Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991 17 Alkalí-skemmd- ir í ljóðagerðinni eftir Guðmund Guðmundarson Þessi fyrirsögn er ekki út í hött. í hálfa öld hafa alls konar óljóða- klambrar farið hamförum og valdið illviðráðanlegum sprunguskemmd- um og óstöðvandi leka í íslenskri ljóðagerð. Þeir hafa útbíað ljóðagerðina með leirblöndu, sem að sjálfsögðu er nútímaleg en reynist handónýt og enginn öbrenglaður vill kaupa eða búa við þennan ömurlega sam- setning. Það vill svo vel til að það er fólk- ið í landinu, sem ákveður hvað það vill kaupa og lesa og kemur þá oflof og augnaglýja bókmennta- fræðinga að engu gagni. íslending- ar vilja ljóðskáld, sem yrkja alvöru- ljóð en alls ekki óljóð eða lapþunna orðasúpu leirskálda. Þetta ætti öllum fræðingunum og hámenningarvitunum að vera orðið ljóst fyrir löngu. Þegar ýmsir óljóðagarpar ætla að heíja sig til flugs á stolnum vængjum erlendra fyrirmynda lenda þeir oft í hafvillum og þoku. Leitin að háttbundinni fegurð í ljóði er óstöðvandi náttúrulögmál, sem alls konar tískufyrirbæri fá ekki breytt frekar en mannlegu eðli! Kerfiskallar Hitt er annað mál, að þegar ljóðagerðin var að leita fyrir sér um nýjan farveg, þá tóku vinstri- sinnaðir kerfiskallar að sveigja hana að pólitískri lífsskoðun og jafnframt var gerð atlaga að ljóð- hefðinni og enn er verið að reyna að villa um fyrir æskunni, halda að henni óljóðafárinu, sprengja brageyra hennar! Þessi pólitíska neðanjarðarhreyf- ing er nú sem betur fer gjaldþrota, þegar þeirra andlegi og marxíski Berlínarmúr hrundi til grunna! Skyndilega vöknuðu þeir með andfælum með pólitíska martröð. Nú voru góð ráð dýr. Með hraði gáfu þeir sér nýtt heilbrigðisvott- orð. Nú sögðust allir kommar og hálfkommar vera „sósíalistar". Eftir að hafa boðað fagnaðarer- indið rautt og róttækt í heilan mannsaldur, þá segja þeir eins og óþekkir krakkar „allt í plati“. En lífið er alls ekki svona auð- velt, þó maður sé vinstrisinnaður hámenningarviti eða kommi, þá er ekki nóg að gefa sjálfum sér synda- kvittun með orðinu „sósíalisti“. Það er eins og mig minni að Hitler og hans hjörð hafi verið þjóðlegir sósí- alistar! Mikið er þessi nafngift gat- slitin og marklaus! Og nú hafa orð- in. fasisti og kommi nákvæmlega sömu merkingu! Gjaldþrotið Um leið og þetta marxíska þrotabú er óhjákvæmilega tekið til gjaldþrotaskipta, þá finnst mér að einnig sé komin röðin að gjaldþroti óljóða! Það þrotabú hefur talsverða sér- stöðu. Það gerir enginn kröfu í búið! Bækurnar, sem enginn vill kaupa, eru vonlaus eign útgefand- ans eins og óljóð gerviskáldanna, sem enginn lærir eða hefur minnsta áhuga á. Hvers virði er sú frægð sem er ímynduð og heimatilbúin eða það skáld, sem enginn tekur- mark á. Að vísu skipta þeir hundruðum sem þykjast vera skáld og upp- skriftin er furðu einföld. Þú setur á bak við nafnið þitt í síma- skránni: Skáld eða rithöfundur! Bingó! Fyrir nokkrum áratugum hefði sá eða sú er slíkt gerði orðið aðhlát- ursefni alls staðar! En nú eru óljóðagarparnir komn- ir á alls konar styrki eða ríkisfram- færi fyrir að misþyrma móðurmál- inu eins og mest má verða! Og Guðmundur Guðmundarson menningai’vitarnir eru útfararstjór- ar ljóðstafa, eins okkar verðmæt- asta og sérstæðasta menningar- arfs. Nýjungarnar nýjunganna vegna! Öll hefð skal hundsuð! Komandi kynslóðir eiga að ylja sér við hugar- óra og hugtakarugl í stað kynngi- magnaðra snilldarljóða. Og enginn þorir að taka þetta hneyksli til meðferðar af hræðslu við vinstrisinnaða menntamafíu, sem er þó um þessar mundir gjald- þrota í öllu sínu pólitíska friðar- dúfuvafstri og andlega innræting- arbraski. Eins og áður segir þá er reynt að rugla æskuna í ríminu, svipta hana ljóðrænni tilfinningu sem hef- ir öi’vað reisn þjóðarinnar og verið einn af hornsteinum okkar menn- ingar. Við erum eina þjóð veraldar sem ekki hefir glutrað niður ljóð- stöfum og lýrískum töfrum þeirra. Nú tel ég að tími sé kominn til að viðurkenna sannleikann og taka til meðferðar andlega úrkynjun í ljóðagerðinni. Hefja brageyra þjóð- arinnar til vegs og virðingar á ný! Skáldgáfan Ljóðgáfa er oft tekin að erfðum. Það er staðreynd að til að yrkja ljóð, rímuð eða órímuð, sem standa undir nafni, þurfa menn að vera gæddir skáldgáfu, sjálfstamningu, aga og yfirvegun sem kostar mikla vinnu og oft langan tíma að þróa. Óljóðagarparnir hafa engan tíma til að bíða eftir frægðinni og þeysa áfram eftir erlendum uppskriftum en gæta þess þó vel að hundsa allt sem heitir arfur í ljóðagerð og þess vegna er illgresið, arfinn, þeirra skjaldarmerki! Það er staðreynd að þjóðin er i allsheijar verkfalli gagnvart óljóð- um, þótt menntamafían láti eins og allt sé í himnalagi! Höfundur er framkvæmdastjóri í Reykjavík. Vestfirðir: Rafbúö Jónasar Þór, Patreksfirði • Bjarnabúð, Tálknafirði • Edinborg, Bíldudal • Verslun Gunnars Sigurðssonar, Þingeyri Einar Guðfinnsson, Bolungarvík • Straumur, ísafiröi • Norðuriand: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík • Kf. Húnvetninga, Blönduósi tn 5 5T, cn jjT .. B) Wg* _ C -- o> 0' o| m - • gd m ‘ > 2 £ “ c © 0 *< ci —■ 7s O. Jj 30 O < 2. 5? ? co O' p* 0 o o • J3 03 *i < 0 ©'CQ' 03 §r 03 D3 CC 9*. c « 3 03 * (f) 0 D3x — 03 2* K U) CO (1) TD Cö «o 0) - oc *° SD — ZJ 03 (/) o-< cö • oQf w <3 S.l lo ko O | « = X 03 X ^ i_r > = CO Q) > c 'O E .1 03 t/3 CD >- t- 03 c s> ® m tn „ 2 03 • 'S' ACO IAVAMAI ilf 03 ■■ .... f“B 0 C © m ^ 2 >< íl - jc c 0 d) +- DC § . - c 03 -O- - CD E 03 c S 2* =j C CD cq t; cn > ® CTJ > o 'r oc S - -o 5.E o © 03 Ö) 32 o M • cc > 0) Q) CC CL = O 0 S ra o> S- 0 S x cn AEG / T' ..v;,;-, AEG 1 Hárblásari Foen 1200 Verð áðurkr. 1.758.- O •• AtOMA «•/« O Kaffivel KF122 m/klukku Verð áður kr. 7.638.- Tilboð kr. 1.495.- stgr. Tilboð kr. 5.993.- stgr. AEG Kæliskápur Santo 2600 DT Verð áður kr. 52.424.- Tilboð kr. 45.827.- stgr. AEG • Rafhlöðuborvél ABSE 13 Verð áður kr. 24.085.- Tilboð kr. 17.997.- stgr. AEG ’ Þvottavél Lavamat 528W Verð áður kr. 66.759.- Tilboð kr. 56.166.- stgr. Limgerðisklippur Verð áður kr. 15.576.- HES 65 Tilboð kr. 13.496.-stgr. VELDU ÞÉR TÆKI SEM ENDAST! Hjá Bræðrunum Ormsson bjóðast þér góð og örugg tæki, á sérstöku vetrarverði! Umboðsmenn um allt land. BRÆÐURNIR Bræðurnir Ormsson hf. Umboðsmenn Reykjavík og nágrenni: BYKO, Kópavogi *.BYKO, Hafnarfirði • Byggt og búið, Reykjavík DJORMSSONHF < <h 2 0 s 5 o« w co < 0 > O) T- 7s 5 X TT 2; 5’ 3 ca 0 »< W 5' C (Q O 0 c - — X 0 c- 3 C/3 Q. 0 l-> c = & c cr jjr o 03 oj cn < 0 x 5' 0. 03 _ O TT C o o D-l cn 9; « 3 O S m O (Q - O1 I ® 00 < o> ® S 9.(0 3 P “ < 3-8 0 = c‘ O MAGENTA | BLACK j 11 V l vci i rwu I r'VAM I Lágmúla 8. Sími 38820
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.