Morgunblaðið - 27.04.1991, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991
STJORNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Vinátta hrútsins við einhvern
aðila er í hættu vegna peninga-
mála. Hann ætti ekki að vera
eins gagnrýninn og hann er á
nána samstarfsmenn.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Nautið rekur sig á hindrun í
starfi sínu í dag. Það ætti að
taka markmið sín til endur-
mats og fara varlega í umferð-
inni.
Tvíburar
(21. maí - 20. jún!)
Tvíburinn verður að forðast
að sýna fólki óbilgirni. Pening-
ar kunna að valda'spennu í
lífi hans í kvöld.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Krabbinn ætti að hyggja
grandgæfilega að smáatriðum
í starfi sínu i dag. Hann er í
viðkvæmara lagi um þessar
mundir og verður að gæta
þess að hafataumhald á skaps-
munum sínum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það eru tímamót í starfsævi
Ijónsins eða sambandi hans við
nána persónu. Það verður að
vanda orðaval sitt og fara var-
lega í umgengni sinni við
hættulegar vélar.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Meyjuna langar til að hætta í
miðju kafi við verkefni sem
hún hefur með höndum. Ein-
hver reynir umtalsvert á þolin-
mæði hennar með því að láta
hana bíða.
V°g *
(23. sept. - 22. október) Qflb
Ábyrgð vogarinnar liggur eins
og mara á henni í dag. Henni
reynist erfitt að komast að
samkomulagi við annað fólk.
Óþægilegt atvik kann að
henda á heimili hennar.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Sporðdrekinn hefur áhyggjur
af fjölskyldumálum í dag.
Hann verður að draga úr gagn-
rýni sinni á samstarfsfólk.
Honum væri einnig ráðlegt að
mæta maka sínum á miðri leið
í kvöld og forðast deilur.
Bogmaóur
(22. nóv. -21. desember) $)
Bogmaðurinn heidur aftur af
sér í starfi. Hann ætti að stefna
hátt og vera bjartsýnn.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Steingeitin verður að skipu-
leggja peningamál sín betur
og láta sér verða meira úr
tímanum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar)
Vatnsberinn er mjög stressað-
ur um þessar mundir en ætti
að forðast að láta það bitna á
öðrum. Smámunir verða
kveikjan að hörkurifrildi.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) —w
Fiskinum finnst að sér þrengt
núna. Hann ætti að hugsa
minna um það sem miður fer
í kringum hann, en horfa á
hitt sem er í góðu lagi. Hann
verður að vera fús að gera
málamiðlun ef þess gerist þörf.
Stj'órnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staóreynda.
DYRAGLENS
HVERSJ/G (//HZSb
nash/rningú&ih
GRETTIR
} 8ARA y
S PÍNÓLÍTlPl
TOMMI OG JENNI
LJOSKA
£N yNC>ISLEGU£t
/HORGUNH... FUGLA
SÖNGUR. OG
BL'AR.
FERDINAND
SMAFOLK
UNPREPARER UN0R6ANIZER
UN5ETTLEP, UMCERTAlN,
UN5URE, BUT AWAKE!
Ég er vakandi!!
Óundirbúin, óskipulögð, óákveðin,
óörugg, óviss, en vakandi!
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
í rúbertubrids opnar suður á
einu 12-14 punkta grandi. NS
eiga 60 í bút, svo norður passar
þótt hann eigi nóg í 3 grönd.
Norður
♦ Á10
¥KG4
♦ KG983
♦ 964
Austur
♦ 543 ,
♦ ÁD105
♦ 65
♦ ÁKD2
Það er freistandi fyrir austur
að dobla grandið, en minnugur
stöðunnar ákveður hann að
passa. Og hrósar sér í huganum
þegar blindur kemur upp. Ekki
skyggir það á ánægjuna að
makker hittir á gott útspil,
hjartaníu. Sagnhafi lætur gos-
ann úr blindum og austur fær á
drottninguna. Hvernig á hann
að haga vörninni?
Það eru nákvæmlega 13
punktar úti, svo makker getur
mest átt laufgosann. Tæknilega
rétta vörnin er að leggja niður
laufdrottningu og athuga hvort
makker getur kallað í litnum.
Geri hann það, er óhætt að spila
tvistinum næst. Vísi makker frá,
er rétt að taka alla efstu í laufi
í þeirri von að makker sé með
fjóriit. En Victor Mollo er meira
gefínn fyrir sálfræðilegar lausn-
ir. Hann hélt á spilum austurs
og skilaði lauftvistinum eld-
snöggt til baka í öðrum slag:
Norður ♦ Á10 ♦ KG4 ♦ KG983 ♦ 964
Vestur Austur
♦ 8762 ♦ 543
♦ 987 II ♦ ÁD105
♦ 742 ♦ 65
♦ 1075 Suður ♦ KDG9 ♦ 632 ♦ ÁD10 ♦ G83 ♦ ÁKD2
Suður svaf á verðinum, lét
lítið, og vörnin tók átta fyrstu
slagina!
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
í B-flokki, sem var einnig nokk-
uð öflugur, sigraði ungur þýzkur
alþjóðameistari, Christopher Lutz,
nokkuð óvænt með 6 v. af 9 mögu-
legum, en næstir komu landar
hans Vogt og Espig og gamla
kempan Efim Geller með 5 v.
Á alþjóðamótinu í Dortmund í
Þýzkalandi í vor kom þessi staða
upp í opna flokknum í viðureign
Þjóðveijanna Straeter, sem hafði
hvítt og átti leik, og Kummerow
(2.270).
Kxf7 20. Dc4+ - Kf8 21. De6!
og svartur gafst upp, því hvítur
hótar bæði 22. Hxd7 og 22. Be7+
og 21. - Re5 er auðvitað svarað
með 22. Hd8+. Úrslit í opna
flokknum urðu þessi: 1. Balashov
8 v. af 9 mögulegum, 2. Kupr-
eitschik Vh v. 3.-11. Dvoiris, Sher,
Swidler, allir sovézkir, Wl.
Schmidt og Gdanski, Póllandi,
Grivas, Grikklandi, Karolyi og
Berebora, Ungveijalandi, og
Lingnau, Þýzkalandi 7 v.