Morgunblaðið - 27.04.1991, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. APRIL 1991
39
Minning:
Jónas B.
bergsson
Fæddur 31. ágúst 1943
Dáinn 16. apríl 1991
í gær var til moldar borinn á
Höfn í Hornafirði, Jónas Björgvin
Sigurbergsson verktaki, látinn
langt fyrir aldur fram. Hann var
fæddur að Svínafelli í Hornafirði,
en þar-bjuggu foreldrar hans, Sig-
urbergur Arnason og Þóra Guð-
mundsdóttir. Sigurbergur er látinn
fyrir nokkrum árum, en Þóra er enn
á lífi og býr hjá syni sínum í Svína-
felli.
Jónas var áttundi í röðinni af tíu
börnum þeirra hjóna og sá fyrsti
sem kveður.
Að Jónasi stóðu traustir stofnar.
Faðir hans Sigurbergur var dóttur-
sonur Jónasar „grjótgarðs" sem var
kunnur vegghleðslumaður á síðustu
öld, og sjást enn verk hans. Þóra
móðir Jónasar Björgvins var dóttir
eins af kunnustu framkvæmda-
mönnum Austur-Skaftfellinga,
Guðmundar Hoffells, sem ásamt því
að búa í Hoffelli, stundaði fiskiklak,
silfurbergsvinnslu og koparnám,
svo nokkuð sé nefnt.
Jónas Björgvin átti því ekki langt
að sækja hagleik og framkvæmda-
gleði, en hvort tveggja hafði hann
í ríkum mæli.
Svínafell í Hornafirði er nú lík-
lega eini bær á íslandi sem er
umlukinn óbrúuðum jökulvötnum,
sem oft verða ófær yfirferðar. Jón-
as lærði snemma ásamt systkinum
sínum að þekkja þessi straumvötn,
og háttu þeirra, og kom það sér
oft vel síðar við margvísleg störf
að flutningum og vegagerð.
Ekki mun Jónas hafa lagt upp í
lífsbaráttuna með mikinn auð milli
handa, og ekki hægt að segja að
hann væri fæddur með silfurskeið
í munni, en hann braust áfram og
byijaði snemma að aka vörubifreið-
um, fyrst í vöruflutningum hjá Gísla
bróður sínum, en síðar á eigin bíl.
1974 keypti hann sér fyrstu
mokstursvélina, og var það upphaf-
ið að starfi hans sem verktaki, en
hann tók nú að sér í auknum mæli
ýmis verk, og áður en lauk var
hann einn stærsti verktaki á Aust-
urlandi og eru nú ófáir kílómetrar
af uppbyggðum vegum, með
bundnu slitlagi minnisvarði um at-
hafnamann sem skilaði miklu verki,.
þrátt fyrir skamma ævi.
Óhætt er að segja, að það hafi
ekki verið að skapi Jónasar að gef-
ast upp, þó móti blési, og oft kom
verklagni hans og ósérhlífni, því
fram sem aðrir töldu ógerlegt, og
aldrei held ég að hann hafi ætlað
öðrum að vinna það verk sem hann
var ekki tilbúinn að ganga í sjálfur.
Jonas var mikill einstaklings-
hyggjumaður, sem vildi hafa frelsi
til athafna, en jafnframt veit ég að
hann hafði samúð með og rétti oft
hjálparhönd þeim sem undir urðu í
lífsbaráttunni. Þessu flíkaði hann
ekki, og vildi ekki að haft væri á
orði, en hann var vinur vina sinna
í raun, og þegar ég lít yfir þessi
26 ár sem við þekktumst, þá er
mér efst í huga að þrátt fyrir að
stundum kæmi til skoðanaskipti á
milli okkar og eigi alltaf verið sam-
mála þá varð það okkur ekki til
vinslita, og ég tel það mér til tekna
að hafa átt þess kost að verða Jón-
asi samferða um stund á lífsleiðinni.
Við Kolbrún vottum eftirlifandi
eiginkonu Jónasar, Auði Magnús-
dóttur, og litlu dótturinni Svövu,
alla samúð okkar, svo og móður
hans og systkinum, og óskum þeim
alls hins besta um ókomin ár.
_ Björn Ólafsson
Það falla eikur þótt ungar séu.
A þessa leið hugsaði ég þegar ég
frétti lát frænda míns, Jónasar frá
Svínafelli. Ekki þannig að skilja að
fréttin væri mér óvænt því um
nokkurt skeið hafði Jónas háð harða
baráttu við þann illvíga sjúkdóm
sem nú hefur sigrað.
Sigur-
verktaki
Jónas var fæddur að Svínafelli í
Hornafirði 31. ágúst árið 1943,
sonur hjónanna Sigurbergs Árna-
sonar og Þóru Guðmundsdóttur er
þar bjuggu. Var Jónas þriðji yngst-
ur tíu systkina sem áttu sín
bernsku- og þroskaspor í Svínafelli.
Náttúrufarslegar aðstæður í
Svínafelli eru afar sérstæðar. Horn-
afjarðarfljót eiga upptök undan
jöklunum sem að baki eru, falla
síðan sitt á hvora hönd Svínafells
én sameinast á leið sinni til sjávar.
Fyrrum voru þau býli til sveita, sem
þannig voru sett, talin afskekkt.
Svo var þó ekki um Svínafell sem
í raun var í þjóðbraut. Atorka og
dugnaður fólksins í Svínafelli átti
stóran hlut í að ijúfa þessa einangr-
un en af því leiddi að Svínafell var
áningarstaður margra þeirra er
þarna áttu leið um. En auðvitað
setti þetta umhverfi mark sitt á lífs-
mátann í Svínafelli. Það kostaði
mikið starf og langan vinnudag að
halda þessu mannmarga heimili í
góðu horfi enda atorkan hjá hús-
bændunum þar fátíð, að ekki sé
meira'sagt.
Þetta var umhverfið sem fóstraði
frændfólkið í Svínafelli, mótaði líf-
sviðhorf þess og áræði og hefur
áreiðanlega reynst dijúgur aflgjafi
þegar á hefur reynt. Það er eins
og mér finnist stundum að þetta
sérstæða umhverfi og náttúrufar í
Svínafelli sé stef í lífi fólksins sem
þar á uppruna sinn og rætur.
Ef til vill hefur það verið á upp-
vaxtarárum Jónasar sem Svína-
fellsheimilið átti sitt mesta blóm'a-
skeið. Eldri systkinin enn að mestu
heima og því vel liðað til bústarfa.
Jónas hleypti því heimdraganum
fljótlega eftir fermingu. í fyrstu
hélt hann austur á Norðfjörð þar
sem hann var við sveitastörf sumar-
langt. Næst lá leiðin norður í Skag-
afjörð þar sem hann aðstoðaði Sig-
uijón, bróður sinn, við byggingu á
íbúðarhúsi.
Á þessum árum voru miklar
framkvæmdir í Hornafirði. Við það
jókst þörfin á margháttuðum tækja-
búnaði svo verk gengju vel fram.
Hér var því ákjósanlegur vettvang-
ur fyrir unga menn að taka sér
fyrir hendur vörubifreiðaakstur.
Jónas nýtti sér þessar aðstæður til
kaupa á vörubifreið og þar með var
lífsstarf hans ráðið. Þessi störf fór-
ust Jónasi vel úr hendi. Það réðst
af frábærri verklægni hans, vinnu-
semi og dugnaði við hvert það starf
er hann tók sér fyrir hendur. Þegar
til þess kom að farið var að bjóða
út opinberar framkvæmdir í vax-
andi mæli haslaði Jónas sér völl á
þeim vettvangi. Jókst þá fljótlega
tækjabúnaður hans er auðveldaði
samkeppni í verktakastarfsemi.
Þau störf sem Jónas tók sér
þannig fyrir hendur voru hin fjöl-
breytilegustu, þótt þar hafi trúlega
vegaframkvæmdir verið stærsti
þátturinn. Hann fékkst einnig við
línulagnir auk ýmissa minni verk-
efna er tengdust m.a. byggingar-
framkvæmdum. Af þessum störfum
var Jónas orðinn virtur verktaki er
naut trausts fyrir trúverðugheit í
viðskiptum og nákvæm vinnubrögð.
Þrátt fyrir að starfsvettvangur
Jónasar væri ekki í Svínafelli hafði
hann þar heimilisfesti til þrítugs en
upp úr því breytast hagir hans. Um
þær mundir ólst upp að Svínafelli
í Öræfum einstaklega fallegur
systrahópur. Tókust nú kynni með
einni þessara systra, Auði Lóu
Magnúsdóttur, og Jónasi. Reistu
þau heimili sitt á Höfn í fremur litlu
húsnæði en brátt var tekið til við
byggingu vandaðs íbúðarhúss þar
sem heimili þeirra hefur síðan stað-
ið. Svo var það hinn 15. apríl 1985
sem sá mikli gleðidagur rann upp
að þau Jónas og Auður Lóa eignuð-
ust dótturina Svövu Mjöll sem færði
líf og fjör inn á heimilið.
Jónas var meðalmaður á hæð,
vel vaxinn með karlmannlegu yfir-
bragði. Hann var í hópi duglegustu
manna, greiðvikinn og verklaginn
svo orð fór af. Lundarfarið var stór-
brotið. Á góðri stund í vinahópi var
Jónas jafnan glaðsinna og góður
félagi. Hann var traustur heimilis-
faðir og hélt heimili sínu í góðu
horfi.
Á kveðjustund er vissulega til
margra að horfa. Systkinahópurinn
í Svínafelli er stór og niðjarnir
margir, náinn frændgarður enn
stærri. Það hefur verið mikið lífslán
yfir þeirri stóru fjölskyldu sem Jón-
as átti uppruna sinn í. Ég hygg að
hann sé einn sá fyrsti sem fellur
þeirra er fullorðinsárum hafa náð.
Það eru þó öðrum fremur konurn-
ar þijár sem hugurinn dvelur nú
hjá. Móðirin sem nú fylgir einu
barna sinna hinstu sporin. Það er
mikið lífssvið sem þessi aldna heið-
urskona horfir nú yfir, allt frá því
er hún sá lífið vakna og dafna inni
í Svínafelli til þeirra þungu spora
sem nú eru gengin.
Það hafa vissulega verið erfiðir
tímar sem Auður Lóa hefur mætt
að undanförnu. Þess verður lengi
minnst og seint að fullu þakkað
hvernig hún hefur hlúð að bónda
sínum í erfiðum veikindum hans.
Og vissulega er það mikil huggun
harmi gegn að enn er við hlið henn-
ar dásamlegur félagi, dóttirin Svava
Mjöll.
Það býr í eðli þessarar þjóðar að
vonir vakna með vori. Þannig bið
ég að einnig megi verða í hugum
þeirra sem nú kveðja Jónas frá
Svínafelli. Að hækkandi sól víki
skuggum sorgarinnar til hliðar svo
að minningin um góðan dreng megi
brátt varðveitast í gleði en ekki
SOl'g.
Egill Jónsson
í þann mund sem sumarið heils-
ar, kveðjum við góðan dreng. En
eitt sinn verða allir menn að deyja,
eftir bjartan daginn kemur nótt.
Fram í hugann koma ljúfar minn-
ingar um Jónas Björgvin föðurbróð-
ur. Alltaf var beðið með mikilli eftir-
væntingu þegar hann var væntan-
legur suður til Reykjavíkur. Hvað
skyldi hann ætla að flytja á risa-
stóra vörubílnum núna? Bíla, jarð-
ýtu, hús eða flugvél? Þetta var
spennandi heimur í augum frænd-
systkinanna og ekki urðum við fyr-
ir vonbrigðum þegar Jónas birtist,
hress að vanda og til í að svara
ótal spurningum forvitinna systk-
ina.
Að alast upp á milli jökulfljóta
hefur vafalaust áhrif á menn og
Jónas hafði einkenni fjölskyldunn-
ar, handlagni, þrautseigju — og
þijósku. Með það veganesti og vinn-
ugleði tókst Jónasi að komast áfram
og byggja upp sitt eigið fyrirtæki
fyrir austan. En lítils virði er allt
heimsins pijál ef þú átt engan vin
og svo sannarlega átti Jónas góðan
vin, sem var Auður Lóa. Betri eigin-
konu getur enginn hugsað sér í tæp
tuttugu ár stóð hún við hlið hans
í blíðu og stríðu og átti ekki síður
stóran þátt í velgengni þeirra og
myndarlegu heimili. Þann 15. apríl
1985, rættist langþráður draumur
þeirra, þegar Svafa Mjöll fæddist.
Síðasta ár hefur sýnt hve sam-
heldin fjölskyldan var. Það er ekki
auðvelt fyrir unga- sál að skilja til-
gang lífsins hvað þá fyrir okkur hin
sem eldri erum.
Gott er góðan heim að sækja,
og á það svo sannarlega við fjöl-
skylduna að Hólabraut 16.
Við, og foreldrar okkar, biðjum
góðan Guð að styrkja þær mæðgur
og ömmu Þóru, sem fylgir nú sínum
yngsta syni siðasta spölinn, svo og
öllum þeim sem Jónas þekktu.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deir aldregi
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Hannes Árnason, Þóra, Sig-
ríður Klara og Berglind Heiða
Árnadætur.
Okkur langar að minnast góðs
vinar okkar, Jónasar Björgvins Sig-
urbergssonar, sem lést á Land-
spítalanum 16. apríl sl., eftir mjög
erfiða sjúkdómslegu, aðeins 47 ára
að aldri.
Jónas fæddist í Svínafelli í Nesj-
um 31. ágúst 1943. Foreldrar hans
voru Sigurbergur Árnason og Þóra
Guðmundsdóttir og var hann 8. í
röðinni af 10 börnum þeirra hjóna.
Eldri systkini hans eru þau Sigur-
jón, Árni, Gísli, Arnbjörn, Guð-
mundur, Sigurbjörg og Valgerður
en yngri Gróa og Sigríður. Jónas
ólst upp á Svínafelli, bænum á milli
fljóta, og markaði hið stórbrotna
landslag eflaust djúp spor í ævi
hans.
Árið 1972 kom hinn tryggi
lífsförunautur Auður Lóa Magnús-
dóttir frá Svínafelli í Öræfum inn
í líf Jónasar og var hún sá klettur
sem stóð við hlið hans uns yfir lauk.
Árið 1985 fæddist litli sólargeislinn,
Svava Mjöll og var hún mikill fé-
lagi föður sínum og gagnkvæmt.
Hún var ekki há í loftinu þegar hún
fór að fylgja pabba sfnum í vörubíln-
um.
Jónas var margra manna maki.
Þrek hans var ótrúlegt. Hann var
drengur góður, hreinskiptinn og
með afbrigðum traustur. Allt stóð
sem stafur á bók í samskiptum við
hann og til þess sama ætlaðist hann
af öðrum. Hann var vinur vina sinna
í raun. Dulur var hann, en þegar
komið var inn fyrir skelina kom
hlýja hans og kímnigáfa í ljós.
Okkar aðaláhugamál voru bílar
og vinnuvélar og var oft mikið rætt
um það, sérstaklega í öllum okkar
utanlandsferðum, þegar við gátum
skilið áhyggjurnar eftir heima. Þá
sagði hann mér margar sögur jafn
skondnar sem alvarlegar frá sínum
yngri árum.
Síðasta ferð okkar erlendis í
mars 1990, var ákaflega eftirminni-
leg.
Þá fórum við öll fjögur saman
til Berlínar og er okkur sú ferð enn
í fersku minni. Þó svo að Jónas
væri þá orðinn mikið veikur kveink-
aði hann sér aldrei.
Síðastliðið haust komumst við á
æskuslóðir Jónasar í fyrsta skipti
pg með hann sem leiðsögumann.
Öll veikindi gleymdust þessa stund,
í ægifögru og stórbrotnu umhverfi
jökla, fljóta og fjalla, undir frásagn-
arlist hans.
Elsku Auður Lóa og Svava Mjöll.
Við biðjum góðan Guð að styrkja
ykkur og blessa.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi.
Hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Helmuth og Guðný
Hvað er
Armaflex
Á góðu verði
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
Þ. ÞORGRÍMSSON & C0
Ármúla 29 - Múlatorgi - Simi 38640
og traust.
MONGOOSE hefur unni6
fleiri torfærukeppnir í
Bandaríkjunum\en nokkurt
annað hjól.
Regluleg sko&un og stilling
ón endurgjalds.
OPIÐ LAUGARDAGA 1000 - 1600
CA?
G.Á. Pétursson hf
Nútfðinni Faxafeni 14, simi 68 55 80
RaðgreiAslur
FJALLAHJOL
EKKI BARA TIL FJALLA