Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
11
Allt orkar tvímælis þá gert er
eftir Eyjólf Konráð
Jónsson
Þegar Alþingi ákvað að senda
um síðustu mánaðamót þrjá þing-
menn til Litháen var það rétt
ákvörðun. Áður höfðu íslensk
stjórnvöld stigið skref sem ýmist
voru talin boða að við íhuguðum
að taka upp stjórnmálasamband
við Litháa eða hefðum ákveðið
það. Eðlilegt var því að þing og
stjórn kynnti sér sem rækilegast
stöðuna á vettvangi ef svo má
^ segja áður en frekar yrði aðhafst.
Til þess var förin farin og nú hef-
ur Alþingi tekið ákvörðun með
reisn, þó að ánægjulegra hefði
Kazuhito Yamashita er fæddur
árið 1961. Hann hóf ungur gít-
arnám og vann til sinna fyrstu
verðlauna aðeins 11 ára gamall.
Árið 1977 stundaði hann nám í
gítarleik hjá Segovia og stuttu
seinna hlaut hann fyrstu verðlaun
í alþjóðlegri samkeppni á Spáni,
Ítalíu og í Frakklandi.
Síðan 1978 hefur hann haldið
fjölda tónleika um allan heim,
bæði einn og sem einleikari með
kammer- eða sinfóníuhljómsveit-
um. Kazuhito Yamashita hefur
einnig starfað með öðrum lista-
verið að hafa forsætisráðherrann
og forseta þingsins í hópnum.
Allt orkar tvímælis þá gert er.
Þetta ætti ég að vita því að ég
var meðal hinna fyrstu sem ritaði
í Morgunblaðið um aðild íslands
að Atlantshafsbandalaginu í upp-
hafi árs 1949 og valdist strákling-
ur ræðumaður á geysifjölmennum
kappræðufundi í Austurbæjarbíói.
Auðvitað vorum við lýðræðissinnar
eins og við kölluðum okkur vakl-
andi í upphafi, en ákvörðun varð
að taka á fáum vikum. Baráttan
' var hafin og aftur varð ekki snú-
ið. En þá sögu þekkja allir til þessa
dags. Um þetta hugsaði ég á leið-
inni til Riga og á einkennilegustu
dögum ævinnar í Vilnu.
Sjálfsagt er það rétt sem Stein-
mönnum á borð með flautuleikar-
ana, James Galway og Wolfgang
Schultz og jazz-gítarleikarann
Larry Coryell.
Á efnisskránni eru Tilbrigði um
stef eftir Mozart eftir Sor, Folios
eftir Takemitsu og verk í eigin
útsetningu; Sellósvíta nr. 6 eftir
Bach og áðurnefnd Sinfónía frá
Nýja heiminum eftir Dvorák.
Kazuhito Yamashita kemur til
íslands úr tónleikaferð um Norður-
lönd á vegum japanska sendiráðs-
ins í Ósló og Tónverk sér um fram-
kvæmd tónleikanna.
grímur Hermannsson forsætisráð-
herra hefur sagt að tilfinningar
hafi einhveiju valdið um mína af-
stöðu og annarra. Ekki skammast
ég mín fyrir það né óttast ég sam-
anburð við jafnaldra minn í af-
stöðu til utanríkismála fyrr og síð-
ar, öryggismála og íslenskrar
hagsmunagæslu. Hann segir nú
að menn hafi talað of mikið. Þeim
lesti ætti að vera óhætt að vísa
til föðurhúsanna. Hitt er rétt að
þeir sem í æðstu embættum eru
eiga að tala varlega. Og aldrei hef
ég verið þeirrar skoðunar að þeir
eigi að vera eins og landaíjandar
út um allar jarðir að spila stórveld-
ispólitík.
Eins og við var að búast og sjálf-
sagt er hafa menn skipst á skoðun-
Kazuhito Yamashita.
Miðar verða einungis seldir við
innganginn. (úr fréttatilkynningu.)
um um Eystrasaltsmálin. Ekkert
er nema gott um þetta að segja.
Hér er um að ræða eitt vandasam-
asta utanríkismál sem við höfum
glímt við á seinni árum og engan
á að ásaka fyrir andstöðu við
ákvörðun Alþingis ef hann færir
fyrir henni rök. Ekki eru það þó
rök og síst af öllu stórmannleg
afstaða að við höfum skaðað við-
skiptahagsmuni okkar. Ullar-
samningur hefur t.d. nýlega verið
gerður við Rússland, lýðveldið, en
ekki Sovétríkin. Olían sem við
kaupum er líka að miklu leyti frá
Rússlandi.
í Rússlandi Boris N. Jeltsíns búa
160 milljónir íbúa Sovétríkjanna
og framleiða 80% þjóðarfram-
leiðslunnar. Rússland liggur að
Eystrasaltsríkjunum. Samanlagt
eru þessi lönd stórveldi þegar gíf-
urlegar náttúruauðlindir verða
nýttar í fijálsum samfélögum og
hafnir Eystrasaltslandanna eru
sjálfgerðar hafnir Rússlands. Okk-
ur skortir þekkingu til að geta
áttað okur á öllum þessum und-
rum, það verður að játa. En dags-
skammt af vitneskju má fá í grein-
inni, „Traustið er þorrið“ í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins í fyrra-
dag.
Ekki verður lokið við þennan
greinarstúf án þess að víkja örf-
áum orðum að þeim misskilningi
eða blekkingum sem uppi hafa
verið um aðsstæður til að koma á
stjórnmálasambandi en þær geta
verið með margvíslegum hætti.
Stundum er samið um að koma
upp sendiráðum, oftar þó ræðis-
mannsskrifstofu en oftast hvor-
ugu. Stjórnmálasamband okkar
við Eystrasaltslöndin getur fyrst
í stað orðið táknrænt í pólitísku
Japanskur gltarleik-
ari í Hafnarborg
JAPANSKI gítarleikarinn Kazuhito Yamashita heldur tónleika
þriðjudaginn 19. febrúar kl. 20.30 í Hafnarborg, Hafnarfirði.
Eyjólfur Konráð Jónsson
„Ekki skammast ég mín
fyrir það né óttast ég
samanburð við jafn-
aldra minn í afstöðu til
utanríkismála fyrr og
síðar, öryggismála og
íslenskrar hagsmuna-
gæslu.“
tilliti en líka má tilnefna ræðis-
menn ef svo slæst eða sendiherra
sem ekki eru búsettir í þessum
löndum. Mýmörg dæmi eru um
hverskyns frjálslegt fyrirkomulag.
Stjórnendur Sovétríkjanna gera
sér grein fyrir þessu öllu eins og
viðbrögð þeirra sanna. Þeir geta
engu ráðið um það hvaða leið við
förum. Það fer eftir atvikum þótt
við gerum okkur ekki leik að því
að ergja þá um of.
Höfundur er einn af
alþingismönnum
Sjálfstæðisfiokksins fyrir
Reykjavíkurkjördæmi.
Það er ekki „OVLOV“ að kalla þennan bíl
þann fullkomnasta sem komið hefur frá VOLVO
Við kynnum nú fullkomnustu bifreið sem Volvo
hefur nokkru sinni framleitt.
Volvo 960 er búinn nýrri 204 hestafla, 24 ventla,
sex strokka línuvél sem hefur verið í þróun allan
9. áratuginn.
Með þessari vél er ný fjögurra þrepa tölvustýrð
sjálfskipting sem án efa er ein sú fullkomnasta sem
komið hefur fram á síðari árum.
Hemlalæsivörn (ABS) og sjálfvirk driflæsing eru
staðalbúnaður í Volvo 960 og veitir það bifreiðinni
einstaka eiginleika f snjó og hálku.
Mýkri línur svara kröfum nútímans um minni loft-
mótstöðu og rennilegt útlit. Leður- eða plussklædd
innrétting, fullkomin hljómflutningstæki með geisla-
spilara, vökva- og veltistýri, sainlæsing á hurðum,
rafknúin sóllúga, hraðástiflihg (Cruisé control) og
margt fleira svara hins
vegar kröfum um há-
marks þægindi öku-
manns og farþega.
Við hönnun á Volvo 960
var hvergi vikið ffá hug-
myndafræði Volvo um
hámarks öryggi far-
þeganna. Volvo hefur nú
fyrstur bílaframleiðanda
komið fyrir innbyggðum
barnastól í aftursæti og hefur þessi uppfinning þegar
unnið til alþjóðlegra verðlauna. Þetta er talið vera
eitt markverðasta framlag til öryggismála í biffeið-
um síðan Volvo fann upp þriggja punkta öryggís-
beltið sem bjargað hefur fjölda mannslífá. i .!
VOLVO
- Bifreið sern þú getur treyst!
/\
VOLVO 960
VERÐUR FRUMSÝNDUR
XHELGINA 23. OG 24.
FEBRÚAR
\/
BRlMBORG
FAXAFENI8 • SÍMl 68 58 70