Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 43
Frá Alþingi
íbúð fræðimanns
í Kaupmannahöfn skv. reglum um
hús Jóns Sigurðssonar
íbúð fræðimanns í Kaupmannahöfn, skv.
reglum um hús Jóns Sigurðssonar, er laus
til afnota tímabilið 1. september 1991 til 31.
ágúst 1992. Fræðimenn, sem hyggjast
stunda rannsóknir eða vinna að verkefnum
í Kaupmannahöfn, geta sótt um afnotarétt
af íbúðinni, sem er í St. Paulsgade 70 (ör-
skammt frá Jónshúsi). Hún er þriggja her-
bergja (80 fm), en auk þess hefur fræðimað-
urinn vinnuherbergi í Jónshúsi. íbúðinni fylg-
ir allur nauðsynlegur heimilisbúnaður og er
hún látin í té endurgjaldslaust. Dvalartími í
íbúðinni er að jafnaði þrír mánuðir en til
greina kemur skemmri tími eða lengri eftir
atvikum.
Umsóknir um íbúðina skulu hafa borist til
skrifstofu Alþingis eigi síðar en 15. maí nk.
Umsækjendur skulu gera grein fyrir tilgangi
með dvöl sinni í Kaupmannahöfn, syo og
menntun og fyrri störfum. Ennfremur hvenær
og hve lengi óskað er eftir íbúðinni. Tekið
skal fram að úthlutunarnefnd ætlast til að
dvalargestir nýti úthlutaðan tíma sinn að
fullu við störf í Kaupmannahöfn.
Sérstök eyðublöð er hægt að fá á skrifstofu
Alþingis í Alþingishúsinu í Reykjavík og í
sendiráðinu í Kaupmannahöfn.
KENNSLA
Samvinnuháskólinn
- rekstrarfræði
Samvinnuháskólapróf í rekstrarfræðum
miðar að þvf að rekstrarfræðingar séu und-
irbúnir til forystu-, ábyrgðar- og stjórnunar-
starfa í atvinnulífinu.
Inntökuskilyrði: Stúdentspróf af hagfræði-
eða viðskiptabrautum eða lokapróf í frum-
greinum við Samvinnuháskólann eða annað
sambærilegt nám.
Viðfangsefni: Öll helstu svið rekstrar, við-
skipta og stjórnunar, s.s. markaðsfræði, fjár-
málastjórn, starfsmannastjórn, stefnumót-
un, lögfræði, félagsmálafræði samvinnumál
o.fl.
Námstfmi: Tveirvetur, frá septembertil maí.
Frumgreinadeild til undirbúnings
rekstrarfræðanámi.
Inntökuskilyrði: Þriggja ára nám á fram-
haldsskólastigi án tillits til námsbrautar.
Viðfangsefni: Bókfærsla, hagfræði, tölvu-
greinar, enska, íslenska, stærðfræði, lög-
fræði og félagsmálafræði. Einn vetur.
Aðstaða: Nemendavist og fjölskyldubústaðir
á Bifröst í Borgarfirði ásamt vinnustofum,
bókasafni, tölvubúnaði o.fl. Barnaheimili og
grunnskóli nærri.
Kostnaður: Fæði, húsnæði og fræðsla áætl-
uð um 38.000 kr. á mánuði fyrir einstakling
næsta vetur.
Umsóknir: Með bréfi til rektors Samvinnu-
háskólans á Bifröst. Umsókn á að sýna per-
sónuupplýsingar, upplýsingar um fyrri skóla-
göngu með afriti skírteina og um fyrri störf.
Tvenn skrifleg meðmæli fylgi. Veitt er inn-
ganga umsækjendum af öllu landinu. Þeir
umsækjendur ganga fyrir, sem orðnir eru
eldri en 20 ára og hafa öðlast starfsreynslu
í atvinnulífinu. Námið hentar jafnt konum
sem körlum.
Umsóknir verða afgreiddar 25. apríl og síðan
eftir því sem skólarými leyfir.
Samvinnuháskólanám er lánshæft.
Samvinnuháskólinn á Bifröst,
311 Borgarnesi - sími 93-50000.
Háskólinn á Akureyri
Umsókn um skólavist
Heilbrigðisdeild, rekstrardeild og
sjávarútvegsdeild
Við heilbrigðisdeild er ein námsbraut, hjúkr-
unarbraut.
Við rekstrardeild eru þrjár námsbrautir, iðn-
rekstrarbraut, rekstrarbraut og gæðastjórn-
unarbraut.
Við sjávarútvegsdeild er ein námsbraut, sjáv-
arútvegsbraut.
Umsóknarfrestur um skóiavist er til 1. júní
1991.
Með umsókn á að fylgja staðfest afrit af
prófskírteinum. Ef prófum er ekki lokið skal
senda skírteini um leið og þau liggja fyrir.
Skilyrði fyrir inntöku í heilbrigðisdeild er stúd-
entspróf, próf frá Hjúkrunarskóla íslands eða
annað nám, sem stjórn skólans metur jafn
gilt.
Skilyrði fyrir inntöku í rekstrardeild, iðn-
rekstrarbraut og rekstrarbraut er stúdents-
próf eða annað nám, sem stjórn skólans
metur jafngilt.
Skilyrði fyrir inntöku í rekstrardeild, gæða-
stjórnunarbraut, er tveggja ára rekstrarnám,
eða annað nám, sem stjórn skólans metur
jafngilt.
Skilyrði fyrir inntöku í sjávarútvegsdeild er
stúdentspróf eða annað nám, sem stjórn
skólans metur jafngilt, svo og eins árs starfs-
reynsla við sjávarútveg.
Umsóknarfestur um húsnæði á vegum Fé-
lagsstofnunar stúdenta á Akureyri er til 20.
júní 1991.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar eru veitt-
ar á skrifstofu skólans við Þingvallastræti,
sími 96-11770, frá kl. 9.00 til 12.00.
Háskólinn á Akureyri.
FUNDIR - MANNFA GNAÐUR
8 B x-iÉk
ann nrr
rm rm
afffi nn
m rg
TTTTT! II" rr
rffl rffl
Vorfagnaður NEMA
Vorfagnaður Nemandasambands Mennta-
skólans á Akureyri verður haldinn á Hótel
Borg, föstudaginn 3. maí.
Húsið opnað kl. 19.00. Fjölbreytt dagskrá.
Hljómsveit Ingimars Eydal leikur fyrir dansi.
Miðaverð kr. 3.000 fyrir matargesti. Miða-
verð á dansleik kr. 1.000.
Miðar verða seldir á Hótel Borg frá mánudeg-
inum 29. apríl til miðvikudagsins 1. maí.
Tryggið ykkur miða í tæka tíð.
Stjórn NEMA.
ÝMISLEGT
Einbýlishúsalóðir í
Setbergshlíð í Hafnarfirði
Nokkrar einbýlishúsalóðir til úthlutunar nú
þegar í hásæti Hafnarfjarðar. Lóðirnar eru
910 fm að stærð og frá þeim er stórkostlegt
útsýni yfir Hafnarfjörð og nágrenni.
Allar nánari upplýsingar veita SH-verktakar,
sími 652221.
SH VERKTAKAR
TIL SÖLU
Jörð til sölu
Jörðin Torfastaðir í Fremri-Torfustaðahreppi,
V-Hún., er til sölu og laus til afhendingar í vor.
Jörðin selst með eða án fullvirðisréttar, véla
og bústofns. Henni fylgir 70 hektara stórt
silungsveiðivatn sem býður upp á mikla
möguleika t.d. ferðaþjónustu. Laxveiðiréttur
er í Miðfjarðará.
Möguleiki er að taka góða eign á Reykjavíkur-
svæðinu sem greiðslu að hluta.
Upplýsingar í síma 95-12641.
Sjálfstæðisflokkurinn boðar til almenns
stjórnmálafundar í samkomuhúsinu Stað á
Eyrarbakka í dag, þriðjudaginn 16. apríl,
kl. 21.00. Á fundinn mæta 4 efstu menn á
D-listanum í Suðurlandskjördæmi Þor-
steinn Pálsson, Árni Johnsen, Eggert Hauk-
dal og Drífa Hjartardóttir. Einnig mæta á
fundinn þau Arndís Jónsdóttir sem skipar
5. sæti listans og Baldur Þórhallsson sem
skipar 8. sætið.
Eyrbekkingar eru hvattir til að mæta á fund-
inn og taka þátt í umræðum.
Sjálfstæðisflokkurinn.
Sjálfstæðiskonur
Akureyri
Fundur verður hald-
inn með kvenfram-
bjóðendum D-list-
ans þriðjudaginn 16.
apríl á Glerárgötu
32, kl. 20.30.
Allar sjálfstæðis-
konur velkomnar.
Sjálfstæðiskvennafélagið Vörn.
Opið hús íValhöll
Það verður opið hus
i Valhöll, Háaleitis-
braut 1, alla dagafrá
kl. 15.00 til 18.00
fram að kosningum
20. april.
Á boðstólum er kaffi
og aðrar veitingar
og spjall um stjórn-
málin og kosninga-
baráttuna.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík verða á staðnum 1
kl. 16.30 til 17.30.
I dag veröur Guðmundur Hallvarðsson gestur í opnu húsi.
Að auki verður Sigfús Halldórsson, tónskáld á staðnum.
Sjálfstæðisflokkurinn.
SJÁLFSTÆDISFLOKKURINN
F F. I. A G S S T A R F
Eyrarbakki