Morgunblaðið - 27.04.1991, Side 27
26
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991
27-
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Árvakur, Reykjavík
HaraldurSveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreíðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Stj órnar myndun
Forseti íslands hefur veitt
Davíð Oddssyni, for-
manni Sjálfstæðisflokksins,
umboð til stjórnarmyndunar.
Það er eðlileg niðurstaða
kosningaúrslitanna og þeirra
viðræðna, sem fram hafa
farið undanfarna daga á milli
forystumanna stjórnmála-
flokkanna. Davíð Oddsson
hefur lýst því yfir, að hann
óski eftir viðræðum við Al-
þýðuflokk um myndun nýrr-
ar ríkisstjórnar og hefjast
formlegar viðræður á milli
forystumanna þessara
tveggja flokka í dag. Það er
eðlileg afleiðing þeirrar mál-
efnastöðu, sem við blasir í
íslenzkum stjómmálum.
Morgunblaðið gagnrýndi
stjórnmálaflokkana mjög í
kosningabaráttunni fyrir það
að fjalla ekki meira um mál-
efni, en þeir gerðu. Hins veg-
ar er það fagnaðarefni, að
það er samstaða um mál-
efni, sem ræður ferðinni í
þeim viðræðum um myndun
nýrrar ríkisstjórnar, sem
hefjast í dag undir forystu
Davíðs Oddssonar. Alþýðu-
flokkurinn hefur komizt að
þeirri niðurstöðu, að það sé
líklegra til þess að tryggja
framgang helztu baráttu-
mála flokksins að taka upp
samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn og þingflokkur
Sjálfstæðisflokksins hefur
komizt að sömu niðurstöðu
varðandi helztu baráttumál
flokksins.
Þótt óformlegar viðræður
forystumanna Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks hafi
gengið vel til þessa, er aldrei
hægt að fullyrða fyrirfram
um það, hvort stjórnarmynd-
un tekst. Yafalaust eiga ein-
hverjir erfiðleikar eftir að
koma upp í þessum viðræð-
um, eins og alltaf er, en ef
málefnin ráða ferðinni áfram
er ástæða til að búast við
jákvæðum árangri af tilraun
Davíðs Oddssonar til stjórn-
armyndunar.
Verði af stjórnarsamstarfi
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks, má búast við
hatrömmum viðbrögðum frá
Framsóknarflokki en þó al-
veg sérstaklega Alþýðu-
bandalagi. Forystumenn Al-
þýðubandalagsins virðast
ekki vita sitt rjúkandi ráð
vegna þeirrar stefnu, sem
stjórnarmyndunin hefur tek-
ið. Hins vegar má ganga út
frá því, að þeir beiti öllum
hugsanlegum brögðum til
þess að gera slíkri ríkisstjórn
erfitt fyrir. Þess vegna þurfa
stuðningsmenn Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks að
vera undir það búnir að taka
fast á móti öllum tilraunum
foringja Alþýðubandalagsins
til þess að bregða fæti fyrir
stjórnarmyndun Davíðs
Oddssonar eða taka upp
skotgrafahernað gegn slíkri
ríkisstjórn.
' Það eru 20 ár liðin frá því
að farsælu tólf ára stjórnar-
samstarfi Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks lauk. Sú
rikisstjórn náði, þegar á
heildina er litið, mestum
árangri allra ríkisstjórna,
sem setið hafa frá því að
lýðveldi var stofnað á ís-
landi. Samstarf þessara
tveggja flokka olli þáttaskil-
um í íslenzku þjóðlífi á marg-
an veg.
Nú hafa þjóðmálin þróazt
á þann veg, að þessir tveir
flokkar eiga á ný mesta sam-
leið stjórnmálaflokka í
landinu. Framundan eru átök
við nokkur veigamestu mál,
sem þjóðin hefur þurft að
takast á við í sögu lýðveldis-
ins. Það fer vel á því, að
þessir tveir flokkar, sem áður
hafa skilað svo miklum
árangri sameiginlega, fái það
verkefni að leiða þjóðina inn
í nýja öld. Næstu árin verða
enginn dans á rósurn á vett-
vangi stjórnmálanna en það
skiptir miklu máli, hvernig
til tekst um tengsl okkar ís-
lendinga við Evrópuríkin, um
samninga um byggingu ál-
vers, um mótun nýrrar fisk-
veiðistefnu og um samdrátt
í umsvifum íslenzka ríkisins.
Takist stjórnarmyndun Dav-
íðs Oddssonar í samvinnu við
Jón Baldvin Hannibalsson
nú, munu stuðningsmenn
þessara tveggja flokka binda
miklar vonir við stjórnarsam-
starfíð og forystumenn þeirr-
ar ríkisstjórnar geta jafn-
framt gert kröfu um sterkan
stuðning frá flokksmönnum
sínum og öðrum velunnur-
um.
Morgunblaðið/Sverrir
Flokkstjórn Alþýðuflokksins kom saman s.l. fimmtudagskvöld til að ræða stöðuna í stjórnmálunum. Það var mat Jóns Baldvins Hannibalsson-
ar eftir fundinn, að mikill meirihluti hefði verið hlynntur stjórnarsamstarfi við sjálfstæðismenn. Hér kemur Jón til fundarins og heilsar Jó-
hönnu Sigurðardóttur og Rannveigu Guðmundsdóttur.
Steingrímur Hermannsson:
Hef vitað uin Yiðreisnarvilja
Alþýðuflokks í tvo mánuði
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra segist hafa vitað af
vilja forystumanna Alþýðuflokksins til stjórnarsamstarfs við Sjálf-
stæðisflokkinn undanfarna tvo mánuði. Steingrímur vísaði með öllu
á bug í samtali við Morgunblaðið í gær, að hans málflutningur varð-
andi Evrópubandalagið í kosningarbaráttunni hefði kostað hann reiði
krata og þar með forsætisráðherrastólinn. „Þetta er aum afsökun
hjá Alþýðuflokknum og algjör fyrirsláttur," sagði Steingrímur.
„Ég hef óttast það í tvo mánuði
að hér yrði mynduð Viðreisn á ný.
Ég óttaðist það, jafnvel þótt við
næðum meirihluta, sem ég bjóst
ekki við, að innan Alþýðuflokksins
væru það áhrifamikil öfl, sem ekk-
ert vildu annað en stjórnarsamstarf
við Sjálfstæðisflokkinn. Jón Baldvin
sagði mér þetta sjálfur fyrir hálfum
öðrum eða tveimur mánuðum síðan,
svo ekkert kemur mér á óvart í
þessum efnum,“ sagði Steingrímur.
Hann sagði Jón Sigurðsson hafa
starfað að því bæði ljóst og leynt
að hér yrði mynduð samstarfsstjórn
Alþýðuflokks og Sjálfstæðisflokks.
„Við Jón Baldvin áttum mjög
góðan fund í morgun og þar tók
hann fram að hann erfði ekkert af
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að hann, Jón Baldvin Hannibalsson
og Jóhanna Sigurðardóttir væru
fyrsta fólkið í sögu jafnaðarhreyf-
ingarinnar á íslandi sem hefði átt
þess kost að setja Sjálfstæðisflokk-
inn til hliðar í íslenskum stjórnmál-
þessu sem hefur verið ágreiningur
okkar upp á síðkastið. Þetta væri
bara eðlilegt,“ sagði Steingrímur.
Hann kvaðst hafa greint forseta
frá því í gærmorgun að hann væri
reiðubúinn til þess að reyna myndun
félagshyggjustjórnar. „En ég geri
fastlega ráð fyrir því að Jón Bald-
vin bendi á Davíð og þá er sjálfgef-
ið fyrir forseta að fara þá leið.“
A fréttamannafundi sem
Steingrímur Hermannsson hélt í
gær, sagði hann að_ sér hefði ekki
þótt eðlilegt að Ólafur Ragnar
Grímsson byði Jóni Baldvin Hanni-
balssyni forsætisráðherraembætti í
nýrri ríkisstjórn, þótt hann erfði það
ekki við hann. Steingrímur svaraði
neitandi spumingu um hvort þetta,
um og byggja hér upp sterka og
öfluga jafnaðarhreyfingu. „Ég hélt
að það væri sú hugsjón, sem hefur
bundið okkur Jón Baldvin saman,“
sagði Ólafur.
„Við fórum sem ungir menn í
framboð 1974 í nafni þeirrar hug-
og formlegar viðræður Alþýðu-
flokks og Sjálfstæðisflokks, yrði
ekki til þess að erfitt yrði fyrir leið-
toga núverandi stjórnarflokka að
ná saman aftur, færu viðræður um
Viðreisn út um þúfur. Steingrímur
sagði í því sambandi að hann teldi
málefnagrundvöll milli flokkanna
vera til staðar, og ekki þyrfti lang-
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir,
þingmaður Kvennalistans í
Reykjavík, segir að það komi sér
ekki á óvart, að forseti Islands
skuli hafa veitt Davíð Oddssyni,
sjónar. Við fórum saman í funda-
herferð um landið í janúar 1989 og
boðuðum framtíðarsýn jafnaðar-
mannahreyfingarinnar. í borgar-
stjórnarkosningunum í fyrra mynd-
uðu þúsundir af ungu fólki nýjan
vettvang, sem var helgaður þeirri
hugsjón. Ég skil þess vegna ekki
hvers vegna Jón Baldvin kýs að
bregðast þessari hugsjón og reynir
ekki einu sinni að mynda ríkisstjóm
þessara flokka áfram. Það hefur
verið draumur íslenskra jafnaðar-
manna, að öflug jafnaðarmanna-
hreyfing yrði ráðandi afl í íslenskum
stjórnmálum. Þennan draum drap
Jón Baldvin í gær,“ sagði Ólafur
Ragnar Grímsson.
an tíma til að fullvinna málefna-
samning væri vilji fyrir hendi.
Steingrimur tók það fram að
hann ætlaði sér ekki að hætta í
stjórnmálum eða segja af sér sem
formaður Framsóknarflokksins,
þótt flokkurinn lenti nú í stjórnar-
andstöðu, heldur myndi hann sinna
flokkstarfi þeim mun meira.
formanni Sjálfstæðisflokksins,
umboð til stjórnarmyndunar.
Hún segir Kvennalistinn muni
nú bíða og sjá hvað út úr viðræð-
um Alþýðuflokks og Sjálfstæðis-
flokks komi, en ef þeir nái ekki
saman sé Kvennalistinn tilbúinn
til viðræðna um fjögurra flokka
vinstri stjórn.
„Þetta kemur mér ekki á óvart,“
segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir.
„Eftir viðræður okkar við Jón Bald-
vin Hannibalsson, formann Alþýðu-
flokksins, á fimmtudaginn gerði ég
mér grein fyrir að áhugi Alþýðu-
flokksmanna á því að ræða stjórn-
armyndun við sjálfstæðismenn var
mun meiri en á viðræðum um fjög-
urra flokka stjórn."
Hún segir að Kvennalistinn muni
nú bíða og sjá hvað komi út úr við-
ræðum Sjálfstæðisflokks og Al-
þýðuflokks, en ef þær beri ekki
árangur sé Kvennalistinn áfram til-
búinn til viðræðna um stjórnar-
myndun með Alþýðuflokki, Alþýðu-
bandalagi og Framsóknarflokki.
„Við höfum staðið í könnunarvið-
ræðum við þessa flokka, og það
hefur ekki komið upp neinn sérstak-
ur ágreiningur milli okkar og þeirra.
Það virðast hins vegar vera einhver
óleist mál í samskiptum Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks."
Svartur dagur í sögujafn-
aðai-mannalireyfingarirmar
- segir Olafur Ragnar Grimsson
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, formaður Alþýðubandalagsins, segist
ekki skilja þá ákvörðun Jóns Baldvins Hannibalssonar, formanns
Alþýðuflokksins, að leggja til við forseta að veita Davíð Oddssyni,
formanni Sjálfstæðisflokksins, umboð til stjórnarmyndunar. I sam-
tali við Morgunblaðið í gær sagði Ólafur að þetta væri svartasti
dagurinn í sögu íslenskrar jafnaðarmannahreyfingar, þar sem Jón
Baldvin hefði brugðist hugsjón íslenskra jafnaðarmanna um að hér
yrði byggð upp öflug jafnaðarmannahreyfing, sem setti Sjálfstæðis-
flokkinn til hliðar í íslenskum stjórnmálum.
Þetta kemur mér
ekki á óvart
- segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
LÍTIÐ YKKUR NÆR
-segir Yoko Ono, sem opnar sýningu á verkum sínum á Kjarvalsstöðum í dag
Á sýningu sem opnuð verður
í vestursal Kjarvalstaða í dag,
verða sýnd 111 verk sem Yoko
Ono hefur unnið á árunum 1960
til 1990 og er sýningin því nokk-
uð ítarlegt yfirlit yfir myndlist-
arferil hennar.
Myndverk Yoko Ono eru ná-
tengd því hlutverki sem sem hún
hefur óneitanlega tekið að sér;
að boða frið. Hún gerir sér mat
úr smáum hlutum, úr daglegu
umhverfi og skilaboð hennar eru
„Líttu þér nær.“
Á blaðamannafundi sem Yoko
hélt á Kjai-valsstöðum í gær,
kvaðst hún ekki svartsýn á að
friður gæti náðst í heiminum,
þrátt fyrir Persaflóastríðið og aðr-
ar væringar, og bætti við: „Hér
áður hélt ég að friður mundi ríkja
í heiminum árið 1990. Svo er
ekki. En það þýðir ekki að allt
sé tapað - heldur að friðarbaráttan
taki lengri tíma.
Eg var mjög bjartsýn - en þótt
draumar mínir hafi ekki ræst,
geri ég mér grein fyrir að barátt-
an fyrir friði er mun útbreiddari
en hún var á 7. áratugnum. Við
hugsum meira um frið og hvaða
leiðir eru að honum.
Þið íslendingar getið skipað
veigamikið hlutverk í friðarbarát-
tunni. í stað þess að hugsa:
„Hvers erum við, lítil þjóð, megn-
ug,“ eigið þið að gera ykkur grein
fyrir hvaða forskot þið hafið. Ég
hef oft heyrt talað um ísland og
lesið um það; um hreinu jörðina,
loftið og vatnið. En þegar ég kom
hingað, áttaði ég mig á því hvað-
an þið hafið allan ykkar styrk og
orku; frá jörðinni. Ef þið eydduð
meiri tíma í að gleðjast yfir og
njóta þessarar ómenguðu'náttúru
Morgunblaðið/Einar Falur.
það, get ég sagt ykkur að fyrir
utan heimili mitt safnast oft aðdá-
endur, búnir myndavélum og
mynda húsið í gríð og erg. Þeir
eru að reyna komast að því hvern-
ig ég lifí. Á meðan á þessu stend-
ur, geng ég út og inn án þess að
þeir taki eftir mér. Það er þetta
sem ég á við, þegar ég segi; lítið
ykkur nær og njörvið ekki mark-
mið ykkar niður. Þið gætuð misst
af því sem er mikilvægt og þið
eruð að leita að.“
Yoko Ono á Kjarvalsstöðum í gær.
og skilduð að hana hafið þið fram
yfir flestar aðrar þjóðir, gætuð
þið verið öðj'um þjóðum fyrirmynd
- og það eru fyrirmyndirnar sem
hafa mestu áhrifin.
Smáir hlutir eru Yoko hugleikn-
ir og hún segir frá því að fyrst
eftir að eiginmaður hennar, John
Lennon, féll frá, hafi hún örvænt
um að hún hefði tapað mikilvæg-
um stalli til að útbreiða friðarboð-
skap sinn. En frá þeim tíma hafi
hún tekið upp aðrar aðferðir: „í
hvert sinn sem ég heyri einhvern
segja eitthvað sem máli skiptir,
eða les góða setningu í dagblaði
eða tímariti, sendi ég höfundinum
póstkort og þakka honum fyrir.
Það tekur ekki langan tíma og
með þessu hjálpum við hvert öðru
- og það er alltaf gott að vita að
maður stendur ekki einn.
Við erum oft með fyrirfram
ákveðnar hugmyndir og erum svo
upptekin af hugðarefnum okkar,“
sagði Yoko ennfremur, „að við
missum af því sem er að gerast
í kringum okkur. Sem dæmi um
Leikarar og aðstandendur leikritsins um Kaj Munk,
Höfn í Hornafirði:
Leikritið Kaj Munk
í Hafnarkirkju
LEIKRIT Guðrúnar Ásmundsdóttur um Kaj Munk verður frumsýnt
í leikstjórn Hlínar Agnarsdóttur í Hafnarkirkju, Höfn í Hornafirði,
næstkomandi sunnudag, 28. apríl, kl. 20.30. Nítján leikarar koma
fram í sýningunni, sá yngsti, Bryiyar Smári Bjarnason sem leikur
yngsta Kaj Munk, er aðeins 6 ára gainall. Hjalti Vignisson leikur
Kaj 10 ára gamlan en Hákon Leifsson leikur hinn fullorðna K:y
Munk. Meðal annarra leikara má nefna Sigrúnu Eiríksdóttur, Ingvar
Þórðarson, Erlu Einarsdóttur og Hrein Eiríksson.
Leikritið um Kaj Munk var fyrst
sett upp í Hallgrímskirkju árið 1987
og var þar sýnt 40 sinnum fyrir
fullu húsi.
Auður Bjarnadóttir listdansari
samdi nokkur dansspor fyrir sýn-
inguna í Hafnarkirkju í samráði við
höfund og leikstjóra. Verkið fjallar
um prestinn Kaj Munk sem lét lífið
fyrir sannfæringu sína.
Þegar hafa verið ákveðnar sex
sýningar á verkinu. 2. sýning verð-
ur þriðjudaginn 30. apríl, sú þriðja
miðvikudaginn 1. maí, sú fjórða
fimmtudaginn 2. maí.
Upplýsingar og miðapantanir eru
hjá Leikfélagi Hornafjarðar. Flug-
leiðir bjóða afsláttarfargjöld á sýn-
inguna.
Leikritið um Kaj Munk er sett
upp sameiginlega af aðilum innan
kirkjunnar og Leikfélagi Horna-
fjarðar. Þess má geta að Hafnar-
kirkja á 25 ára vígsluafmæli á þessu
ári.
Tuttugu ár liðin
frá því fyrstu
handritin komu
Handritin til sýnis í Árnastofnun um helgina
STOFNUN Árna Magnússonar
gengst um helgina fyrir sér-
stakri hátíðarsýningu á handrit-
unum sem komu fyrst heim frá
Danmörku fyrir tveimur ára-
tugum, Konungsbók Eddu-
kvæða og Flateyjarbók.
Sunnudaginn 21. apríl voru liðn-
ir tveir áratugir frá _ því fyrstu
handritin komu til íslands frá
Danmörku. Að því tilefni verður
sýning í Árnastofnun á morgun,
laugardag, og á sunnudaginn.
Sýningin verður opin frá klukkan
14 til klukkan 16 báða dagana.
Einnig verður opið miðvikudaginn
1. maí á sama tíma.
Það voru Konungsbók Eddu-
kvæða og Flateyjarbók sem fyrst
komu til landsins og verða þær
báðar til sýnis í Arnastofnun.
Einnig verða sýndir fleiri kjörgrip-
ir svo sem Skarðsbók Jónsbókar,
Skarðsbók postulasagna, Möðru-
vallabók og Stjóm.
Morgunblaðið/Júlíus
Jónas Kristjánsson og Sigurgeir
Steingrímsson glugga í Stjórn,
sem er frá miðri 14. öld.
Að sögn Jónasar Kristjánssonar
forstöðumanns Árnastofnunar, er
allur þorri handritanna kominn
heim, eða um 2.000 handrit. Ein-
hver eru eftir í Danmörku þar sem
verið er að gera við þau og sum
eru notuð þar við fræðistörf.
Jónas sagði að svokölluð Teikni-
bók væri eitt fárra handrita sem
enn væri í Danmörku sem kalla
mætti dýrmætt en unnið væri að
því að gefa hana út hér á landi í
vönduðu ljósriti.
. Teiknibókin er frá miðöldum og
í henni eru teikningar listamanna
sem þeir hafa síðan notað sem
fyrirmyndir að listaverkum. Þetta
er eina bókin sinnar tegundar sem
til er á Norðurlöndunum og í heim-
inum eru aðeins til 20-30 slíkar *
bækur.