Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÖAR 1991 33 Bæjarstjórn: Fasteignagjöld íbúðar- húsnæðis lækkuð um 5% VEITTUR verður 5% afsláttur af fasteignagjöldum íbúðarhúsnæðis á Akureyri á þessu ári frá því sem ákveðið hafði verið við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir yfirstandi ár. Þetta er gert í framhaldandi af viðræðum milli bæjarráðs og forsvarsmanna launþega sem fram hafa farið að undanförnu, en við fyrri umræðu fjárhagsáætlunar var lögð fram áskorun frá forsvarsmönnum verka- lýðsfélaga þar sem bæjarstjórn var hvött til að lækka fasteignagjöld. Sigurður J. Sigurðsson sagði að ákveðið hefði verið að lækka fast- eignagjöldin eftir viðræður við for- menn verkalýðsfélaga. Afsláttur fasteignagjaldanna leiðir til þess að tekjuhlið rekstraráætlunar tekur breytingum, en í rekstraráætlun hafa gjöld verið lækkuð um 1% til að koma til móts við umrædda lækkun. Sigurður sagði að forstöðumönn- um hinna ýmsu sviða í samráði við hagsýslustjóra og nefndir hefði ver- ið falið að skera niður útgjöld um 1% í sínum rekstri í samráði við hagsýslustjóra. Þrátt fyrir lækkun ijárveitinga væri stefnt að sambær- ilegum árangri í rekstrinum. Borgaraflokkur og Samtök um jafnrétti og félagshyggju: Ákveðið að bjóða fram sameiginlega í kjördæminu SAMEIGINLEG kosningaskrif- stofa Borgaraflokksins og Sam- taka um jafnrétti og félags- hyggju hefur verið opnuð á Ak- ureyri, en samþykkt var á fundi flokkanna í Stórutjarnaskóla á sunnudag að vinna að sameigin- legu framboði fyrir næstu kosn- ingar. Á fundinum á sunnudaginn var undirritað samkomulag um að flokkarnir tveir bjóði sameiginlega fram lista fyrir næstu alþingiskosn- inar og jafnframt að leitað skuli samstarfs við Þjóðarflokkinn eða aðra hópa og einstaklinga sem áhuga hafa á framboðinu. Ásvaldur Friðriksson, formaður kjördæmisfélags Borgaraflokksins í Norðurlandi eystra, sagði að svars yrði beðið frá Þjóðarflokknum um hvort hann væri tilbúinn til sam- starfs, en síðan yrði kosin uppstill- ingarnefnd sem hefði það hlutverk að raða mönnum á framboðslistann. „Þetta er fyrsta skrefið í þá átt að bjóða fram sameiginlega lista þess- ara aðila á landsvísu,“ sagði Ásvald- ur. Sameiginlega kosningaskrifstofa Borgaraflokks og Samtaka um jafnrétti og félagshyggju hefur ver- ið opnuð á Akureyri og er hún að Glerárgötu 26, þar sem verslunin Radionaust var áður. Skrifstofan er opin daglega frá hádegi og fram að kvöldmat. Morgunblaðið/Rúnar Þór Loðnunni landað SIGURÐUR RE kom til Krossanes í gær með 1.350 tonn af loðnu sem fékkst 6-10 mílur austur af Vestmannaeyjum. Aflinn fékkst í ijórum köstum. Skipið var 40 klukkustundir af miðunum. Loðnan var óvenju stór og góð að sögn áhafnarinnar enda leynir sér ekki ánægjubrosið á vörum stýrimannanna Ásmundar og Jóns Páls. Alþingiskosningar: Framboðs- listi Alþýðu- flokksins samþykktur FRAMBOÐSLISTI Alþýðu- flokksins í Norðurlandi eystra var samþykktur á fundi kjör- dæmisráðs á sunnudag. Hreinn Pálsson lögmaður á Akureyri, sem hafnaði í 2. sæti í próf- kjöri flokksins skipar heiðurs- sæti listans, en hann hafði beð- ist undan því að skipa 2. sætið. Sigbjörn Gunnarsson, verslun- armaður á Akureyri verður í 1. sæti, Sigurður Arnórsson, fram- kvæmdastjóri á Akureyri í 2j, Pálmi Ólason, skólastjóri, Þórs- höfn, í 3., Gunnar B. Salomons- son, húsasmiður, Húsavík í 4. og Jónína Óskarsdóttir, húsmóðir, Ólafsfirði í 5. sæti. Arna Jóhannsdóttir, leiðbein- andi, Dalvík er í 6. sæti og Hann- es Örn Blandon, sóknarprestur í 7. sæti. ö INNLENT Fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar: 340 milljónir til nýframkvæmda Stærstu liðirnir á sviði dagvistarmála og bygging þjónustukjarna fyrir aldraða SÍÐARI umræða um fjárhags- áætlun bæjarsjóðs Akureyrar og stofnana hans fer fram á fundi bæjarstjórnar í dag, þriðjudag. Gengið hefur verið frá fjárveit- ingu til nýframkvæmda og húsa- kaupa, en gert er ráð fyrir að verja 340 milljónum króna í þann lið. Nýframkvæmdir skiptast þannig að til Verkmenntaskólans á Akur- eyri verður varið 25 milljónum króna, 1,1 milljón til Menntaskólans á Akureyri og 11 milljónum vegna framkvæmda við Fjórðungssjúkra- húsið. Þessar ijárveitingar taka mið af framlögum ríkisins til þessara verkefna. Áætlað er að verja 20 milljónum króna til að ljúka hönnun og hefja framkvæmdir við byggingu næsta áfanga við Síðuskóla. Fjárveiting vegna byggingar þjónustukjarna við Víðilund er áætluð 46 milljónir Ólafsfjörður: Fjárhagsáætlun lögð fram Ólafsfírði. FRUMVARP að fjárhagsáætlun Olafsfjarðarkaupstaðar og stofnana hans verður lögð fyrir bæjarstjórn Ólafsfjarðar til fyrri pmræðu í dag, þriðjudag. Gerir áætlunin ráð fyrir góðri afkomu bæjarsjóðs og fyrirtælqa hans og er áætlað að til ráðstöfunar verði 61,5 milljón- ir króna. Heildartekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 170,5 milljónir króna. Þar af mun rekstrarafgangur verða 20,3 milljónir sem er svipaður rekstrarafgangur og varð á síðasta ári. Stærsti tekjuliðurinn er útsvör en áætlað er að þau gefí 84 milljón- ir króna í tekjur. Aðstöðugjöld munu gefa 20 milljónir króna og fasteignaskattur 17,6 milljónir króna. Stærstu útgjaldaliðir eru fræðsl- umál sem fá munu um 19 milljónir króna, yfirstjóm bæjarins sem kosta mun 13 milljónir króna, al- mannatryggingar en til þeirra verð- ur varið 12,5 milljónum króna, göt- ur og holræsi 9 milljónir króna og æskulýðs- og íþróttamál tæplega 9 milljónir króna. Fyrirtæki bæjarsjóðs munu flest skila rekstrarafgangi. Hafnarsjóður er með minnstan afgang, 1,5 millj- ónir króna, en Vatnsveita mun skila rúmlega 7 milljónum króna. Við fyrri umræðu var ekki gerð tillaga um skiptingu fjár til ijárfest- ingar. Það verður gert fyrir seinni umræðu sem fram mun fara á fundi bæjarstjórnar í mars. SB króna og er miðað við að húsnæðið verði tekið í notkun á árinu. í kjall- ara við Víðilund er áætlað að veija 4,5 milljónum króna. Fjárveiting til dagvista hefur ver- ið ákveðin 70 milljónir króna og er gert ráð fyrir kaupum á stofnbún- aði í Holtakot auk framkvæmda við byggingu nýrrar dagvistar í bæn- um. Til kaupa á húsnæði verður varið 20 milljónum króna, en þessi fjárveiting er ætluð til kaupa á húsnæði fyrir slökkvistöð og breyt- inga á því auk áframhaldandi vinnu við endurskipulagningu skrifstofu- húsnæðis í eigu bæjarins. Til menningarmála verður varið 20 milljónum króna og sömu upp- hæð til íþróttamála. Hvað menning- armálin varðar er gert ráð fyrir að peningarnir verði notaðir til að vinna að úrbótum í húsnæðismálum Amtsbókasafnsins og vegna hug- mynda um listagil, en fé það sem ætlað er til íþróttamála fer í gerð heitra potta og aðstöðu við sund- laug við Glerárskóla auk þess sem einhveijar framkvæmdir verða við Sundlaug Akureyrar og íþróttahöll- ina. Fjárveiting til leiguíbúða er ákveðin 70 milljónir, en miðað er við að hafin verði bygging 10 leigu- íbúða á árinu, lántökur vegna þess verkefnis eru áætlaðar 60 milljónir sem endurgreiðist á 50 árum. Und- ir liðnum ýmsar framkvæmdir er ráðgert að vetja 3,9 milljónum króna, en hann er ætlaður til að mæta nauðsynlegum aðgerðum og athugunum sem upp kunna að koma. Átján milljónum verður varið til kaupa á vélum, tækjum og bif- reiðum. CastlE hátalarar hljómflutningstæki Gæða tæki ó góðu verði, eins og lesa mó um í virtum fagtímaritum. Sendum upplýsingar hvert ó land sem er. Hafið samband við _______Ifc*_____________________ Slmi (96) 23626 V -J Glerárgoiu 32 • Akureyri BEINT FLUG, HUSAVIK - REYKJAVIK - HUSAVIK mióvikudaga # laugardaga # sunnudaga Farpantanir: Húsavík 41140 Reykjavík 690200 ás fluqfélaq nordurlands hf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.