Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991
7. leikvika -16. feb. 1991
Röðin : 112-XX2-121 -1X2
fclk í
fréttum
12 réttir:
11 réttir:
10 réttir:
HVER VANN ?
1.497.737- kr.
0 raöir komu fram og fær hver: 0 - kr.
4 raöir komu fram og fær hver: 67.746 - kr.
113 raöir komu fram og fær hver: 2.398 - kr.
Þrefaldur pottur - um næstu helgi!!
Dags. 19.2. 1991 NR. 207
VÁKORT
4507 4200 0000 8391
4507 4500 0005 3774
4543 3700 0000 2678
4929 541 675 316
4548 9000 0021 2540
4548 9000 0031 6002
Afgreiðslufólk vinsamlegast takið ofangreind kort
úr umferð og sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000,-
fyrir að klófesta kort og vísa á vágest.
VISA ISLAND
Glóóarsteiktur lax
aó hætti hússins
Velkomin á Hard Rock Cafe,
sími 689888
m
■’O fO ló CO Góöan daginn!
, Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Sigurður Pétursson (t.v.) og Arnar Már Olafsson í húsnæði Golfskólans á Lynghálsi.
GOLF
„Gamall draumur að stofna
golfskóla“
Sigurður Pétursson, fyrrum ís-
landsmeistari í golfi og kenn
ari hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, og
Arnar Már Ólafsson, kennari hjá
Golfklúbbnum Keili, hafa stofnað
golfskóla að Lynghálsi 3. Þar gefst
mönnum kostur á að læra helstu
undirstöðuatriði íþróttarinnar eða
fara í einkatíma. Þeir sem telja sig
fullnuma geta fengið að æfa sig,
en skólinn bætir úr biýnni þörf fyr-
ir vetraraðstöðu fyrir íslenska kylf-
inga.
„Það er gamall draumur að stofna
goífskóla og ég hef gengið með það
lengi í maganum," sagði Sigurður
Pétursson. Hann segist hafa komist
á bragðið er hann kenndi í
Hvammsvík síðasta sumar. „Ég tók
svo við af John Drummond hjá GR
og kann ákaflega vel við mig. Þetta
er skemmtilegt starf og ég fæ tæki-
færi til að eyða öllum deginum í
helsta áhugamálið," sagði Sigurður.
Arnar Már hefur lokið prófi frá
kennaraskóla sænska golfsam-
bandsins og síðasta verkefni hans
var að fara til Flórída í janúar með
Gísla Sigurðsson, einn sterkasta
kylfinginn í öldungaflokki, sem
nemanda. „Það var mjög skemmti-
legt og árangursríkt nám og á eftir
að koma sér vel,“ sagði Arnar.
Þeim ber saman um að gott sé
að hafa tvo kennara: „Við getum
oft gefið tvær lausnir á sama vanda-
málinu og við fáum erfiða „sjúkl-
inga“ er gott að geta farið yfir þá
með einhveijum," sagði Arnar.
Auk byrjendanámskeiða er hægt
að fá einkatíma fyrir lengra komna,
kennslu með notkun myndabanda
og fleiri sem getur komið kylfingum
að gagni til að laga sveifluna fyrir
sumarið.
„Þetta er án efa besta aðstaða
sem íslenskir kylfingar hafa að vetri
til en við stefnum lengra," segir
Sigurður. „Takmarkið er að fá stórt
hús þarsem hægt verður að setja
glompur og ýmislegt fleira sem er
á alvöru golfvelli. En það sem skipt-
ir mestu máli er að menn geta sleg-
ið og það er mikilvægt að halda
sveiflunni við yfir veturinn,“ sagði
Sigurður.
I golfskólanum er einnig hægt
að kaupa kylfur en þar er að finna
einkasöluumboðið fyrir Ping golf-
vörur, auk Slazinger.
Morgunblaðið/Jón Gunnar Gunnarsson
Frá grímuballi Hafnarskóla.
HÖFNIHORNAFIRÐI
Grímuball á sprengidagskveldi
Eftir saltkjöt og baunir að góðum
sið brugðu nemendur Hafnar
skóla sér í dulargervin og héldu til
grímudansleiks í íþróttahúsinu.
Kenndi þar ýmissa grasa í vali
klæða og tísku. Skordýr voru á
sveimi ínnan um geimverur og
lassaróna. Glæsipíur svifu um gólf
með bros á vör og herramenn tóku
ofan. En lýðræðislega var staðið
að vali frambærilegasta búningsins
-og kusu viðstaddir hann. Dreki
nokkur fór þar í fararbroddi. Þá
heiðurshjónin Leppalúði og Grýla.
Brúðhjónin urðu svo í þriðja sæti á
undan Bílnum, Lundanum og Rauð-
hettu litlu.
- JGG.