Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 57

Morgunblaðið - 16.04.1991, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. APRIL 1991 57 Hrönn Haniðadótlir söng- Þóra Fríða Sæmundsdóttir kona. píanóleikari. Söngur á Háskólatónleikum fliðadóttir söngkona og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanóleikari koma fram á næstu Háskólatónleikum. Tónleikarnir verða í Norræna Benjamin Britten og þjóðlög í húsinu miðvikudaginn 17. apríl útsetningu Benjamin Britten sem kl. 12.30. samin voru fyrir Peter Pears og Á efnisskránni er ljóðabálkur- Osian Ellis. inn A Charm of Lullabies eftir Líkami hennar var að vísu heftur en sál hennar var þroskaðri en al- mennt gerist hjá unglingi. Kynni mín af Þórunni var dýr- mæt og sérstök reynsla, sem lengi á eftir að hafa áhrif á líf mitt og starf. Ég votta foreldrum, bróður, öll- um aðstandendum og vinum mína dýpstu samúð. Megi minning yndislegrar stúlku lifa. Oddný Dóra Halldórsdóttir Ég ætla að minnast elskulegrar frænku minnar, Þórunnar Jónínu Hafþórsdóttur, í fáeinum orðum. Hún lést þann 7. apríl sl. fimmtán ára gömul, og var búin að vera með annan fótinn inn á spítala í fimmtán ár. Hún var sannkölluð hetja og mjög elskuleg stúlka. Hún kvartaði aldrei, sama hvað dundi á. Hún stundaði nám í Hlíðaskóla og stóð sig afburða vel í námi. Þórunn frænka mín var hreyfihömluð og svo er einnig um mig, við Þórunn vorum saman í sérdeild hreyfihaml- aðra sem er starfandi í Hlíðaskóla og hef ég lært mikið af henni og hennar þolinmæði. Hún var mjög skynsöm og skilningsrík og alltaf sá hún björtu hliðarnar á öllum málum, til dæmis kallaði hún önd- unarvélina sína „Andalúsíu". Ég bið góðan guð að styrkja pabba hennar, mömmu og Tómas bróður^ hennar í sorginni. Ólöf Inga Halldórsdóttir Full söknuðar fylgjum við litlu frænku okkar og vinkonu, henni Þórunni, til grafar. Nú þegar leiðir skilja, koma upp í hugann þær stundir sem við nutum í návist hennar. Við minnumst glaðværrar stúlku með óbilandi bjartsýni sém fjötrar fötlunar hennar náðu ekki að hefta. Við minnumst þess hvernig hún tók sjúkdómi sínum með því æðruleysi og hugrekki sem fáir búa yfir. Fimmtán ár eru ekki langur tími á mannsævinni en á fimmtán ára ævi sinni tókst Þórunni að kenna okkur sem umgengust hana, ýmis- legt um gildi Iífsins. Hún kenndi okkur að koma auga á bestu hliðar allra hluta. Aldrei heyrðum við hana kvarta þó að hún þjáðist og varð manni því oft hugsað til hennar þegar manni fannst lífið ekki ganga eins og maður vildi. Þrátt fyrir þau takmörk sem lík- ama hennar voru sett var hugsun hennar skýr og tilsvör skemmtileg. Fékk hún mann oftsinnis til að gleyma því að þar færi stúlka sem ekki gengi heil til skógar. Þórunn okkar minnti um margt á flöktandi kertaloga sem vandlega var gætt af foreldrum hennar, þeim Hafþóri og Lilju, og Tomma bróð- ur. Styrkur þeirra og stuðningur við hana vakti athygli og aðdáun þeirra sem þau sáu. Við heimsókn á Brekkulæk var það glaðværðin og gestrisnin sem hreif. Allt heimil- isfólk lagði sig fram við að láta öllum líða vel, enda gestkvæmt þar og oftar en ekki var Þórunn mið- punkturinn. Öðru sinni þurfa þau Lilja, Daddi og Tommi að sjá á eftir ástkæru barni og systkini yfir móðuna miklu. Þeirra missir er mikill og biðjum við algóðan Guð að styrkja þau í þeirra sorg. Hún Þórunn litla er dáin en í hjörtum okkar lifír minningin um hana um ókomin ár. Sigrún, Vigfús og fjölskylda Fyrir fimm árum var mér falin umsjón með 10 ára bekk í Hlíða- skóla og áttum við samleið í þijá vetur. Þessi bekkur var einkar ljúfur í umgengni og gekk samvinnan eft- ir því. í þessum glaðværa og hressa hópi var Þórunn Jóníná, bundin hjól- astól, en hrókur alls fagnaðar, ötul og ókvalráð, brosandi sínu geislandi brosi og með spaugsyrði á vörum, fús til hvaða leiks -sem var. Það vakti fljótlega athygli mína hversu skýr hún var í tali og þroskuð í hugsun, þótt árín væru ekki mörg. Verkefni þau, sem henni var falið að leysa, voru unnin af vandvirkni og með miklum ágætum, þótt vinnu- þrekið væri oft ekki mikið, en þá kom í ljós hinn óbifandi vilji, sem fleytti henni yfir margan erfiðan hjallann. Hún gekk þess ekki dulin, að líf hennar kynni að verða stutt hér á jörð', en ekki var að sjá, að það vekti hjá henni ugg, því vissan um það sem þá tæki við var henni styrkur og veitti sálarró. Aldrei varð beiskju vart hjá henni yfir hinum líkamlega vanmætti. Hún sýndi þar svo fág- ætt æðruleysi og hetjulund, að at- hygli vakti hjá öllum þeim, sem henni kynntust. Þegar leiðir hafa skilið að sinni, vil ég með þessum fáu orðum þakka Þórunni Jónínu fyrir samfylgdina. Þótt stutt væri gaf hún -mér svo mikið. Foreldrum hennar og fjöl- skyldu færi ég innilegar samúðar- kveðjur. Tómas Einarsson í dag kveðjum við hinstu kveðju ástsælan nemanda okkar, Þórunni Jónínu Hafþórsdóttur, en hún lést í Landspítalanum 7. apríl síðastlið- inn eftir langvarandi veikindi, 15 ára að aldri. Þórunn hóf nám í Hlíðaskóla haustið 1982, ljóshærð, falleg hnáta er lífsgleðin geislaði af. Það var engin lognmolla í kringum liana og með léttri lund, hnyttnum tilsvörum og skærum hlátri vann hún hjörtu allra er kynntust henni. Nánrið sótt- ist henni vel, enda var hún iðin og kappsöm og hafði hlotið góðar gáfur í vöggugjöf. Þórunn hafði yndi af söng og oft var hún fengin til að syngja einsöng á skólaskemmt- unum. Þá voru þau ófá leikritin er hún lék í hjá okkur og leikstýrði sjálf af röggsemi og skörungsskap. En þrátt fyrir að Þórunn hefði mik- ið til brunns að bera, grúfði dökkur skuggi yfir'lífi hennar. Á unga aldri greindist hún með ólæknandi, óvæg- inn sjúkdóm og með sorg í hjörtum fylgdumst við með því hvernig veik- indin lömuðu líkamlegt þrek hennar smátt og smátt. Hláturinn hljóðnaði og gáskinn í augunum dvínaði, en alltaf stafaði biríu og hlýju frá henni og andlegu þreki og atgervi hélt hún allt þar til yfir lauk. Nú að leiðarlokum er okkur efst í huga þakklæti fyrir að hafa feng- ið að kynnast Þórunni Jónínu. Hún verður ógleymanleg öllum þeim er henni kynntust. Með þrautseigju sinni og dugnaði ávann hún sér hvarvetna virðingu og aðdáun. Hún hafði til .að bera mikinn andlegan þroska og djúpan lífsskilning. Ein- læg og sterk Guðstrú hennar veitti henni styrk til að taka með æðru- leysi því er að höndum bar. Þrátt fyrir mikla fötlun og erfitt sjúk- dómsstríð var hún sátt við hlut- skipti sitt og taldi ákveðinn, æðri tilgang með því oki er á hana var lagt. Innilegar samúðai'kveðjur send- um við foreldrum hennar og bróður, sem veittu henni alla tíð mikinn styrk og stuðning og umvöfðu hana kærleika og ástríki allt til hinstu stundar. Hafi Þórunn þökk fyrir allt. Starfsfólk deildar hreyfihaml- aðra Hlíðaskóla. ■ Á PÚLSINUM í kvöld, þriðju- dagskvöld, verður hljómsveitin Sálarháski með tónleika. Hljóm- sveitina skipa Eyþór Gunnars- son, píanó, Sigurður Flosason, sax, Pétur Grétarsson, trommur og sér jafnframt um kynningar, Tómas R. Einarsson, kontra- bassi, og Atli Eðvarðsson, tromp- ett. Gestur kvöldsins verður Friðrik Theódórsson sem leikur á básúnu og syngur. Athygli er vakin á því að forsvarsmenn stjórnmálaflokk- anna eru sérstaklega boðnir vel- komnir og fær hver fulítrúi áætl- aðan tíma til að tala við tónlistar- gesti. Einnig verður boðið upp á sérstakan X-fordiykk í tilefni kvöldsins. fwí; 114. BARNATANNKREM AHRIFARIKT GEGN TANNSKEMMDUM — ÞRÓAÐ AF FÆRUSTU TANNHIROUSÉRFRÆÐINGUM Bangsa barnatannkremið frá Sensodyne er gæðatannkrem, sérstaklega ætlað börnum. Það i.nniheldur fluor tij varnar tannskemmdum. Bangsa barnatannkremið freyðir minna en venjulegt tannkrem. Of mikil froða gerir það gjarnan að verkum að barnið spýtir fyrr en ella og flúorinn nær ekki að leika nógu lengi um tennurnar. Bangsa barnatannkremið er með mildu og góðu myntubragði sem börnunum likarvel og gerirtannburstunina skemmtilega! Sér- staklega ef þau nota mjúkan tannbursta frá Sensodyne. .... Tennurnar eiga að endast alla ævi — gættu þeirra vel — gerðu tannburstunina skemmtilega fyrir börnin. KlMIKUh HÖRGATÚNI 2, GARÐABÆ SIMI40719 forystumaður ............... ' HWíj íl. ■ -i.-..,-.-w--------'.i,-i i;; ,,.S. i-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.