Morgunblaðið - 27.04.1991, Page 1
72 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
94. tbl. 79. árg.
LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ný sljóm
tekur við í
Finnlandi
Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara
Morgunblaðsins.
ESKO Aho, 36 ára gamall for-
maður Miðflokksins, tók við
starfi forsætisráðherra Finn-
lands í gær. Er hann yngsti mað-
ur sem gegnir þessum starfa frá
því Finnar hlutu sjálfstæði árið
1917.
I hinni nýju fjögurra flokka stjórn
mið- og hægriflokkanna sitja 17
ráðherrar og er meðalaldur þeirra
44 ár. Elsti ráðherrann er Elisabeth
Rehn varnarmálaráðherra, 56 ára.
Hún gegndi sama starfa í fráfar-
andi ríkisstjóm og fyrsta konan sem
verður varnarmálaráðherra í Evr-
ópuríki. Af ráðherrunum eru 8 úr
Miðflokknum, sex frá Hægriflokkn-
um, tveir úr Sænska þjóðarflokkn-
um og einn úr Kristilega flokknum.
Við valdatökuna hét Aho að blása
nýju lífi í efnahagslíf Finnlands.
Sjá „Þáttaskil í finnskum
stjórnmálum" á bls. 25.
♦ ♦ ♦
Svissnesk
stjórnvöld
þaulkanna
EB-aðild
Bern. Reuter.
RÍKISSTJÓRN Sviss mun á næst-
unni ræða kosti og galla þess að
ríkið gerist aðili að Evrópu-
bandalaginu (EB). Sviss, sem
fylgir hlutleysisstefnu í utanrík-
ismálum, hefur fram að þessu
ekki tekið virkan þátt í alþjóða-
samstarfi og aðild að Sameinuðu
þjóðunum m.a. verið hafnað í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Yves Seydoux, talsmaður ut-
anríkisráðuneytisins, sagði hins
vegar í gær að aðild Sviss að EB
yrði tekin fyrir í ríkisstjórninni jafn-
vel þegar 8. maí nk.
Tók Seydoux fram að umræðan
um hugsanlega EB-aðild drægi á
engan hátt úr stuðningi Sviss við
myndun Evrópsks efnahagssvæðis
(EES) en um það standa nú yfir
viðræður milli EB og Fríverslunar-
samtaka Evrópu (EFTA) sem Sviss
á aðild að.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
A Hvannadalshnúki
BIFREIÐ komst í fyrsta sinn á hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk, á fímmtudaginn. Var hún af gerðinni Jeep Comanche. Leiðangur 29 manna
á 12 jeppum fór á hnúkinn, en aðeins einn bíll fór alla leið á hæsta tindinn.JVIyndin er tekin skömmu áður en tindinum var náð og eru Hrúts-
fjallatindar í baksýn. Sjá nánar frétt á bls. 22.
George Bush Bandaríkjaforseti:
Bandarískur her vemdar
Kúrda meðan þörf krefur
Washingion. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að bandariskar her-
sveitir myndu veita Kúrdum vernd á svæðum flóttamanna í norður-
hluta íraks svo lengi sem þörf krefði. Jafnframt hvatti Bush til þess
að Saddam Hussein Iraksforseta yrði steypt af stóli og endi bundinn
á ógnarstjórn hans.
Bush hét Kúrdum vernd svo lengi
sem nauðsynlegt yrði talið, en auk
bandariskra hermanna aðstoða
breskir, franskir og hollenskir her-
menn við hjálparstarf í norðurhluta
íraks. Talið er að hátt á aðra millj-
ón óbreyttra Kúrda hafi lagt á flótta
undan stjómarher Saddams sem fór
með vopnum gegn varnarlausum
borgurum þegar fjara tók undan
uppreisn kúrdískra skæruliða.
Einnig flýðu hundruð þúsunda shíta
í suðurhluta landsins til írans eða
leituðu verndar hjá hersveitum
bandamanna við landamæri Kúv-
eits. Útvarpsstöð uppreisnarmanna
í suðurhlutanum sagði í gær, að í
fyrrinótt hefðu skæruliðar ráðist
inn í Basra, næststærstu borg
landsins, úr þremur áttum og náð
henni á sitt vald. Fréttin fékkst
ekki staðfest en flóttamenn hafa
undanfarna daga skýrt frá átökum
milli uppreisnarmanna og stjórnar-
hermanna í suðurhlutanum.
Saudi-Arabar sögðust í gær ætla
Míkhaíl S. Gorbatsjov um sovéska ríkjasambandið:
Ursögn lýðvelda torvelduð
Mnal/vu línnfor
Moskvu. Reuter.
ÞEIM SEX Sovétlýðveldum sem stefna ad fullu sjálfstæði verður
ekki gert auðvelt að yfirgefa ríkjasambandið, að sögn Míkhaíls Gor-
batsjovs Sovétleiðtoga. Ríkin sex; Eistland, Lettland, Litháen, Georg-
ía, Armenía og Moldova, hafa neitað að samþykkja nýjan ríkjasátt-
mála. Þau taka heldur ekki þátt í að ræða neyðaráætlun í efnahags-
málum sem forsetar hinna lýðveldanna með Borís Jeltsín Rússlands-
forseta hafa nú samþykkt.
„Að sjálfsögðu verða lýðveldin
sex að horfast í augu við það hvern-
ig samband þeirra eigi að vera við
ríkjasambandið,“ sagði Gorbatsjov
í þingræðu. „Þau sem kjósá að yfir-
gefa það verða að haga aðgerðum
sínum í samræmi við stjórnar-
skrána. Það verður að kanna allar
hliðar málsins — mannleg vanda-
mál, fjármál, efnahagsmál, varnar-
mál, ekkert má undanskilja.“ Harð-
ar deilur hafa geisað milli Sovét-
stjórnarinnar og stjórna lýðveld-
anna um greiðslur í sameiginlega
sjóði sambandsins og umbótasinnar
gagnrýna nýja sáttmálann á þeim
forsendum að úrslitavaldið verði
samkvæmt honum enn í Moskvu.
Lög ríkjasambandsins gera ráð
fyrir því að það taki fimm ár fyrir
lýðveldi að ganga úr því, tvisvar
skuli verða þjóðaratkvæðagreiðsla
um úrsögnina og lokaákvörðun
skuli þing lýðveldisins taka. Þau
lýðveldi sem stefna á sjálfstæði
segja að skilyrðin séu óaðgengileg.
Sjá „Jeltsín sakaður um að
knékrjúpa fyrir Sovétstjórn-
inni“ á bls. 24.
að skjóta skjólshúsi yfir um 50.000
íraska flóttamenn sem hafst hafa
við á yfirráðasvæði hersveita
bandamanna í suðurhluta íraks. Þar
á meðal eru um 16.000 íraskir
stríðsfangar sem ekki vilja snúa
aftur heim. Ákvörðun Saudi-Araba
var vel tekið af hálfu fulltrúa flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Hundruð léttvopnaðra íraskra
herlögreglumanna urðu við fyrir-
mælum herja bandamanna í gær
og fóru frá borginni Zakho. Stjórn-
in í Bagdad ákvað ennfremur í gær
að leggja niður varaliðið sem talið
hefur verið að um ein milljón sjálf-
boðaliða skipaði.
Utanríkisráðherrar Persaflóa-
ríkjanna munu koma saman til
fundar í Kúveit næstkomandi
þriðjudag og taka afstöðu til til-
lagna Kúveita um að bandamenn
verði beðnir að leggja sérstökum
arabískum öiyggissveitum lið.
Háttsettur embættismaður í ut-
anríkisráðuneytinu i Kúveit sagði
að til greina kæmi einnig að Irönum
yrði boðin aðild að sveitunum sem
ætlað er að halda uppi öryggis-
gæslu á Persaflóasvæðinu.
Sjá „Bush segir að mikill
árangur hafi náðst“ á bls. 25.