Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 39
i.im aAuaaaa .ðt irjoAaiiwua*! ŒöiuiaKUDHöw MD'RGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUÁR 1991 88 3S LAGREISTIR HALENDINGAR Kvikmyndir Sæbjörn Valdimarsson Háskólabíó: Hálendingurinn II., The Hig- lander U., The Quickening. Leikstjóri. Russell Mulchay. Handrit Peter S. Davis, William Panzer. Tónlist Stewart Cope- land. Aðalleikendur Christop- her Lambert, Sean Connery, Virginia Madsen, Michael Ir- onside. Bretland 1991. Á upphafsmínútunum rennur áhorfandinn í gegnum ein fjögur, fimm tímaskeið sem er a.m.k. þrem of mikið. Síðan festir hún sig í náinni framtíð. Kynningin á söguhetjunum tveim er víðs fjarri því sem gerðist í mynd I. og eng- ar útskýringar á því að Connery er búinn að fá fest á sig topp- stykkið sem var svo snyrtilega sniðið af honum í fyrri myndinni. En þetta er víst vísindafantasía og þá leyfist ýmislegt misjafnt. Nú er Lambert orðinn ellihrumur vísindamaður, annar höfunda varnarlags utan um móður jörð, því ósónlagið er farið veg allrar veraldar, að því er jarðarbúar haida. En hryðjuverkamaðurinn Madsen segir honum að ekki sé allt með felldu innan stofnunar- innar sem stýrir þessu vemdarlagi og Lambert er nú brottrækur frá. Hann finnur að illir hlutir eru í aðsigi, hefur samband við sinn valinkunna verndarengil, Conn- eiy, og yngist upp áður en hann lendir í höndum andskota sinna, með Ironside í farabroddi. Þeir vilja vísindamanninn feigan því ósónlagið hefur endurnýjað sig og engin ástæða lengur að skatt- pína jarðarbúa fyrir verndina. Samkeppnin er ógnarleg hvað snertir myndir af þessari stærðar- gráðu og því kemur á óvart hversu laus hún er í böndunum. Handri- tið hleypur úr einu í annað, heild- armyndin er losaraleg og á köflum er Hálendingurmn II. beinlínis leiðinleg. Söguþráðurinn er flók- inn og margskiptur,. samtölin fljótfærnisleg, meiri yfirlega og fínpússning hefði hjálpað mikið. Hinsvegar eru átakaatriðin hröð og vel gerð, þó að frumleikinn hefði mátt vera meiri. Hér kann- ast maður við atriði úr Mad Max- bálknum, Blade Runner, Total Recall ofl. Það verður seint sagt um Lambert að hann nái miklum tökum á áhorfendum og í öldungs- hlutverkinu er hann ósköp vand- ræðalegur, hann nýtur sín best í mörgum bardagaatriðum. Hér hefði nauðsylega þurft kraftmeiri karakter. Myndin breytist ótrú- lega mikið til batnaðar er þunga- Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Samskipti („Communion"). Sýnd í Regnboganum. . Leik- stjóri: Philippe Mora. Aðalhlut- verk: Christopher Walken, Lindsay Crouse, Francis Stern- hagen. í bandarísku vísindaskáldskap- armyndinni Samskipti segir frá rithöfundi, sem Christopher Wal- ken leikur óvenju fjörlega, er kemst í tæri við geimverur. Þær virðast hafa komið hingað matað- ar á m.a. sjónvarpsbylgjum, það kemur í ljós að mestalla þekkingu sína á mannlífinu hafa þær úr imbanum, og þær gera e.k. rann- sóknir á rithöfundinum en lengst af veit hann ekki hvort hann er að dreyma eða hvort þetta er raunveruleikinn. Kvikmyndagerðarmenn og rit- vigtarmaðurinn Connery kemur inná, í tveimur, stuttum atriðum, samanburðurinn á leikurunum er Lambert mjög í óhag. Þá kemur Kanadamaðurinn Ironside nokkuð við sögu. Hann er ágætur skap- gerðarleikari og vinsæll í hlut- verkum illmenna, en að þessu höfundar hafa löngum reynt að gera sér í hugarlund hvernig náin kynni jarðarbúa af geimverum geti hugsanlega orðið og eru útg- áfurnar af þeim jafn fjölbreytileg- ar og þær eru margar. Svo eru líka til frásagnir af mönnum sem segjast hafa verið teknir um borð í geímskip og er Samskipti ein- mitt byggð á slíkri frásögn rithöf- undarins Whitley Striebers. Myndin er gerð eftir metsölu- bók Striebers, rithöfundurinn sem Walken leikur heitir það í mynd- inni, en Strieber gerir sjálfur kvik- myndahandritið og heldur því fram að atburðir sögunnar hafí gerst. Því má ætla að lýsingar myndarinnar á því sem fyrir hann kom séu nokkuð nákvæmar. Geimfar kemu til jarðar, litlir blá- ir, klunnalegir dvergar með risa- stór andlit taka hann inní farið og gera á honum rannsóknir und- ir umsjá miklu fínlegri, greinilega sinni hefði hann mátt spara nokk- uð Nicholsons-stælana. Madsen er fríðleikskona. Kvikmyndataka og tónlist er með ágætum, það sem maður saknar eru heilsteypt- ari vinnubrögð og heildarmynd. Mönnum virðist hafa legið lífið á að koma filmunni í dreifingu. æðri geimvera, sem svifa í loftinu yfir honum. Þetta gerist að nætur- lagi þegar hann sefur og lengi vel man hann lítið nema ljósglampa og einstaka atburð en með hjálp dáleiðsiu rennur allt upp fyrir honum. Einnig kemst hann að því að hann er ekki einn um þessa upplifun. Myndin reynir ekki að gera þetta sennilegra • en það hljómar heldur býður hveijum og einum að mynda sér skoðun á því sem henti rithöfundinn, fylgjast nokk- uð hlutlaust með upplifun hans, undrun og ótta. Reyndar eru at- riðin um borð í farinu ekki sérlega sannfærandi og jafnvel hjákátleg undir leiðsögn Philippe Mora („Ilowling" II og III), einkanlega bossanovadansinn. Walken er aft- ur mjög sannfærandi og skemmti- legur í hressilegum og gaman- sömum leik og kveikir líf í ótrú- legri sögu. GESTUR GEIMVERANNA AUGLYSINGAR SJÁLPSTIEÐISFLOKKURINN FÉLAGSSTARF Vestmannaeyjar Fulltrúaráðsfundur verður haldinn í kvöld þriðjudaginn 19. febrúar kl. 20.30 i Ásgarði. Dagskrá: 1. Bæjarstjóri og bæjarfulltrúar kynna fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið 1991. 2. Ónnur mál. Stjórnin. Dalvíkingar Fimmtudaginn 21. febrúar nk. verður haldinn almennur fundur um bæjarmál í Sæluhúsinu kl. 20.30. Dagskrá fundarins: 1. Kynning á fjárhagsáætlun og framkvæmdum. 2. Atvinnumál á Dalvík. 3. Stofnun umræðuhópa um bæjarmál. 4. önnur mál. Framsögu hafa bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra. Allir þeir, sem áhuga hafa á bæjarmálum, velkomnir. Sjálfstæðisfélag Dalvíkur. Seltirningar Almennur félagsfundur verður haldinn á Austurströnd 3 í dag, þriðjudaginn 19. fe- brúar, kl. 20.30. Gestur fundarins verður Jónas Kristjáns- son, ritstjóri. Sjálfstæðismenn, fjöimennið og takið með ykkur gesti. Stjórnin. Fundir með frambjóðendum Sjálfstæð- isf lokksins í Vesturlandskjördæmi í Lýsuhóli í dag, þriðjudaginn 19. febrúar, kl. 20.30 i félagsheimilinu Lýsuhóli. Dagskrá fundaríns: 1. Ávörp frambjóðenda. 2. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Ingólfur Gislason. Kjördæmisráð. Til sigurs með Sjálfstæðisflokknum Baldur, Seltjarnarnesi Opinn stjórnarfundur Baldurs, Seltjarnarnesi, verður haldinn miðviku- daginn 20. febrúar kl. 20.30 í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins, Austurstönd 3. Gestur fundarins verður Guðlaugur Þór Þórðarson, varaformaður SUS. Rætt verður um SUS-starfið og komandi kosn- ingabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS og Baldur. Samband ungra sjálfstæðismanna Til sigurs með Sjálfstæðisflokknum Viljinn Opinn stjórnmála- fundur verður hald- inn i dag, þriðjudag- inn 19. febrúar, kl. 20.30 í félagsheimili Sjálfstæðisflokksins i Urðarholti 4. Gestir fundarins verða Guðlaugur Þór Þórðarson, vara- formaður SUS og Belinda Theriault, framkvæmdastjóri SUS. Rætt verður um SUS-starfið og komandi kosningabaráttu. Allt ungt sjálfstæðisfólk velkomið. SUS og Viljinn. Fundir með frambjóðendum Sjálfstæð- isflokksins í Vesturlándskjördæmi í Borgarnesi í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 20. fe- brúar 1991 kl. 20.30 . Dagskrá: 1. Ávörp frambjóðenda. 2. Almennar umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri verður Björn Arason. Húsnæðisnefnd Sjálfstæðisflokksins heldur fund fimmtudaginn 21. febrúar nk. kl. 17.30 í Valhöll. Fundarefni: Geir H. Haarde, alþingismaður, ræðir um drögin að ályktun fyrir landsfund. Mætum öll. Stjórnin. Sjálfstæðisfélag Austur-Skaftafellssýslu, Höfn í Hornafirði heldur námskeið i ræðumennsku og fund- arsköpum helgina 23. og 24. febrúar nk. i Sjálfstæðishúsinu á Kirkjubraut 3. Námskeiðið hefst kl. 14.00 á laugardegin- um. Leiðbeinandi'verður Gisli Blöndal. Innritun er hafin hjá Bjarna Jónssyni, heimasími 81810 eftir kl. 17.00. Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins. auglýsingar YMISLEGT Hugræktarnámskeið vekur athygli á leiðum til jafn- vægis og innri friðar. Kennd er almenn hugrækt og hugleiðing, athyglisæfingar og hvíldariðkun. Veittar leiðbeiningar um iðkun jóga. Kristján Fr. Guðmundsson, sími 50166. FÉLAGSLÍF □ SINDRI 59911927 - Fr. □ FJÖLNIR 599119027 = 1 □ HELGAFELL 59912197IVA/2 D HAMAR 59911927 - 1 □ EDDA 59911927 - 1 Frl. Atkv. I.O.O.F. Rb. 4 = 1402198 - 8V2 Lh. Kvöldverðarfundur hefst með borðhaldi kl. 19.00 ( Kristni- boðssalnum, Háaleitisbraut 58. Fjölbreytt dagskrá. Athl breytt- an fundartima og fundarstað. I.O.O.F. Ob. 1P. = 1722198’/2 = IMPMíJjm Erum að byrja með kvennatíma i Kripalu-jóga þriðjudags- og föstudagsmorgna kl. 10.00. Kennt verður Hatha jóga, slök- un, öndun og hugleiðsla. Upplýsingar og skráning i Mætti, Faxafeni 14, sími 689915. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía Samvera fyrir eldri safnaðar- meðlimi i dag kl. 15.00. Þeir sem þurfa á aðstoð að halda til að komast vinsamlega hringið í síma 21111.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.