Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 29
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Aðstoðarritstjóri
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Bjarnason.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Þingfulltrúar og gestir við setningu Búnaðarþings í gær.
Aliðog
andrúmsloftið
75. Búnaðarþing sett í gær:
Grisjun sveitabyggðar þarf
ekki að boða byggðahrun
- sagði Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaðarfélags Islands
BÚNAÐARÞING var sett í 75. sinn í gærmorgun að viðstöddum for-
seta Islands, forsætisráðherra, landbúnaðarráðherra og öðrum gest-
um. Hjörtur E. Þórarinsson, formaður Búnaðarfélags Islands, setti
þingið, og ávörp fluttu Steingrímur J. Sigfússon, landbúnaðarráð-
herra, og Haukur Halldórsson, formaður Stéttarsambands bænda.
Þingstörf hófust síðan eftir hádegi með kosningu varaforseta, ritara
og starfsnefnda, auk þess sem lögð var fram skýrsla búnaðarmála-
stjóra um framvindu mála frá síðasta Búnaðarþingi. Þá var fjöldi
mála lagður fram í gær, en á þinginu að þessu sinni verður meðal
annars fjallað um tillögur að breytingu á félagskerfi landbúnaðarins,
leiðbeiningarþjónustuna, sölu framleiðsluréttar og innflutning á land-
búnaðarvörum. Búnaðarþing sitja 25 fulltrúar, sem kjörnir eru til
fjögurra ára í senn á 15 búnaðarsambandssvæðum, og er þetta fyrsta
þing þessa kjörtímabils.
*
A1 er notað um allan heim,
bæði í iðnríkjum og þró-
unarríkjum. Notkun þess hefur
hvarvetna farið vaxandi og á
eftir að aukast mikið þegar
efnahagur þróunarríkja batnar.
Mikilvægt er að þau lönd, sem
auðug eru af endurnýjanlegum
eða varanlegum auðlindum,
eins og vatnsorku og jarðhita,
taki að sér að framleiða sem
mest af áli og öðrum raforku-
frekum afurðum. Þetta er
nauðsynlegt svo komizt verði
hjá gróðurhúsaáhrifum, sem
vinnsla orku til þessarar fram-
leiðslu úr eldsneyti, kolum og
olíu, hefði í för með sér.
Framansagt er mergurinn
málsins í grein Jakobs Björns-
sonar, orkumálastjóra,
„Brundtlandsskýrslan og ál-
vinnsla á Islandi", sem birt var
hér í Morgunblaðinu miðviku-
daginn 13. febrúar sl. Orku-
málastjóri segir orðrétt:
„Álverið sem rætt er um að
reisa á Keilisnesi notar um
3.000 GWh af raforku á ári.
Ef sú raforka væri unnin úr
kolum, eins og algengast er að
vinna raforku í heiminum í
dag, losna um 2,6 milljónir
tonna af koltvísýringi út í and-
rúmsloftið. Frá kolaskautum
álversins sjálfs koma þar til
viðbótar um 300 þúsund tonn
á ári. Samtals 2,9 milljónir
tonna vegna slíks álvers, ef
raforkan til þess er unnin úr
kolum. Sé raforkan hins vegar
unnin úr vatnsorku, kjarnorku,
eða sólarorku í stað eldsneytis,
bætist enginn koltvísýringur
við vegna raforkuvinnslunnar,
einungis 300 þúsund tonn frá
álverinu sjálfu ...“
Fyrir liggur áð koltvísýring-
ur er mikilvirk kveikja svo-
nefndra gróðurhúsaáhrifa, sem
mjög er varað við, þótt hug-
myndir manna um þau hvíli að
ýmsu leyti enn á ótraustum
vísindalegum grunni. Kol-
tvísýringur myndast hvarvetna
þar sem brennt er efnum sem
innihalda kolvetni. Það er því
brennslan á kolum og olíu sem
setja þarf skorður með aukinni
nýtingu á annars konar orku.
Dvalartími koltvísýrings í
andrúmsloftinu er mjög langur,
mælist í öldum fremur en árum,
að því er fram kemur í grein
orkumálastjóra. Gróðurhúsa-
áhrif af völdum koltvísýrings
eru því hnattrænt vandamál,
sem snertir mannkyn allt,
fremur en staðbundinn um-
. hverfisvandi. Það varðar sam-
eiginlega framtíð mannkyns-
ins, að þessu leyti, hvort nauð-
synleg orkufrek framleiðsla
byggist á vatnsorku, sem ekki
leiðir til koltvísýringsmyndun-
ar, eða orku úr kolum og olíu,
sem þýðir milljónir viðbótar-
tonna af koltvísýringi út í and-
rúmsloftið.
Það skýtur því nokkuð
skökku við, að dómi orkumála-
stjóra, þegar aðalfundur Land-
verndar beinir því til íslenzkra
stjórnvalda að horfið verði frá
byggingu raforkuknúins álvers
hér á landi með tilvísun til
skýrslu Sameinuðu þjóðanna,
„Sameiginleg framtíð okkar“.
Það stríðir ekki gegn markmið-
um Brundtlandsskýrslunnar —
um sameiginlega framtíð
mannkynsins — heldur styður
þau, að beina orkufrekri fram-
leiðslu frá kolaorku að vatns-
orkunni. Öll eldsneytisnotkun
íslendinga nú veldur jafn mik-
illi koltvísýringsmyndun og
fylgja myndi framleiðslu á raf-
orku úr kolum til álvers af sömu
stærð og hugmyndir eru um
að reisa á Keilisnesi. „Það má
því segja að við sléttum koltv-
ísýringsreikning okkar við
sameiginlegt andrúmsloft jarð-
arbúa,“ segir orkumálastjóri,
„með því að taka að okkur slíkt
álver í stað þess að það væri
staðsett t.d. í Bretlandi eða
Þýzkalandi og raforkan unnin
úr kolum eins og önnur raforka
í þessum löndum“.
Við íslendingar höfum þegar
fullnýtt, jafnvel ofnýtt, helztu
auðlindir sjávar. Við framleið-
um búvörur umfram innanland-
sneyzlu. Þessvegna er það okk-
ur mikilvægt, til að tryggja
atvinnu- og afkomuöryggi í
landinu, að breyta óbeizluðu
vatnsafli landsins í störf, verð-
mæti og lífskjör, eftir því sem
fjárhagslegar forsendur standa
til og umhverfissjónarmið
leyfa. Hugmyndin um álver á
Keilisnesi samræmist þeim
sjónarmiðum, að beina beri
orkufrekum iðnaði frekar að
vatnsorku en orku olíu og kola,
til að hamla gegn auknum
koltvísýringi í andrúmsloftinu.
Ráðherrar hafa sent sín á
milli óblíðar kveðjur um verk-
lag við undirbúning orkusölu-
og álverssamninga, nú við upp-
haf kosningabaráttu. Vonandi
leggjast átök þeirra og ósætti
ekki á sveif með stríðinu við
Persaflóa við að seinka samn-
ingum og torvelda niðurstöðu
í þes§u mikilyagga. máli.
Hjörtur E. Þórarinsson, formaður
Búnaðarfélags íslands, minntist í
upphafi setningarræðu sinnar
þriggja fyrrverandi þingfulltrua,
sem látist hafa frá því síðasta Bún-
aðarþing var haldið. Það eru þeir
Þórarinn Kristjánsson, Holti í Þistil-
firði, Lárus Agúst Gíslason, Mið-
húsum í Hvolhreppi og Valdimar
Runólfsson, Hólmi í Landbroti.
Batnandi fjárhagsstaða
í ræðu sinni gat Hjörtur þess að
á undanförnum Búnaðarþingum
hefðu áhyggjur af erfiðri fjárhags-
stöðu Búnaðarfélagsins komið
fram, og jafnframt verið minnst á
þann óskadraum Búnaðarþings og
stjórnar félagsins að öðlast fjár-
hagslegt sjálfstæði að því marki að
geta unnið hinn félagslega þátt í
starfsemi Búnaðarfélagsins fyrir
eigin tekjustofn. Úr þessu hefði nú
ræst vegna ríflegri og raunsærri
fjárveitinga hins opinbera til Bún-
aðarfélags íslands, og einnig vegna
breytinga sem gerðar voru á síðasta
þingi á lögum sjóðakerfis landbún-
aðarins, sem opna Búnaðarfélags-
skapnum nokkurn aðgang að því
ijármagni sem bændur leggja fram
í gegnum framleiðsluna. Hann
sagði að þegar þetta færi að skila
sér hefði Búnaðarfélagið öðlast
nokkurt sjálfstæði, en það væri
ekki síður fagnaðarefni að með
þessari lagabreytingu hefði sá hluti
leiðbeiningarstarfsins sem er hjá
búnaðarsamböndunum fengið
nokkra leiðréttingu Ijármála sinna,
sem undanfarið hefðu verið bágbor-
in meðal annars vegna stórminnk-
andi búskaparlegra framkvæmda í
sveitum landsins.
Í ræðu sinni vék Hjörtur lítillega
að bráðabirgðaskýrslu sjömanna-
nefndar um ástand og horfur í
málefnum sauðfjárræktar, sem
Búnaðarþing mun fá í hendur og
láta álit sitt í ljós á. Hann sagði
að ástandið væri óneitanlega býsna
alvarlegt hvað sauðfjárræktina
varðar og menn óttast landauðn ef
byggð grisjast mikið.
„Það er ekki að ófyrirsynju, en
á það skal bent að örlög byggðanna
ráðast ekki síður að minnsta kosti
af gengi eða gengisleysi kauptúna
og kaupstaða í hverju héraði, þétt-
býlisstaðanna, sem flestir lifa af
útgerð og styðjast við sveitabyggð-
ir sem bakhjarl. Ef þessar héraðs-
miðstöðvar ná að efiast og dafna
eðlilega, geta haldið sínum hlut í
eigin fólksljölgun og tekið við
sveitafólki sem er umfram landbún-
aðarþarfir eða veitt því atvinnu-
möguleika, þá þarf grisjun sveita-
byggðar ekki endilega að boða
byggðahrun. Það er hugsanlegt að
við miklum um of fyrir okkur hætt-
ur af grisjun sveitabyggðar og
metum ekki sem skyldi jákvæð áhrif
af stöðugt batnandi samgöngum
og fjarskiptatækni, sem styttir
vegalengdirnar og skapar mönnum
öryggiskennd og möguleika á sam-
neyti við annað fólk þótt kílómetr-
unum milli bæja íjölgi. Mér finnst
ástæða til að slá aðeins létt högg
á bjartsýnisstrengi, en slá því ekki
föstu fyrirfram að fækkun atvinnu-
tækifæra um 1.000 ársverk í sauðfj-
árrækt þurfi endilega að þýða að
sveitabyggð, sem samsvarar 2-3
eða fleiri sýslum, leggist í eyði,“
sagði hann.
Dökk ský á himni
Hjörtur sagði í ræðu sinni að óneit-
anlega væri dökkt ský á himni hvað
varðar erfitt ástand í sauðfjárrækt-
inni út af markaðsmálum, og fleiri
dökk ský væru á himni sem stæðu
í sambandi við alþjóðlegar hræring-
ar í verslun og viðskiptum með land-
búnaðarvörur. „Þrátt fyrir það er
sem betur fer líka heilmikið af birtu
yfir búskaparmálum okkar. Það
árar vel í náttúrunni þó hann hafi
blásið helst til sterkt nýlega. Mál-
efni nautgriparæktar eru í nokkuð
góðu lagi og hrossarækt er í upp-
gangi. Sauðfjársjúkdómar virðast
vera á undanhaldi, ferðaþjónusta í
sveitum gengur vel og víst má
margt fleira fram telja. Talið er að
afkoma bænda sé síst á niðurleið
ef á heildina er litið, og ekki er að
heyra mikinn uppgjafartón í mann-
skapnum. Stéttin er að vísu nokkuð
gömul í þeim skilningi að meðalald-
urinn er of hár. Nýliðun er þó alltaf
nokkur, mismikil að vísu í hinum
ýmsu héruðum, og aðsókn að.bún-
Morgunblaðið/KGA
Hjörtur E. Þórarinsson, formað-
ur Búnaðarfélags íslands, I ræðu-
stól við setningu 75. Búnaðar-
þings.
aðarskólunum er mikil. Það er góðs
viti,“ sagði Hjörtur E. Þórarinsson.
Róttækar og erfiðar aðgerðir
Steingrímur J. Sigfússon, land-
búnaðarráðherra, vék meðal annars
að þeim tillögum sem sjömanna-
nefnd hefur skilað varðandi úrbæt-
ur í sauðfjárrækt, og sagði hann
þær að mörgu leyti fela í sér róttæk-
ar og erfiðar aðgerðir til lausnar
þess vanda sem sauðijárræktin
stendur nú frammi fýrir.
„Það liggur vitaskuld í augum
uppi að menn greinir á um þær
aðferðir sem lagðar eru fram, enda
vandinn mikill og snertir marga.
Þótt menn greini á um aðferðir
verða menn afttur á móti að gera
sér ljóst að undan því verður ekki
vikist að tala um hlutina eins og
þeir eru. Fyrirliggjandi staðreyndir
um vandann eru eitt, annað er á
hvaða hátt menn vilja taka á honum
og leita iausnar. Menn komast
hvernig sem allt veltur ekki fram
hjá því að innanlandsmarkaður fyr-
ir kindakjöt hefur dregist stórlega
saman frá því sem áður var. Það
lætur nærri að um 3.000 tonn hafi
tapast í sölusamdrætti innanlands,
og það á sama tíma og verð á út-
flutningsmörkuðum hefur hraþað
niður fyrir 30% af skilaverði úr
60-70% fyrir um áratug. Það fyrir-
komulag, það kerfi sem hér hefur
verið við líði hefur ekki verið fært
um að framkalla raunveruleg né
markviss viðbrögð framleiðenda né
afurðastöðva," sagði hann.
Afturhvarf til fortíðar
Steingrímur gat þess að í þeim
samdrætti sem átt hefði sér stað í
hefðbundnum búgreinum hefði.
áhugi mann á öðrum valkostum
aukist, og margt hefði vel til tek-
ist. „Möguleiki er á að um of hafi
verið einblínt á hin stóru verkefni,
sem skyldu veita heilum Ijölskyld-
um tekjur, í stað þess að þróa fram
iðnað og handverk sem er smærra
í sniðum og krefst ekki. eins mikill-
ar áhættu. Samtvinnun hefðbund-
inna búgreina með handve.rki, mat-
vælagerð, heimilisiðnaði og öðru
áþekku á án efa eftir að aukast frá
því sem nú er. Það má á vissan
hátt kalla það jákvætt afturhvarf
til fortíðar,“ sagði Steingrímur.
Þröng staða landbúnaðarins
í ávarpi sínu vék Haukur Hall-
dórsson, formaður Stéttarsam-
bands bænda, einnig að þeirri
stefnumörkun sem sjömannanefnd
hefur unnið að varðandi skipan
búvöruframleiðslunnar, og sagði
hann að þó mikið verk væri enn
óunnið í því sambandi mætti segja
að um merkan áfanga og tímamót
væri að ræða. Ljóst væri að sam-
dráttur í hefðbundnum búskap hér
á landi og átak til hagræðingar og
lækkunar vöruverðs stangaðist á
við sjónarmiðið um að dreifðri
byggð verði haldið uppi sém mest
óbreyttri nema ný atvinnutækifæri
byðust. Hann sagði að íslenskur
landbúnaður vildi leggja allt það
af mörkum sem í hans valdi stæði
til að byggð í dreifbýli fengi að
dafna, en staða landbúnaðarins í
þeirri baráttu væri hins vegar þröng
um þessar mundir. Afurðir hans
ættu í harðri samkeppni við önnur
matvæli, innlend sem erlend, og
þann iðnað sem vinnur úr þeim, og
í gangi væru alþjóðlegir viðskipta-
samningar, sem að líkindum leiddu
til fijálsari viðskipta með búvörur
en hingað til.
„Það er því óhætt að segja að
íslenskur landbúnaður þarf á öllum
möguleikum sínum að halda til hag-
ræðingar til að standast þá sam-
keppni sem bíður hans. Þær breyt-
ingar sem bíða íslensks landbúnað-
ar, líkt og víða um lönd, verða ekki
sársaukalausar. Á hinn bóginn er
augljóst að hans beið ekki neitt sem
kallast gæti óbreytt ástand svo
dæmi sé tekið. Því hefur um skeið
blasað við að finna þyrfti leið til
þess að aðlaga fullvirðisréttinn
þeirri markaðsstöðu sem orðin er
staðreynd án þess að það þrengi
kosti bænda svo óviðunandi sé. Sú
endurskipulagning, sem nú hefur
verið gerð tillaga um, stefnir að því
að virkja frumkvæði manna og
krafta til átaka, jafnframt því sem
tryggt verði eftir því sem tök eru
á, að þeir sem hverfa frá störfum
við búskap geti gert það með fullri
reisn,“ sagði hann.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRUAR 1991
29
Danska blaðið Weekendavisen:
EQuttaka Dana getur haft úrslita-
áhrif í stuðningi við Litháen
LEIÐARAHÖFUNDUR danska vikublaðsins Weekendavisen, sem gef-
ið er út af Berlingske hus, leggur eindregið til að Danir feti í fót-
spor Islendinga og ákveði að taka upp sljórnmálasamband við Lithá-
en. Hann segir að líklega sé ísland of lítið ríki til að geta eitt og sér
komið af stað bylgju pólitísks stuðnings við Litháen en hluttaka Dana
geti riðið baggamuninn.
Leiðarinn hefst á þessum orðum:
„Það er sjaldgæft að Danmörk leiki
stórt hlutverk í utanríkismálum.
Venjulega er það umheimurinn sem
verkar á okkur. En núna hefur
Danmörk einstakt tækifæri til að
gera undantekningu frá þessu. Við
getum breytt á þann máta að gera
vinveittu, lýðræðislegu nágrann-
aríki ómetanlegan greiða, hafa já-
kvæð áhrif á þróunina í næsta ná-
grenni okkar og vekja verðskuldaða
athygli á því sem við erum fulltrúar
fyrir og e.t.v. að ýta undir víðtæk-
ari alþjóðlega þróun sem er Evrópu
til hagsbóta. Allt þetta getum við
gert án umtalsmverðs kostnaðar.
Við eigum að taka upp fullgilt
stjórnmálasamband við hið lýðræð-
islega lýðveldi Litháen.“
Höfundur leiðarans segir síðar
að með því að skipa sendiherra í
Vilnius yrði komið til móts við óskir
forseta Litháens, þings og ríkis-
stjórnar. Ekki stoði fyrir danska
utanríkisráðuneytið að halda því
fram að Litháar skilji þögn Dana..
Það hafi ef til vill verið rétt fyrir
um það bil ári síðan en ekki leng-
ur. Síðar segir: „I vikunni ákvað
Alþingi, íslenska löggjafarsam-
kundan, með yfirgnæfandi meiri-
hluta að taka upp stjórnmálasam-
band við Litháen. Hvers vegna höf-
Utanríkismálanefnd:
Til Strassborg-
ar í boði Evr-
ópuþingsins
Utanríkismálanefnd Al-
þingis heldur til Strassborgar
í boði Norðurlandadeildar
Evrópuþingsins á miðviku-
dag. Heimsókninni lýkur á
föstudag.
í samtali við Jóhann Ein-
varðsson, formann utanríkis-
málanefndar, kom fram að fun-
dað yrði um samskipti EB og
EFTA auk þess sem rætt yrði
um evrópska efnahagssvæðið í
Strassborg á meðan á heimsókn-
inni stæði. Á föstudagsmorgun-
inn heimsækir utanríkismála-
nefndin Evrópudómstólinn í
Lúxemborg.
Fulltrúanefnd frá Evrópu-
þinginu kom hingað til lands
fyrir þremur árum og sagði Jó-
hann að með boðinu væri þingið
að endurgjalda heimsóknina.
Utanríkismálanefnd tók á móti
fulltrúanefndinni og átti við
hana viðræður.
um við ekki enn gert hið sama? I
utanríkisráðuneytinu er bent á að
ríkisstjórn Litháens ráði ekki eigin
landsvæði og að Danmörk viður-
kenni einungis ríkisstjórnir sem
hafi í raun slík yfirráð,
í fyrsta lagi er sú venja sem
menn vísa til ekki án undantekn-
inga. Við höfum árum saman viður-
kennt útlagastjórn Kampútseu sem
hafði takmarkaða fótfestu í landi
sínu og sem stenst ekki samanburð
við lýðkjörna stjórn Litháens hvort
sem mælikvarðinn er siðferðilegur
eða pólitískur."
I öðru lagi hafa kosningarnar í
Litháen gerbreytt stöðunni að mati
leiðarahöfundar. Sú staðreynd að
þær fóru friðsamlega fram með
þátttöku 85% íbúa landsins sýni að
ríkisstjórnin hafi í vissum skiiningi
völdin í landinu. Vissulegá hefði
Sovétstjórnin getað hindrað kosn-
ingarnar og hneppt þingmenn og
ríkisstjórn í varðhald. En varnar-
leysi ríkisstjórnarinnar andspænis
Rauða hernum jafngildi ekki því
að að hún stjórni ekki landinu að
miklu leyti. „Það eru mörg ríki
heims sem ekki gætu varist hernaði
voldugs nágranna en það dregur
ekki úr fullveldi þeirra eða því
hversu þau verðskuldi stjórnmála-
samband við umheiminn."
í leiðararnum er þeim röksemd-
um Uffe Ellemanns-Jensens ut-
anríkisráðherra, að sendiherra Dan-
merkur í Litháen myndi aldrei fá
vegabréfsáritun í Moskvu, vísað á
bug. Bæði gætu Danir samt sem
áður tekið við sendiherra Litháens
og eins mætti reyna að koma manni
inn í landið frá Póllandi. Sovét-
stjórnin yrði að beita svo róttækum
meðulum til að hindra þetta að óvíst
væri hvort hún gripi til þeirra. Loks
mætti hugsa sér að sendiherrann
hefði einfaldlega aðsetur í Kaup-'
mannahöfn eins og alvanalegt væri
þegar um fjarlæg lönd væri að
ræða.
Um áhrif slíkrar ákvörðunar seg-
ir höfundur: „Ef Danir færu að
dæmi íslendinga er ekki útilokað
að aðrir fylgdui í kjölfarið. ísland
er líklega of smátt til að koma af
stað þeirri bylgju pólitísks stuðn-
ings sem Litháar hafa lengi beðið
eftir og sem þeir hafa verðskuldað
enn lengur. Danmörk, sem bæði á
aðild að NATO og EB, gæti með
smáheppni orðið meginhvatinn að
slíku.“
Börn að leik.
Ályktun fulltrúa 12 leikskóla í Reykjavík:
Réttur barna til vistar á
leikskóla ekki tryggður
Málefni leikskóla heyri undir ráðuneyti menntamála
FUNDUR fulltrúa tólf leikskóla
í Reykjavík hefur samþykkt
ályktun þar sem lýst er furðu á
að öllum börnum sé ekki tryggð-
ur réttur til leikskólavistar í
frumvarpi um leikskóla sem lagt
hefur verið fram á Alþingi. Jafn-
framt er lýst yfir stuðningi við
að málefni leikskóla heyri undir
ráðuneyti menntamála.
Forseti sameinaðs þings:
Ekki var sótt um vega-
bréfsáritun til Litháen
FORSETI sameinaðs þings segir að ekki hafi verið sótt um vega-
bréfsáritun til Litháen vegna boðs þaðan um að fulltrúar Alþingis
yrðu viðstaddir hátíðahöld í Litháen 16. febrúar sl. á fyrrum þjóðhát-
íðadegi landsins.
Guðrún Helgadóttir, forseti
sameinaðs þings, segir að boðið
hafi komið mjög seint og ýmislegt
hafi gert erfitt að verkum að taka
því. Þó hafi verið samþykkt að
senda tvo fulltrúa til að vera við-
stadda hátíðahöldin. í millitíðinni
hafi hins vegar Alþingi samþykkt
ályktun um Litháen sem fullvalda
ríki og í kjölfar þess hafi ekki ver-
ið sótt um vegabréfsáritun. „Hvar
áttum við að sækja um vegabréfsá-
ritun?,“ sagði Guðrún Helgadóttir.
„Það var einfaldlega ákveðið að
gera þetta ekki af ýmsum ástæð-
um. Landsbergis var hins vegar
gerð grein fyrir að af þessu gæti
ekki orðið.“
Ályktunin er svohljóðandi í heild:
„Við lýsum furðu okkar á því að
lagt sé fram á Alþingi frumvarp
um leikskóla sem sérstakt skólastig
án þess að samhliða sé tryggður
réttur allra barna til skólans. Við
bendum á að í frumvarpinu eins og
það kom frá forskólanefndinni var
ákvæði sem tryggði öllum á leik-
skólaaldri rétt til hans.
Við lýsum yfir stuðningi við leik-
skóla sem forskóla fyrir öll börn sem
heyri einungis undir ráðuneyti
menntamála.
Við styðjum tillögur forskóla-
nefndarinnar um ríkisframlag til
uppbyggingar leikskóla og teljum
sjálfsagt að ríki og sveitarfélög
sameinist þannig um að tryggja
öllum börnum rétt til leikskóla.
Við lýsum yfir undrun okkar á
því að alþingismenn, aðrir en fé-
lagsmálaráðherra og menntamála-
ráðherra, hafi ekki látið þetta mik-
ilsverða málefni barna og foreldra
til sín taka og hvetjum þá því til
að taka opinberlega afstöðu til
málefnisins.
Við félagsmenn í hinum ýmsu
samtökum launþega og atvinnurek-
enda, skorum á samtök okkar að
beita sér fyrir hagsmunum okkar í
máli þéssu."
43 fulltrúar foreldrafélaga eftir-
talinna tólf leikskóla standa að
ályktuninni: Arnarborgar, Álfta-
borgar, Gullborgar, Jöklaborgar,
Hálsaborgar, Hálsakots, Kletta-
borgar, Kvistaborgar, Langholts,
Lækjaborgar, Valhallar og Aspar.
Suðurnesjamenn:
Vilja KEF
ístaðREK
FEÐAMÁLANEFND Suðurnesja
hefur óskað eftir því við Flugleið-
ir og SAS að flugmiðar í milli- %
landaflugi verði skráðir á
Keflavíkurflugvöll (KEF) í framt-
íðinni en ekki Reykjavíkurflugvöll
(REK) eins og tíðkast hefur.
Ástæður fyrir ósk þessari er mik- "
ill misskilningur flugfarþega um hvar
flugvöllurinn sé staðsettur gagnvart '
þeim dvalarstöðum sem viðkomandi.
ferðamaður hefur pantað eða ætlar
að dvelja á, segir í gögnum frá fundi
ferðamálanefndar.