Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991 Stoðtækjaframleiðsla: Fjárhagsáætlun Selfosskaupstaðar: 31,2% tekna varið til fjárfestinga Selfossi. Fjárhagsáætlun Selfosskaupstaðar var lögð fram til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar miðvikudaginn 13. febrúar. Tekjur bæjarsjóðs eru áætlaðar 391.490.000 krónur. Rekstrarútgjöld eru áætluð 269.479.000 krónur. Til fjárfestinga verður varið 122.011.000 krónum sem er 31,2% af tekjum. Útsvör eru áætluð 56,9% af tekj- um, tæpar 223 milljónir sem er 3,3% hækkun milli ára. 13,5% tekna eru aðstöðugjöld, tæpar 53 milljónir, sem er 8,7% hækkun frá fyrra ári. Fast- eignaskattur er 17,1% tekna, rúmar 67 milljómr, sem er 12,8% hækkun milli ára. Úr jöfnunarsjóði sveitarfé- laga eru áætlaðar rúmar 24 milljónir króna. Stærstu útgjaldaliðir eru almanna- tryggingar og félagshjálp, tæpar 68 milljónir, tæpar 47 milljónir fara til fræðslumála, rúmlega 21 milljón til íþrótta- og æskulýðsmála. Til yfír- stjórnar bæjarins fara tæpar 26 millj- Stykkishólmur: Sj álfstæðismenn kynna stefnuna Stykkishólmi. Sjálfstæðisflokkurinn í Vestur- landskjördæmi hefur byrjað fundaferðir um kjördæmið og kynnir menn og málefni fyrir næstu alþingiskosningar. í Stykkishólmi var boðað til fund- ar laugardaginn 16. febníar og þar mættu í forsvari þrír fyrstu menn á franiboðslista flokksins þeir Sturla Böðvarsson, bæjarstjóri, Guðjón Guðmundsson, skrifstofustjóri og Elínbjörg Magnúsdóttir fiskvinnslu- kona. Auk þeirra mætti á fundinn Benjamín Jósefsson sem verður kosningastjóri framboðsins í vor. Fluttu þau öll framsöguerindi og skýrðu viðhorfin í dag og hvers vænta mættfaf auknum styrk Sjálf- stæðisflokksins í stjórn þjóðmála. Margar fyrirspurnir voru gerðar og fundurinn líflegur. - Árni ónir og ríflega 24 milljónir til hrein- lætismála. Af fjárfestingarliðum ber hæst viðbyggingu við grunnskólann, 57 milljónir, byggingu safnahúss við Austurveg fyrir 27,5 milljónir og framlag til Fjölbrautaskóla Suður- lands, 13,1 milljón. Þá er áformað að verja 20,9 milljónum til gatna- gerðar. Gjaldfærð fjárfesting nemur samtals 42,2 milljónum brúttó og eignfærð fjárfesting 103 milljónum króna. Þá er áætlað að leggja fram 2,1 milljón til Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands og 10,2 milljónir til bygg- ingarsjóðs aldraðra. Á bæjarstjórnarfundinum var einnig lögð fram fjárhagsáætlun Sel- fossveitna. Þar kemur meðal annars fram að áformað er að hefja fram- kvæmdir í apríl við nýbyggingu 390 fermetra skrifstofuhúsnæðis veitn- anna og áætlaður byggingatími er eitt ár. Á síðasta ári var lokið við nýbyggingu áhaldaþúss en skrif- stofubyggingin mun rísa sunnan við það húsnæði. Gert er ráð fyrir að verja 18 milljónum króna til nybygg- ingarinnar á þessu ári. í máli bæjarstjóra á fundinum kom fram að allar fjárfestingar veitnanna væru fjármagnaðar af eigin fé eins og undanfarin ár. Síðari umræða um ijárhagsáætlun Selfosskaupstaðar er áformuð 27. febrúar. Sig. Jóns. Fjórfalda þarf framleiðsliina til að anna eftirspurn - segir Erla Rafnsdóttir markaðsstjóri ÖSSUR hf., sem framleiðir ýmis stoðtæki, hefur engan veginn und- an að framleiða hulsur úr silikon-efnablöndu, sem fyrirtækið hefur einkaleyfi á. Fjórfalda þarf framleiðslugetu fyrirtækisins til að anna brýnustu eftirspurn. Nýjasta framleiðsla fyrirtækisins er gerviökkli. „ # # Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson Fra borgarafundi um fjárhagsáætlun Hafnar. Við háborðið sitja, talið frá vinstri: Aðalsteinn Aðalsteins- s°n, Guðmundur Ingi Sigurbjörnsson, Einar Karlsson, Svava K. Guðmundsdóttir, Stefán Ólafsson, Gísli Sv. Arnason og Albert Eymundsson forseti bæjarstjórnar. Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri, er í ræðupúlti. Höfn: Engar lántökur hjá bæjarsjóði Höfn. „Það eru líkur á að gerviökklinn fái góðar viðtökur þegar hann kem- ur á markað, en það verður um mitt þetta ár. Hann hefur verið í þróun síðan 1986 og við höfum prófað hann á fólki hér. Það er til dæmis piltur í Vestmannaeyjum, -sem er með gerviökkla frá okkur og er mjög ánægður með hann. Hann æfir handbolta og það eina sem hann á erfitt með er að hlaupa aftur á bak á handboltaæfingum," segir Erla Rafnsdóttir, markaðs- stjóri hjá Össuri. Iceross-hulsan, sem er sett á stúfa fyrir neðan hné til að festa gervifótinn við líkamann, hefur gengið mjög vel og hefur Össur hf. ekki annað eftirspurn. Við hreyf- ingu myndaðist oft sár á húðina en með tilkomu hulsunar er það vanda- mál úr sögunni. Mikill meirihluti fundarmanna studdi framkomna tillögu Þróun- arfélagsins um að opna Austur- stræti tímabundið til reynslu. Samhliða þessari tilraun yrði jafn- framt bætt og aukið útivistar- svæði annars staðar í miðbænum. Það er ekki síst hin jákvæða reynsla af þeim breytingum sem gerðar hafa verið á Laugavegin- um, þar sem vel hefur tekist að samræma bifreiðaakstur og um- ferð gangandi vegfarenda sem •^efur tilefni tii þess að láta á það reyna hvort þessi aðgerð komi „Við erum að reisa nýja fram- leiðslustöð og þegar hún verður til- búin mun framleiðslan fjórfaldast. Iceross-hulsan er aðalútflutnings- vara okkar og hefur salan fimm- faldast á síðustu sex mánuðum. Velta fyrirtækisins á síðasta ári var 93,5 milljónir króna og allt útlit er fyrir að hún eigi eftir að aukast verulega á næstu árum vegna auk- ins útflutnings,“ sagði Erla. Sem dæmi um áhuga á fram- leiðslu fyrirtækisins má nefna að hér á landi er nú staddur Dani, Henning Baagoe Andersen, sem frétti af þróun gerviökklans og kom hingað til að krækja sér í tvo slíka. Gerviökklinn er ekki kominn á al- mennan markað ennþá, en Daninn var orðin óþolinmóður að bíða og gerði sér því ferð hingað. mannlífi og athafnalífi í miðbæn- um til góða. Miðbæjarfélagið sem stofnað var 19. janúar sl. er vettvangur þeirra sem reka fyrirtæki og stofn- anir, starfrækja félagastarfsemi ■ KÓR Garðakirkju var stofnað- ur 14. janúar siðastliðinn. Kirkju- kóramót Kjalarnessprófastsdæmis verður haldið 2. mars og mun kór- inn vitanlega taka þátt í því. Á föstudaginn langa verða tónleikar í Garðakirkju. í lok maí ætlar kór- inn að heimsækja Austfirði þar sem söngstjórinn Ferenc Utassy byrj- HAFNARBÚAR virðast mjög sáttir við þá fjárhagsáætlun er bæjaryfirvöld kynntu á opnum fundi í Sindrabæ nýverið. í það minnsta heyrðust ekki háværar gagnrýnisraddir a fundinum þeim. Fjárhagsáætlunin var kynnt bæjarbúum eftir fyrstu eða búa á Kvosarsvæðinu. Félagið er einnig opið áhugafólki um mið- bæinn. Markmið félagsins er m.a. að vekja athygli á miðbænum í Reykjavík, sögu hans, menningu og athafnalífi. Miðbæjarfélagið mun í framtíðinni halda fleiri opna fundi um málefni svæðisins sem er afmarkað við Kvosina, segir í fréttatilkynningu. Ályktun þessi mun verða send Borgarráði Reykjavíkur. aði starfsferil sinn hér á landi. Kór- inn æfir tvisvar í viku, mánudags- og miðvikudagskvöld. Verið er að setja á stofn kórskóla til að auð- velda byrjendum að taka þátt í kórstarfinu. Kórinn óskar eftir söngfólki í allar raddir. Upplýsingar gefur Bert í Bókasafni Garðabæj- ar. umræðu hennar í bæjarstjórn og fer síðari umræða fram 21. fe- brúar næstkomandi. Samkvæmt áætluninni verða tekjur 182,6 milljónir króna sem er 13,7% aukning frá fyrra ári. Mest hækkun verður á fasteignagjöld- um eða 24,9% og aðstöðugjöld hækka um 22% Framlag úr jöfn- unarsjóði sveitarfélaga minnkar hinsvegar um 8,6% frá 1990. Helstu gjaldaliðir eru fræðslu- mál, það er rekstur skólanna 22,2 milljónir sem þó er lækkun frá fyrra ári um 11,6% Almannatryggingar og félagsmál kosta 15,5 milljónir og hækka um 31,8% Yfirstjórn bæjarfélagsins'kostar 15,5 milljónir og lækkar um 7.5% Fjármagns- kostnaður er fjórði hæsti liður rekstrarins kr. 7,6 milljónir eftir að vaxtatekjur eru frádregnar. Munar þar 2% frá fyrra ári. Samkvæmt áætluninni kostar reksturinn kr. 101,2 milljónir og eru þá eftir í framkvæmdir 81,4 milljónir króna. Á framkvæmdaáætlun er fram- lag til hafnarsjóðs vegna lóðsbáts 10 milljónir króna, 7,5 milljónum verður varið til hlutafjárkaupa í útgerðarfyrirtækinu Samstöðu, 7 milljónir verða lagðar í gangstíga og gangstéttir og sama upphæð í gatnagerð, 6 milljónir fara í endur- bætur á tjaldstæði og aðrar 6 í land- vinninga, það er hækkun lands og dælingu til uppfyllingar. Óráðstafað er 4,4 milljónum króna. Bæjarstjóri, Sturlaugur Þor- steinsson, upplýsti meðal annars á fundinum að ef menn hefðu teygt sig enn lengra í álögum á bæj- arbúa, eða til jafns og sum sveitar- félög af svipaðri stærð hefði tekjuá- ætlunin hljóðað upp á 203 milljónir króna. Helstu gagnrýnisraddirnar á fundinum voru hjá einstaka sjó- mönnum sem hafa miklar áhyggjur af fyrirhugaðri gerð grjótgarðs á Suðurljörutanga. Eru þeir hrædd- astir um að garðurinn gæti allteins orðið banabiti Óssins á þann veg að hann hryndi inn í Ósinn og stöðv- aði umferð um hann. Bæjarstjórnarmenn kváðust byggja sínar ákvarðanir á tillögum hæfustu manna í gerð hafnarmann- virkja og kváðu erfitt fyrir sig að treysta á hyggjuvitið í svona stóru máli. Ekki dygði að sitja með hend- ur í skauti og varla yrðu sjómenn yfir sig ánægðir ef ekkert yrði gert til að reyna að bjarga Ósnum frá frekari áföllum af náttúrunnar hendi. Þar með varð sú umræðan ekki lengri að sinni og sleit fundar- stjóri, séra Baldur Kristjánsson, fundi er um 60 borgarar sóttu. - JGG. Um 50 manns á fundi um Austurstræti OPINN fundur hins nýstofnaða Miðbæjarfélags um „Opnun Austur- strætis" fyrir bifreiðaumferð var haldinn í Hlaðvarpanum 14. fe- brúar sl. Um 50 manns mættu á fundinn, þeirra á meðal Vilhjálm- ur Þ. Vilhjálmsson formaður Þróunarfélags Reykjavíkur, Stefán Hermannsson aðstoðarborgarverkfræðingur og nokkrir borgar- fulltrúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.