Morgunblaðið - 19.02.1991, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
Sóttur 60 km
inn í Irak
Ríyadh. Reuter.
FLUGMANNI F-16 orrustuþotu
bandamanna var bjargað í gær
eftir að flugvél hans hrapaði til
jarðar í írak.
Flugmaðurinn varpaði sér út í
fallhlíf og sveif til jarðar 60 kíló-
metra innan írösku landamæranna.
Björgunarþyrlur námu merkjasend-
ingar frá honum og tókst að bjarga
flugmanninum sem sakaði ekki. Var
flogið með hann til bækistöðva hans
í Saudi-Arabíu.
Bagdad:
Leynileg stjórnstöð tæpast
í kjallara Rashid-hótelsins
Stokkhólmi. Reuter.
TALSMAÐUR sænska byggingarfyrirtækisins Skánska AB segir að
sprengjuhelda stjórnstöð sé tæpast að finna í kjallara Rashid-hótelsins
í miðborg Bagdad en þessu hafa talsmenn Bandaríkjastjórnar haldið
fram. Skánska AB hafði byggingu hótelsins með höndum og sagði
fulitrúi fyrirtækisins að ekki hefði verið gert ráð fyrir slíku herbergi
á teikningum.
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins sagði á fimmtudag
að mikilvæg stjórnstöð væri í leyni-
legum kjallara undir hótelinu en
erlendir blaðamenn haldið til á Ras-
hid allt frá því Persaflóadeilan
blossaði upp í ágúst í fyrra. íraskir
embættismenn andmæltu þessum
fullyrðingum og fóru með blaða-
menn í skoðunarferð um bygging-
una sama dag.
Folke Eneroth, yfirmaður þeirrar
deildar Skánska AB er hefur með
höndum verkefni í Mið-Austurlönd-
um og Evrópu sagði í samtali við
»Reuters-fréttastofuna að loft-
varnabyrgi væri raunar að fínna í
hótelinu sem tengt væri öðrum stór-
um byggingum í nágrenninu auk
þess sem gerðar hefðu verið ýmsar
ráðstafanir við byggingu hótelsins
til að verjast hugsanlegum árásum
hryðjuverkamanna. „Því fer hins
vegar fjarri að byrgið sé sprengju-
held stjórnstöð," sagði Eneroth og
gat þess að hann hefði sjálfur tekið
út grunn hótelsins en bygging þess
hófst árið 1979.
Hann sagði að upphaflega hefði
verð ráðgert að ráðstefna samtaka
óháðra ríkja færi fram á hótelinu
árið 1982 og því hefði hönnunin
miðast við hugsanlegar árásir
hryðjuverkamanna. Ráðstefnan
hefði hins vegar ekki farið fram í
Bagdad sökum stríðsins við Irani
sem írakar hófu árið 1980 og varð
til þess að byggingu Rashid-hótels-
ins var ekki lokið fyrr en árið 1982.
Eneroth sagði hótelið í engu frá-
brugðið sænskum hótelbyggingum.
Hann sagði ákaflega ólíklegt og í
raun útilokað að ný kjallarahvelfing
hefði verið búin til undir grunninum
eftir að byggingin var fullgerð.
■ . -
.. i & %
• ; v. ’ v f - í* ■ , K ’
.! w i'*. '4* : % m' i ,:s
^ \ i. % » fV
& ^ * H * á
A. Siffisjf :í S ’r : : í w í,-
f . W: 1 "1 T *
v
Reuter
Refsað fyrirgáleysi
Christina Maria Gervasi korporáll og fjarskiptasérfræðingur í banda-
ríska hernum í Saudi-Arabíu Iangt komin með að fylla 1.000 poka
af sandi í eyðimörkinni. Hlaut hún þá refsingu að moka í þúsund
poka fyrir að skilja riffil sinn eftir á glámbekk.
Viðurkenna að sprengjur
geiguðu í loftárás á Fallujah
London. Daily Telegraph.
TALSMAÐUR breska flughersins viðurkenndi um helgina að sprengj-
ur sem varpað hefði verið á hernaðarleg skotmörk í borginni Fallujah
í írak hefðu geigað. írakar hafa haldið því fram að bresk Tornado-
þota hefði varpað sprengju á íbúðarblokk og markaðstorg í borg-
inni sl. fimmtudag með þeim afleiðingum að 130 óbreyttir borgarar
hefðu týnt lífi og 78 særst.
írakar sögðust ennfremur hafa
skotið þotu niður í árásinni en því
neitaði Niall Irving ofursti, talsmað-
ur breska flughersins. Hann sagði
að árásin á Fallujah hefði verið
gerð á miðvikudag, en ekki fimmtu-
dag eins og írakar héldu fram, og
allar þotumar hefðu komið til baka.
Tomado GR-1 þota hefði hins vegar
verið skotin niður með SAM-flug-
Deilur um hlutverk
fréttamanna 1 Irak
St. Andrews. Frá Gudmundi H. Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
DEILUR um fréttamenn breskra fjölmiðla í Bagdad hafa orðið sífellt
háværari, því lengra sem liðið hefur á Persaflóastríðið.
skeyti í loftárás á flugvöll í írak á
fímmtudag.
Irving sýndi blaðamönnum
myndband sem tekið var af árás
Tornado-þotu á brú yfir Efrat-ána
í Fallujah, sem er 55 km vestur af
Bagdad. Þar kom fram að sprengj-
umar þijár sem skotið var á brúna
náðu ekki inn í Ieisigeislakeilu sem
Buccaneer-þota myndaði yfir
brúnni. Tvær lentu í ánni og
sprungu ekki en sú þriðja kom nið-
ur í borginni skammt frá árbakkan-
um. Reykur frá sprengingunni sást
á myndinni en sprengjustaðurinn
var ekki inn í myndrammanum og
því ekki hægt að sjá hvort sprengj-
an hefði komið niður á markað-
storgi. Rannsókn væri í gangi til
þess að reyna að staðfesta hvað hún
hæfði og hvort einhver önnur
sprenging hefði átt sér stað í borg-
inni á fimmtudag. Ekkert hefði enn
komið fram sem staðfesti mikið
manntjón meðal óbreyttra borgara
en ef sú hefði orðið raunin hörmuðu
Bretar það mjög, að sögn Irvings.
Bandamenn hafa sakað íraka um
að valda sjálfir tjóni á mannvirkjum
Ýmsir þingmenn íhaldsflokksins
hafa sakað fréttamenn breska sjón-
varpsins BBC og /TK-sjónvarps-
stöðvarinnar sérstaklega um að vera
hrein áróðurstæki í höndum íraskra
Tvö herskip
ádufl
sigla
Kiyadh. R«ut«r.
TVO bandarísk herskip sigldu á
tundurdufl skammt undan strönd-
um Kúveits í gær með þeim afleið-
ingum að fjórir sjóliðar af öðru
þeirra slösuðust.
Gat kom á landgönguskipið Tri-
poli atvikið er hið fyrsta sinnar teg-
undar frá því írakar hófu að leggja
dufl í flóann til þess að reyna að
hindra landgöngu fjölþjóðahersins í
Kúveit.
Tæpri kiukkustund síðar sigldi
beitiskipið Princeton á dufl en lask-
aðist óverulega. Bæði skipin gátu
haldið ferð sinpi áfram undir eigin
vélarafli. Í gær höfðu rúmlega 30
skip siglt upp undir strendur Kú-
veits og þótti það benda til að land-
ganga væri yfirvofandi.
stjórnvalda. Fréttamenn svara, að
þeir taki alltaf fram, að þeir segi
fréttir samkvæmt ritskoðun íraskra
stjórnvalda. •
Báðar sjónvarpsstöðvarnar, BBC
og ITV, hafa fréttamenn í frak,
J3BC-útvarpið sömuleiðis og flest
dagblöðin. A því er þó mikilvæg
undantekning. The Daily Tetegraph
hefur ekki sent fréttamenn til írak
vegna þess að þeir geti ekki sinnt
störfum sínum við svo stranga rit-
skoðun og gefi því óhjákvæmilega
villandi mynd af atburðum þar.
Fréttamenn RRC-útvarpsins
segja, að ritskoðunin sé fremur væg
hjá írökum. Þeir taki einungis út
allar upplýsingar um staðsetningu
bygginga, sera orðið hafa fyrir
sprengjum og aðrar upplýsingar, sem
hafi hugsanlegt hernaðarlegt mikil-
vægi. En þeir segja líka, að ferðum
þeirra sé stranglega stjómað. Þeir
fái til dæmis alls ekki að koma ná-
lægt Kúveit.
Sömuleiðis hefur komið í ljós
gremja fréttamanna í Saudi-Arabíu
vegna strangs eftirlits með fréttum
þaðan. Fréttamenn segja þó, að það
eftirlit sé mun vægara. Þeir hafi til
dæmis beinan aðgang að hermönn-
um, sem þeir hafí ekki í írak.
sem ekki teljast hernaðarleg og
reyna að koma sökinni á fjölþjóða-
herinn. Bandarískir embættismenn
sögðu t.d. að myndir sýndu að hvelf-
ing mosku sem írakar sögðu að
hefði verið löskuð í loftárás hefði
greinilega verið „söguð“ af og fjar-
lægð. Verksummerki minntu í engu
á loftárás.
Farið var með vestræna blaða-
menn í kynnisferð til Fallujah sl.
laugardag og sögðu þeir að Irökum
hefði mistekist að sýna fram á að
manntjón hefði orðið í loftárás á
borgina. Þá hefði það verið áber-
andi að engin gremja hefði ríkt
meðal íbúa, ólíkt því sem verið hefði
í Bagdad í síðustu viku eftir loftár-
ás á byrgi sem bandamenn sögðu
að verið hefði fjarskiptastöð íraska
hersins en Irakar sögðu vera loft-
varnarbyrgi.
CBS-menn í
haldi Iraka
Nikósíu. Reuter.
ÍRAKAR hafa fjóra sjónvarps-
menn bandarísku sjónvarpsstöðv-
arinnar CBS í haldi í Bagdad, að
sögn fréttamanns CW-sjónvarps-
ins í borginni. Þeirra hefur verið
saknað frá 21. janúar er bifreið
þeirra fannst mannlaus skammt
þar frá sem landamæri Kúveits,
Iraks og Saudi-Arabíu mætast.
íraskir embættismenn vildu ekk-
ert um frétt CNN segja en frétta-
maður stöðvarinnar sagðist hafa
áreiðanlegar heimildir fyrir því að
CBS-mennirnir hefðu verið teknir
fastir í Kúveit 21. janúar sl. og
verið fluttir til Bagdad til yfír-
heyrslna fyrir hálfum mánuði.
Væru þeir nú í vörslu leyniþjón-
ustunnar sem rannsakaði mál þeirra
en hún mun skera úr um hvort líta
beri á sjónvarpsmennina_sem njósn-
ara. Saddam Hussein íraksforseti
mun hafa síðasta orðið í máli þeirra.
Að sögn CNN sögðu heimildar-
menn stöðvarinnar að þrír af mönn-
unum hefðu verið í herklæðum er
þeir gengu yfir kúveisku landamær-
in. Sá fjórði hefði beðið við bifreið
fjórmenninganna og verið í borg-
arálégum klíþðíim.) j
.vír icwíi'iTI loiod miimqc.oh