Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 33

Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 33
MORGÚNBLÁtilÖ ÞtóÉ)jbl3ÁÖUll ífe'. XpRÍL ‘l9áí Bandarísk umhverfisverndarsamtök; Ovæntur stuðningnr við hval- veiðar 1 Norður-Atlantshafi BANDARÍSKU umhverisvernd- arsamtökin National Wilder- ness samþykktu á ráðstefnu fyr- ir nokkru yfirlýsingu, þar sem lýst er stuðningi við hefðbundn- ar hvalveiðar þjóðanna við Norður-Atlantshafið. Jafnframt Ofbeldi eykst á er viðurkenndur réttur sér- hverrar þjóðar til skynsamlegr- ar nýtingar auðlinda sinna. Þessi yfirlýsing en nokkuð óvæntur stuðningur við hval- veiðar, hvaða áhrif sem hún kann að hafa. Það er færeyska Dagblaðið, sem nýlega greinir frá þessari sam- þykkt, en hún er á þessa leið: „Fjórða alþjóðlega ráðstefna National Wilderness ítrekar og viðurkennir réttindi sérhverrar þjóðar til skynsamlegrar nýtingar auðlinda sinna. Sérstaklega vill ráðstefnan taka fram óánægju sína vegna vegna alþjóðlegs þrýst- ings á löndin í Norður-Atlants- hafi, ísland, Kanada, Noreg, Grænland og Færeyjar vegna hefðbundinnar nýtingar á hvala- stofnunum. Gefi rannsóknir vísindamanna tilefni til hvalveiða, verði stjórn- málamenn að taka mið af því. Ráðstefnan heitir á þjóðir heimsins að virða hin ótvíræðu réttindi þess- ara þjóða til nýta auðlindir sínar á sem beztan hatt.“ Reuter Matthias Rust fyrir rétt Vestur-Þjóðveijinn Matthias Rust, sem lenti lítilli flugvél á Rauða torginu í Moskvu árið 1987, var leiddur fyrir rétt í gær fyrir tilraun til manndráps. Hann er sakaður um að hafa stungið átján ára gamla stúlku með hníf eftir að hún hafði neitað að leyfa honum að kyssa sig. Á myndinni gengur Rust inn í réttarsalinn ásamt veijanda sínum. N-Mandi St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frí- mannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. TVEIR menn voru myrtir um helgina á Norður-írlandi en þar hafa hryðjuverkamenn hert að- gerðir að undanförnu. Tveir menn voru myrtir á Norð- ur-írlandi um sl. helgi. IRA myrti 23 ára mótmælanda á laugardag í Killen í Tyrone sýslu. Hann hefur aldrei tengst hernum eða lögregl- unni á nokkurn hátt og hafði nýlega flutt frá Englandi til að vera með öldruðum foreldrum sínum. IRA sagði, að maðurinn hefði verið með- limur í hryðjuverkasamtökum mót- mælenda, en enginn kannast við það. IRA myrti lögreglumann á laug- ardag í Lisburn í Antrim sýslu. Hann var 61 árs gamall og var ekki við skyldustörf. Níu manns hafa verið myrtir sl. 15 daga á Norður-írlandi og frá áramótum hafa 22 látið lífið í of- beldisverkum. Síðan vopnuð átök hófust á Norður-írlandi fyrir rúm- um 20 árum hafa tæplega 2.900 manns látist. Stjórnmálamenn á Norður-ír- landi óttast að þessi alda hryðju- verka sé tilraun öfga- og ofbeldis- manna til að grafa undan fyrirhug- uðum viðræðum stjórnvalda í Lund- únum og allra stjórnmálaflokka á Norður-Irlandi, sem hefjast innan skamms. -----♦ ♦ ♦ Sonarlaus í 17 tíma ## Tókýó, Reuter. OLDRUÐ japönsk kona hneig niður er sonur hennar knúði að dyrum 17 klukkustundum eftir að hún hafði sjálf staðfest að hann væri látinn. Lögreglan hafði fundið lík manns, sem ekinn hafði verið nið- ur, í vegarkanti skammt frá heimili gömlu konunnar. Var hún kvödd í líkhúsið þar sem hún staðfesti að líkið væri af 55 ára gömlum syni hennar. Undirbúningur að útför sonarins var hafinn og var gamla konan önnum kafin við skipulags- störfin þegar „hinn látni“ kom heim til móður sinnar. Hafði hann brugð- ið sér bæjarleið og dvaldi hjá vinum er hann frétti frá nágrönnum um andlát sitt. VINKLAR Á TRÉ Þ.ÞORGRfMSSON&CO ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640 £ O I •5 c ni Davíð þorír ekki en þorír Fríðrík? Jón Baldvin Hannibalsson skorar á Friðrik Sophusson að mæta sér á opnum fundi íÁtthagasal Hótels Sögu þriðjudagskvöldið 16. aprfl kl. 20.30. Umræðuefni: ★ Sjávarútvegsmál ★ Landbúnaðarmál ★ Neytendamál ★ Ríkisfjármál ★ Skattamál ★ Húsnæðismál ALÞYÐUFLOKKURINN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.