Morgunblaðið - 06.03.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.03.1991, Blaðsíða 2
reer síjám .e íiuoAauxivaiM 9iqaj;i’/.tjohom MORGUNBLAÐIÐ MIÐVÍKÚDAGÚR 6. MARZ 199Í~------: £ Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra: Tillaga um álmálið lögð fyrir þingið í vikunni PAUL Drack aðalforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax segir að þótt stríðinu við írak sé lokið, sé efnahagsástand i heiminum enn svo ótryggt, að enn sé fjármögnun nýs álvers á Keilisnesi í óvissu. Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra segist munu leggja fram þingsálykt- unartillögu í þessari viku i fjórum liðum þar sem Alþingi lýsi stuðn- ingi við framhald samninga við Atlantsálsfyrirtækin og styðji fram- hald undirbúningsverka og jarðakaup. Jón sagði í samtali við Morgun- blaðið i gær að hann biði samþykkis Alþýðubandalagsins enn, en hann myndi ekki bíða lengi og leggja þingsályktunartillöguna fram í þess- ari viku. Ólafur Ragnar Grímsson formaður Alþýðubandalagsins seg- ir þingsályktunartillöguna óþarfa og betra að nota tímann til þing- slita til að afgreiða áríðandi sljórnarfrumvörp. „Við spyijum enn hvort við getum fengið lán á viðunandi kjöram. Raunar munu fjármálasérfræðingar okkar hitta bankamenn í Evrópu í næstu viku, þar sem farið verður ofan í lánamálin og hvort við fáum lán með nógu lágum vöxtum,“ sagði Drack í samtali við Morgunblaðið í gær. Drack segir að hin höfuðspurn- ingin lúti að því hvort hægt sé að ná stofnkostnaðinum niður í það sem talist geti viðunandi og falli þannig innan þess ramma sem Atlantsáls- fyrirtækin hafí sett sér í fjárhags- legu tilliti. Drack sagði að hópur manna kannaði það í Atlanta með hvaða hætti væri hægt að ná niður stofn- kostnaðinum og einmitt nú er einn fulltrúi Alumax staddur hér á landi til þess að fara yfir kostnaðaráætl- anir með sérfræðingum iðnaðarráðu- neytisins, Markaðsskrifstofunnar og Landsvirkjunar. „Ég reikna ekki með því að við náum ákveðnum nið- urstöðum fyrr en í apríllok eða maí- mánuði,“ sagði Drack. Iðnaðarráðherra segir að þings ályktunartillagan geri einnig ráð fyrir lánsfjárheimild handa Lands- virkjun upp á 800 milljónir króna. „Þrír stjórnarflokkanna hafa sam- þykkt þennan málatilbúnað. Alþýðu- bandalagíð hefur hins vegar ekki enn viljað samþykkja þessa málsmeð- ferð. Ég bíð eftir samþykki þeirra, en bíð nú ekki mikið lengur. Þetta mál mun koma fram í þinginu i vik- Leikurum sagt upp þrátt fyr- unni. Ég hef rætt þetta við Sjálf- stæðisflokkinn á Alþingi og vænti skilnings á þessu máli,“ sagði Jón Sigurðsson. Ólafur Ragnar Grímsson, fjár- málaráðherra og formaður Alþýðu- bandalagsins, sagði þingsályktun- artillögu um álmálið ekki nausyn- lega. Flokkurinn væri hins vegar til- búinn til að styðja aðra liði í tillögu iðnaðarráðherra, það er að hann flytti skýrslu um álmálið í þinginu og aflað sé nauðsynlegra lagaheim- ilda, m.a. vegna samningagerðar um kaup á landi fyrir höfn og verk- smiðju. Sagði Ólafur Ragnar að hátt í sextíu stjórnarframvörp biðu af- greiðslu síðustu daga þingsins. Þar af flyttu ráðherrar Alþýðubanda- lagsins fjórðunginn og væra öll mál þeirra talin forgangsmál. „Við höf- um talið nauðsynlegt að raða málum í forgangsröð og viljum nýta tímann til þingloka sem best,“ sagði hann. Ráðherra sagði að íjármögnunar- nefnd Atlantsáls hittist í Amsterdam 13.-14. mars nk. og eiga þar viðræð- ur við lánastofnanir og lögfræðinga- fundir Atlantsáls og íslendinga verði í Amsterdam 20.-21. mars. Ráðgerð- ur væri viðræðufundur samninga- nefnda beggja aðila og lögfræðinga í New York 4.-5. apríl nk. „Við stefnum að því að ljúka við- ræðunum í maí um aðalsamninginn, orkusölusamninginn, verkloka- ábyrgðina, hafnar- og lóðasamning, auk þess sem þá er meiningin að ljúka endurskoðun stofnkostnaðar," sagði Jón, „og loks er stefnt að því að bindandi samningar, fyrirvara- lausir, verði undirritaðir í haust.“ Morgunblaðið/SVFÍ Grindavík Hinn siasaði fluttur frá borði í Sandgerðishöfn. Slasaður sjómaður fluttur til Gríndavíkur Grindavík. FÉLAGAR úr slysavarnasveit- inni Þorbirni í Grindavík náðu í slasaðan sjómann um borð í Hrafn Sveinbjamarson GK 255 sl. sunnudag. Beiðni barst til sveitarinnar um klukkan 9 á sunnudagsmorgun að sveitin færi á móts við Hrafn tii að sækja sjómann sem slasað- ist á fæti við störf sín. Einnig var óskað eftir því að tveir aðrir skip- veijar yrðu fluttir í land þar sem þeir voru orðnir veikir. Það vora því sex menn sem lögðu af stað með Oddi V. Gíslasyni, björgunar- skipi Þorbjamar, þrír frá slysa- varnasveitinni og þrír skipveijar á Hrafni sem skiptu við þá sem fóru í Iand. Skipstjóri Odds var Gunnar Jóhannesson félagi í Þor- birni. Að sögn Guðmundar Birkis Agnarssonar félaga í Þorbirni gekk ferðin vel og komu þeir að Hrafni um 5 sjómílur vestur af Sandgerði. Þar voru sjúkrabörur settar um borð í Hrafn og hinn slasaði hífður um borð í Odd og gekk það vel þar sem gott var í sjóinn meðan á aðgerðum stóð. Strax og því var lokið var haldið til Sandgerðis og skipveijinn flutt- ur þaðan á sjúkrahús í Keflavík og er líðan hans góð. Að sögn Guðmundar reyndist Oddur V. Gíslason mjög vel og sannaði hann gildi sitt í þessari ferð. FÓ Íl* iRUSð/F StÖðlir Tilliaga stjórnar Yerktakasambands íslands: STJÓRN og trúnaðarmannaráð Félags íslenskra leikara fjallaði um uppsagnir leikara í Þjóðleikhúsinu í gær og lýsti vonbrigðum með að ekki skyldi vera ráðið í lausar stöður leikara sem voru fyrir hendi í Þjóðleikhúsinu áður en til uppsagnanna kom. Sljórn Starfsmannafé- lags ríkisstofnana hefur skrifað Stefáni Baldurssyni Þjóðleikhússtjóra bréf þar sem félagið mótmælir þeim vinnubrögðum sem viðhöfð voru við uppsagnir sex leikara og þriggja annarra starfsmanna við leikhúsið. Guðrún Alfreðsdóttir, formaður Félags íslenskra leikara, kvaðst telja að 8-10 stöður hefðu verið lausar áður en til uppsagnanna kom. „Við eram óánægð með að það skuli vera gripið til uppsagna meðan þetta margir lausir samningar era til stað- ar,“ sagði Guðrún. Sú regla gildir varðandi ráðningar • leikara í Þjóðleikhúsinu að þegar leikari nær sextíu ára aldri er heim- ilt að ráða í aðra stöðu samhliða hinni. Sagði Guðrún að um nokkrar slikar lausar stöður væri að ræða þar sem þessari heimild hefði ekki verið beitt á síðustu áram. Jafnframt hefði losnað um stöður á venjulegan hátt, þ.e.a.s. að leikarar hafa hætt. „Þetta era líklega jafnmargar eða fleiri stöður sem eru lausar en sem nemur uppsögnunum," sagði Guð- rún. Sigríður Kristinsdóttir formaður Starfsmannafélags ríkisstofnana sagði að engin viðbrögð hefðu borist við bréfi stjómar Starfsmannafé- lagsins til Þjóðleikhússtjóra. Hún sagði að svo virtist sem uppsagnirn- ar væru lögmætar en hún teldi þær siðferðilega rangar þar sem Þjóðleik- hússtjóri hafi ekkert út á störf þeirra að setja sem sagt var upp. Lög um æviráðningu opinberra starfsmanna vora numin úr gildi 1974 en Sigríð- ur sagði að-verið væri að kanna lög- mæti uppsagna nokkurra leikara sem voru félagar í Bandalagi há- skólamenntaðra ríkisstarfsmanna. Leikarar byggju við minna atvinnu- öryggi en aðrir opinberír starfsmenn því þeir hefðu hver og einn gert ráðningarsamning til takmarkaðs tíma við sitt leikhús í kjölfar afnáms fyrrgreindra laga. Uppsagnarfrestur leikaranna er sex mánuðir. Á fundi stjómar og trúnaðar- mannaráðs Félags íslenskra leikara í gær harmaði stjórnin að til upp- sagna hefði þurft að koma á lista- mönnum í fullu starfi sem eigi að baki margra ára starf við íjóðleik- húsið. „Reynsla þeirra hlýtur að vera leikhúsinu mikils virði í listrænum efnum. Stjóm og trúnaðarmannaráð FÍL lýsir vonbrigðum sínum með að ekki hafi verið ráðið í lausar stöður leikara, sem voru fyrir hendi í Þjóð- leikhúsinu áður en til ofangreindra uppsagna kom. Á sama hátt og at- vinnuleikhúsi er nauðsyn á hreyfan- leika og endurnýjun þá er nauðsyn- legt að tryggja ákveðinn stöðugleika í Ieikarahópnum og atvinnuöryggi eins margra félagsmanna og mögu- legt er hverju sinni,“ segir í yfírlýs- ingu frá FÍL. Framkvæmdum fyrir 4-5 minjarða verði flýtt STJÓRN Verktakasambands íslands hefur gert tillögu um flýtingu verklegra framkvæmda opinberra aðila þar sem ljóst sé að ekki verði úr fyrirhuguðum framkvæmdum vegna álvers og virkjana á árinu. Tillögurnar eru sendar Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra og Davíð Oddssyni borgarstjóra. Stjórnarmenn Verktakasambandsins ganga í dag á fund forsætisráðherra til að ræða málið og stefnt er að fundi með borgarstjóra við fyrsta tækifæri. Lagt er til að ýmis opinber verkefni fyrir minnst 4-5 milljarða króna verði unnin á þessu ári í stað síðar, énda skapist við það 1.000 til 1.500 störf í sumar. I tillögunni segir að þar sem nú sé ljóst að ekki verði ráðist í virkj- anaframkvæmdir á þessu ári vegna byggingar álvers, telji stjórn Verk- takasambandsins nauðsynlegt að stjórnvöld grípi nú þegar til sér- stakra ráðstafana til að flýta ýms- um framkvæmdum sem fyrirhugað væri að ráðast í á næstu árum. „I ljósi þess samdráttar sem blas- ir við telur stjórn Verktakasam- bandsins mikilvægt að flýta fram- kvæmdum fyrir a.m.k. 4-5 milljarða króna á þessu ári til að hægt verði að tryggja atvinnu og mæta þeim margvíslegu neikvæðu áhrifum sem annars kæmu fram,“ segir í tillög- unni. Ekkert svigrúm til skatta- lækkana í fyrstu lotu segir Pálmi Jónsson PÁLMl Jónsson alþingismaður telur að ekkert svigrúm sé til skattalækkana á komandi árum vegna linnulauss hallareksturs á ríkissjóði sem núverandi ríkis- stjórn beri ábyrgð á. Pálmi sagði að það væri stefna Sjálfstæðisflokksins að lækka skatta en að þessu stefnumáli yrði ekki komið fram í fyrstu lotu. Ástæðan væri að Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra hefði staðið að Iinnulausum hallarekstri ríkissjóðs sem hefði leitt til skuldasöfnunar sem næmi allt að 30 milljörðum kr. á fjórum áram og auk þess með skuldbindingum sem ekki kæmu fram í fjárlögum sem næmu eigi minnaen 17 milljörðum til viðbótar. „Þetta hefur gerst þrátt fyrir það að skattar era á árinu 1991 miðað við fjárlög um 16 milljörðum kr. hærri en þeir voru 1987. Þessi hrika- lega staða leiðir til þess að mér sýn- ist að svigrúm til skattalækkana sé naumast fyrir hendi og verður auð- vitað markmið Sjálfstæðisflokksins að koma í veg fyrir fyrirætlanir núverandi ríkisstjórnar um stórfelld- ar skattahækkanir til viðbótar, að taka fyrir sífellda útþenslu ríkiskerf- isins og ná raunverulegum spamaði sem verður að hefjast á æðstu stöð- um, þ.e.a.s. hjá ráðherranum sjálf- um, svo hægt verði að útfæra það yfir allt ríkiskerfið. Með þeim hætti verður að leggja grunn að breyttri stefnu í fjármálum ríkisins um leið og það verður keppikefli Sjálfstæðis- flokksins að taka málefni atvinnu- veganna þeim tökum að tekjumynd- un geti aukist í þjóðfélaginu sem hagvöxtur geti tekið við af þeirri kyrrstöðu og hnignun sem við höfum búið við undanfarin ár,“ sagði Pálmi. Pálmi kvaðst ekki sjá hvenær svigrúm myndi skapast til skatta- lækkana en að Sjálfstæðisflokkurinn myndi taka skattkerfið til endur- skoðunar kæmist hann til valda og halda þannig á málum á næsta kjörtímabili að stefna flokksins í skattamálum skili sér. í greinargerð segir að frestun virkjanaframkvæmda komi á versta tíma nú, þegar við blasi enn frek- ari samdráttur í öðram fram- kvæmdum þriðja árið í röð og árs- verkum í verktakaiðnaði hafí fækk- að úr um 12.000 árið 1988 í 10.000-11.000 í fyrra. Vikið er að sumarvinnu skólafólks, sem verk- takaiðnaðurinn hafi byggt mikið á, og sagt að eins og nú horfi megi gera ráð fyrir að um eitt til tvö þúsund nemendum færra en áður fái sumarvinnu hjá verktökum. Ekki er lagt mat á einstakar framkvæmdir til að flýta, en nefnd- ir nokkrir möguleikar: almenn verk- efni í vegagerð, breikkun Reykja- nesbrautar, bygging flugskýlis á Keflavíkurflugvelli, ýmsar hafnar- framkvæmdir, þar á meðal á Höfn í Hornafirði og í Þorlákshöfn, sjó- vamargarðar á suðurströndinni, framkvæmdir við Egilsstaðaflug- völl, bygging Verkmenntaskóla á Akureyri, viðgerð og endurbætur á Þjóðminjasafni, lúkning fram- kvæmda við Þjóðarbókhlöðu, við- gerð og endurbætur á Korpúlfsstöð- um, ýmsar framkvæmdir við um- ferðarmannvirki á höfuðborgar- svæðinu og bygging Tónlistarhúss í Reykjavík. Að hluta til eru þessar tillögur samhljóða tillögum fjár- málaráðherra í síðustu viku. Bent er á nokkrar fjármögnunar- leiðir eins og að taka erlend lán, ríkið og Reykjavíkurborg leggi til bein framlög, bensíngjald verði hækkað ef innkaupsverð á bensíni lækkar og loks er bent á að hugsan- legt sé að fá hluta af framkvæmda- fénu lánað hjá Landsvirkjun, sem fengi það síðan endurgreitt með fullum vöxtum þegar framkvæmdir hefjast af fullum krafti við álvers- virkjanir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.