Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 1
80 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
85. tbl. 79. árg.___________________________________ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1991_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Utanríkis-
ráðherrar EB:
Ekkert sam-
komulag urn
tillögnr um
sjávarútveg
Lúxemborg. Frá Kristófer Má Kristins-
syni, fréttaritara Morgxinblaðsins.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR að-
ildarríkja Evrópubandalagsins
(EB) gerðu í gær árangurslausa
íilraun til að samræma afstöðu
sína í viðræðunum við aðiidarríki
Fríverslunarbandalags Evrópu
(EFTA) um Evrópska efnahags-
svæðið (EES). Ráðherramir
ræddu sérstaklega stöðuna í við-
ræðunum um sjávarútvegsmál en
ekkert samkomulag varð um til-
lögu. Spánverjar halda fast við
þá kröfu að krafist verði veiði-
heimilda, sem svara til 90.000
tónna af þorski, af EFTA-ríkjun-
um fyrir aðgang að mörkuðum
EB. Jafnframt krefjast þeir þess
að Spánverjum verði úthlutað
90% af þeim kvótum sem næst í
samningunum.
Fastafulltrúar aðildarríkjanna í
Brussel fá uppkaststillögu fram-
kvæmdastjórnar EB þess vegna
aftur til umfjöllunar og verður þeim
ætlað að freista þess að ná sam-
komulagi í samvinnu við fram-
kvæmdastjórnina á grundvelli
þeirra skoðana sem ráðherrarnir
settu fram á fundinum. Samkvæmt
heimildum í Lúxemborg var sam-
komulag um að tengsl væru á milli
aðgangs að mörkuðum og aðgangs
að fiskimiðum. „EFTA-ríkin verða
að finna fisk,“ sagði háttsettur
embættismaður innan bandalags-
ins.
Ráðherrarnir ræddu jafriframt
stöðuna í samningunum við EFTA
vítt og breitt en enginn árangur
náðist á þeim sviðum sem erfiðust
hafa verið í samningaviðræðunum
um EES. Þetta á m.a. við um jöfn-
un lífskjara í gegnum sérstakan
þróunarsjóð, innflutning á landbún-
aðarvörum til EFTA-ríkjanna og
fiskveiðar. Sömuleiðis náðist ekkert
samkomulag um afstöðu í stofnana-
og stjórnunarmálum EES og enn
síður um hvernig skuli standa að
undirritun samningsins. Hluti EB-
ríkjanna vill að auk framkvæmda-
stjórnarinnar undirriti öll ríkin tólf
samninginn, önnur hafa talið slíkt
ástæðulaust.
ECeuter
Dauðinn á ströndinni
Þúsundir manna, sjálfboðaliðar og hermenn, vinna við að hreinsa upp
olíuna, sem borist hefur upp á strendur ítölsku Riveríunnar. Kemur
hún úr kýpverska olíuskipinu Haven en það sökk á sunnudag eftir
að hafa logað stafna í millum í fjóra daga. Eru enn um 80.000 tonn
af rúmlega 100.000 tonna farmi í skipstönkunum og ef ekki tekst að
dæla þeim upp í annað skip verða afleiðingarnar skelfilegri en orð fá
lýst. A innfelldu myndinni er verið að reyna að bjarga útötuðum fugli
en í gær rak meginflekkinn í átt að ströndum Mónakós og Frakklands.
Sjá „Olíuskipið er eins . . .“ á bls. 30.
Sovétmenn og
Israelar efna
til viðræðna
Lundúnuni. Reuter.
Forsætisráðherrar Israels og
Sovétríkjanna koma í fyrsta sinn
saman til fundar í Lundúnum í
dag, að sögn israelskra embættis-
manna í gær.
Forsætisráðherrarnir eru nú í
Lundúnum vegna stofnfundar End-
urreisnar- og þróunarbanka Evr-
ópu. Embættismennirnir sögðu að
Valentín Pavlov, forsætisráðherra
Sovétríkjanna, og Yitzhak Shamir,
starfsbróðir hans í ísrael, kæmu
saman í sovéska sendiráðinu í borg-
inni til að ræða samskipti ríkjanna,
þar á meðal möguleikann á að þau
tækju upp stjórnmálasamband að
nýju. Sovétmenn slitu stjórnmála-
tengslunum eftir sex daga stríðið
árið 1967. Stjórnmálaskýrendur
segja að viðræðurnar sýni að Sovét-
menn vilji gegna mikilvægara hlut-
verki í friðarumleitunum í Mið-
Austurlöndum.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, fer á fimmtudag til
ísraels til viðræðna við þarlend
stjórnvöld um hvemig tryggja megi.
frið í Mið-Austurlöndum. Talið er
að hann heimsæki einnig Egypta-
land, Saudi-Arabíu, Sýrland og
Jórdaníu í þessari þriðju ferð sinni
til Mið-Austurlanda frá því stríðinu
fyrir botni Persaflóa lauk. Shamir
kvaðst vongóður um að ferð Bakers
bæri góðan árangur.
EB vill réttarhöld yfir Sadd-
am vegna stríðsglæpa Iraka
Iranir saka Iraka um að hafa hernumið íranskt landsvæði
Lúxemborg, Teheran, Ankara, Safwan í írak, Genf. Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Evrópubandaiagsins (EB) samþykktu í
gær tillögu um að leiða bæri Saddam Hussein, forseta íraks, fyrir
rétt vegna stríðsglæpa. íraskir hermenn réðust á skriðdrekum á
kúrdíska flóttamenn við landamærin að íran, urðu fjölda þeirra að
bana og lokuðu einni af flóttaleiðunum til landsins, að sögn útvarps-
ins í Teheran. íranir sökuðu íraka í gærkvöldi um að hafa sent
hersveit þrjá kílómetra inn fyrir landamæri írans.
Embættismenn í Lúxemborg
sögðu að EB-ráðherrarnir hefðu
samþykkt tillögu Hans-Dietrichs
Genschers, utanríkisráðherra
Þýskalands, um að ákæra þyrfti
Saddam Hussein fyrir innrásina í
Kúveit 2. ágúst, hernám íransks
landsvæðis í Persaflóastríðinu
1980-88, notkun efnavopna gegn
óbreyttum borgurum og grimmdar-
verk gegn Kúrdum. „Við teljum að
Saddam Hussein sé persónulega
ábyrgur fyrir tilraun til að útrýma
Kúrdum," sagði Mark Eyskens, ut-
anríkisráðherra Belgíu. Ráðherr-
arnir ræddu ekki hvaða dómstóll
ætti að úrskurða í málinu eða hvar
réttarhöldin skyldu fara fram. Jacq-
ues Poos, utanríkisráðherra Lúxem-
borgar, sagði að samþykktin væri
Bretar kunna að styðja hvalveiðar
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRESK stjórnvöld eru að end-
urskoða afstöðu sína til hval-
veiða að því er kemur fram í
frétt The Sunday Times á
sunnudag.
Nokkrir breskir þingmenn
höfðu látið í ljós áhyggjur vegna
hugsanlegra veiða á hvölum. John
Gummer, sjávarútvegsráðherra
Bretlands, svaraði þeim í bréfi í
síðustu viku. Þar kemur fram, að
samkvæmt upplýsingum sérfræð-
inga ráðuneytisins um hvalamál
hafi hrefnustofninn vaxið svo á
síðustu árum, að í fyrsta skipti í
níu ár sé engin gild vísindaleg
ástæða til að andmæla veiðum. I
bréfi Gummers segir orðrétt:
„Staða mála er sú, að ákveðnir
hvalastofnar hafi náð þeim vexti,
að erfitt verði að halda því fram,
að verulega takmarkaðar veiðar
undir ströngu eftirliti, stefni
stofnunum í hættu.“
Ýmsir hvalfriðunarsinnar hafa
brugðist illa við þessum upplýs-
ingum, en bresk skip hafa ekki
veitt hvali í ágóðaskyni síðan
1963. Friðunarsinnarnir krefjast
þess, að Bretland verði áfram í
fararbroddi þeirra þjóða, sem vilja
banna hvalveiðar með öllu.
Bresk stjórnvöld eiga hins veg-
ar mjög erfítt með að hafna þess-
um upplýsingum og þeim ályktun-
um um veiðar, sem á þeim eru
byggðar. Andstaða þeirra hefur
alltaf byggst á upplýsingum og
ráðum vísindamanna. Þau óttast
einnig, að styðji þau ekki tak-
markaðar hvalveiðar á fundi Al-
þjóða hvalveiðiráðsins, þá muni
Japan, Noregur og ísland segja
sig úr ráðinu.
Islendingar hafa þegar farið
fram á við hvalveiðiráðið að þeim
verði heimilaðar takmarkaðar
veiðar á hrefnu og langreyði.
Norðmenn hafa sömuleiðis beðið
um að veiðar verði heimilaðar á
næsta ári. Þá hafa Japanir óskað
eftir leyfi til veiða á 300 suður-
skautshrefnum.
Oddrun Pettersen, sjávarút-
vegsráðherra Noregs, sagði, að
breska stjórnin tæki skynsamlega
á málinu. Arent M. Henriksen,
formaður sambands norskra út-
gerðarmanna, fagnaði einnig af-
stöðu stjórnarinnar og sagði, að
hún kæmi skemmtilega á óvart.
ótvíræð skilaboð til harðstjórans
Saddams Husseins og annarra ein-
ræðisherra er kynnu síðar að fremja
slík óhæfuverk.
Útvarpið í'Teheran sagði að ír-
askir stjórnarhermenn hefðu skotið
á flóttamenn, þar á meðal konur
og börn, við landamærin að íran á
sunnudagskvöld. Þetta er í fyrsta
sinn sem skýrt er frá slíkri árás frá
því Bandaríkjgmenn vöruðu íraka
við hernaðaraðgerðum gegn flótta-
mönnum í síðustu viku.
íranir sendu Sameinuðu þjóðun-
um bréf, þar sem þeir sökuðu íraka
um að hafa hernumið þriggja kíló-
metra breitt svæði innan landa-
mæra írans.
Bandarískir hermenn voru fluttir
af stærstum hluta hernámssvæðis
fjölþjóðahersins í suðurhluta íraks
eftir að hundruð örvæntingarfullra
flóttamanna höfðu sárbænt þá um
að vera um kyrrt. Flóttamennirnir
óttast að Saddam Hussein grfpi til
hefndaraðgerða vegna uppreisnar
shíta og Kúrda. Áætlað er að um
30-40.000 írakar hafi flúið til yfir-
ráðasvæðis bandaríska hersins.
Um 900.000 írakar hafa flúið til
Irans og Eigil Pedersen, aðalritari
danska Rauða krossins, sagði við
fréttamenn í Genf að um 700.000
flóttamenn til viðbótar væru á leið-
inni til landsins. Hjálparstofnanir
áætla að um 400-1.000 íraskir
flóttamenn deyi á degi hveijum við
tyrknesku landamærin.