Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.04.1991, Blaðsíða 30
' 30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991 Eyjafjarðarsveit: Ófremdarástand í rafmaffnsmálum Ytri-Tjörnum. AÐ SÖGN Jóns Eiríkssonar svínabónda í Arnarfelli í Eyjafjarðarsveit ríkir mikið ófremdarástand í rafmagnsmálum í fremsta hluta sveitarinn- ar, þar sem ekki er komið 3 fasa rafmagn. Einnig á þeim bæjum sem hafa 3 fasa rafmagn og eru næstir fyrrgreindu svæði. Þrátt fyrir að spennujafnari hafi verið settur upp af hálfu Rafmagnssveitna ríkisins hefur ástandið lítið lagast því mismunur á fösum hefur verið mikill, eða allt að 27 til 30 volt. Mótorar eru því endalaust að slá út og hafa jafnvel eyðilagst. Jón hefur orðið fyrir töluverðu tjóni og miklum óþægindum af þessum sök- um. Hann er með mjög fullkomna fóðurtölvu á svínabúinu sem er afar viðkvæm fyrir hvers konar spennu- breytingum. Tölvan hefur því stöð- ugt verið að bila og hefur Jón þurft að fá rafmagnstæknifræðing frá Reykjavík í hvert skipti og orðið að greiða þann kostnað úr eigin vasa. íbúar í þessum hluta Eyjafjarðar- sveitar eru mjög óhressir með þetta ástand og þykir þeim brýnt að lag- færa þetta hið bráðasta, en það verð- ur aðeins gert með því að ljúka lagn- ingu á 3 fasa rafmagni á öll býlin. Benjamin Slippstöðin: r Nýsmíðaskipið sjósett GÓÐ verkefnastaða er nú hjá Slippstöðinni hf. á Akureyri, en næg verkefni hafa verið í stöðinni frá því hafist var handa um smíði nýs skips fyrir OS hf. í Vestmannaeyjum. Sigurður Ringsted forstjóri Slipp- stöðvarinnar sagði að nokkur stór- verkefni væru framundan í sumar og fram á haust, en hvað verkefni nýliðins vetrar varðar hefði nýsmíða- verkefnið fyrir ÓS skipt sköpum. Nýsmíðaskipið, sem væntanlega mun taka við hlutverki aflaskipsins Þórunnar Sveinsdóttur VE, verður sjósett í næsta mánuði og er stefnt að því að afhenda það eigendum í júlí í sumar. Þá eru væntanlega nokkur skip í viðhald og endurbætur nú í vor, en stærsta verkefnið verður við Kald- bak EA, eitt skipa Útgerðarfélags Akureyringa. Kaldbakur verður tek- inn í slipp í júní, en m.a. á að endur- vinna togþilfar og vinnslusal, þá verður skipið einangrað að nýju og brúin endurnýjuð auk fleiri verkefna, en gert er ráð fyrir að skipið verði í slipp í 9 vikur. MYNDLISTASKÓLINN Á AKUREYRI Myndlistaskólinn á Akureyri auglýsir inntöku nýrra nemenda í fornámsdeild veturinn 1991- 1992. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu skólans, Kaupvangsstræti 16. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 96-24958. Umsóknarfrestur er til 25. maí. Skólastjóri. Morgunblaðið/Rúnar Þór Beðið eftirAndrési Andrésar andarleikanir á skíðum standa nú sem hæst á Akureyri. Rúmlega 700 keppendur eru á mótinu en keppni lýkur í dag. Hér kasta ungir skíðamenn mæðinni á meðan beðið er eftir næstu ferð. Kirkjulistaviku að ljúka: Nýtt íslenskt verk frum- flutt á ljóðatónleikum Hr. Sigurbjörn Einarsson biskup predikar í hátíðarmessu KIRKJULISTAVIKU lýkur á morgun, sunnudag, með hátíðar- messu í Akureyrarkirkju. Ljóðatónleikar verða í Safnaðarheimil- inu í dag, laugardag, á vegum Tónlistarfélags Akureyrar. Ljóðatónleikarnir hefjast kl. 17, en þar flytja Margrét Bóasdóttir, sópran, og Kristinn Öm Kristins- son, píanó, efnisskrá með íslensk- um og erlendum trúarljóðum. Á tónleikunum verður frumflutt verk eftir Jónas Tómasson tónskáld á ísafirði, sem sérstaklega var samið af þessu tilefni, en það er verkið „Páskar“, 3 biblíuljóð fyrir sópran og píanó. Margi'ét Bóasdóttir er yfirkennari við Tónlistarskólann á Akureyri þar sem hún kennir jafn- framt söng, hún stundaði söngnám við Tónlistarskóla Kópavogs og síðar framhaldsnám í Þýskalandi. Margrét hefur haldið fjölda ljóða- tónleika, hérlendis og erlendis og sungið einsöngshlutverk í mörgum Margrét Bóas- Kristinn Örn dóttir Kristinsson helstu kirkjulegu og veraldlegu verkum tónbókmenntanna. Kristinn Örn starfar sem skóla- stjóri Tónlistarskóla íslenská Suzukisambandsins, hann stundaði fyrst nám við Tónlistarskólann á Akureyri og síðar í Reykjavík, þá stundaði hann framhaldsnám í Bandaríkjunum og hefur að auki sótt fjölda námskeiða. Hann hefur tekið þátt í tónleikum vestan hafs og hér heima. Kirkjulistavikunni lýkur á morg- un með hátíðarmessu í Akureyrar- kirkju þar sem Hr. Sigurbjörn Ein- arsson biskup predikar og þeir sr. Þórhallur Höskuldsson og sr. Birg- ir Snæbjörnsson þjóna fyrir altari. í messunni verður flutt „Missa Brevis" í C-dúr kv. 259 eftir Moz- art í tilefni af 200 ára ártíð hans. Kór Akureyrarkirkju flytur ásamt félögum úr Kammerhljómsveit Akureyrar, en einsöngvarar eru Dagný Pétursson, sópran, Sigrún Arngrímsson, alt, Bryngeir Krist- insson, tenór, og Benedikt Sigurð- arson, bassi. Æskuást tíMbmritu Arthn* Heppiiedt tórnarlamb ásútgáfan Glerárgötu 28 - 600 Akureyri - Sími 96-24966 ALLT HEILAR SÖGUR Hörgárbraut-Undirhlíð: Lagt til að atvinnustarf- semi verði á lóðinni TILLAGA að breytingu á aðalskipulagi Akureyrar 1990-2010 hefur verið auglýst, en í henni felst að lóð á horni Hörgárbrautar og Undirhlíðar austan gatnamótanna verður tekin undir atvinnustarf- semi. í aðalskipulagi var gert ráð fyrir að umrætt svæði yrði opið svæði. Tillagan hangir uppi hjá Skipulagsdeild Akureyrarbæjar þar sem skila ber inn athugasemdum við breytingarnar, ef einhverjar eru. Svæðið allt er rúmlega 6.000 fermetrar að stærð, en samkvæmt tillögunni verður lóð fyrir atvinnu- starfsemi tæplega 3.400 fermetrar. Austan hennar og sunnan verður óbyggt svæði, eða útivistarsvæði, en þar verður grasflöt umgirt runna- og trjágróðri. Jafnframt er lagt til að landnýtingu á svæðinu norðan Undirhlíðar milli Langholts og Krossanesbrautar allt að íbúða- byggð við Miðholt verði breytt þannig að allt það svæði verði óbyggt svæði eða útivistarsvæði. Uppdráttur er sýnir breytingar- tillöguna og fleiri gögn málinu tengdu liggja frammi hjá Skipu- lagsdeild Akureyrar, í húsi hitaveit- unnar og þangað skulu athuga- semdir, ef einhveijar eru berast fyrir 14. júní næstkomandi. Tilefni þessara breytinga er um- sókn frá innflutnings- og þjónustu- fyrirtæki í bænum um lóð þessa, en reikna má með að umrædd lóð verði auglýst laus til umsóknar að lokinni umfjöllun í nefndum og ráð- um I bæjarkerfinu. Tillagan hefur verið kynnt á fundi með íbúum húsa umhverfis umrætt svæði, en íbúar við Stórholt höfðu ritað nöfn sín á lista þar sem breytingunum er mótmælt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.