Morgunblaðið - 19.02.1991, Page 55
jefil ílAÚHSMr-l .ei JIUÐACIULOTH4 SISAJaVIUOflOM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚXRTWI
hc,
5o
. Morgunblaðið/Gísli Úlfar.
Efri röð frá vinstri: Fríða Rúnarsdóttir, Harpa Stefánsdóttir, Fjóla Benný Víðisdóttir. Neðri röð: Sigur-
björg Guðlaugsdóttir, Þórdís Þorleifsdóttir, Martha Lilja Marteinsdóttir.
Fegurðardrottnmg Vestfjarða:
Sex stúlkur keppa
Isafirði.
SEX vestfirskar fegurðardísir
hafa nú hafið undirbúning að
keppninni um fegurðardrottn-
ingu Vestfjarða, en keppnin fer
fram á ísafirði 16. mars.
Enn sem fyrr er það Dagný Björk
Pjetursdóttir danskennari sem hef-
ur veg og vanda af keppninni en
með henni í framkvæmdastjóm eru
Sigríður Jóhannsdóttir og Inga
María Guðmundsdóttir. Stúlkumar
sem taka þátt í keppninni eru Fjóla
Benný Víðisdóttir 18 ára úr Bolung-
arvík, Þórdís Þorleifsdóttir 18 ára
frá ísafirði, Selma Stefánsdóttir 19
áísafirði
ára frá ísafirði, Martha Lilja Mar-
teinsdóttir 18 ára frá ísafirði, Fríða
Rúnarsdóttir 19 ára úr Bolungarvík
og Sigurbjörg Guðlaugsdóttir 23
ára úr Bolungarvík. Keppnin fer
fram á Krúsinni á Isafirði.
- Úlfar.
Háskólatónleikar
í Norræna húsinu
STEFÁN Arngrímsson bassi og
Bjarni Þór Jónatansson píanó-
leikari koma fram miðvikudag-
inn 20. febrúar kl. 12.30 á Há-
skólatónleikum.
Stefán Arngrímsson stundaði
söngnám við Söngskólann í
Reykjavík 1983-88 og lauk þaðan
8. stig prófi í söng vorið 1988. I
framhaldi af því hélt hann til Mílanó
á Ítalíu og var þar við framhalds-
nám í óperusöng hjá maestro Pier
Miranda Ferraro.
Stefán er einn af meðlimum
Óperusmiðjunnar og mun taka þátt
í ýmsum verkefnum með þeim á
næstunni.
Bjarni Þór Jónatansson hóf nám
við Tónlistarskóla Eyrarbakka hjá
Ólafi Vigni Albertssyni og Karli
Sigurðssyni. Síðar stundaði hann
nám við Tónlistarskólann í
Reykjavík þar sem kennarar hans
voru Hermína S. Kristjánsdóttir,
Jón Nordal og Árni Kristjánsson.
Einnig hefur hann lært hjá prófess-
or Philip Jenkins í London. Undan-
farin ár hefur Bjarni starfar sem
kennari við Nýja Tónlistarskólann
í Reykjavík. (Úr fréttatilkynningu.)
Stefán Arngrímsson
Nemendur Fellaskóla dönsuðu I sólarhring um síðustu helgi til þess að safna fyrir nýjum tækjum í
diskótekið og til að komast í skíðaferðalag.
Dansað í sólarhring
NEMENDUR í Fellaskóla
Reykjavík tóku sig til uin síðustu
helgi og dönsuðu í heilan sólar-
hring. Tilefnið var að safna í
ferða- og tækjasjóð og nú er ver-
ið að safna saman þeim áhcitum
sem bárust.
Það voru fjörutíu nemendur úr
eldri deildum Fellaskóla, krakkar á
aldrinum 13 til 15 ára, sem stóðu
fyrir maraþondansinum. Fyrstu
sporin í Fellahelli voru stigin klukk-
an 18 á föstudag og dansað var til
klukkan 18 á laugardag. Mikið fjör
ríkti og greinilegt að krakkarnir
höfðu gaman af.
Þó svo dansinn sé búinn þá er
nóg að gera við að safna saman
þeim áheitum sem krökkunum bár-
ust frá foreldrum og fyrirtækjum.
Verið er að safna fyrir nýjum tækj-
um í diskótekið og munu þau kosta
um 400 þúsund. Einnig er ætlunin
að nota eitthvert fé til skíðaferða-
laga í vetur, þegar færi gefst. Hugs-
anlega verður hluti þess sem safn-
aðist notað til lengri ferðar í vor,
en það hefur ekki verið ákveðið enn.
Genfarverðlaun Evrópu:
Samkeppni um
sj ónvarpshandrit
Ríkissjónvarpið efnir til samkeppni um framlög íslands til starfs-
launaveitingar Genfarverðlauna Evrópu, sem evrópskar sjónvarps-
stöðvar og menningarstofnanir standa sameiginlega að. Samkeppn-
inni er ætlað að koma sjónvarpshandritum ungra höfunda á fram-
færi við evrópska sjónvarpsáhorfendur.
Þau skilyrði eru sett að þáttak-
endur séu ekki eldri en 35 ára.
Þeim ber að skila drögum að hand-
riti á 5-10 blaðsíðum ásamt ítar-
legri efnis- og persónulýsingu.
Einnig skulu þeir láta fylgja 1-2
blaðsíðna sýnishorn af handrits-
texta og eigið æviágrip.
Fyrirkomulag samkeppninhar
er á þann veg að í fyrstu umferð
eru veitt starfslaun til allt að tíu
þáttakenda sem sent hafa inn
áhugaverðustu frumdrögin að
sjónvarpshandriti. Starfslaunin
nema 25.000 svissneskum frönk-
um, eða sem svarar rúmlega einni
milljón ÍKR. Ári síðar hreppir einn
hinna tíu höfunda Heiðursverðlaun
fyrir handrit er dómnefnd telur
frambærilegast. í dómnefndinni
eiga sæti níu manns en í forsvari
hennar er forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir. Skilafrestur er til
15. maí nk. og skal framlögum
skilað til Innlendrar dagskrár-
deildar Sjónvarpsins, Laugavegi
176.
1. Combi borðsög með bútlandi og plötulandi,
3 hp motor.
2. KGS 300 bútsög með standi og löndum, 2,2 hp.
3. PK 250 plötusög með forskurðarblaði, 4,2 hp
og 4 hp, 3 x 380 og 5.5 hp 3 x 380.
4. Bandsög, gerð 315, 0.75 hp.
5. Hefill (afréttari og þykktarhefili), 4-2 hp.
6. Spónsog fyrir eina vél, afköst 10.000 m3.
7. Spónsog, afköst 15.000 m3.
8. Fræsari 3 x 380, 4 hp, með hallanlegum
spindli.
9. Loftpressur, margar gerðir.
ELECTRA BECKUM UMBOÐIÐ -
BSDðltG sf.
SMIÐJUVEGI 11, KÓPAVOGI, SÍMI 91-641212.