Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 15

Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991 15 því að hér er ekki verið að kenna um tölvur, tölvufjarskipti e.þ.h., heldur er þessi tækni notuð til að „minnka heiminn“ ef svo má segja. Það kom reyndar oft fram á WCCE90 að menn eru hættir að kenna um tölvur eða forritun (nema þar sem það á við) en eru á hinn bóginn farnir að nota tölvuna sem hjálpartæki í námi og kennslu. Hápunkturinn í þessu verkefni var „Environmental Video Conference", einskonar sjónvarpssima-fundur (með 1.000 áheyrendum) tólf ung- menna í Ástralíu og fjögurra í Nor- egi, þar sem fjallað var um niður- stöður mælinganna á súru regni. Eins og nærri má geta gekk þetta ekki snurðulaust fyrir sig. Athöfnin hófst með ávarpi Gro Harlem Brundtland um nauðsyn umhverfis- verndunar, en það var spilað af myndbandi. M.a. sagði hún um- hverfisvernd vera þýðingarmesta verkefnið sem þjóðir heimsins stæðu frammi fyrir. Við yrðum markvisst hver í sínu landi og á alþjóðavísu að vinna bug á umhverf- ishættunum svo sem súru regni og eyðingu ozonlagsins, sem væru í raun mestu hættur sem að mann- kyninu steðjuðu þessa stundina. Síðan sögðu þessi 12 áströlsku ungmenni okkur áheyrendum/horf- endum frá verkefninu og svo var reynt að ná sambandi við Noreg. Það tókst að lokum en því miður full seint þannig að fáir voru orðn- ir eftir til að fylgjast með. Þetta var í fyrsta sinn sem þessir nemend- ur sáu hveijir aðra og fyrir þá var það upplifun eftir margra mánaða tölvusamskipti. Hér að framan hefi ég ekkert fjallað um hinn „leynda tilgang“ svona ráðstefnu, tilgang sem ekki er síður mikilvægur en sá sem dag- skráin lýsir. Á ég hér við mannlega þáttinn, það að hitta annað fólk með svipuð áhuga- og vandamál, blanda geði við fólk af ólíku þjóð- erni og skiptast á skoðunum við sér eldri og reyndari menn og jafnvel mynda varanleg starfsleg og vin- áttutengsl. Mér kom á óvart hve heimamenn voru opnir og fúsir til viðræðna við erlénda gesti en mynd- uðu ekki lokaðan „local“-hóp og létu gestina hafa hvern ofan af fyrir.öðrum. Líklega má rekja þessa hegðan að hluta til þess að Ástralía er mjög stórt land, vegalengdir miklar og samband við ríki innan Evrópu eða Ameríku ekki síður al- gengt en innanlandssamband. Og víst er um það að margar ánægju- legar minningar eru í huga, rabb um hvérsdagslega hluti svo sem ávaxtauppskeru eða uppvask og skiptingu heimilisstarfa! Höfundur er tæknifræðingur og starfarhjá Ortölvutækni. TILBOÐSVERÐ Á: i Rúllufötu, álskafti, festiplötu og moppu KR. 10.638,- stgr. Nýbýlavegi 18, Kóp. „Sínrú 91-þ419g8. Drykkjarvörur í grunnskólum: Reynum að tapa ekkí á - segir yfirkennari Hagaskóla MIKILL verðmunur er á drykkjarvörum sem seldar eru í grunnskól- um á höfuðborgarsvæðinu. Munurinn á eins fjórða lítra mjólkurfern- um er 60%, lægsta verð er 10 krónur en hæsta 16 krónur. Leiðbein- andi álagning gerir ráð fyrir að fernurnar séu seldar á 10 eða 11 krónur. Þar sem mjólkin er dýrust er álagningin 60-70% og hún seld fimm krónum dýrari en mælt er með. Kennarar, sem Morgunblaðið ræddi við í nokkrum þeirra skóla sem verst komu út úr verðkönnun- inni, sögðu flestir að verið væri að athuga málið, en stefnt væri að því að sala á drykkjarvörum stæði und- ir sér. Einar Magnússon, yfirkennari í Hagaskólanum, sagði að þar á bæ væri verðið miðað við algengt verð í verslunum. í Hagaskóla er ekki seld mjólk vegna þess að hún selst lítið. Kókómjólk er hins vegar seld og leiðbeinandi smásöluverð er 39 krónur. í Hagaskóla kostar hún 45 krónur. „Við reynum að halda þessu þannig að við töpum ekki á sölunni yfir veturinn. Það verður rýrnun á þessum vörum þó reynt sé að passa uppá hlutina. Það er nemendafélag- ið sem sér um söluna hér í skólan- um. Þessi sala var rekin með gríðar- legu tapi og þá varð að borga það með einhverju öðru eins og til dæm- is innkomu á skemmtanir og slíku. Við gripum þá til þess að selja drykki á algengu búðarverði til að minnka tapið,“ sagði Einar. Vesturbæjarskóli er með hæsta verð á mjólk og léttmjólk, en það er það eina sem selt er í þeim skóla og það er skólinn sem sér um söl- una. „Þetta er fámennur skóli þann- ig að afföll og rýrnum kemur ef til vill verr út hjá okkur en víða ann- ars staðar. Við seljum ekkert annað en mjólk en ég veit til þess að sum- ir skólar hafa mjólkina ódýrari og mæta tapinu á henni með því að sölunni selja eitthvað annað dýrara. Við erum að athuga þessi mál núna en engin ákvörðun hefur verið tekin um hvort mjólkin verði lækkuð," sagði Málfríður Ragnarsdóttir yfir- kennari. Guðrún Bentsdóttir, yfirkennari Æfinga- og tilraunaskóla Kennara- ■ háskólans sagði að þar væri sala á drykkjarvöru og öðru í umsjón tíundabekkinga og stefnt væri að því að mjólkursala væri ekki rekin með miklu tapi. „Við seldum mjólk- urvörur dýrari í haust en lækkuðum svo verðið. Við höfum síðan verið að athuga málið og það verður ákveðið fljótlega hvort mjólkurvör- ur verði lækkaðar meira,“ sagði Guðrún. ADVD ODMmDTT T UU JL Jlí oHiiN ULijLLíLj Praktik er lipur sendibíll í minni stærðarflokki, sérstaklega gerður fyrir hverskonar atvinnurekstur. Hann hentart.d.iðnaðarmönnum, heildsölum, verslunum, matsölu- stöðum og öðrum sem leita að hagkvæmri lausn. ÁSTÆÐAN: ★ Lítil fjárbinding ★ Ódýrírekstri ★ Burðarmikill ★ Auðveld hleðsla frá 3 hliðum HAGNÝTUR BÍLL FYRIR HAGSÝNA KAUPENDUR! NHDURSTAÐAN ER: KR. 373.000 ÁN VSK Hafðu samband við sölumenn strax í dag. Söludeildin er opin alla virka daga kl. 9-18 og laugardaga kl. 13-17. Síminn er: 42600. JÖFUR HF Nýbýlavegi 2, sími 42600

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.