Morgunblaðið - 16.04.1991, Blaðsíða 4
Hóf til heiðurs Matthíasi og Sigrúnu
Kjördæmisráð Sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesi
hélt síðastliðinn laugardag hóf til heiðurs Matthíasi
Á. Mathiesen alþingismanni og fyrrv. ráðherra og
konu hans Sigrúnu Þ. Mathiesen f Skútunni í Hafnar-
fírði. Um 400 manns mættu til að þakka hjónunum
vel unnin störf í þágu Sjálfstæðisflokksin undan-
fama áratugi, en Matthías lætur nú af þingmennsku
eftir 32 ára setu á Alþingi. Fjölmörg þakkarávörp
voru haldin í hófínu og þeim Matthíasi og Sigrúnu
færðar margar gjafir frá vinum og velunnurum fyr-
ir störf sín undanfama áratugi. Þar á meðal var
stór fálki úr stáli eftir Jens Guðjónsson gullsmið sem
sjálfstæðismenn í Reykjanesi færðu þeim hjónum. Á
myndinni sjást Matthías og Sigrún ásamt fjölskyldu,
framámönnum innan Sjálfstæðisflokksins og fleiiv
um.
VEÐUR
VEÐURHOKFUR í DAG, 16. APRIL
YFIRLIT: Yfir Grænlandshafi er 1043 mb hæð sem þokast austur.
Heldur kólnar í veðri.
SPÁ: Breytileg átt á landinu, víðast hægur vindur. Bjart veður um
mestallt landið. Víða má búast við dálitlu næturfrosti en að degin-
um verður eins tíl 6 stiga hiti, hlýjast sunnanlands.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG OG FIMMTUDAG: Norðvestlæg eða
breytileg átt. Bjart veður víða um land, þó liklega él á annesjum
norðaustanlands. Víða næturfrost en 2ja-6 stiga hiti um hádaginn,
hlýjast sunnanlands.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
/, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / *
/ * /
Slydda
| Alskýjað
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—j. Skafrenningur
Þrumuveður
Islendingar taka
þátt 1 uppbygg-
ingarstarfi í Irak
FIMM sendifulltrúar á vegum Rauða kross íslands munu fara til
íraks á morgun, miðvikudag. Sendifulltrúunum er ætlað að taka þátt
í því uppbyggingarstarfi sem á sér stað í Irak og nágrannalöndum
um þessar mundir, í kjölfar Persaflóastríðsins. Ráðgert er að hópur-
inn dvelji úti næstu þrjá mánuði.
Ástandið í írak er nú mjög slæmt.
Ekkert hreint vatn er að fá og far-
sóttir geysa. íslenska sendinefndin
mun taka þátt í uppbyggingu dreifi-
kerfís á vatni og neyðarbirgðum,
þ.e.a.s. á matvælum, lyfjum, tjöld-
um, teppum og fleiru. Hópurinn
verður einn af fimm jafnstórum
hópum sem munu hittast í Bagdad
og skipta þar með sér verkum eftir
landsvæðum.
í hverri sendinefnd verður einn
verkfræðingur, semjafnframt verð-
ur verkefnisstjóri, tveir iðnaðar-
menn, einn sérfræðingur í uppbygg-
ingu dreifikerfís og einn stjórnandi.
íslenska sendinefndin er skipuð
þeim Magnúsi Hallgrímssyni verk-
fræðingi, Kristjóni Þorkelssyni píp-
ulagningameistara, Magnúsi H.
Björnssyni vélvirkja, Bimi Óla Östr-
up verkfræðingi og Helgu Leifs-
dóttur viðskiptafræðingi.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
íslenska sendinefndin ásamt framkvæmdasljóra og starfsmanni
Rauða kross íslands. Frá vinstri: Björn Óli Östrup verkfræðingur,
Magnús H. Björnsson vélvirki, Magnús Hallgrímsson verkfræðingur,
Sigríður Guðmundsdóttir starfsmaður Rauða krossins, Hannes
Hauksson framkvæmdastjóri Rauða krossins, Helga Leifsdóttir við-
skiptafræðingur og Krisljón Þorkelsson pípulagningameistari
Hafskipsmál enn
reifað í Hæstarétti
Málflutningur fyrir Hæstarétti í Hafskipsmálinu stendur enn og
er áætlað að honum ljúki á föstudag.
! VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að fsl. tíma hltí veður Akureyri 2 téttskýjað Reykjavík 4 skýjað
Bergen 3 skúr á síð.klst
Helsinki 4 skýjað
Kaupmannahöfn 10 léttskýjað
Narssarssuaq S skýjað
Nuuk +1 rigning
Ósló 9 léttskýjað
Stokkhólmur 9 úrkoma í grennd
Þórshöfn 6 léttskýjað
Algarve 15 skýjað
Amsterdam 14 léttskýjað
Barcelona 14 mistur
Berlín 17 léttskýjað
Chicago 13 léttskýjað
Feneyjar 17 heiðskirt
Frankfurt 19 skýjað
Glasgow 16 hálfskýjað
Hamborg 13 hálfskýjað
tas Palmas vantar
London 13 heiðskírt
Los Angeles 16 alskýjað
Lúxemborg 17 léttskýjað
Madríd 11 rigning
Malaga 16 skýjað
Mallorca 17 þokumóða
Montreal 9 alskýjað
New York 9 rigning
Orlando 29 hálfskýjað
París 19 léttskýjað
Róm 16 léttskýjað
Vln 14 heiðskirt
Washington 11 þoka á sið.klst.
Winnipeg 2 skýjað
Sérstakur saksóknari, Páll Arnór
Pálsson, lauk máli sínu á föstudag
og tók þá til máls Guðmundur Ingvi
Sigurðsson, hrl., veijandi Björgólfs
Guðmundssonar, sem lauk máli sínu
í gærmorgun og tók þá við Jón
Magnússon, hrl., veijandi Ragnars
Kjartanssonar. Búist er við að ræðu
Jóns ljúki síðdegis í dag og þá eiga
lögmennirnir Jónas A. Aðalsteins-
son, vcjandi Páls Braga Kristjóns-
sonar, og Jón Steinar Gunnlaugs-
son, veijandi Helga Magnússonar,
eftir að flytja mál sitt.
Kæra vegna fjögurra
milljóna fjárdráttar
FYRRVERANDI framkvæmda-
stjóri Islandsdeildar alþjóðlegu
skiptinemasamtakanna AFS
hefur verið kærður til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins fyrir að
draga sér á fimmtu milljón
króna úr sjóðum samtakanna,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins. Viðkomandi lét af
störfum í byrjun þessa árs og
vaknaði grunur um misferli
strax og núverandi fram-
kvæmdastjóri fór að kynna sér
bókhald samtakanna.
Framkvæmdastjórinn lét af
störfum í lok janúar og dvelst nú
erlendis. Ekkert hefur verið
endurgreitt af því fé sem talið er
að viðkomandi hafi dregið sér.
AFS eru alþjóðleg samtök og mun
fjárdrátturinn bitna á sjóðum
hinna alþjóðlegu samtaka.
Núverandi framkvæmdastjóri,
Sigfríður Gunnlaugsdóttir, og for-
maður AFS á íslandi, Gréta Ing-
þórsdóttir, vildu ekki annað um
málið segja í samtali við Morgun-
blaðið, en.að það hefðiengiiLáhrif.
á starf samtakanna og þjónustu
þá sem þau veita.
Stakk af með
glæfraakstri
en náðist síðar
PILTUR á 18. ári ók bifhjóli með
farþega um götur borgarinnar á
130-160 kílómetra hraða á laug-
ardagsmorguninn. Hann hafði
ekki réttindi til að aka bifhjóli og
er grunaður um ölvun við akstur-
inn. Hjólið hafði hann fengið lánað
hjá kunningja sínum.
Lögreglumenn veittu akstri pilts-
ins athygli þegar hann æddi fram
úr lögreglubíl á Reykjanesbraut. Eft-
ir nokkra eftirför, þar sem pilturinn
skeytti hvorki um rauð ljós, stöðvun-
arskyldu né stöðvunarmerki lög-
reglu, hvarf hann sjónum en síðdeg-
is á sunnudag kom sama farartæki
aftur inn í radar lögreglunnar á ólög-
legum hraða. Þá nam pilturinn stað-
ar en við yfírheyrslur viðurkenndi
hann brot sitt frá því á laugardags-
.morgun______________,__i