Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
Eftirlitsátak vegna sjóðvéla og sölureikninga:
113 fyrirtækjum hefur
þegar verið hótað lokun
Eftirlitssveitir skattrannsóknarstjóra í fyrirtæki landsins á næstu vikum
„AÐLOGUNARTIMINN er lið-
inn,“ sagði Olafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra á
fréttamannafundi fjármálaráðu-
neytisins og skattyfirvalda í gær,
sem haldinn var til að kynna sérs-
takt átak við eftirlit með sjóð-
vélanotkun og sölureikningum í
verslunar- og þjónustufyrirtækj-
um. Ráðnir hafa verið sjö starfs-
menn til eftirlits á vegum skatt-
rannsóknarstjóra sem munu á
næstu sex mánuðum heimsækja
flest þau fyrirtæki sem eru sjóð-
vélaskyld eða hafa undanþágu
til að nota sölureikninga. Verður
ástand sjóðvéla og sölureikninga
kannað og fá þau fyrirtæki, sem
ekki hafa allt sitt á þurru 45
daga frest til að bæta úr van-
köntum. Ella verður þeim lokað
í samræmi við lög sem samþykkt
voru á alþingi fyrir áramót.
Sveitir skattrannsóknarstjóra
hafa þegar lokið fyrstu vinnuviku
sinni við eftirlit í fyrirtækjum.
Astand sjóðvéla og sölureikninga
var kannað í 241 fyrirtæki. Af þess-
um fyrirtækjum reyndust 105 vera
með allt sitt á hreinu, en athuga-
semdir voru gerðar við stöðu mála
í 136 fyrirtækjum. Þar af hefur 113
fyrirtækjum, eða um 47% þeirra
sem heimsótt voru, verið tilkynnt
með ábyrgðarbréfi að vanræksla
við úrbætur varði lokun að liðnum
45 daga fresti. Skattrannsóknar-
stjóri og fulltrúar ríkisskattstjóra
gátu þó ekki upplýst hvar ástandið
væri verst og hvort einhveijar teg-
undir þjónustu skæru sig úr.
Oft á tíðum eru gerðar athuga-
semdir við minniháttar atriði, s.s.
að skjár peningakassans sé ekki
sýnilegur viðskiptavininum eða að
uppsöfnunarteljari hans, sem sýnir'
þá heildarfjárhæð sem skráð hefur
verið í vélina frá upphafi, er ekki
í lagi. Sé söluskráningu hins vegar.
verulega áfátt verður fyrirtækjun-
um hins vegar lokað verði ekki
bætt úr innan 45 daga.
Að sögn fjármálaráðherra er
megintilgangur átaksins að tryggja
að sá grundvöllur bókhalds sem
felst í söluskráningu sé réttur og
aðgengilegur, þannig að minni
hætta sé á undanskoti frá skatti.
Fjármálaráðherra hefur þegar
sent bréf til allra þeirra sem kunna
að verða heimsóttir þar sem minnt
er á mikilvægi fullkominna sjóðvéla
og sölureikninga fyrir skattskil og
heilbrigði í viðskiptum, og forsvars-
menn fyrirtækjanna eru beðnir um
að taka vei á móti starfsmönnum
skattrannsóknarstjóra næstu vikur
og mánuði.
Alls eru á fjórða þúsund fyrir-
tæki sjóðvelaskyld og samtals eru
það um sex þúsund fyrirtæki, sem
nota sjóðvéiar eða sölureikninga
sem geta átt von á heimsókn eftir-
litsmanna skattrannsóknarstjóra á
næstunni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aage Lorange lék með hljómsveit sinni á opnunarkvöldinu við
mikla hrifningu gesta en hljómsveit hans lék reglulega á Borg-
inni á fjórða áratugnum.
Haukur Morthens kom fram með hljómsveitinni Orcestra Hótel
Borgar og sést hér heilsa Björgvini Schram, stórkaupmanni, sem
var daglegur gestur á Borginni árum saman, að eigin sögn.
Glæsileiki gamla tímans á Hótel Borg:
Andi 4. áratugarins endurvakinn
STEMMNING fjórða áratugar-
ins var endurvakin í endurnýj-
uðum salarkynnum Hótel
Borgar á föstudagskvöldið,
þegar dans- og veitingasalur
hótelsins, Gyllti salurinn, var
opnaður fyrir sérstaka boðs-
gesti. Um helgina var svo stað-
urinn opnaður almenningi
undir merkjum „glæsileika
gamla tímans.“ Er búið að
gera miklar breytingar á sal-
arkynnum og færa þær í sem
næst upprunalegt horf en hót-
elið var vígt árið 1930.
Hápunktur kvöldsins var að
flestra mati ieikur Aage Lorange
og hljómsveitar en hann er nú
orðinn 84 ára. Hljómsveit hans
var hljómsveit hússins á upp-
hafsárum Hótels Borgar og léku
Aage og félagar danstónlist þess
tíma á opnunarhátíðinni á föstu-
dagskvöldið.
„Aage spilaði afskaplega fal-
lega og það var gaman að sjá
hann spila,“ sagði Björgvin
Schram, stórkaupmaður, sem var
meðal boðsgesta. Björgvin sagðist
sjálfur hafa verið daglegur gestur
á Borginni í mörg ár allt frá opn-
un staðarins 1930. „Þá var ég
átján ára og fór á Hótel Borg
þegar ég fór út á lífið. Mér sýnist
að endurbæturnar verði góðar.
Það var mikil og góð stemmning
þarna,“ sagði hann í samtali við
Morgunblaðið.
Meðal boðsgesta á föstudags-
kvöldið voru margir af eldri kyn-
slóðinni sem rifjuðu upp anda fýrri
ára. Þar á meðal voru nokkrir
fyrrverandi starfsmenn hótelsins.
Gömlu slagaramir leiknir
HLJÓMSVEIT Aage Lorange
tengist Hótel Borg órjúfanleg-
um böndum í huga margra eldri
borgara, enda húshljómsveit; á
fjórða áratugnum í einu glæsi-
legasta hóteli Evrópu á þeim
tíma. Aage og félagar, sem
komnir eru á áttræðisaldurinn,
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Illjómsveit Aage Lorange eins og hún var skipuð sl. föstudags-
kvöld.
eru enn í fullu fjöri og léku
gömlu lögin þegar Hótel Borg
var opnuð um siðustu helgi eft-
ir miklar endurbætur á dans-
og veitingasalnum.
Aage sagði í spjalli við Morgun-
blaðið að þeir hefðu komið saman
félagarnir og ákveðið að leika
tónlist í þeim anda sem vinsæl
var á fjórða áratugnum. „Það er
langt síðan maður hefur verið í
svona orkestru, en það er sama,
þetta minnir á gamla tímann. Við
höfum nú komið saman af og til
en hljómsveitin er löngu hætt.
Þorvaldur er nú skólastjóri í tón-
listarskólanum í Hafnarfírði. Jón-
as Þórir og Skapti heitinn fóru í
Sinfóníuhljómsveitina og þá hætti
Lorange-bandið eins og það var
þá,“ sagði Aage.
Hljómsveitina sem lék á Borg-
inni um helgina skipuðu Aage á
píanó, Jónas Þórir Dagbjartsson
á trompett, Pétur Urbancik bassa,
Reynir Jónasson á harmonikku
og saxafóna, Þorvaldur Steingr-
ímsson á fiðlu, saxafón og klari-
nettu og Páll Bernburg. Þorvaldur
leikur auk þess gömul lög með
tríói sínu í kaffitímanum á Borg-
inni tvo daga í viku líkt og tíðkað-
ist í gamla daga.
Hljómsveitin lék þekkt lög frá
fjórða áratugnum og kenndi þar
margra grasa. Á efnisskránni
voru meðal annars Að ganga í
dans, tangó eftir Árna Björnsson
og gamlir slagarar eins og Olé
Guapa, Mambó, Happy Vampires,
Blue Moon og Sherry Pink.
Aage sagðist muna þegar
Borgin var opnuð. „Það átti að
opna hana 1. janúar 1930 en opn-
unin tafðist. Það voru hérna þý-
skir listamenn sem lokuðu Gyllta
salnum meðan þeir máluðu hann.
Þeir voru í eina viku að mála sal-
inn með gylltri málningu. Ég man
eftir því í hóteltíðindum sem komu
frá Norðurlöndum á þessum tíma
að Borgin var talin einn flottasti
staður í heiminum, hún var al-
gjört ævintýri," sagði Aage.
TIMKEN
keilulegur
NSLA PJ0NUSW
.. i n l * ^
pEI<l'
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8
SÍMI 84670