Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 19; PEBRUAR 1991
9
FYRIR ÖLLU
Stundar gáleysi er oft orsök
meiðsla við vinnu. Erfitt er að
koma í veg fyrir slíkt en
auðvelt er að minnka líkurnar á
skaða. Að því vinnur Dynjandi
ötullega. *
Dynjandi selur allar gerðir
öryggisbúnaðar, m.a. hina
vönduðu öryggisskó frá Jallatte.
Þeir fást í mörgum gerðum og
þeim er ætlað að fyrirbyggja
meiðsli á fótum.
>X< Jallotbc
ÖRYGGI
Skeifan 3h - Sími 82670
Sérverslun með klrkjumunl
>g vörur tengdar kirkjulegum athöfnum.
Fjölbreytt úrval gjafavöru og bóka.
Biblíur og sálmabækur með
og án gyllingar.
Fermingarservíettur.
r
Aprentun á servíettur
kr. 1.350,- m.v. 80 stk.
Kirkjuhúsið
Kirkjuhvoli, gegnt Dómkirkjunni, Reykjavík.
Símar: 21090 - 621581 - 621595
VIÐ ERUM
IKIRKJUHVOLI
, GEGNT
DOMKIRKJUNNI
Fcrmingarvörur í úrvali.
SendingarvUiiaweða
skipti á sendifulltruun^
Hvaða Steingrfmur?
Mánudaginn 11. febrúar síðastliðinn
samþykkti Alþingi íslendinga ályktun um
viðurkenningu á Litháen og stjórnmála-
samband við landið, hefur henni verið
fagnað innilega meðal Litháa. Æðsta ráð
Litháens hefur fært Alþingi þakkir og
telur samþykkt þess endurspegla „sigur
siðferðisstefnunnar í milliríkjasamskipt-
um“. Nokkrir ráðherrar með Steingrím
Hermannsson í broddi fylkingar tóku
ekki þátt í störfum Alþingis, þegar álykt-
unin var samþykkt. Á miðvikudag kemur
forsætisráðherra Eistlands til fundar við
Steingrím. Hvaða Steingrím skyldi hann
hitta?
Sérkennileg
fjarvera
í frétt Morgunblaðsins
13. febrúar sl. sagði; „Við
atkvæðagreiðsluna í
Sameinuðu þingi í fyrra-
kvöld [um stuðning við
Litháen] voru sautján
þingmenn fjarstaddir,
þar á mcðal ráðherrarnir
Steingrimur Hermajms-
son forsætisráðherra,
Guðmundur Bjamason
heilbrigðisráðherra, Jó-
hanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra ,og ÓIi
Þ. Guðbjartsson dóms-
og kirkjumálaráðherra.
Steingímur sagði að
ekki væri hægt að draga
neinar ályktanir um af-
stöðu hans til málsins út
frá fjarveru hans. „Ég
hefði greitt atkvæði með
ályktuninni eins og þetta
var. Hins vegar er búið
að álykta svo mikið og
margt að þetta er allt á
réttri leið og ég held að
ályktunin hafi verið
óþörf,“ sagði forsætis-
ráðherra."
Þetta svar Steingríms
Hermannssonar er
dæmigert fyrir afstöðu
hans i stjómmálum.
Hann kýs að vera fjar-
verandi, þegar Alþingi
tekur ákvörðun sem allir
vom einhuga um að ætti
að endurspegla samhug
þings og þjóðar. Hvar-
vetna er fjarvera forsæt-
isráðherra á slíkri stundu
túlkuð sem sfórpólitísk
yfirlýsing og væri um
stefnufastan stjómmála-
mann að ræða hefði átt
að draga stórpólitíska
ályktun af fjarveru for-
sætisráðherra. Önnur
mælistika er hins vegar
notuð á Steingrím Her-
mannsson. Hvers vegna?
Það kemur best fram,
þegar lesið er svar hans
við spumingu blaða-
manns Morgunblaðsins:
Steingrímur segir að
hann hefði greitt álykt-
uninni atkvæði en hún
væri hins vegar óþörf.
Niðurstaðan er þessi;
Forsætisráðherra var
ekki á Alþingi, af því að
þar var verið að afgreiða
óþarfa ályktun, sem haim
var þó samþykkur!
Minnisleysi og vilji til
að hafa tvær gagnstæðar
skoðanir á sama málinu
í anda Ragnars Reykáss
er einkenni á stjómmála-
manninum Steingrími
Hermannssyni. Hann
komst að visu að raun
um að það er ekki jafn
auðvelt að vera á tveimur
stöðum samtimis og að
hafa tvær ólíkar skoðanir
í sömu setningunni, þeg-
ar hann ætlaði að lijálpa
Finni Ingólfssyni í fram-
boðsraununum hér í
Reykjavík. Það var ekki
fyrr en á elleftu stundu
sem það rann upp fyrir
Steingrími og framsókn-
armönnum, að formaður-
inn gat ekki verið í fram-
boði í tveimur kjördæm-
um samtímis — þess
vegna er Steingrírnur
enn í framboði í Reykja-
neskjördæmi.
Heimsókn frá
Eistlandi
Á miðvikudag kemur
Edgar Savisaar, forsætis-
ráðherra Eistlands, í
heimsókn hingað til lands
og verður Steingrimur
Hcrmannsson gestgjafi
hans. Skyldi Steingrímur
útlista það fyrir Savisaar,
hvers vegna hann telur
ályktun Alþingis um Lit-
háen hafa verið óþarfa?
Það má ráða ,af um-
mælum sem Lennart
Meri, utanrikisráðherra
Eistlands, lét falla i sam-
tali við Morgunblaðið og
birtust siðastliðinn laug-
ardag, að Eistlendingar
eru sömu skoðunar og
Litháar, að ályktun Al-
þingis 11. febrúar hafi
alls ekki verið óþörf.
Juuri Luik, aðstoðarmað-
ur eistneska utanrikis-
ráðherrans, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið,
sem einnig birtist á laug-
ardag:
„Með því að koma Lit-
háum til hjálpar eru ís-
lendingar einnig að að-
stoða Eistlendinga og
Letta. Samstaða Eystra-
saltsþjóðanna er mikil og
við trúum því ekki að
hægt sé að leysa vanda
einnar í einu. Litháar
hafa verið i fararbroddi
en þeir búa líka við bestu
aðstæðurnar og þá á ég
við samsetningu íbúa
landsins [í Litháen eru
fæstir Rússar miðað við
íbúafjölda í einstökum
Eystrasaltsrikj um[.
Skref fyrir skref munum
við öll feta í fótspor Lit-
háa. Ákvörðun íslend-
inga er undanfari viður-
kenningar á Eistlandi óg
Lcttlandi einnig. Við trú-
inn þvi ekki að okkur
verði neitað um viður-
kenningu þegar við föl-
innst eftir henni.“
Þarna víkur sam-
starfsmaður eistneska
utanríkisráðherrans að
atriði, sem vafalaust
verður á dagskrá í við-
ræðum Edgars Savisaars
forsætisráðherra við
Steingrím Hermannsson.
Eistlendingar og Lettar
ganga til atkvæða innan
skamms til að kanna hug
almennings til sjálfstæð-
ismálsins á sama hátt og
Litháar hafa gert. Er
ekki að efa að eftir þá
atkvæðagreiðslu telja
ráðamenn þjóðanna sig
verða í betri aðstöðu en
nú til að fara fram á það
við erlend ríki að stofnað
verði til stjórnmálasam-
bands.
Hér skal ekki dregið í
efa að íslensk stjórnvöld
veiti Savisaar svör við
fyrirspurnum hans um
afstöðu íslendinga sem
eru í samræmi við hinn
skýra meirihluta, er
myndaðist á Alþingi 11.
febrúar sl. til stuðnings
Litháum, þótt Steingrím-
ur Hermannsson hafi
ekki setið þingfund og
sjálf Guðrún Helgadóttir,
forseti sameinaðs þings,
hafi ekki treyst sér til að
greiða atkvæði um þann
lið þessarar heimsfrægu
tillögu, sem snerti stjórn-
málasambandið við Lit-
háen, af því að hún skildi
ekki hvað í lionum fólst!
Hinir eistnesku gestir
geta um leið og þeir afla
málstað sínum stuðnings
hér einnig leitað upplýs-
inga urn það, hvernig
tveir æðstu fulltrúar
þings og ríkisstjómar
geta lent í jafn furðu-
legri aðstöðu og þau
Guðrún Helgadóttir og
Steingrímur Hermanns-
son vegna ályktunarimi-
ar um Litháen. Við þá
rannsókn kæmust þeir
að því, að hér eins og í
Eystrasaltsrikjunum láta
meim ekki háttsetta
valdsmenn komast upp
með allt.
VERÐBRÉF í ÁSKRIFT
Snjöll leið til að
eignast sparifé
Verðbréf í áskrift hjá VIB er þjónusta fyrir þá sem
vjjja leggja fyrir reglulega á þægilegan hátt og fá góða
ávöxtun á sparifé sitt.
Askriftendur geta valið um sjö mismunandi leiðir til
ávöxtunar, allt eftir þörfum hvers og eins. Til dæmis
má kaupa hlutabréf í Hlutabréfasjóði VIB í áskrift.
Verðbréfin eru í öruggri vörslu VIB og fá áskrifend-
ur send yfirlit reglulega um hreyfingar og verðmæti
sjóðsins sem þeir hafa eignast. Verið velkomin í VIB.
VlB
SENDUM í POSTKRÖFU UM ALLT LAND.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF.
Ármúla 13a, 108 Reykjavik. Sími 68 15 30. Telefax 68 15 26. Simsvari 68 16 25.