Morgunblaðið - 27.04.1991, Side 22
Í22
MORGKNBLAÐIÐ lLAUQARDAGUR:27. APRÍ.L ,1991
Farið var ájeppabifreið upp á Hvannadalshnúk á fimmtudag, í 2119 metra hæð yfir sjávarmáli.
Morgunblaðið/ómar Ragnarsson
Farið á jeppa á Hvannadalshnúk
LEIÐANGUR 29 manna á 12 jeppum er nú á Öræfajökli og tókst
honum að koma bíl upp á hæsta tind landsins, Hvannadalshnúk,
síðdegis á fimmtudaginn. Bílsljóri var Jón Eyjólfsson. Hópurinn
tafðist á leið sinni niður af jöklinum í gær, þar sem skyggni var
lítið og færð þung, auk þess sem gengið hafði verulega á bensín-
birgðir. Þegar haft var samband við leiðangurmenn síðdegis í
gær voru þeir í 2.050 metra hæð yfir sjávarmáli og ætluðu að
bíða þar eftir viðbótarbirgðum af bensíni og að veðrið batnaði.
Stóðu vonir þeirra til þess að hægt yrði að halda áfram í nótt
eða nú í morgun.
Leiðangurinn á Öræfajökul var
farinn á vegum Bílabúðar Benna
og er hún kostuð af bandaríska
fyrirtækinu Warn, sem framleiðir
spil fyrir bíla. Leiðangurinn lagði
af stað á Vatnajökul á sunnudag
og var fyrst haldið að skála Jökla-
rannsóknafélagsins við
Grímsvötn. Þar varð hópurinn
veðurtepptur en hélt áfram eftir
rúman sólarhring og kom að
Hvannadalshnúki aðfaranótt mið-
vikudags. Á miðvikudagsmorgun
var haldið á hnúkinn í blíðskapar-
veðri og tókst þá að koma bflnum
upp allar bröttustu brekkurnar.
Þar fór hann upp fyrir eigin vélar-
afli með aðstoð spils. Aðfaranótt
fímmtudags versnaði veðrið en
þegar því slotaði laust fyrir há-
degi á fímmtudag var haldið
áfram. Bíllinn náði svo tindinum
um klukkan hálf þrjú þá um dag-
inn.
Skömmu síðar var lagt af stað
til baka og jeppinn spilaður niður
að tjaldbúðum leiðangursmanna.
Til stóð að fara niður á fímmtu-
dagskvöld og voru tveir léttir jepp-
ar sendir á undan til að kanna,
hvort möguleiki væri á að hópur-
inn gæti stytt sér leið niður, en
frá því var horfíð. Veður hafði
þá versnað, skyggni lítið og færð
þung, auk þess sem gengið hafði
á bensínbirgðirnar.
Þegar haft var samband við
leiðangursmenn síðdegis í gær
voru þeir í um 2.050 metra hæð
yfír sjávarmáli. Þar ætluðu þeir
að bíða eftir því að þeim bærist
meira bensín og að veðrinu slot-
aði. Létu þeir vel af sér enda allir
við góða heilsu. Áttu þeir von á
að geta lagt af stað í nótt eða nú
í morgun og ætluðu þá að fara
sömu leið og þeir komu, eða áleið-
is til Grímsvatna.
Fílharmónía:
Haydn-tónleik-
ar í Kristskirkju
SÖNGSVEITIN Fílharmónía
heldur Haydn-tónleika í Krists-
kirkju, Landakoti, í dag, laugar-
daginn 27. apríl, kl. 17.00 og á
morgun, sunnudaginn 28. apríl,
kl. .20.30.
Á efnisskrá tónleikanna eru sin-
fónía nr. 26 í d-moll Lamentatione
og Nelson-messa í d-moll eftir
Haydn. Auk 80 manna kórs
Fflharmóníu koma fram á tónleik-
unum einsöngvaramir Ólöf Kolbrún
Harðardóttir, Þuríður Baldursdótt-
ir, Þorgeir J. Andrésson og Tómas
Tómasson og er þetta í fyrsta sinn
sem Þorgeir og Tómas koma fram
með Fíiharmóníu. Einnig leikur á
tónleikunum 24 manna hljómsveit
og er Szymon Kuran konsertmeist-
ari.
Höfundur verkefnanna, Franz
Joseph Haydn (1732-1809), samdi
sinfóníuna Lamentatione árið 1768
og vísar nafn verksins til laglínu
úr Gregorsöng kirkjunnar.
Nelson-messan er sú þriðja í röð-
inni af sex messum sem Haydn
samdi á árunum 1796 til 1802.
Nelson-messan er samin árið 1798
milli Sköpunarinnar og Árstíðanna.
Aðgöngumiðar eru seldir í Bóka-
búð Lárusar Blöndal, Skólavörðu-
stíg, og við innganginn.
Sif Tulinius fiðluleikari og Siguijón Halldórsson klarinettuleik-
ari.
Tvennir einleikstónleikar
TVENNIR einleikaraprófstónleikar verða haldnir á vegum Tón-
listarskólans í Reykjavík eftir helgi og eru þeir síðari hluti ein-
leikaraprófs Sifjar Tulinius fiðluleikara og Sigurjóns Halldórs-
sonar klarinettuleikara frá skóianum.
FYrri tónleikarnir eru mánu-
daginn 29. aríl í íslensku ópe-
runni og hefjast kl. 20.30. Þar
leikur Sif Tulinius fiðluleikari
ásamt Steinunni Birnu Ragnars-
dóttur píanóleikara og flytja þær
verk eftir Jón Nordal, J.S. Bach,
Gabriel Fauré og Camille Saint-
Saéns.
Seinni tónleikarnir eru þriðju-
daginn 30. apríl kl. 20.30 í Norr-
æna húsinu. Sigurjón Halldórs-
son klarínettuleikari og Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó-
leikari flytja verk eftir Claude
Debussy, Igor Stravinski, Þorkel
Sigurbjörnsson og Johannes
Brahms.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis.
Tónleikar Kammersveit-
ar Reykjavíkur falla niður
Bruno Hoffmann fallinn frá
Á MORGUN, sunnudaginn 28.
apríl voru fyrirhugaðir tónleikar
þjá Kammersveit Reykjavíkur þar
sem minnast átti 200 ára ártíðar
W.A. Mozarts. Var ætlun Kamm-
ersveitarinnar að bjóða tónleika-
gestum að hlýða á hið sjaldgæfa
hljóðfæri „glerhörpu" í fyrsta
sinn á íslandi, en eftir Mozart eru
til tvö verk fyrir þetta hljóðfæri.
Á vegum Kammersveitarinnar og
Goethe-Institute á íslandi var vænt-
anlegur til landsins Bruno Hoff-
mann, meistar glerhörpunnar. Bruno
Hoffmann lést á heimili sínu í Þýska-
landi í sl. viku. Banamein hans var
hjartaslag.
Bruno Hoffmann var fæddur í
Þýskalandi árið 1908. Hann vakti
glerhörpuna af Þyrnirósarsvefni, en
glerharpan var vinsælt hljóðfæri á
dögum Mozarts og eru til fyrir hana
fjöldi verka frá þeim tíma. Hún
gleymdist síðan og er það ekki fyrr
en nú á okkar dögum að Bruno
Hoffmann lét smíða fyrir sig gler-
hörpu og helgaði síðan líf sitt þessu
hljóðfæri. Hann ferðaðist um allan
heim, kynnti hljóðfærið og hélt tón-
leika. Einnig sömdu mörg tónskáld
fyrir hann verk, t.d. Richard Strauss,
Carl Orff, Harald Genzmer.
Bruno Hoffmann.
Bruno Hoffmann lék einnig inn á
fjölda hljómplatna. Með Bruno Hoff-
mann er meistari glerhörpunnar fall-
inn frá, en vonandi sofnar hljóðfær-
ið ekki aftur Þyrnirósarsvefni.
Kammersveit Reykjavíkur vonar að
gestir hennar fái tækifæri til að
kynnast hljóðfærinu þó síðar verði.
(Fréttatilkyning)