Morgunblaðið - 19.02.1991, Side 37
ferð og spratt síðan upp aftur og lét
ekki skrámur og sár á sig fá heldur
hélt leiknum áfram. Hann gerði
miklar kröfur til sjálfs sín hvort sem
var í starfi eða leik og lagði stundum
meira á sjálfan sig en góðu hófi
gegndi.
Það ber vott um sérstakt lundar-
far Magga að þrátt fyrir þessa sjálfs-
hörku var hann ætíð léttur í lund,
fjörmikill og gat kynnst hveijum sem
var. Hann lét sér ekki mislíka við
aðra, heldur tók hvequm manni eins
og hann kom fyrir. Það urðu allir
vinir hans.
Maggi var alltaf til í uppátæki og
prakkaraskap. Eitt sinn þegar við
ókum í næsta byggðarlag til að fara
í sund komum við að lokaðri laug.
Við fundum heimili sundlaugarvarð-
arins og fengum hann til að opna
fyrir okkur laugina og sagðist Maggi
ætla að setja íslandsmet í 50 m
bringusundi. Við sögðum að hann
væri besti sundmaður landsins en
hefði aldrei fengið að keppa í lög-
legri keppnislaug. Vörðurinn féllst
að lokum á það, opnaði fyrir okkur
og tók tímann á mettilraun Magga.
Ekki tókst að slá íslandsmetið í það
skipti en reyndar var Maggi knár
sundmaður.
Magnús út8krifaðist úr eðlisfræði-
deild vorið 1984. Hann lét langþráð-
an draum rætast og réði sig á sjó
næsta ár. Okkur félaga sína hitti
hann reglulega alla tíð. Hann var
virkur þátttakandi í Veiðileysufélag-
inu sem er óformlegur félagsskapur
gömlu bekkjarfélaganna og hefur
það að markmiði að safna þeim sam-
an einu sinni á sumri og fara í veiði-
ferð, helst í óbyggðir. í þeim ferðum
sem Maggi tók þátt í naut hann sín
vel og var hrókur alls fagnaðar.
Maggi fór til Tromsö í Noregi
haustið 1986 til náms í sjávarútvegs-
fræði. Hann hafði fullar hendur fjár
eftir að hafa verið á sjó nokkurn
tíma og það kom sér vel því hann
vildi ekki vera neinum háður og var
frábitinn því að taka námslán. Hann
fjármagnaði síðan alla tíð námið
mestmegnis sjálfur með því að fara
í togaratúra á sumrin og tók sér
jafnvel frí úr skólanum í því skyni.
Námið í Tromsö gekk vel og þar
naut Maggi góðs af sinni eðlislægu
þekkingu og áhuga á öllu sem tengd-
ist sjávarútvegi.
Nú um jólin kom Magnús heim
og notaði þá tækiíærið til að heilsa
upp á marga vini sína. Hann ætlaði
að fara í einn róður eftir áramótin
og ná sér í aura áður en hann héldi
aftur til Tromsö. Þegar loðnan brást
varð ekkert úr þeim fyrirætlunum
og hann dreif sig því fyrr í skólann
en hann hafði ætlað.
Það varð okkur ósegjanleg harma-
fregn að Maggi hefði dáið úr hjarta-
bilun án nokkurs fyrirvara. Maður
sem alla tíð hafði verið heill heilsu.
Foreldrum hans og aðstandendum
vottum við okkar dýpstu samúð og
vonum að Guð gefi þeim styrk til
að standa af sér þetta mikla and-
streymi.
Bekkjarfélagar frá
Laugarvatni
Við höfum kvatt elskulegan
frænda okkar og vin, Magnús Krist-
jánsson, nema í sjávarútvegsfræð-
um við háskólann í Tromsö í Nor-
egi, þaðan sem hann var skyndilega
kallaður á brott frá okkur. Það er
erfitt að trúa því að svo hraustur
drengur sem Magnús var hafi svo
skyndilega verið kallaðu á brott,
en hans hlýtur áð hafa beðið mikil-
vægt verkefni fyrir handan.
Þessum skyndilega sonar- og
vinamissi óraði engan fyrir, er við
áttum saman samverustundir um
síðustu jól og ræddum um fram-
tíðaráform.
Minnigarnar um Magnús eru
margar í hugum okkar og verða
ekki festar á blað með nokkrum
orðum, því orð verð^ smá og mátt-
vana á slíkri sorgarstundu, en minn-
ingarnar varðveitast í hugum okkar
allra um elskulegan og góðan
dreng, hvort sem var í leik eða
starfi. Við viljum þó minnast þeirra
góðu stunda sem við áttum saman
er hann dvaldi í sveit hjá afa, ömmu
og frænda á Nesjavöllum með öllum
sínum krafti og dugnaði. Oft bað
ég Magnús um að ganga frá ýmsum
verkefnum er hann dvaldi á Nesja-
völlum, sem hann leysti af hendi
með mikilli alúð, en hafði oft á orði:
„Ég hefði nú átt að gera betur.“
MORGÓÍíBLkkilÐ ÍrÍÐJÚOÁGIÍr: 19. FfetíRyÍBlióðÍ -
Vandvirknin og samviskusemin var
slík að allt varð að gera strax og
sem best.
Magnús hafði valið sér starfs-
vettvang, gerði það reyndar ungur
að árum með áhuga á sjávarútvegi
og nú sl. ár með frábærum náms-
árangri við Háskólann í Tromsö
með 1. einkunn í öllum fögum, þótt
Magnús hafi ekki haft orð á því
sjálfur, nema með þeim orðum „yið
félagarnir erum allir nokkuð jafnir".
Námshæfileikar Magnúsar voru
ekki hans eini eiginleiki, hann var
hvers manns hugljúfi, hjálpsamur
með afbrigðum, vinnusamur og
vandvirkur. svo af bar, enda var
beðið eftir honum til starfa hvar
sem menn höfðu kynnst honum.
Söknuður okkar er mikill og er
því fjölskyldan harmi lostin yfir
þessum þungbæra og mikla missi
sem rofið hefur stórt skarð enn og
aftur í fjölskylduna. Samt reynum
við að láta björtu og góðu minning-
arnar um elskulegan frænda okkar
og vin lýsa okkur fram á veginn
og biðjum algóðan Guð að varðveita
hann og geyma í nýjum heimkynn-
um.
Elsku Erla og - Kristján, megi
góður Guð gefa ykkur og okkur
öllum styrk á þessum sorgartímum
til að varðveita minninguna um
elskulegan og góðan dreng.
Lát gróa sorgarsár,
lát sorgar þorna tár,
lát ástarásján þína
mót öllum þjáðum skína.
(H. Hálfd.)
Ómar Gaukur, Ágústa og Tómas.
PIÐ GETIÐ SKIPT UM
Sjálfvirku Danfoss ofnhitastillarnir endast í
áratugi. En steinefni í heita vatninu, sem setjast á
lokann, geta valdið því að þeir bregðist seint við
hitabreytingum og um leið verður nýting
vatnsins lakari.
Oft dugar að skipta um þéttingu og til þess
þarf ekki einu sinni að taka vatnið af kerfinu
heldur aðeins að skrúfa fyrir stofnleiðslu
hitaveitunnar til öryggis. Til að vinna verkið þarf
skrúfjárn og skiptilykil - svo einfalt er það.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, SlMI 624260
VERSLUN - RAÐGJÖF
6
Cc
<
Sjampó og
hárnæring;
gefiir hárinu
nýtt líf.
Hárprótín'-
eykur
hárvöxt,
stöðvar hárlos.
Vítamín fyrir
hár, húð
og neglur.
E-vítamín
krem og
E-vítamín
húðmjólk;
nærir,
styrkir og
yngir húðina.