Morgunblaðið - 06.03.1991, Blaðsíða 47
ip/émR
FOLK
■ SVEN Göran Erikson, hinn
sænski þjálfari Benfica, þykir
koma til greina sem þjálfari banda-
ríska landsliðsins í knattspyrnu.
Erikson var áður
Frá Þorsteini þjálfari IFK Gauta-
Gunnarssyni borg og gerði liðið
íSvíþjóö að Evrópumeistur-
um. Bandaríkja-
menn hafa talað við hann en ekki
gengið frá samningum.
■ PETER Lnrsson, sænski
landsliðsmiðvörðurinn, sem spilar
með Ajax í Hollandi, er á leið heim.
Hann kemur til með að leika með
AIK Stokkhólmi. Hann er þrítugur
og hefur ekki náð að festa sig í
sessi hjá Ajax.
■ SÆNSKA lögreglan er farin
að undirbúa öryggisráðstafanir fyr-
ir Evrópukeppni landsliða í knattsp-
rynu 1992. Rúmlega fimm þúsund
lögreglumenn eru á námskeiði og
þeir munu fylgjast með þeim fimm
völlum sem leikið verður á. Sænska
knattspyrnusambandið þarf að
borga um einn milljarð ÍSK vegna
löggæslu í keppninni.
I MERLENE Ottey hlaupakon-
an snjalla frá Jamaíka bætti heims-
metið í 200 m hlaupi innanhúss á
fijálsíþróttamóti í Sindelfingen í
Þýskalandi á sunnudag. Ottey
hljóp á 22,24 sek. og bætti met
Heike Drechsler frá Þýskalandi
frá því 1987 um s/ioo hluta úr sek-
úndu.
■ OPNA breska meistaramótið í
golfi verður haldið á St. Andrews
í 25. sinn árið 1995. Þetta var til-
kynnt í gær en mótið verður það
124. í röðinni. Mótið í fyrra fór fram
á vellinum og lauk með sigri Nick
Faldo. í sumar verður hinsvegar
keppt á Royal Birkdale.
URSUT
Handbolti
Úrslitakeppni 2. deildar
Þór-Völsungur...............33:19
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 8, Jóhann
Jóhannsson 7, Páll Gíslason 5/3, Sævar
Árnason 4, Ólafur Hilmarsson 4, Rúnar
Sigtryggsson 2, Atli Rúnarsson 2 og Ingólf-
ur Samúelsson 1.
Mörk Völsungs: Ásmundur Arnarson 6/4,
Kristinn Wium 4, Skarphéðinn ívarsson 3,
Jónas Garðarsson 2, Tryggvi Guðmundsson
2, Sveinn Freysson 1 og Haraldur Haralds-
son 1.
AB/Akureyri
Knattspyrna
Enska bikarkeppnin - 5. umferð
Nottingham Forest — Southampton ...3:1
Nigel Jemson 42. vsp., 63., 67. - Rodney
Wallace 14. Áhorfendur: 26.633.
BForest mætir Norwich í 6. umferð.
Körfuknattleikur
NBA-úrslit
Þriðjudagur
Boston ’Celtics — Indiana Pacers 126:101
Phoenix Suns — Charlotte Hornets. 126: 93
Utah Jazz — Orlando Magic.... 106: 88
Dallas — New Jersey Nets.......102:100
Seattle — Golden State Warriors.... 105: 99
Golf
Opna Doral mótið
Haldið í Miami um helgina. Keppni lauk í
fyrradag eftir frestun vegna rigningar.
(Keppendur bandarískir nema annað sé tek-
ið' fram)
276 RoccoMediate...........66 70 68 72
Curtis Strange.........69 68 72 67
Mediate sigraði á fyrstu liolu f bráðabana.
277 AndyBean...............68 68 67 74
Russ Cochran...........69 67 68 73
279 JackNicklaus...........71 63 75 70
Davis Love.............71 68 68 72
280 Mark Calcavecchia.....68 70 69 73
281 LannyWadkins..........71 67 70 73
282 Wayne Levi............67 70 71 74
283 TomSieckmann...........68 7271 72
284 Mike Smith............70 72 70 72
Buddy Gardner.........72 70 70 72
Mark O’Meara..........67 69 74 74
Mike Hulbert..........70 73 67 74
285 ChipBeck..............66 71 74 74
Brian Tennyson........70 70 69 76
Kenny Perry...........69 64 75 77
fl Rocco Mediate lék undir pari á fyrstu
holunni í báðabananum gegn Curtis Strange
og tryggði sér sigurinn og um 16 milljónir
ÍSK. Hann lék mjög vel f lokin og náði að
jafna með þremur fuglum á síðustu sjö
holunum, þ.á.m. bæði á 17. og 18. Strange
náði svo ekki fimm metra pútti í bráðaban-
anum en Mediate setti örugglega niður af
tveggja metra færi.
1901 Á5LAM .9 H:
MORGDNBLAÐIÐ
IÞROTTlR MIÐVIKUDAGUI
GIGAJaWUOHOM
MIÐVIKUDAGUR 6. MARZ. 1991
KORFUKNATTLEIKUR
Guðjón er klár í,
slaginn með ÍBK
Fær líklega kæru fyrir leik í 1. flokki
GUÐJÓN Skúlason, körfu-
knattieiksmaðurinn kunni úr
Keflavík, sem í vetur hefur lei.k-
ið með háskólaliði Auburn
Montgomery í Bandaríkjunum
kom til landsins á sunnudag
og lék sinn fyrsta leik með IBK
í gær. Það var í 1. flokki gegn
Reyni frá Sandgerði og búast
Keflvíkingar fastlega við að
leikurinn verði kærður vegna
þátttöku Guðjóns í honum.
Vonast þeir til að niðurstaða
dómstóla um hvort Guðjóni
verði heimilt að leika með lið-
inu liggi fyrir áður en úrslita-
keppnin um íslandsmeistara-
titilinn hefst.
Sigurður Valgeirsson formaður
körfuknattleiksráðs ÍBK sagði
í samtali við Morgunblaðið að hann
liti svo á að Guðjón væri löglegur
m^fl með ÍBK því hann
Björn hefði aldrei haft
Blöndal skipt yfir í annað
skrifarfrá félag. Hann hefði
Kef,avík verið í skóla í
Bandaríkjunum og leikið þar með
sínu skólaliði eins og margir í liðinu
þó þeirra skólar væru á íslandi.
Svipað mál hefði komið upp með
leikmann í ÍBK 1983 sem hefði
verið við nám erlendis og hefði ekki
verið amast við því.
Guðjón sagðist vera í góðu formi
og sér hefði gengið vel í leikjum
með skólaliði sínu í Bandaríkjunum
þar sem hann hefði skorað 13 stig
að meðaltali í leik. Guðjón byijaði
að æfa með ÍBK sama daginn og
hann kom til landsins og sagðist
hann vonast til að geta tekið þátt
í lokaslagnum með ÍBK í barát-
tunni um bikarinn og íslandsmeist-
aratitilinn.
Guðjón með í bikarnum
Keflvíkingar mæta KR-ingum í
úrslitum bikarkeppni KKÍ aðra
helgi. Guðjón verður líklega með í
bikamum: „Hann má að sjálfsögðu<
leika í bikamum, rétt eins og í deild-
inni, og við notum auðvitað besta
liðið okkar,“ sagði Sigurður Val-
geirsson, formaður körfuknatt-
leiksráðs Keflavíkur.
Morgunblaöiö/Björn Blöndal
Guðjón Skúlason leikur með Keflvíkingum í úrslitakeppninni. Hann spilaði
fyrsta leik sinn í gær, í 1. flokki gegn Reyni.
SUND
Góðir tímar hjá Amþóri
Amþór Ragnarsson, landsliðs-
maður í sundi, tók þátt í und-
anrásum dönsku bikarkeppninnar
með liði sínu Holstebro um síðustu
helgi. Keppt var í 25 metra innilaug.
Arnþór synti 100 m bringusund á
1:05,71 mín. og varð í öðru sæti og
í 200 m bringusundi varð hann með
þriðja besta tímann á 2:22,69 mín.
Þessir tímar hefðu nægt honum tjl
sigurs í þessum greinum á innan-
hússmeistaramótinu í sundi í Eyjum
um síðustu helgi.
Eðvarð Þór Eðvarðsson á íslands-
metin bæði í 100 metra og 200 metra
bringusundi í 25 metra sundlaug.
Metið í 100 m bringusundi er 1:04,13
mín. og 2:18,23 mín. í 200 m bringu-
sundi og voru bæði metin sett í
Aberdeen 1987.
Amþór hefur æft með danska fé-
laginu af krafti í vetur. Hann varð
fyrir því óláni að leggjast í flensu í
heila viku í byijun febrúar og kann
það að hafa sett strik í reikninginn
hjá honum.
Karlasveit Holstbro setti nýtt
danskt met í 4x100 m bringusundi,
synti á 4:28,88 mín. Amþór synti
þriðja sprett á 1:05,8 mín. Besta
tímanum náði hins vegar Christian
Toft, 1:04,6 mín.
Snæfell-UMFN 84:106
Iþróttamiðstöðin Stykkishólmi, úrvalsdeildin í köri'uknattleik, þriðjudaginn 5. mars 1991.
Gangur leiksins: 8:6, 21:12, 33:27, 40:36, 42:42, 47:54, 49:61, 58:79, 67:81, 76:97,
80:103, 84:106.
Stig Snæfells: Tim Harvey 23, Brynjar Harðarson 20, Bárður Eyþórsson 14, Hreinn
Þorkelsson 12, Þorvarður Björgvinsson 4, Hjörleifur Sigurþórsson 4, Sæþór Þorbergsson
3, Rikharður Hrafnkelsson 2 og Þorkell Þorkelsson 2.
Stig UMFN: Ronday Robinson 40, Teitur Örlygsson 19, Friðrik Ragnarsson 17, Ástþór
Ingason 7, Rúnar Jónsson 7, ísak Tómasson 7, Hreiðar Hreiðarsson 6 og Stefán Örlygsson 3.
Dómarar: Guðmundur Mariasson og Bergur Steingrimsson. Áhorfendur: Um 250.
Öruggur sigur Njarðvíkinga
Njarðvíkingar sigruðu Snæfellinga nokkuð örugglega í gær, 106:84
og er útlitið orðið frekar dökkt hjá þeim síðarnefnu. Þeir höfðu þó
frumkvæðið í fyrri hálfleik, þrátt fyrir að Njarðvíkingum tækist að jafna
fyrir hlé. í síðari hálfleik voru Njarðvíkingar mun frískari og yfirspiluðu
g^flfl^H Hólmarana á köflum.
Maria Hjá Snæfelli voru Bárður Eyþórsson og Brynjar Harðarson
Guönadóttir bestir en Tim Harvey náði ekki að sýna sitt rétta andlit.
skrifar Rondey Robinson fór á kostum í liði Njarðvíkur og gerði
40 stig, skemmtilegur leikmaður þar á ferð. Teitur Orlygs-
son og Friðrik Ragnarsson áttu einnig góðan leik.
Staða Snæfells er slæm en leikurinn gegn ÍR á sunnudaginn hefur
mikla þýðingu. Þar þarf Snæfell stór sigur til að tryggja sæti sitt í deildinni.
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
Meistaramir ætla ekki
að sleppa bikamum
FYRRI leikirnir í 8-liða úrslitum
Evrópukeppninnar í knatt-
spyrnu fara fram í kvöld. Evr-
ópumeistararnir AC Mílanó og
Marseille mætast íkeppni
meistaraliða í Mílanó og höfðu
80 þúsund aðgöngumiðar verið
seldir í gær. AC Mílanó hefur
sent forseta Marseille, Bernard
Tapie, þau einföldu skilaboð að
liðið haf i ekki í hyggju að láta
Evrópumeistaratitilinn af hendi.
Tapie hefur margoft sagt að
æðsti draumur hans s’e að
Marseille verði fyrsta f ranska
liðið til að fagna Evrópumeist-
aratitli.
Raymond Goethals, þjálfari Mar-
seille, segir að leikurinn verði
mjög erfiður fyrir Marseille. „En við
megum ekki bera of mikla virðingu
fyrir Evrópumeisturunum.“ Fram-
heijinn Eric Cantona og miðvallar-
leikmaðurinn Jean Tigana leika ekki
með Marseille í kvöld. Þjálfarinn setti
þá út úr hópnum vegna þess að þeir
neituðu að vera á varamannabekkn-
um gegn Mónakó í frönsku deildinni
um síðustu helgi.
AC Mílanó, sem átti í nokkrum
erfiðleikum með að slá belgíska liðið
FC Briigge út í 16-liða úrslitum,
hefur sýnt frábæra leiki að undan-
fömu og virðist nú vera komið í
mjög góða æfingu. Á sunnudaginn
burstaði liðið Napólí og er komið í
þriðja sæti deildarinnar, aðeins stigi
á eftir Inter sem er í efsta sæti.
Evrópumeistararnir leika án Marco
van Basten, sem tekur út leikbann
og fyrirliðans, Franco Baresi, sem
er meiddur.
Bjargar Real ærunni?
Spænsku meisturunum í Real
Madrid hefur gengið mjög illa í deild-
inni í vetur og eru úr leik í bikar-
keppninni. Eina von liðsins á að vinna
titil í ár er í Evrópukeppni meistara-
liða, þó svo að sú von verði að teljast
lítill. Real Madrid leikur gegn Spartak
frá Moskvu á útivelli í dag. Emilio
Budragueno, fyrirliði Real Madrid,
segir að þessi leikur skipti öllu máli
fyrir liðið. Hann sagðist bjartsýnn á
hagstæð úrslit og að leikmenn væru
mjög ákveðnir í að standa sig.
Þýsku meistararnir hjá Bayern
Munchen hafa ekki fundið sig eftir
vetrarfríið og féllu af toppi deildar-
innar eftir 1:0 tap gegn St. Pauli um
síðustu helgi. Mótheijar þeirra, FC
Porto, virðast hins vegar í banastuði
eftir 5:0 sigur á Uniao Madeira í
deildinni um síðustu helgi. Bayern
hefur harma að hefna eftir tapið fyr-
ir Porto í úrslitaleik Evrópukeppni
meistaraiiða 2:1 í Vín 1987. Þrír leik-
manna Bayem verða ekki með vegna
meiðsla, þeir Thomas Stmnz, Alan
Mclnally og Michael Sternkopf.
Sampdoria, sem er núverandi Evr-
ópumeistari bikarhafa, er í mjög góðri
æfingu og ætti ekki að eiga í erfíð-
leikum með pólska liðið Legia í keppni
bikarhafa. Ekki er hægt að segja það
sama um hitt ítalska liðið, Juventus,
því þar hefur ekkert gengið í síðustu
leikjum. Liðið hefur fallið úr öðru
sæti ítölsku deildarinnar niður í það
fjórða á nokkrum vikum, en belgiska
liðið gæti staðið í Juventus.
Barcelona hefur verið í miklu stuði
í spænsku deildinni, sigraði Las Palm-
as í bikarkeppninni, 6:0, og Tenérife,
1:0, í deildinni. Það verður áræðan-
lega erfitt fyrir sovéska liðið að ráða
við lærisveina Cmyffs.
Ferguson bjartsýnn
Alex Ferguson, þjálfari Manchest-
er United, sem vann Evrópubikarinn
með Aberdeen frá Skotlandi á sínum
tíma, segist trúa því að hann gæti
nú unnið Evrópubikarinn í annað
sinn. „Ég veit hvað þarf til að vinna
Evrópukeppni bikarhafa og ég held
að við getum það hjá United," sagði
Ferguson, en lið hans mætir Mont-
Ruud Gullit og félagar í AC Mílanó
mæta frönsku meisturunum frá Mar-
seille.
pellier frá Frakklandi á_01d Trafford
í kvöld. Fyrirliðinn Bryan Robson og
Mark Hughes leika báðir með Un-
ited, en þeir hafa átt við meiðsli að
stríða að undanförnu.
ítalir sem eiga lið í öllum þremur
Evrópumótunum munu missa a.m.k.
eitt lið út eftir 8-liða úrslitin í UEFA-
keppninni. Þar leika Atalanta og Int-
er Milan saman, en hin liðin eru;
Bologna og Sporting Lissabon,j
Bröndby og Torpedo Moskva og
Róma og Anderlecht.