en uppsetning beggja
kerfanna hefst í smiðjum í þessum
mánuði.
Næstu áfangar verkefnisins eru
gerð tilboðskerfis fyrir blikksmiðjur
og útboðskerfis fyrir hönnuði.
Stefnt er að því að báðir þessir
aðilar taki höndum saman í fram-
haldi af því og staðli útboðs- og
framleiðsluferlin og skili með því
bæði verkkaupa og seljanda hag-
stæðara verði og auknum gæðum.
Ráðstefna
Stjórnun í matvælaiðnaði
HAGRÆÐINGARFÉLAG íslands og Aðgerðarannsóknafélag íslands
halda ráðstefnu um vörustjórnun í matvælaiðnaði á morgun, miðviku-
daginn 20. febrúar að Borgartúni 6. Stendur ráðstefnan frá kl.
13-17:10.
Ráðstefnan hefst með setningu
formanns Hagræðingarfélagsins,
Reynis Kristinssonar. Því næst set-
ur Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra ráðstefnuna. Einar
Matthíass flytur erindi um mat-
vælaiðnáð á Islandi, Ágúst Einars-
son fjallar um fiskmarkaði og áhrif
þeirra á fiskvinslu og Jón Sch. Thor-
steinsson ræðir nútíma framleiðslu-
stjórnun.
Eftir kaffihlé flytur Jón Gunnar
Jónsson erindi um staðsetningu
framleiðslufyrirtækja og áhrif á
vörustjórnun og Björn Z. Ásgríms-
son ræðir um mikilvægi umbúða í
vörustjómun. Eftir síðari kaffihlé
fjallar Bæring Ólafsson um nútíma
aðferðir við vörudreifingu og Ágúst
H. Elíasson um útflutning sjávaraf-
urða.
Umræðum, sem hefjast eftir er-
indin, stjórnar Páll Hermannsson.
Ráðstefnustjóri er Lára M. Ragn-
arsdóttir.
Námskeið
Fræðst um fnndarstjórnun
STJÓRNUNARFÉLAG íslands efnir til námskeiðs um fundarstjórnun
dagana 26. og 28. febrúar nk. frá kl. 13.00-18.00 báða dagana. Á
námskeiðinu verða kynntar aðferðir við skipulagningu og stjórnun
funda- og nefndarstarfa lijá opinberum stofnunum og einkafyrirtækj-
um. Jafnframt verður fjallað um aðferðir verkefnastjórnunar.
Stjómunarfélagið hefur fengið til
liðs við sig fimm stjórnendur fyrir-
tækja til að fjalla um markvissa
uppbyggingu funda og hvernig
fundum sé háttað í fyrirtækjum
þeirra. Stjórnendur fyrirtækjanna
em Gunnar M. Hansson, forstjóri
IBM.á.íslandi,. Þórðui'. Syerrissonr.
framkvæmdastjóri hjá Eimskip hf.,
Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri
Hagkaup hf., Hildur Petersen,
framkvæmdastjóri Hans Petersen
hf. og Leifur Eysteinsson, fram-
kvæmdastjóri, Hollustuverndar
ríkisins.
Aðalfundur
Getum fyrirvaralítið tek-
ið þáttíEvrópu nýrrar aldar
segir í ályktun Félags íslenskra stórkaupmanna
AÐALFUNDUR Félags íslenskra
stórkaupmanna sendi frá sér
nokkrar ályktanir og eru þær birt-
ar hér á eftir.
„Stóraukin utanríkisviðskipti eru
eitt megineinkenni í atvinnuþróun
þeirra þjóða heims sem náð hafa
mestum efnahagslegum árangri.
Evrópuþjóðir hafa vaknað til vitund-
ar um þýðingu stærri markaða og
aukinnar samkeppni. Uppbygging
hins sameiginlega markaðar EB og
hið evrópska éfnahagssvæði eru til
vitnis um það. íslenskt atvinnulíf
verður að taka þátt í hinni alþjóðlegu
þróun og gerast aðili að hinu evr-
ópska efnahagssvæði. Mikilvægast
er að ná tollfrjálsum aðgangi fyrir
sjávarafurðir að mörkuðum banda-
lagsins án þess að veita á móti veiði-
heimildir hér við land. Að öðru leyti
getur íslenskt atvinnulíf fyrirvaralítið
tekið þátt í því efnahagslega og
pólitíska samstarfi sem mun móta
Evrópu nýrrar aldar.
Þjóðarsátt
FÍS fagnar þeim árangri sem náð-
ist í samningum aðila vinnumarkað-
arins á síðasta ári. Stöðugleiki í efna-
hagsmálum er forsenda nýrrar sókn-
ar til aukinnar velmegunar á kom-
andi árum. Nauðsyn ber því til að
standa vörð um áunninn sigur. FÍS
mun ekki láta sitt eftir liggja í þeim
efnum.
Einkasala og útflutningur
FIS ítrekar þá skoðun að hlutverk
ríkisins sé að setja atvinnuvegunum
einfaldar leikreglur, almennar og
auðskildar. Hugmyndir um stofnun
ríkisfyrirtækis sem sjái um alla sölu
Leiðrétting
ÞAU mistök urðu í tveimur fréttum
frá Innkaupastofnun ríksins, að
rangar tölur voru birtar. í fyrra til-
vikinu var sagt að kostnaður við
leigubílaakstur Alþingis, Stjórnar-
ráðs Islands og ýmsar ríkisstofnan-
ir hefði verið 200 milljónir króna
árið 1989. Þarna átti að standa 20
milljónir króna.Í síðari tilvikinu var
sagt að bílar bílaleigunnar Geysis
væru 20, en þar átti að standa 200.
Biðst Morgunblaðið velvirðingar
á þessum mistökum.
á lyfjum í heildsölu og smásölu eru
ættaðar úr grárri forneskju og stang-
ast á við skoðanir og reynslu manna
nú á tímum um opin og ftjáls við-
skipti.
Fundurinn ítrekar þá skoðun fyrir
aðalfundinum að Áfengis- og tób-
aksverslun ríkisins verði lögð niður.
Aðalfundur FÍS 1991 fagnar fyrir-
heitum utanríkisráðherra um aukið
frelsi í útflutningi sjávarafurða og
afnám einokunar SÍF á viðskiptum
með saltfisk.
Fundurinn styður framkomna til-
lögu á Alþingi þess efnis að útflutn-
ingsverslun verði ftjáls.
Flutningamál
Aðalfundur FÍS ítrekar nauðsyn
þess að fijálst verðlag verði aðal-
regla í öllum viðskiptum. Mikilvægt
er að tryggja öfluga samkeppni í
öllum greinum viðskipta, svo ná
megi markmiðum FÍS um sambæri-
legt verðlag á íslandi og í nágranna-
löndunum. Flutningur á vörum til
og frá landinu er hér engin undan-
tekning. FÍS telur flutningsmiðlara
gegna mikilvægu í þessu sambandi
og vill sjá starfandi á íslandi öfluga
stétt flutningsmiðlara sem starfi
óháð flutningsaðilum.
FI fagnar jákvæðum viðbrögðum
hafnaryfirvalda í Reykjavík og Hafn-
arfirði við áskorunum frá síðasta
aðalfundi um aðstöðu til losunar og
lestunar innlendra sem erlenda skipa,
er rekin yrði óháð einstökum skipafé-
lögum.
Um leið og FÍS harmar fækkun
íslenskra áætlunarflugfélaga í vöru-
og farþegaflugi til og frá landinu
fagnar FIS skipun opinberrar nefnd-
ar er fjalla á um vörufiutninga og
tengda þjónustu í tengslum við al-
þjóðaflugvöllinn í Keflavík. Eðlilegt
væri að FÍS ætti fulltrúa í umræddri
nefnd.“
Hand-
Mtnagnar
fyrirliggjandi
Leitið
upplýsinga
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUNIN
BlLDSHÖFÐA 16SÍMI672444 TELEFAX672580
3 ÓDÝRASTIR
Vertu ekki of seinn
allt að verða upppantað
sjálfa fermingardagana.
Lj ósmyndastofurnar:
Bairna og
fj ölskylduli ósmyndir
sími 1 26 44
Ljósmyndastofan Mynd
sími 5 42 07
Lj ósmyndastofa
Kópavogs
sími 4 30 20
Verð frá kr. 7.500.—