Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 18
«
M0$<
.0LiLOOA(1 'Jl.GW'I ŒOAJflVIUOaOM
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991
Bridshátíð 1991:
Baran og Molson unnu tví-
menningínn með yfirburðum
__________Brids_____________
Amór Ragnarsson
Bandaríkjamennirnir Mark
Molson og Boris Baran sigruðu
með miklum yfirburðum í
tvímenningskeppninni sem
fram fór á Hótel Loftleiðum um
helgina. Þeir hlutu 557 stig yfir
meðalskor sem er langhæsta
skor sem tekin hefir verið i
tvímenningskeppni á Brids-
hátíð frá upphafi en þetta mun
vera í áttunda sinn sem Brids-
hátíð er haldin.
Baran og Molson tóku foryst-
una í mótinu í 18. umferð og
má segja að þeir hafi skorað
látlaust út allt mótið að undan-
skilinni einni af upphafsum-
ferðunum og næstsíðustu um-
ferðinni er þeir fengu 23 mínus-
stig. Meðalskor þeira félaga var
rúmlega 11 plússtig í setu sem
er með ólíkindum.
Erfið uppákoma varð í upphafí
móts þegar ljóst varð að einn
sterkasti bridsspilari Evrópu, Paul
Chemla, var veðurtepptur í París
vegna snjókomu. Þetta er nokkuð
óvenjuleg staða hjá stjórnendum
bridshátíðar því hingað til hefír
það oftar en ekki verið veðrið hér
á klakanum sem hefir gert erfítt
fyrir. Chemla er góðkunningi
Omars Sharifs sem hingað var
kominn til að taka þátt í há-
tíðinni. Var brugðið á það ráð að
biðja stigahæsta bridsspilara
landsins, Jón Baldursson, að spila
við Sharif en félagi Jóns, Aðal-
steinn Jörgensen spilaði með
Helga Jóhannssyni, forseta Brids-
sambandsins. Aðalsteinn og Helgi
áttu eftir að koma nokkuð við
sögu í mótinu eins og sjá má á
stöðunni eftir 10 umferðir:
Helgi Jóhannsson - Aðalsteinn Jörgensen 137
ÖmAmþórss.-GuðlaugurR.Jóhannss. 134
ZiaMahmood-SchmuelLev 107
AlfredKadlec-FranzTerraneo 93
Símon Símonars. - Júlíus Siguijónss. 91
ísak Öm Sigurðss. - Hallur Símonars. 77
BjömTheódórss.-GuðmundurPéturss. 76
HeinrichBerger-WolfgangMeinl 74
Morgunblaðið/Amór
Kanadamennirnir Mark Molson og Boris Baran taka við signrverð-
launum sínum í tvímenningnum en þeir urðu langefstir.
ThorvaldAagaard-JonThoresen 73
BorisBaran-MarkMolson 65 j
Esther Jakobsd. - Valgerður Kristjónsd. 59 [
Ib Lundby - Inge K. Hansen 581
Sigurvegarinn frá í fyrra,
Tommy Gullberg, spilaði við Mike
Polowan sem einnig hefir spilað á
bridshátíð. Þeir byijuðu mótið
mjög illa og fengu t.d. mínus 43
stig í fyrstu umferðinni á mótij.
bræðrunum Þráni og Vilhjálmiqj
Sigurðssyni. Þeir voru því fyrir
neðan miðju eftir 10 umferðir. Jón
Baldursson og Sharif áttu líka
erfitt uppdráttar í upphafi móts
og voru fyrir neðan miðju.
Þegar 27 umferðum var lokið
mátti segja að öllspenna væri úr
mótinu hvað varðaði fyrsta sætið.,
Þá var staðan þessi:
BorisBaran-MarkMolson 379
ZizMahmood-SchmuelLev 297
AlfredKadlec-FranzTerraneo 259
V alur Sigurðss. - Guðmundur G. Sveinss. 156
HeinrichBerger-WolfgangMeinl 142
RagnarMagnúss.-PállValdimarss. 142
IbLundby-IngeK.Hansen 140
Öm Arnþórss. - Guðlaugur R. Jóhannss. 124
ÓlafurLáruss.-HermannLáruss. 119
Páll Hjaltason - Hjalti Elíasson 116
Helgi Jóhannsson—Aðalsteinn Jörgensen 114
Hjördís Eyþórsd. - Ásmundur Pálss. 112
Zia Mahmood og Schmuel Lev
héldu sínu út mótið og bættu
reyndar við tæpum 50 stigum á
meðan helztu keppinautar þeirra,
Alfred Kadlec og Franz Terraneo,
töpuðu 25 stigum í seinni hluta
móts. Tvö íslensk pör stóðu sig
mjög vel í lokabaráttunni. Páll
Valdimarsson og Ragnar Magnús-
Pakistaninn Zia Mahmood varð í öðru sæti með
Schmuel Lev. Það er forseti Bridssambandsins,
Helgi Jóhannsson, sem afhenti verðlaunin.
Páll Valdimarsson og Ragnar Magnússon stóðu sig
best af íslenzku pörunum og hömpuðu 1200 dala
verðlaunum.
Hjartaknosarinn Omar Sharif gefur ungri stúlku eiginhandaráritun.
Samviskufangar
Mannréttindasamtökin Amn-
esty International vilja vekja at-
hygli almennings á máli þessara
samviskufanga. Amnesty vonar að
fólk sjái sér fært að skifa bréf til
hjalpar þessum mönnum og skipi
sér á bekk með þeim, sem beijast
gegn mannréttindabrotum á borð
við þau sem hér eru virt að vett-
ugi. íslandsdeild Amnesty gefur
einnig út póstkort til stuðnings
föngum mánaðarins. Hægt er að
gerast áskrifandi að þessum kort-
um með því að hringja til skrifstof-
unnar, Hafnarstræti 15, virka
daga frá kl. 16—18 í síma 16940.
Grikkland
Daníel, Panayiotis og Parlos Xidis
eru þrír bræður, 20, 23 og 19 ára.
Þeir eru í haldi í Avlona-herfangels-
inu og sitja af sér 4ra ára fangelsis-
dóm fyrir að neita að gegna herþjón-
ustu.
Daniel hefur verið í haidi frá því
í maí 1989, en herréttur í Aþenu
dæmdi í máli hans í september 1989.
Panayiotis og Parlos voru handtekn-
ir í nóvember 1989 og herréttur
dæmdí í máli þeirra I janúar í fyrra.
Bræðurnir eru í hópi 400 ungra
manna sem sitja I grískum fangelsum
fyrir það eitt að neita að gegna her-
þjónustu af trúarlegum ástæðum.
Allir eru þeir Vottar Jehóva og trú
þeirra leyfir ekki herþjónustu.
Grísk löggjöf gerir ekki ráð fyrir
annars konar þjónustu í stað herþjón-
ustunnar og fíestir þessara ungu
manna hafa verið dæmdir í 4ra ára
fangelsi.
í bréfi frá Daniel segir: „Foreldrar
mínir eru sorgmæddir því þrír synir
þeirra hafa verið beittir óréttlæti.
Þrátt fyrir það erum við ánægðir því
við fórum eftir því sem segir I heil-
agri ritningu."
Amnesty hefur hvað eftir annað
farið fram á við grísk yfirvöld að þau
taki upp borgaralega þjónustu, eins
og Mannréttindanefnd Sameinuðu
þjóðanna, Evrópuráðið og Evrópu-
þingið hafa mælt með. I júlí 1988
tilkynnti gríska ríkisstjómin um
frumvarp til laga þar sem gefinn er
kostur á borgaralegri þjónustu í stað
herþjónustu. í frumvarpinu er gert
ráð fyrir því að borgaraleg þjónusta
verði tvisvar sinnum lengri en her-
þjónustan, en Amnesty telur þetta
ekki fullnægjandi valkosti. Nú,
tveimur árum síðar, hefur frumvarp-
ið ekki enn verið lagt fram í gríska
þinginu.
Vinsamlegast skrifið kurteisleg
bréf og farið fram á að bræðumir
verði tafariaust látnir lausir. Skrifið
til:
Prime Minister
Constantine Mitsotakis
Office of the Prime Minister
Maximou Palace
Herodou Atticou Avenue
Athens
Greece/Grikkland
Eþíópía
Mulugetta Mosissa er fyrrum opin-
ber starfsmaður á fimmtugsaldri.
Hann hefur verið í haldi án dóms
og laga í tæplega 11 ár. Mosissa var
handtekinn ásamt hundruðum ann-
arra manna af Oromo-ættbálknum
sem grunaðir voru um tengsl við
skæruliðahóp Frelsisfylkingar
Oromo. Honum hefur verið haldið í
sama fangelsi allan þennan tíma en
engar skýringar hafa verið gefnar á
þessu langa varðhaldi.
Mulugetta Mosissa var háttsettur
starfsmaður hjá eþíópísku kom-
nefndinni þegar hann var handtekinn
í Addis Ababa í febrúar 1980. Na-
mat Issa, eiginkona hans og starfs-
maður í utanríkisráðuneytinu, var
einnig handtekin, svo og ýmsir með-
limir Oromo-ættbálksins. Namat IsSa
var bamshafandi þegar hún var
handtekin. Yfirvöld gáfu engar skýr-
ingar á handtökunum en á meðal
hinna handteknu var Zegeye Asfaw,
dómsmálaráðherra. Talið er líklegt
að fóikið hafi verið handtekið vegna
gruns um tengsl við Freisisfylkingu
Oromo eða til að aftra fólki af
Oromo-ættbálknum frá því að styðja
Frelsisfylkinguna eða til að refsa
fyrir aðgerðir fylkingarinnar.
Á 15 ára afmæli byltingarinnar í
Eþíópíu í september 1989 var mörg-
um Oromo-mönnum sleppt í al-
mennri sakarappgjöf, en 50 þeirra
eru þó enn I haldi án dóms og laga
í Addis Ababa. Á meðal þeirra sem
leystir voru úr haldi vora eiginkona
Mosissa og Zegeye Asfaw. Mosissa
er í fámennum hópi þeirra sem enn
er haldið í helstu pyntingarstöðinni
í Addis Ababa. Hann mátti sæta
pyntingum í upphafí varðhaldsins og
hlaut af því varanlegan heilaskaða.
Aðstæðurnar í pyntingarstöðinni eru
mun verri en í aðalfangelsinu, þar
sem Namat Issa var í haldi. Issa
fékk ekki að heimsækja eiginmann
sinn. Sonur þerra, Amonissa, fæddist
í fangelsinu og dvaldi hjá móður sinni
í þau níu ár sem hún sat í fangelsi.
Þar fékk drengurinn heilahimnu-
bólgu og hlaut af heilaskaða, en fékk
viðeigandi læknishjálp og meðferð.
Ekki er ljóst hvort leyfðar era
heimsóknir til Mosissa en vitað er
að fangar fá matar- og fatasending-
ar frá fjölskyldum sínum.
Vinsamlegast skrifíð kurteisleg
bréf og farið fram á að Molassa verði
tafarlaust látinn laus. Skrifið til:
His Excellency President
Mengistu Halle-Mariam
President of the People’s
Democratic Republic of Ethiopia
Office of the President
Addis Ababa
Ethiopia
Kólumbía
Alirio de Jesús Pedraza Becerra
er fertugur lögfræðingur og mann-
réttindasinni, kvæntur og á sjö ára
gamlan son. Allrio hefur ekki sést
síðan að kvöldi 4. júlí sl.
Samkvæmt vitnum réðust átta
vopnaðir menn í borgaralegum klæð-
um á Aiirio Pedraza þegar hann var
á leið út úr verslun að kvöldi 4. júlí
sl. og óku með hann á brott. Tveir
lögreglumenn stóðu álengdar þegar
mannránið var framið og að sögn
vitna gáfu tveir menn úr hópi hinna
vopnuðu sig á tal við þá og sögðust
vera úr öryggissveitunum.
Pedraza hafði verið virkur félagi
í samstöðuhópi pólitískra fanga
(CSPP) í langan tíma og var að rann-
saka mörg mannréttindabrot sem
rekja mátti til kólumbíska hersins.
Eitt þeirra var framið í maí 1988
þegar hersveitir skutu á hundraði
bænda í mótmælagöngu í Llano Ca-
hente í Magadalena Medio-héraðinu.
Pedraza var einnig að vinna I
máli verkalýðssinna sem handteknir
voru og pyntaðir í Call Valle del
Canca í mars 1990, sakaðir um þátt-
töku í skæraliðasamtökum. Fallið var
frá kæru.
„Ránið“ á Pedraza hefur verið
fordæmt og réttarrannsókn er hafin.
Fjölskylda Pedraza og starfsfélagar
hafa reynt að hafa uppi á honum en
herinn og lögregluyfirvöld neita stöð-
ugt að hann sé í haldi. Pedraza er
því einn fjöimargra sem hafa „horf-
ið“.
Vinsamlegast skrifíð kurteislega
bréf og farið fram á að hvarf hans
verði tafarlaust rannsakað og haft
upp á því hvar hann sé niðurkominn.
Skrifið til:
President César Gaviría Trujil
Presidente de la República
Palacio de Narino
Bogotá
Colombia
Fangi mánaðarins leystur
úr haldi
Ladji Traoré, 53 ára verkalýðsleið-
togi frá Máritaníu, var leystur úr
haldi í nóvember sl. Traoré var fangi
októbermánaðar hjá Amnesty Int-
ernational. Honum var sleppt úr haldi
án réttarhalda og skilyrða af hálfu
stjórnvalda.