Morgunblaðið - 19.02.1991, Síða 56
ÞRIÐJUDAGUR 19. FEBRÚAR 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
Tvö manndráp framin í Reykjavík um helgina og maður særði föður sinn með hnífi;
Andlega vanlieilir einstakl-
ingar játa á sig voðaverkin
Kona sem áður hefur gerst sek um manndráp varð sambýlismanni sínum að bana
TVÖ manndráp voru framin í Reykjavík um helgina. 24 ára gömul
kona, Hafdís Hafsteinsdóttir, Melgerði 2, Kópavogi, fannst látin á
meðferðarheimili þroskaheftra við Njörvasund aðfaranótt laugardags-
ins. 28 ára maður, cinnig þroskaheftur, hefur játað að hafa orðið henni
þar að bana með hnífi.
Um klukkan 17 á sunnudag hringdi á Klcppsspítala 51 árs kona, sem
1975 var talin ósakhæf og dæmd til öryggisgæslu fyrir manndráp. Hún
kvaðst hafa orðið tæplega 48 ára sambýlismanni sínum, Óskari Þórðar-
syni, að bana með hnífi á heimili þeirra í Bleikargróf 25 í Reykjavík.
Um miðnætti á föstudagskvöld stakk 24 ára maður, sem átt hefur
við geðræn vandamál að stríða, 57 ára gamlan föður sinn í brjósthol
með hnífi og skildi hann eftir í blóði sínu á heimili þeirra í Austurbæn-
um. Faðirinn gat, kallað eftir aðstoð í síma en var liætt kominn þegar
Iögreglu og sjúkralið bar að. Hann er úr lífshættu.
86% fall í
almennri
lögfræði
ATJÁN þeirra 128 laganema á
fyrsta ári sem þreyttu próf í al-
mennri lögfræði í Háskóla ís-
lands í janúar náðu tilskilinni
einkunn, 7,0. Fallprósentan er
því um 86 prósent.
Sigurður Líndal, prófessor í al-
mennri lögfræði, segir að tölur um
fall í þessari grein séu ekki mark-
tækar fyrr en að loknum endurtekn-
ingarprófum í vor og eins ættu eft-
ir að koma tíu úrlausnir úr sjúkra-
prófum. „Ég býst við að þetta sé
heldur lakari útkoma en verið hefur
áður án þess að ég hafi nokkuð
-Jfc athugað það sérstaklega. En ég
held nú að það komi ekki endanleg-
ar niðurstöður fyrr en í vor,“ sagði
Sigurður.
Hafnarfjörður:
Bensínstybba
fannst í nokkr-
um húsum
BENSÍNSTYBBA fannst í gær í
nokkrum húsum í Hvaleyrarholt-
inu í Hafnarfirði. Ástæðan var sú
að maður hafði hellt bensíni i nið-
urfall og kom lyktin upp um nið-
urföll í nærliggjandi húsum.
Nokkir íbúðareigendur á Hval-
eyrarholtinu höfðu samband við lög-
regluna í Hafnarfirði og kvörtuðu
undan bensínstybbu í húsum sínum.
Þegar lögreglan fór að kanna málið
kom í Ijós að maður, sem var að
taka bensíntank undan bíl til við-
gerðar, hafði losað bensínið í niður-
fallið.
Lögreglan í Hafnarfirði vildi koma
því á framfæri að fólk ætti ekki að
__losa slíka vökva í niðurföllin hjá sér.
Það gæti skapað óþægindi eins og
gerðist í þessu tilviki.
113 fyrirtækj-
um hótað lokun
SJÖ starfsmenn hafa verið ráðnir
til eftirlits á vegum skattrannsókn-
arstjóra til sérstaks eftirlits með
sjóðvélum og sölureikningum. Þeg-
ar hefur 241 fyrirtæki verið heim-
sótt og hefur 113 þeirra verið hótað
lokun verði ekki gerðar úrbætur
innan 45 daga.
Sjá ennfremur bls. 23.
í gærkvöldi var í undirbúningi
krafa um gæsluvarðhald og geðrann-
sókn yfir 51 árs konunni sem banaði
sambýlismanni sínum. Allt hefur
fólkið gengist við þeim verkum, sem
þau eru grunuð um. Maðurinn, sem
varð ungu konunni að bana, hefur
verið úrskurðaður í gæsluvarðhald
til 1. apríl og skal hann einnig sæta
geðrannsókn. Þeim úrskurði hefur
verið áfrýjað til Hæstaréttar. Maður-
inn, sem lagði til föður síns, fannst
síðdegis á sunnudag í húsi í
Reykjavík. Hann hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 27.
mars og skal sæta geðrannsókn. í
gærkvöldi voru þau öll vistuð í
Síðumúlafangelsi.
Klukkan rúmlega fimm síðasttið-
inri sunnudag var lögregla kölluð að
Bleikargróf 25 í Reykjavík. Skömmu
áður hafði 51 árs gamla konan hringt
á Kleppsspítala og sagt hjúkrunar-
konu þar að hún hefði orðið sambýlis-
manni sínum að bana. Þegar að var
komið var maðurinn látinn og hafði
verið stunginn í kviðinn. Konan var
á staðnum og játaði að hafa orðið
honum að bana.
Kona þessi varð manni að bana í
húsi við Suðurlandsbraut í Reykjavík
25. október 1974. Þá var hún talin
ósakhæf og var árið 1975 dæmd til
öryggisgæslu á viðeigandi stofnun.
Hún var Jeyst undan öryggisgæslu
1985. Á öryggisgæslutímanum
dvaldi hún m.a. um skeið á stofnun
í Svíþjóð. Á síðustu tveimur árum
hefur hún að minnsta kosti tvisvar
sært menn með því að leggja til
þeirra hnífi; í annað skiptið var um
að ræða þann mann sem hún hefur
nú banað. Þá hefur hún verið kærð
fyrir ofsafengna hegðun og fyrir að
hafa í hótunum við fólk.
Seint á síðasta ári hélt þroska-
hefti maðurinn, sem nú hefur orðið
mannsbani, barnungum pilti hjá sér
klukkustundum saman á leikvelli við
Barónsstíg. Barnið fannst heilt á
húfí um miðja nótt eftir að björgun-
arsveitir höfðu verið kallaðar út til
leitar.
Eins og greir.t var frá í Morgun-
blaðinu á sunnudag fannst unga
konan látin í herbergi banamanns
síns á sambýli þroskaheftra við
Njörvasund aðfaranótt laugardags-
ins. Hennar hafði, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins, áður. verið
leitað í húsinu en árangurslaust.
Hennar hafði verið saknað frá heim-
ili sínu í Kópavogi frá því á fimmtu-
dag. Við ítrekaða leit, sem gerð var
þar sem sterkar líkur þóttu benda
til að hún hefði verið í húsinu, fannst
hún látin klukkan tæplega þijú að-
faranótt laugardagsins. Áverkar eftir
lagvopn voru á líki hennar.
Mikill munur á fjölda kennara og leiðbeinenda eftir umdæmum:
HlutfaU gnmnskólakennara 97% í
Reykjavík en 52% á Vestfjörðum
HLUTFALL leiðbeinenda og kennara í skólum landsins er mjög
misjafnt eftir fræðsluumdæmum. Þannig eru 97,24% stöðugilda í
grunnskólum Reykjavíkur í höndum grunnskólakennara en 2,76%
í höndum leiðbeinenda. I Vestfjarðaumdæmi er hlutfall grunnskóla-
kennara hins vegar 52,18% og leiðbeinenda 47,82%. Kemur þetta
fram í svari menntamálaráðherra við fyrirspurn frá Danfríði Skarp-
héðinsdóttur, þingmanni Kvennalistans.
Á öllu landinu er hlutfall kenn- kennara mur. lægra, 77,11% íVest-
ara í grunnskólum 82,66% en leið-
beinenda 17,34%. Hæst er hlutfall
kennara í Reykjavík, 97,24%, en í
Reykjanesumdæmi 88,04%. Utan
Reykjavíkursvæðisins er hlutfall
urlandsumdæmi, 52,18% í Vest-
fjarðaumdæmi, 60,8% á Norður-
landi vestra, á Norðurlandi eystra
73,14%, á Austurlandi 67,15% og
í Suðurlandsumdæmi 79,7%.
í framhaldsskólum landsins er
hlutfall kennara 63,59% en leið-
beinenda 36,41%. Hæst er hlutfall
kennara í Reykjavík eða 70,06%
og næst hæst í Reykjanesumdæmi,
eða 64,06%. í öðrum umdæmum
landsins er hlutfall kennara mun
lægra en lægst er það í Austur-
landsumdæmi eða 26,48%. í Vest-
urlandsumdæmi eru kennarar
51,5%, í Vestfjarðaumdæmi
29,35%, í Norðurlandsumdæmi
vestra eru kennarar 36,57%, í
Norðurlandsumdæmi eystra
56,48%, og í Suðurlandsumdæmi
er hlutfall kennara 56,53%.
Svavar Gestsson, menntamála-
ráðherra, segir að þessi munur
milli fræðsluumdæma hafi verið
svona mikill mjög lengi. „Þetta
miðar þó heldur í áttina þó að einn
og einn staður komi verr út en
áður,“ segir Svavar. „Því miður eru
þetta ekki mikil tíðindi því lands-
byggðin hefur þurft að búa við
þetta ástand mjög lengi.“