Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991 Kveðjuorð: Vagn M. Hrólfsson Gunnar O. Svavarsson Vagn Fæddur 25. apríl 1938 Dáinn 18. desember 1990 Gunnar Fæddur 3. janúar 1961 Dáinn 18. desember 1990 Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Ég vil í örfáum fátæklegum orð- um minnast fyrrverandi tengdaföð- ur míns, Vagns Hrólfssonar. Aggi var góður maður. Hvar sem hann kom var hann hrókur alls fagnaðar, alls staðar vel liðinn, ófá góðverkin sem eftir hann liggja og munu halda minningu hans á lofti um ókominn tíma. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. Ég átti því láni að fagna að þekkja Agga frá barnsaldri. Fyrst man ég eftir honum er ég sat í rakarastólnum hjá honum og hann klippti mig og gantaðist við mig. Já, á þessum árum burstaklippti hann okkur strákana á vorin. Én svo hætti hann að klippa, en hann hætti aldrei að gantast. Svoleiðis var Aggi. Honum var margt til lista lagt, auk þess að vera rakari, var hann múrari, hljóðfæraleikari, t SIGURÐUR EGILL FRIÐRIKSSON frá Bolungarvfk, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli 17. febrúar. Hólmfríður Hafliðadóttir, Friðrik Sigurðsson, Kristín Sigurðardóttir, Benedikt Guðbrandsson, Rósa Friðriksdóttir. t LAUFEY JÓNSDÓTTIR, Bólstaðarhli'ð 45, andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund sunnudaginn 17. febrúar. Guðjón Tómasson, Kristin ísleifsdóttir. t Maðurinn minn, faðir, tengdafaðir og afi, HILMAR JENSSON, lést á Borgarspítalanum 16. febrúar. Agnes Auðunsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. t Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, EBBA SIGURBJÖRG ÞÓRÐARDÓTTIR frá Ósi, er látin. Högni Pétursson, Guðmunda Högnadóttir, Jón Egilsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær sonur okkar og bróðir, ARNAR JÚLÍUSSON, lést 7. þessa mánaðar. Útför hans fór fram frá Dómkirkjunni þann 18. febrúar 1991. Birna Þórisdóttir, Rolf Inge Larsen, Sigurður Örn Einarsson, Júlíus Arnarsson, Erna Matthiasdóttir, Óli Þór Júlíusson. t Maðurinn minn, EDWARD H. HAM verkfræðingur, 16 Lois Lane, Farmingdale, NewYork 11735, andaðist 16. febrúar. Fyrír hohd fjölskyldunnar; Svana Ingibjörg Ham. söngvari, leikari, sjómaður ó.m.fl. og miklar annir, gaf hann sér alltaf A unglingsárum mínum lékum tíma til að taka virkan þátt í fé- við saman með Leikfélagi Bolung- lags-, lista- og menningarlífi staðar- arvíkur, sem er mér ógleymanlegt. ins. Svo varð Aggi tengdafaðir Það var nefnilega svoleiðis með minn, og það má segja að ég hafi Agga, að þrátt fyrir stórt heimili flutt inn á heimili hans og Birnu. Justa Mortens- k sen - Minning í dag kveðjum við vinkonu okk- ar Justu Mortenssen sem lést 9. febrúar í Hafnarbúðum, en þar hefur hún dvalist síðastliðin fjögur ár. Justa fæddist 20. júlí 1915 í Örvik í Færeyjum. Justa giftist manni sínum Jakobi Mortenssen 14. nóvember 1936. Þau bjuggu 24 ár í Færeyjum en fluttust 1936 upp til Islands og hafa búið þar síðan. Justa og Jakob eignuðust 5 böm og eru þijú þeirra á lífí, en það eru Mía Jakobsdóttir, gift Jóhann- esi Guðmannssyni, búa þau í Reykjavík. Jóhann Pétur Mortens- sen, kvæntur Hönnu Mortensson, búa í Danmörku. Marteinn Jakobs- son, giftur Helgu Einarsdóttur, búa í Reykjavík. Kristileg málefni voru alltaf mjög ofarlega í huga Justu. Hún var meðlimur í Kristniboðsfélagi kvenna í mörg ár. Þegar kvenfélag Grensáskirkju var stofnað var Justa ein af þeim fyrstu sem gekk í það félag og þar starfaði hún meðan heilsa hennar entist. Justa var fyrsti formaður kven- félags Færeyska sjómannafélags- ins sem stofnað var 21. september 1966. Voru fundir þess félags haldnir í nokkur ár í Sjómanna- heimilinu við Skúlagötu. Seinna bauð Justa okkur að hafa fundina heima hjá sér í Safamýrinni sem og við þáðum. Komum við konurn- ar þar saman í mörg ár, og var alltaf jafn yndislegt að koma þang- að. Okkur leið vel þar sem setið var við hannyrðir og ekki má nú gleyma kaffiborðinu hjá Justu. í hvert skipti svignuðu þau undan t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓHANN SIGFÚSSON útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, Gnoðarvogi 66, lést á Landspítalanum laugardaginn 16. febrúar. Ólafia Sigurðardóttir, Sigríður Anna Jóhannsdóttir, Pálmi Rögnvaldsson, Haukur Jóhannsson, Emma Kristjánsdóttir, Birgir Jóhannsson, Kolbrún Karlsdóttir, Garðar Jóhannsson, Svanhvit Árnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn og bróðir okkar, GÍSLI ÓLAFSSON Skipholti 53, Reykjavík, lést á Landakotsspftala sunnudaginn 3. febrúar sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landakotsspítala. I Eiginkona og systkini hins látna. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐBJARTUR G. EGILSSON fyrrverandi framkvæmdastjóri, lést á heimili sínu, Hrafnistu í Reykjavík, mánudaginn 18. febrú- ar. Jarðarförin auglýst síðar. Jónína Ósk Guðbjartsdóttir Kvaran, Axel Kvaran, Rúnar Guðbjartsson, Guðrún Þ. Hafliðadóttir, Brynjar Kvaran, Svavar Kvaran, Axel Kvaran, Hafdís Rúnarsdóttir, Guðbjartur Rúnarsson, Rúnar Rúnarsson og barnabarnabörn. Fjörugri og samheldnari ijölskyldu hef ég ekki kynnst en þeirri sem bjó að Þjóðólfsvegi 5, og seint verð- ur fullþökkuð sú alúð og umhyggja sem þau Aggi og Birna sýndu okk- ur, litlu fjölskyldunni. Börnin mín, sem nú syrgja ástkæran afa sinn, munu búa alla ævi að samvistum sínum við hann. Gestur Kolbeinn var honum sem sonur, fór á sjóinn með honum og snuddaði í kringum hann á allan hátt. Oft sagði hann þeim sögur, og ennþá er Birna, dóttir mín, að leiðrétta mig í Bú- kollusögunni, því afi sagði hana ekki svona. Hann var þeim góður afí. Mín litlu kynni af Gunnari Svav- arssyni voru á þann veg að ég vissi að þar fór góður og traustur mað- ur, sem var Möggu góður eiginmað- ur og tengdaföður sínum ómetan- Jegur vinur og starfskraftur. Elsku Bima mín og Magga, Sossa, Erna, Svavar og þið öll sem eigið um sárt að binda. Ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar og blessa minningu góðra drengja. Pálmi Gestsson kræsingunum, enda Justa mjög myndarleg við allt sem hún gerði, hvort sem hún vann við eldhús- störfin eða sat við hannyrðir. Fal- legri peysur en hún ptjónaði eru vandfundnar. Það hefur varla gengið í mörg ár að opna heimili sitt, ef ekki hefði komið til traustur eiginmað- ur. Jakob stóð alltaf við hlið konu sinnar og studdi okkur í félags- starfinu. Þar var ætíð glatt á hjalla, því Jakob er skemmtilegur maður og félagslyndur. Eftir að ákveðið var að byggja nýtt sjómannaheim- ili við Brautarholt 29 í Reykjavík átti það hug þeirra hjóna allan. Þau unnu þar ómetanlegt og ós- érhlíft starf. Justa gekk undir læknisaðgerð á mjöðm, og átti ekki afturkvæmt heim. Hún dvaldi eftir það á Hafn- arbúðum. Justa klæddist samt alla daga og naut þar kærleika barna sinna og sér í lagi eiginmanns síns. Hann sat hjá konu sinni hvern ein- asta dag, enda var kærleikurinn í fýrirrúmi hjá þessum góðu hjónum. Með þessum fátæklegu orðum kveðjum við vinkonu okkar og þökkum fyrir allt það mikla starf sem hún vann félagi okkar. Nú dagurin at enda er og náttin komin nær; algóði Gud og Faðir, ver hjá mínum og hjá mær! Eg ofta veikan kenndi meg, men Himmalfaðir mín, styrk tú meg, o, tað biði eg, og halt meg nær til tín! í Jesu navni sigi eg tær tokk, Gud Faðir mín, at tú av náði leiddi meg á rætta leið til tín! (Færeyskur sálmur) Við vottum þér elsku Jakob og fjöiskyidunni allri okkar dýpstu samúð. Megi guð blessa minningu Justu Mortensson. Vinkonurnar í prjónakiúbbnum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.