Morgunblaðið - 27.04.1991, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991
Minning:
Knstjón G. Guðmunds-
son frá Hellissandi
Fæddur 9. mars 1908
Dáinn 17. apríl 1991
Kristjón Guðni Guðmundsson frá
Hellissandi lést á Hrafnistu í
Reykjavík 17. apríl sl. 83 ára að
aldri. Hann verður jarðsunginn í
dag frá Ingjaldshólskirkju.
Kristjón fæddist í Berghól á Arn-
arstapa 9. mars 1908. Ólst hann
þar upp og einnig í Bárðarbúð á
Hellnum þar til að hann flytur með
foreldrum sínum og systkinum að
Görðum í Beruvík. Foreldrar hans
voru þau hjónin Ólöf Kristjánsdóttir
og Guðmundur Brynjólfsson.
Þegar á unga aldri gekk Kristjón
að þeirri vinnu sem í boði var, hvort
heldur var á landi eða á sjó. Það
var ekki um önnur störf að ræða.
Kristjón var mikill vinnuforkur.
Ósérhlífinn og duglegur að hverju
sem hann gekk. Strax í upphafi kom
sá ásetningur hans skýrt í ljós, að
skila af sér hveiju verki svo vel sem
hann var frekast maður til. Þessi
ásetningur hans fylgdi honum svo
ævina á enda.
Á þessum árum þurftu menn oft
að leita burt úr sinni heimabyggð
til þess að fá vinnu. Fór hann þá
bæði til Vestmannaeyja og Kefla-
víkur og stundaði hann þar sjó-
mennsku og fiskvinnslu. Einnig
stundaði hann sjómennsku frá Hell-
issandi.
Kristjón kvæntist eftirlifandi eig-
inkonu sinni, Siguijónu Danelíus-
dóttur 28. nóvember 1934. Sigur-
jóna er dóttir hjónanna Sveindísar
Hansdóttur og Danelíusar Sigurðs-
sonar, formanns og útgerðarmanns
á Hellissandi. Kristjón var á bát
með Danelíusi og kynntist hann þá
dóttur hans, Siguijónu og opinber-
uðu þau trúlofun sína á sjómanna-
daginn 1931. Var hún þá sautján
ára að aldri. Fluttist hún þá með
honum að Görðum í Beruvík og
bjuggu þar með foreldrum hans í
fimm ár. Kristjón keypti þá land í
Beruvík og reisti þar myndarhús.
Húsið var nefnt Nýjabúð og stóð
það alveg niður við sjó og var ekki
lengra niður að sjávarkambinum en
um það bil fimmtíu metrar og
heyrðust sjávargnýrinn vel inn í hús
þegar mikið brimaði. í Nýjubúð
stunduðu þau fjárbúskap og einnig
stundaði hann mikið sjóinn því stutt
var á fengsæl fiskimið og einnig
var þar mikill reki sem var mikil
búbót í þá daga.
Þau Kristjón og Siguijóna eign-
uðust eina dóttur er Fjóla hét en
hún lést á þriðja ári. Skömmu
seinna tóku þau litla stúlku í fóstur
en hún lést aðeins níu vikna göm-
ul. Árið 1942 tóku þau stúlkubarn
og nokkru síðar dreng að sér og
gengu þeim í foreldrastað. Þau eru:
Birna, gift Guðmundi Gíslasyni og
eiga þau fjórar dætur sem öll eru
búsett í Reykjavík; Grétar, kvæntur
Guðjónu Valdimarsdóttur og eiga
þau fimm börn, sem búsett eru í
Keflavík.
í Nýjubúð bjuggu þau hjónin til
ársins 1945 er þau fluttu að Ingj-
aldshóli i Neshreppi, að frátöldum
tveimur árum sem þau bjuggu á
Öndverðarnesi þar sem Kristjón var
vitavörður. Árið 1947 fluttust þau
hjónin frá Ingjaldshóli á Hellissand
og gerðist hann þar vörubifreiðar-
stjóri og tók hann einnig þátt í út-
gerð með Friðþjófi Guðmundssym
á Rifi. Einnig átti hann bátinn
Breiðfirðing ásamt fleirum. Árið
1965 flytja þau til Reykjavíkur
vegna veikinda Siguijónu. Kristjón
vann um tíma við Búrfellsvirkjun
við járnbindingar og einnig í
Reykjavík. Síðan gerðist hann vakt-
maður á Borgarsþítalanum og vann
þar í fimmtán ár en þá varð hann
að hætta störfum vegna aldurs.
Það var alveg sama hvar Kristjón
vann eða með hveijum alls staðar
var hann vinur og félagi og virtur
mjög bæði af ungum sem öldnum.
Hann sagði alltaf meiningu sína,
var fastur fyrir en særði samt eng-
ann.
Ég hef þekkt Kristjón frá því að
ég var ungur drengur og þótti mér
alltaf mikið til hans koma. Ég varð
þeirrar gæfu aðnjótandi að verða
tengdasonur hans og kynntist ég
þá því fyrst hvað hann var mikil
persóna, sannur vinur og félagi.
Við áttum saman svo ótalmargar
ánægjustundir þegar hann og Sig-
uijóna komu með okkur hjónunum
austur í sveit, þar sem við vorum
að byggja okkur sumarbústað. Allt-
af var Kristjón boðinn og búinn til
að koma og rétta mér hjálparhönd.
Og ekki má gleyma frístundun-
um. Á kvöldin sátum við og spiluð-
um við kertaljós. Þá var oft glatt á
hjalla og margt spaugilegt látið
fjúka. En upp á síðkastið fór ferðum
þeirra fækkandi en í hvert sinn
þegar við komum úr sveitinni spurði
hann alltaf hvernig var veðrið,
hvernig er gróðurinn, eru trén farin
að taka við sér eða hann sagði var
stormur í stormadal núna. Það var
oft stutt í grínið.
37
Ég mun ávallt sakna hans, en
minningin um mætan mann mun
ávallt lifa.
Ég bið algóðan guð að styrkja
Siguijónu konu hans og aðra að-
standendur.
Guðmundur S. Gíslason
Okkur langar í fáum orðum að
minnast elsku afa okkar, Kristjóns,
sem lést svo skyndilega 17. þessa
mánaðar. Það er erfitt að veijast
söknuðinum og sorginni þrátt fyrir
þá vissu að nú hafi hann öðlast
hvíld og eilífa sælu. Afi var elsku-
legur og góður maður og þegar við
komum í heimsókn vildi hann ætíð
fá að heyra fréttir úr Keflavíkinni
og hvernig allt gengi. Hann var
alltaf hress og kátur og minnumst
við þess sérstaklega á áttræðis af-
mæli hans fyrir þremur árum. Þá
dansaði hann um allt og var hrókur
alls fagnaðar.
Sárt er að hugsa til þess að fá
aldrei að sjá afa aftur en minningin
um hann mun þó alltaf búa í hjört-
um okkar. Og það er gott að vita
til þess að hann er í góðum höndum
hjá guði.
Elsku amma, Guð gefi þér styrk
í sorginni því missir þinn er mestur.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Gréta Grétarsdóttir og
Kristjón Grétarsson,
Keflavík.
Minning:
Anna S. Magnúsdótt-
ir Vestmannaeyjum
Fædd 24. febrúar 1913
Dáin 20. apríl 1991
í dag fer fram frá Landakirkju
í Vestmannaeyjum útför ömmu
minnar, Önnu Magnúsdóttur, sem
varð bráðkvödd laugardaginn 20.
apríl. Þótt amma hafi átt við hejlsu-
leysi að stríða í mörg ár þá brá
mér mjög er mamma tilkynnti mér
lát hennar. Maður er aldrei viðbúinn
dauðanum þegar hann kemur. Hún
amma hét fullu nafni Anna Sigrid
Magnúsdóttir. Hún fæddist 24.
febrúar 1913 hér í Vestmannaeyj-
um. Foreldrar hennar voru Margrét
Bjarnadóttir og Magnús Þórðarson.
Hér í Eyjum ólst amma upp hjá
móður sinni og bræðrum við leik
og störf. Snemma tók alvara lífsins
við eins og algengt var á þeim árum.
Skólaganga var stutt. Svo tók skóli
lífsins við sem oft er ekki verri en
annar skóli. Ung fór amma í vist
til Reykjavíkur. Það þótti á við góð-
an húsmæðraskóla að þéna á góðu
heimili. í Reykjavík giftist amma
Marteini Péturssyni og eignuðust
þau tvo syni, Pétur Lúðvík og Karl
Gunnar. Þau slitu samvistir.
Síðan giftist amma afa mínum
Sigurði Gissurarsyni og saman
eignuðust þau tvö börn, Þórarin og
Margréti. Heimili afa og ömmu var
alltaf í Vestmannaeyjum lengst af
á Birkihlíð 26, nú síðustu ár á
Kirkjuvegi 59. Ég var svo heppinn
að eiga heima í kjallaranum hjá afa
og ömmu fýrstu árin og gegnum
tíðina hef ég verið mikið hjá þeim.
Það var alltaf tilhlökkun að fá að
gista hjá ömmu og afa á Birkjó og
gæða sér á kaffi og kringlu sem
þótti alveg sjálfsagt, þó maður
væri ekki hár í loftinu. Hún amma
var einstök kona, sem vann verk
sín í hljóði og þótt heilsan væri lé-
ieg kvartaði hún aldrei, hafði það
alltaf ágætt og sagði að þetta væri
allt að koma.
Eftir að amma var orðin heilsulít-
il stóð afi eins og klettur við hlið
hennar, hafði hana heima og hugs-
aði aðdáunarlega vel um hana og
eru afa færðar innilegar þakkir fyr-
ir allt. Það verður tómlegt að koma
á Kirkjuveginn og hitta ekki ömmu
oftar en svona er lífið.
Ég og Dísa systir mín kveðjum
ástkæra ömmu okkar, sem var okk-
ur svo góð og biðjum henni guðs
blessunar á nýjum vegum. Einnig
kveðja mamma og pabbi ömmu og
þakka henni allt sem hún gerði fyr-
ir þau. Elsku afi, missir þinn er
mikill en eins og amma sagði svo
oft bá er íIpiiAinn oVlíi vprst.ur.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
Sigurður Kristján
Hún mamma, Anna Sigrid Magn-
úsdóttir, svo undarlegur hljómur og
hispurslaus og á einu augabragði
er sem tilveran öll stöðvist og öll
undur okkar ævintýralegu jarðar
kristallast í minningunni um þá
móður sem bjó yfir þeirri mildi og
þeim mætti að hvorki válynd veður
né vond tíðindi gátu skyggt þar á,
Mamma, þetta lykilorð í lífi allra
jarðar barna, þetta alþjóðlega orð
sem á þó við um aðeins eina per-
sónu í hvert eitt sinn í mannheim-
um. Mamma, veröldin sem bams-
sálin byggir á drauma sína og þrár
á hversdagsveginum. Móðurástin
sem er óháð tíma og rúmi svo lengi
sem lifir, móðurástin sem eldist
ekki frekar en eilífðin og hefur
sama tón við hjartarætur hvort sem
barnið er í bernsku eða með ára-
tugi að baki.
Hún mamma var ein af þessum
venjulegu Eyjakonum, hjartahlý að
upplagi, en gat verið stóryrt og
talað tæpitungulaust ef því var að
skipta. Það brimaði stundum skart
hjá henni, en slétti jafnharðan,
reynslan hafði kennt henni að það
var tímasóun að standa í óveðri að
ástæðulausu ef tilefnið var ekkert
meira en hversdagslegur hégómi.
Anna Sigrid Magnúsdóttir var
nafnið hennar mömmu, fædd 24.
febrúar árið 1913. Hún ólst upp í
barnahóp hjá einstæðri móður þar
sem ekkert var til nema ástúð og
vilji til þess að koma börnunum til
manns. Móðir hennar vann við skúr-
ingar og alla vinnu sem til féll til
þess verkefnis sem hún ætlaði sér
að skila og uppeldið var markvisst
og kröfuhart, enda bjó mamma að
því alla tíð með reglusemi sinni og
aðhaldi til handa okkur systkinun-
um. Alla tíð var hún á vaktinni ef
maður gerði eitthvað af sér sem
henni fannst ámælisvert og víst var
það ósjaldan hvort sem maður hugs-
ar til fyrstu stunda sem maður man
eftir sér að síðustu daga ævi henn-
ar. Hún hreinlega tuktaði mann til
og krafðist þess að maður færi vel
með h'fið og mæti hve yndislegt það
væri. Á yngri árunum var hún enda-
laust tilbúin til þess að taka þátt í
vnnHamálnm hamanna sinna. taka
þátt í að leysa þau, þessi stórmál
sem upp komu í veröld barnsins sem
á svo takmarkaða skólun að baki í
lífsins leik. Við vorum fjögur systk-
inin sem nutum þeirrar veraldar
sem hún skóp og varði. Hún lifði
og hrærðist í lífinu í Eyjum og var
eins og aðrar sjómannskonur, bæði
húsráðandi og húsbóndi þar sem
pabbi var á sjónum. Hún fékk ver-
tíðarhýruna á vorin hjá pabba okk-
ar, Sigurði Gissurarsyni og varð að
spila úr henni. Það var hennar hlut-
skipti fremur en pabba að kenna
okkur að ríma við seltuna sem býr
í blóði Eyjanna, seltuna sem skýrði
svo margt mikilúðlegt og litskrúð-
ugt í fari pabba og annarra sem
okkur þykir vænt um.
Mamma og pabbi voru mjög sam-
rýnd, hún stjanaði við hann framan
af, en í veikindum hennar á síðustu
árum snerist blaðið við og Siggi
Giss. sýndi á sér nýja hlið, næm-
leika, blíðu og hlýju sem hann hafði
svo sem ekkert verið að flagga sér-
staklega hvorki í tíma né ótíma
þótt við fyndum ávallt fyrir trausti
hans og festu og bakhjarli í handa
Heimakletts. Vinarþel hans gaf
möinmu mikið í veikindum hennar.
Og nú er hún mamma dáin
Drottni sínum til móður miklu. í
hjarta okkar er hvort tveggja í senn
sár söknuður og sæt minning, því
svo lengi lifir sem leiftrar í hug og
hjarta og lifándi minning um svo
mæta móður er veganesti sem aldr-
ei svíkur. Megi góður Guð vernda
hana og blessa eins og hún bar
börnin sín fyrir bijósti.
Fyrir hönd okkar systkinanna,
Þórarinn
Nýja DAS-húsið er til sýnis nú um áramótin
itilefni af nýju happdrættisári sýnum við 15 milljón króna
DAS-hús við Aflagranda 25 í Vesturbænum í Reykjavík í
dag milli kl. 13 og 19. Allir velkomnir.
-þar sem vinningamir fást